Dagur - 04.11.1998, Page 13
X^ur
n-jnjísvíi'í . i. nu ,111 (i i! n n n ' m _ ?J I-
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVRMBER 199 8 - 13
ÍÞRÓTTIR
Hér ræður skynsemin
Þeir brædur Þórður,
Bjami og Jdhannes
Karl Guðjdnssynir frá
Akranesi, eru allir
komnir á samning hjá
helgíska úrvalsdeildar-
liðinu Genk. Það hlýt-
ur að vera einsdæmi að
þrír bræður leiki með
einu og sama liðinu í
efstu deild knattspym-
unnar, hvað þá í einni
af sterkari deildum
Evrdpu.
Bjarni Guðjónsson knattspyrnu-
maður, sem síðustu tvö árin hef-
ur verið í herbúðum úrvalsdeild-
arliðsins Newcastle á Englandi
gerði á sunnudaginn fimm ára
samning við belgíska úrvalsdeild-
arliðið Genk. Fyrir hjá liðinu
voru tveir bræður Bjarna, þeir
Þórður og Jóhannes Karl, en
Þórður sem kom til liðsins fyrir
um það bil tveimur árum frá
Bockum í Þýskalandi, hefur ver-
ið einn af lykilmönnum liðsins.
Jóhannes, sem er 18 ára, kom til
liðsins í sumar og hefur hann
þegar leikið íjóra leiki með aðal-
liðinu og hefur verið fastamaður
í leikmannahópi Genk það sem
af er keppnistímabilinu.
Bjarni samdi til fimm ára
Bjarni sem kom alkominn til
Genk í fyrrakvöld, gerði fimm
ára samning við félagið og var
kaupverðið 125.000 ensk pund,
eða um 14,5 milljónir íslenskra
króna. Samningurinn felur
einnig í sér að Newcastle fái 25%
af söluverði ef Bjarni verður
seldur frá Genk á samningstím-
anum.
Hjá Newcastle hefur verið
hálfgert upplausnarástand síðan
Bjarni kom til félagsins fyrir um
Þórður Guðjónsson.
það bil tveimur árum, en Kevin
Keagan, sem keypti Bjarna, fór
frá félaginu aðeins nokkrum vik-
um eftir kaupin. Þá tók Kenny
Dalglish við Iiðinu og nú er
Gullit tekinn við eftir að Dalgl-
ish var Iátinn hætta núna í
haust.
Gott fyrir Bjama að losna
Þórður Guðjónsson, bróðir
Bjarna, sagði í samtali við Dag
að það hafi verið mjög gott fyrir
Bjarna að Iosna frá Newcastle.
„Þetta er búið er vera eintómt
basl síðan hann kom til félagsins
og hann sá enga framtíð íyrir sér
þar. Stöðugar áherslubreytingar
voru hjá félaginu með nýjum
mönnum og óþægilegt óvissu-
ástand var hjá Bjarna innan um
stóran hóp atvinnumanna,"
sagði Þórður.
Aðspurður um það hvort hann
hafi beitt sér fyrir því að Bjarni
kæmi til Genk, sagði Þórður að
vissulega hafi hann gert það.
„Þegar ljóst var að hreinsanir
stæðu til hjá Newcastle, hafði ég
samband við þjálfara Genk og
benti honum á Bjarna. Hann var
strax tilbúinn að skoða málið og
eftir að hafa fylgst með honum,
var hann ákveðinn í að fá hann
til liðsins."
- Hvað eeturðu saet okkur um
Genk?
„Knattspyrnufélagið KBC
Genk er frá samnefndri borg við
Iandamæri Hollands, með um
Bjarni Guðjónsson.
65.000 íbúa. Það varð til úr sam-
einingu tveggja félaga, sem voru
Watershei og Winterslag. Þessi
Iið voru þekkt heima þar sem
Lárus Guðmundsson var hjá
Watershei um tíma og þeir
Ragnar Margeirsson og Guð-
mundur Torfason spiluðu báðir
hjá Winterslag. Þessi tv'ö lið voru
síðan sameinuð og Guðmundur
Torfason lék einmitt með Genk
fyrstu þrjá mánuðina, áður en
hann flutti sig um set.“
Bjami styrkir hópinn
- Eru kxiupin á Bjarna liður í
frekari uppbyggingu liðsins og
verður erfitt fyrir hann að komast
í liðið?
„Eg tel að við séum með mjög
gott lið og sextán manna hópur-
inn er skipaður mjög sterkum
einstaklingum. Helsti vandinn
hefur þó verið breiddin, en það
hefur sem betur fer verið að
breytast núna. Kaupin á Bjarna
munu styrkja hópinn verulega.
Hann þarf þó að keppa við mjög
sterka leikmenn um stöðu í lið-
inu og hann þarf örugglega að
hafa mikið fyrir því. Hann er til
dæmis að keppa við markahæsta
leikmann Belgíu frá því í fyrra,
sem er Króatinn Branco Strubar.
Hann var í 28-manna landsliðs-
hóp Króata fyrir HM, en datt út
fyrir keppnina. Honum hefur þó
ekki gengið eins vel í vetur, en er
þó alltaf eitthvað að skora. Hinn
framherjinn hjá okkur er ennþá
Jóhannes Karl Guðjónsson.
sterkari, en það er Guineamað-
urinn Ulari. Hann er algjör
„köggull" og er nú þriðji marka-
hæsti leikmaðurinn í belgfsku
deildinni."
- Ertu ánægður með stjóm fé-
lagsins?
„Félaginu er mjög vel stjórnað
og hér ræður skynsemin. Menn
eru ekkert að fara út f einhverja
vitleysu og gott aðhald er á öllum
hlutum. Það er mikil gróska hjá
félaginu og þeim hefur á síðustu
tv'eimur árum tekist að þrefalda
ársveltuna og reikna með að tvö-
falda þá stöðu aftur á næsta ári.
Félagið er nú að reisa nýjan leik-
vang, sem tekur um 20.000
manns í sæti, svo segja má að
heilmikið sé að gerast. Leikvang-
urinn sem \dð leikum á í dag er
kominn nokkuð til ára sinna og
tekur 17.000 manns, en aðeins
5000 manns í sæti. Þetta er þó
mjög góður heimavöllur og hér
er Iangbesta stemmningin í allri
Belgíu og nær alltaf uppselt á
Ieiki.“
Leikuni heimaleikina í
Brussel
- Nú þutfið þið eflaust stærri
völl í Evrópuleikjunum. Hvemig
eru þau mál leyst?
„Þar sem völlurinn rúmar að-
eins 5000 manns í sæti höfum
við þurft að leika Evrópuleikina í
Brussel og það hefur einmitt
rekið á eftir því að nýr völlur væri
byggður.
Stuðningsmennirnir hafa
meira og minna verið keyrðir í
rútum til Brussel, sem er í um
100 km Ijarlægð frá Genk. Þetta
var ansi skrautlegt í síðasta leik,
en þá mættu um 27.000 stuðn-
ingsmenn á leikinn í Brussel. Það
þurfti því nokkuð margar rútur í
þessa flutninga og því stanslaus
bílalest á milli staðanna."
- Hvernig er stemmningin hjá
ykkur á heimaleikjunum?
„Stemmningin er geysilega
góð. Fólk mætir mjög tímanlega
á Ieikina og segja má að allur
dagurinn fari í þetta. Hér er fólk
ekkert að flýta sér heim eftir leild
og mjög algengt er að það setjist
inn á félagspöbbana hér í ná-
grenninu og fylgist með blaða-
mannafundum, sem sýndir eru
beint á sjónvarpsskjám.“
- Vekur það ekki mikla athygli í
Belgíu að þið þrír bræðumir eruð
komnir hingað til sama liðsins?
„Það er auðvitað mjög sérstakt
að þrír bræður skuli vera að Ieika
með sama Iiðinu og örugglega
einsdæmi. Það hefur verið fjall-
að mikið um þetta hérna í Belg-
íu.“
Á leið til Mallorka
- Ertu alveg húinn að ná þér
eftir meiðslin í Rússaleiknum og
hvenær áttu von á því að byrja að
spila aftur?
„Eg er nokkurn veginn búinn
að ná mér og er að komast í gang
aftur. Eg missti af mjög mikil-
vægum leikjum í meiðslunum,
en það voru tveir deildarleikir,
einn í bikarnum og svo leikurinn
gegn Mallorka í Evrópukeppn-
inni. Við erum nú á leiðinni í úti-
leikinn gegn Mallorka og ég vona
að ég geti leikið þann leik,“ sagði
Þórður.
Það verður spennandi að fylgj-
ast með því á næstunni hvort
þeir bræður nái því að leika allir
þrír samtímis með Genk, en ef-
íaust verður baráttan um sætin
hörð, hjá einu besta liði belgísku
úrvalsdeildarinnar, sem nú skip-
ar þar 1. sætið.
ÍÞRÓTTA VIÐ TALIÐ
Breyta þarf keppnisfyrirkomulagiiiu
EinarMár
Guðmundsson
stjómarmaður hjá Þór á
Akureyri
Keppnisfyrírkomulagið í
bikarkeppni HSÍ hefur ver-
ið töluvert til umræðu að
undanfömu. Mismunandi
skoðanireni á málinu, en
flestir virðast hallast að
breyttu fyrirkomulagi og
þará meðal erEinarMár
Guðmundsson, stjómar-
rnaður hjá Þór á Akureyrí.
- Hvað vilt þú sem stjórnar-
maður landsbyggðarfélags í
attnarri deild segja um fyrir-
komulag bikarkeppni HSI?
„Vandamálið í bikarkeppninni
er kannski það að við eigum ekki
þrjátíu og tvö lið til að taka þátt í
fyrstu umferðinni, eins og til
dæmis er í knattspyrnunni. Ef
við tökum bikarinn í ár, þá voru
aðeins tuttugu og sex lið skráð í
keppnina og þar af nokkur félög
með A og B-lið og Valsarar meira
að segja með C-lið. Þar af Ieið-
andi fara aðeins fram tíu leikir í
fyrstu umferðinni þar sem dreg-
ið er um það úr einum potti
hvaða lið leika saman, en sex lið
sitja hjá. Þetta verður til þess að
Iiðin í Nissandeildinni geta lent
saman í fyrstu umferðinni, sem
að mínu mati er ekki nógu gott.“
- Hvaða breytingar sérðu fyr-
ir þér?
„Best væri auðvitað að öll liðin
tækju þátt í keppninni frá upp-
hafi, en þó finnst mér nauðsyn-
Iegt að toppliðin lendi ekki sam-
an í fyrstu umferðinni. Þetta
kallar á breytingar meðan liðin
eru ekki fleiri og aðlaga verður
keppnina þessu ástandi. Keppn-
in missir annars marks ef bestu
liðin falla út í upphafi og það
gerir hana ekki eins spennandi
fyrir vikið.
Fyrir okkur sem erum f annar-
ri deiid, er það einmitt stórt mál
að geta fengið þessi sterkari lið í
heimsókn til okkar og þess vegna
er nauðsynlegt að reglurnar geri
ráð fyrir því að þau spili frekar
við Iiðin í neðri deildum í fyrstu
umferð.
Við sjáum það einmitt fyrir
okkur núna, að eftir fyrstu um-
ferðina eru fallin út lið eins og
Haukar, Stjarnan og Selfoss á
meðan lið eins og Völsungur,
Afturelding B og við Þórsarar
sitjum hjá í umferðinni. Þó ég sé
hæstánægður með að við Þórsar-
ar sitjum hjá í fyrstu umferð, þá
er þetta auðvitað ekki nógu gott
fyrir handboltann og nauðsyn-
legt að gera breytingar.
Okkur á landsbyggðinni er til
dæmis gjarnt á að lfta til fótbolt-
ans og körfuboltans og mjög gott
dæmi er til dæmis úr fótboltan-
um, þegar KR-ingar fóru til
Grenivíkur og völlurinn fylltist af
fólki, til að sjá sína menn leika
gegn alvöru úrvalsdeildarliði.
Einnig höfum við gott dæmi úr
körfunni þegar Dalvíkingar
fengu bikarmeistara Grindvík-
inga í heimsókn á dögunum. Þar
myndaðist heilmikii stemmning í
kringum Ieikinn og Ieikmenn
bikarmeistaranna voru svo vin-
samlegir að heimsækja krakkana
á æfingu. Þetta skapar allt
stemmningu sem er ómetanleg
fyrir okkur sem erum að byggja
upp okkar lið við erfiðar aðstæð-
ur. Þessir hlutir hafa verið lands-
byggðarliðunum nijög mikilvægir
og jafnvel mikilvægari en sjálfur
árangurinn, þegar verið er að
byggja upp.
Þessum málum verður hand-
knattleiksforystan að taka á og
við verðum að vera samtaka um
að finna réttu lausnina fyrir
næstu keppni."
- Hvað er að frétta af ykkur
Þórsurunt?
„Við Þórsarar höfum verið að
vinna mikið uppbyggingarstarf á
undanfömum árum, sem nú er
farið að skila sér upp í meistara-
flokk. Það sýndi sig í fyrra að við
erum á réttri leið, en þá munaði
sáralitlu að við næðum upp í úr-
valsdeildina. Eg tel að langa
pásan um áramótin, sem stóð í
nær tvo mánuði, hafi skemmt
mikið fyrir okkur og varð til þess
að menn misstu hreinlega damp-
inn. Þetta er sérstaldega bagalegt
hjá okkur á Iandsbyggðinni, þar
sem við höfum svo fáa mögu-
Ieika til æfingaleikja, þannig að
menn missa niður alla leikæf-
ingu.
Sem betur fer hefur nú orðið
breyting á og áramótapásn
stendur aðeins i rúmar vr vik
ur. Við erum þvi fullir bjartsýni
um ' < > Akureyrarlið leiki í
efstu dei ' “