Dagur - 19.02.1999, Síða 1
Kjartan á móti íbúða-
byggð í Norðlingaholti
SjáLfstæðismeim ekki
einhuga til íbúða-
byggðar í Norðlinga-
holti. Framkvæmda-
stjóri flokksins vill
skógrækt. Borgarfull-
trúar flokksins vilja
steinsteypu. Verð-
sprengiug á landi.
Lóðabrask.
Sjálfstæðismenn í borginni eru
ekki einhuga í skoðunum sínum
til íbúðabyggðar í Norðlingaholti.
Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks-
ins, segist vera á móti þ\a að
þarna rísi íbúðabyggð. Sjálfur á
hann 2-3 hektara lands í Norð-
lingaholti sem hann eignaðist
fyrir 15-20 árum. Þar hefur hann
stundað skógrækt og vill geta
haldið því áfram í friði. Hann
segir marga hafa viljað kaupa
landið af sér en hann hafi ávallt
hafnað því. Hann segist enga
skoðun hafa á stefnu samflokks-
manna sinna í borgarstjórn í mál-
inu. Vilhjálmur Vilhjálmsson
borgarfulltrúi
áréttar hins veg-
ar skoðun sjálf-
stæðismanna í
borgarstjórn að
unnið verði hratt
og ákveðið að því
að hægt verði að
úthluta þar lóð-
um í vor og
fyrstu svæðin
verði byggingar-
hæf í haust.
ffluti af
sprungusvæði
Þorvaldur S.
Þorvaldsson, for-
stöðumaður
borgarskipulags Reykjavíkur,
segir að borgin eigi þegar um
þriðjung af Norðlingaholtinu og
á því eftir að kaupa um tvo þriðju
af Iandinu. Obhinn af því séu
smálönd í eigu einstaklinga.
Stærsta einstaka svæðið sem tek-
ist hefur verið á um sé í eigu erf-
ingja Guðmundar í Víði. I það
heila tekið sé allt svæðið um 70
hektarar að stærð. Þar af sé
áformað bygg-
ingarland eitt-
hvað um 50-55
hektarar fyrir 5
þúsund manna
byggð. Þá sé
Norðlingaholtið
hluti af því
sprungusvæði
sem sjálfstæðis-
menn og vinstri
menn deildu
hart um í kosn-
ingunum 1982.
Verðsprengja
Forstöðumaður
borgarskipulags
telur að kaup
Jóns Olafssonar í Skífunni á
Arnarneslandinu muni trúlega
hafa einhver áhrif á verðhug-
myndir landeigenda f Norðlinga-
holti. Jón keypti fermetrann á
um 1400 krónur á sama tíma og
verðhugmyndir manna fyrir land
á höfuðborgarsvæðinu séu
kannski frá 400-600 krónur hver
fermetri. Það sé því ekki ólíklegt
að fólki bregði dálítið í brún og
hugsi sinn gang. Þorvaldur segir
að á sínum tíma hefði borginni
þótt of mikið að kaupa fermetra
lands á 600 krónur.
Lóðabrask
Vilhjálmur Vilhjálmsson, borgar-
fulltrúi sjálfstæðismanna, segir
að borgin hafi verið að greiða um
250-300 krónur fyrir hvern fer-
metra í Norðlingaholti. Hann
útilokar þó ekki að það verð sé
eitthvað að breytast en þó ekkert
í líkingu við það sem gerðist í
Arnarneslandinu. Enda „býr Jón
Olafsson ekki til það fordæmi
hérna í Reykjavík," segir Vil-
hjálmur. Hann segir að vegna
lóðaskorts sé þegar farið að bera
á lóðabraski í borginni. Sem
dæmi nefnir hann að einstak-
lingur sem fékk úthlutað lóð í
Staðahverfi hafi hætt við að skila
henni þegar hann frétti að hann
gæti fengið 1,5 milljónir króna
fyrir hana á markaðnum. — GRH
Kjartan Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins.
Nýr Jring-
flokkur
„Að stofna þennan þingflokk er
bara í rökréttu framhaldi af því
sem verið hefur að gerast undan-
farnar vikur hjá Samfylking-
unni,“ sagði Margrét Frímanns-
dóttir í samtali \dð Dag eftir að
nýr 17 manna þingflokkur Sam-
fylkingarinnar hafði veriö mynd-
aður í gær.
Rannveig Guðmundsdóttir var
kjörin þingflokksformaður,
Ragnar Arnalds varaformaður og
Guðný Guðbjörnsdóttir ritari.
Fundarherbergi hins nýja þing-
flokks er í Þórshamri þar sem
ekki er laust nógu stórt fundar-
herbergi fyrir 17 manna þing-
flokk í þinghúsinu.
Samfylkingunni barst í gær
heillaskeyti frá Alþýðusambandi
Islands í tilefni af stofnun þing-
flokksins. Þar stóð: „Hjartanlega
til hamingju með daginn. Megi
þessi nýi þingflokkur eflast og
dafna á komandi misserum." Ari
Skúlason, framkvæmdastjóri
ASÍ, undirritaði skeytið. - S.DÓR
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri.
Vilja sam-
eina Eyja-
fjöro
Ræjarráð Akureyrar samþykkti á
fundi sínum í gær að leggja fyrir
bæjarstjórn tillögu um að óskað
verði eftir viðræðum við fulltrúa
allra sveitarfélaga í Eyjafirði um
hugsanlega sameiningu. Málið
verður rætt á bæjarstjórnarfundi
2. mars.
„Við erum að leggja þetta fram
í þeim tilgangi að fá sveitar-
stjórnir við Eyjaíjörð til að ræða
möguleikana á því að sameina
sveitarfélögin við Eyjafjörð í
eitt,“ segir Kristján Þór Júlíus-
son bæjarstjóri. „Það sem við
hugsum okkur í því efni er ein-
faldlega það að eftir umræðu í
bæjarstjórn Akureyrar munum
við óska eftir því að fulltrúar
sveitarfélaga í Eyjafirði taki upp
viðræður um þetta mál með það
fyrir augum að ganga úr skugga
um möguleikana á þvf að þetta
gæti orðið að veruleika."
Kristján Þór vildi engu spá um
framvindu hugsanlegra við-
ræðna og sagði ómögulegt að
segja til um slíkt. - HI
Djúp 1ægð
Oveður gekk yfir landið í gær-
kvöld og í nótt og búist er við
norðvestan roki eða ofsaveðri og
snjóbyl á norðanverðu Iandinu
fram eftir degi í dag.
Snjóathugunarmenn og al-
mannavarnanefndir víða um
norðanvert landið voru í við-
bragðsstöðu í gærkvöld og strax
síðdegis í gær var tekin ákvörðun
um rýmingu á rýmingarsvæði C á
ísafirði en þar eru fáir íbúar.
Búist er við að veðurofsinn nái
hámarki fyrir miðjan dag í dag en
þessu skoti veldur mjög kröpp
lægð sem er að ganga yfir landið.
Spáð er hægt minnkandi norð-
lægri átt, allhvassri eða hvassri á
laugardag en hægari á sunnudag.
Talsvert frost verður næstu daga.
Afgreiddir samdægurs
Venjulegirog
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524
WOfíLOWJOe ÐCPRESS
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100