Dagur - 10.12.1998, Page 5

Dagur - 10.12.1998, Page 5
D^ur FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 - 21 LÍFIÐ í LANDINU Vísindakomplex- inn allt að drepa Rithöfundar og sagn- fræðingar ætla að deila umfyrirbærið „sögu- legar skáldsögur“ á opnumfundi á Sólon í kvöld. Sagnfræðingafélagið heldur mál- þing í kvöld á Sólon Islandus, kl. 19.30-22.30, undir yfirskrift- inni „Fortíðin í skáldskapnum - eru skáldin að taka yfir sög- una?“, þar sem skáld og sagn- fræðingar munu takast á um hvor Ieiðin er vænlegri til að varpa ljósi á fortíðina, skáld- skapurinn eða sagnfræðin. Rit- höfundarnir á staðnum verða Thor Vilhjálmsson, Einar Kára- son og Jón Karl Helgason en sagnfræðingarnir Lára Magnús- ardóttir og Olafur Rastrick ræða um tengslin út frá sjónarhóli sagnfræðinnar og er áætlað að málþingið standi til kl.22.30. Að sögn Sigurðar Gylfa Magnús- sonar, formanns Sagnfræðinga- félagsins, er tilefnið sá fjöldi sögulegra skáldsagna sem gefinn hefur verið út hér undanfarin ár, og raunar líka erlendis. Nýta aðferðir skáldanna „Afstæðið er aftur komið inn í sagnfræðina, menn eru ekki bara að reiða fram sögulegar staðreyndir heldur eru menn að sýna einhvers konar birtingar- mjmdir úr fortíðinni. Eru skáld- in ekki eins vel til þess fallin og sagnfræðingarnir? Ég er sjálfur þeirrar skoðunar að við sagn- fræðingar getum lært mjög mik- ið á skáldunum og við ættum hiklaust að tileinka okkur ýmsar aðferðir þeirra." -Hvaða aðferðir? „Ja, skáldin Iesa sér til í heimildum og skapa síðan ákveðið andrúmsloft sem kemur fram í sögunni. Við sagn- fræðingar verðum að halda okk- ur við staðreyndir. Ef það kemur ekki fram í heimild þá getum við ekki fjallað um það. Þetta við- horf hefur útilokað stóran hluta heimsbyggðarinnar því þær heimildir sem til eru, eru um karla og opinberar stofnanir þeirra. Þannig að menn sem hafa haft áhuga á að teygja sig í átt að þeim hópum sem ekki hafa verið í öndvegi í sögunni hafa þurft að beita nýjum túlk- unaraðferðum. Lesa nýja mein- ingu inní heimiidina og það er þarna sem ég held að við getum íært mikið af skáldunum." Sainvmna sagnfræði og skáldskapar Að sögn Sigurðar hefur póst- módernisminn, sem kveikti um- ræðu um eðli fræðigreina, gert menn umburðarlyndari gagnvart heimildinni, sannleikshugtakinu og afstæðinu. Hann telur þó að sennilega yrðu um 90% íslenskra sagnfræðinga verulega ófúsir að skrifa undir þá skoðun að fræði og skáldskapur sé að einhveiju Ieyti að renna saman. Þannig hafi mörgum sagnfræðingum mislíkað innlifunaraðferð Þór- unnar Valdimarsdóttur í bók hennar um Snorra á Húsafelli en þó sé þessi aðferð að vinna á. „Og líka þetta með skemmtigildi sagnfræðinnar. Sagnfræði fyrir sagnfræðinga er áhugaverð en vandinn er að nálgast þá sem eru ekki sögugeggjarar. Við eigum að eiga alla möguleika á að gera það, ef við erum ekki svona and- skoti þrautleiðinleg. Það er þessi vísindakomplex sem allt er að drepa í hugvísindunum. En það er nú þetta sem við munum von- andi ræða á málþinginu.“ LÓA Jólaljósin SVOWfl ER LIFIÐ Jólaljósin eru falleg á að lfta og lífga upp á skammdegis- myrkið hér á norðurhjara. Sumir láta loga á þeim dag- inn út og inn en aðrir slökkva alltaf þegar farið er úr húsi og yfir nóttina. En hvað skyldi kosta að láta loga á þessum ljósum, aðventuljós- um og seríum? Sé miðað við fjórar vikur samfleytt, um 672 klukkustundir þá má bú- ast við því að aðventuljós sem er 7 perur, hver 3 wött, sem- sagt 21 watt, noti í það heila 17.1 kílówattstund, en hver þeirra kostar 7.31 kr. og þá myndi heildarnotkunin vera 103 krónur. Sería með 48 ljósum sem samtals er 144 W, myndi þá kosta alls 706 krón- ur að hafa logandi allar fjórar vikurnar. Appelsínur í dulbúningi Yigdís svarar í símann! Ertu með ráð, þarftu að spyrja, viltu gefa eða skipta? Vigdís svarar í símann kl. 9—12. Síminn er 563 1626 (beint) eða 800 7080. Póstfang: Þverholt 14 Rvk. ;ða Strandgötu 31 Akureyri. Netfang: ritstjori@dagur.is Þetta skraut er skemmtilega ein- falt og sveitalegt. I það er notuð frauðkúla og þurrkaðar sneiðar af appelsínu (þær fást tilbúnar í föndurbúðum ef maður má ekki vera að því að þurrka þær sjálf- ur) og svo gróft snæri. Límið sneiðarnar fastar og bindið utanum og þar með er komið ágætasta skraut sem hægt er að hengja upp eða láta liggja á borði. ■ HVAD ER Á SEYDl? JÓLAÓRATÓRÍAN Á AUSTURLANDI Kammerkór Austurlands ásamt Kammersveit Austurlands flytja Jólaóratóríuna eftir Johann Sebastian Rach í Egilsstaðakirkju n.k. laugar- dag 12. des. kl. 20 og á sunnudag 13. des. kl. 14.30. Stjórnandi tónleikanna verður Keith Reed en hann er jafnframt stofnandi og stjórn- andi kórsins sem skipaður er 30 manns bú- settum á Austfjörðum. Einsöngvarar með kórnum verða Laufey Geirsdóttir sópran, Þor- björn Rúnarsson tenor, Muff Warden alt og Manfred Lemke bassi. Kammersveitina skipa samtals 27 hljóðfæraleikarar. HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ Happdrættisnúmer Bókatíðinda Happdrættisnúmer dagsins 10. desem- ber er: 35.920. Uglur og aðrar verur Bókamenntakvöld Máls- og menningar á Súfistanum, bókakaffi, Laugavegi 18 í kvöld er að mestu helgað bókum sem koma út í kiljuklúbbnum Uglunni. Helgi Ingólfsson Ies úr nýrri skáldsögu sinni „Þægir strákar", en gamansaga eftir hann er orðinn fastur liður í jóIa-Uglu- pakka landsmanna. Dagskráin hefst kl. 20.30. Mið-Ameríku söfnun Rás 2 og Hjálparstarf kirkjunnar munu sameinast um sérstaka söfnun vegna hörmunganna í Mið-Ameríku, í beinni útsendingu á Rás 2, 11. desember kl. 9- 19. Söfnunarsíminn er 568-7123. Stekkjastaur í Ráðhúsinu Laugardaginn 12. desember kemur Stekkjastaur, fyrsti gamli íslenski jóla- sveinninn til byggða. Undanfarin tíu ár hafa gömlu sveinarnir heilsað upp á börn og fullorðna í Þjóðminjasafninu, en vegna viðgerða á húsi safnsins munu þeir að þessu sinni koma í Ráðhús Reykjavíkur kl. 14:00 á hverjum degi fram til jóla, nema Kertasníkir, sem kem- ur kl. 11 á aðfangadag. LANDIÐ Jólavaka á Hofsósi Gestir á Jólavöku 1998 sem haldin verð- ur í félagsheimilinu Höfðaborg, Hofsósi, laugardaginn 12. desember, verða Jó- hann Már Jóhannsson tenor og Diddú, Sigrún Hjálmtýsdóttir. Jólavakan er nú haldin í annað sinn á vegum nemendafé- lags grunnskólans á Hofsósi. Aðstoð fyrir jólin Fatamarkaður Hjálpræðishersins að Hvannavöllum 10, Akureyri verður op- inn föstud. ll.des. kl. 10-19 og er það í síðasta skipti fyrir jól. Þá gefst fólki kost- ur á að velja sér fatnað og það ákveður sjálft hvort og hve mikið það greiðir fyrir. Fólk er hvatt til að gefa sparifatnað sem það notar ekki lengur og er sparifatnaður á börn sérstaklega vel þeginn. Fatnaður- inn þarf að hafa borist fyrir föstudag. Byrjað verður að taka við umsóknum um Ijárhagslega styrki frá 14. des. í s. 462- 4406. Leitað er til bæjarbúa og nær- sveitamanna um hjálp og verður jóla- potturinn á sínum stað fyrir utan Amaró- húsið í göngugötunni frá föstud. 11. des. Astmadagur á Akureyri Hjúkrunarfræðingur og lyfjafræðingur verða í Akureyrarapóteki á föstudaginn milli kl. 13-18 og leiðbeina um notkun astmalyfja.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.