Dagur - 19.02.1999, Side 3
FÖSTUDAGUR 19. FF.BRÚAR 1999 - 3
WMjur-
FRÉTTIR
i.
Vilj a kaima afleið-
ingar hvalveiða
Ræða þarf við þá sem bjóða útlendingum ferðir til íslands um hvaða áhrif
hvalveiðarnar gætu haft á ferðamannaþjónustuna segir Hjálmar Árnason
sjávarútvegsnefndarmaður.
Talið víst að tillaga
um að hefja hvalveiðar
verði saniþykkt á Al-
þingi en með fyrirvara
um að kannað verði
hvaða efnahagslegar
afleiðingar það getur
haft.
Oddvitar stjórnarflokkanna, Dav-
íð Oddsson og Halldór Asgríms-
son, hafa gripið í spottann hjá
sjávarútvegsnefnd Alþingis, eins
og skýrt var frá í fréttaskýringu
um hvalveiðimálið í Degi á mið-
vikudag. Þeir munu að vísu ekki
ætla að stöðva þingsályktunartil-
löguna í meðferð nefndarinnar
eins og gert hefur verið þrisvar
sinnum á síðustu níu árurn, held-
ur umorða hana og setja inn
ákveðin skilyrði fyrir því að hval-
veiðar geti hafist.
Hjálmar Árnason alþingismað-
ur, sem á sæti í sjávarútvegs-
nefnd, sagði að það væri vilji allra
að þingið taki nú afstöðu til
þingsályktunartillögu um að hval-
veiðar verði hafnar að nýju. Hann
segir að aðalatriðið sé að víðtæk
samstaða náist á Alþingi og að
sátt ríki um þá tillögu sem borin
verður fram.
„Vorboðinn ljúfi“
Hjálmar Árnason segist spá því að
Alþingi samþykki tillöguna að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Hann segist ekki geta fullyrt
hvernig endanlegur texti hennar
verður en bendir á að nánast ekk-
ert sé búið að undirbyggja þetta
mál. Hann segir menn halda því
fram að hvalveiðar muni hafa
vond áhrif fyrir okkur efnahags-
lega og spyr hvað hafa þeir fyrir
sér í því. Það hefur alls ekkert ver-
ið kannað en þarf að gera ef við
ætlum að hefja hvalveiðar.
Hann telur eðlilegt að sam-
þykkt verði í tengslum við þessa
tillögu um að hefja hvalveiðar að
ræða við helstu viðskiptavini okk-
ar á fiskmörkuðum erlendis og
kanna hvort hvalveiðar muni
’breyta einhverju í samskiptum
okkar við þá. Sömuleiðis þarf að
ræða við þá sem bjóða útlending-
um ferðir til lslands um hvaða
áhrif hvalveiðarnar gætu haft á
ferðamannaþjónustuna.
„Síðan þarf að meta hvaða
efnahagsleg áhrif þetta kann að
hafa. Þessi könnunarvinna hefur
ekki verið unnin og það er í sjálfu
sér skrýtið að sjávarútvegsráðu-
neytið skuli ekki hafa látið þessa
vinnu fara fram, þar sem þingsá-
lyktunartillaga um að hefja hval-
veiðar hefur verið „vorboðinn
ljúfi“ í mörg ár enda þótt tillagan
hafi alltaf verið svæfð í nefnd.
Þess vegna hefur Alþingi aldrei
tekið neina afstöðu,“ segir Hjálm-
ar Árnason.
Þrír dagar í næstu viku eru svo
kallaðir nefndardagar. Þá verða
engir þingfundir heldur starfa
þingnefndirnar alla dagana. Þá er
talið víst að tillagan um að hefja
hvalveiðar verði afgreidd frá sjáv-
arútvegsnefnd. - S.DÓR
Sigríður Anna Þórðardóttir ætlar að
gefa sér góðan tíma.
Sijgríður
bíður enn
Sigríður Anna Þórðardóttir, for-
maður þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins, sagði í samtali við Dag
í gær að hún hefði enn ekki tek-
ið ákvörðun um hvort hún gefur
kost á sér til varaformennsku í
Sjálfstæðisflokknum. Hún sagð-
ist ætla að taka sér allan þann
tíma sem hún þyrfti í þessu
máli.
Þau Sólveig Pétursdóttir al-
þingismaður og Geir H. Haarde
fjármálaráðherra hafa lýst því
yfir að þau gefi kost á sér til
varaformennskunnar, en Sturla
Böðvarsson sem einnig var
hvattur til að sækjast eftir emb-
ættinu hefur gefið þann slag frá
sér. Það er því ljóst að varafor-
mannsslagur verður á Iands-
fundi flokksins, sem hefst 10.
mars. — S.DÓR
Ferðamálamiðstöð
skuldar 15 milljónir
Jólaævintýri Norðurpólsins er ábyrgt fyrir 9 af 15 milljóna króna skuld
Ferðamálamiðstöðvar Eyjafjarðar.
Skuldir Ferðamála-
miðstöðvar Eyjafjarð-
ar nema liðlega 15
milljðnum króna, þar
af tæpar 9 milljónir
króna vegna „jólaæv-
intýris“ Norðurpóls-
ins.
Héraðsráð Eyjafjarðar fór fram á
það við bæjarráð Akureyrar 10.
febrúar sl. að Akureyrarbær innti
af hendi 2 milljóna króna fyrir-
framgreiðslu vegna væntanlegs
uppgjörs Ferðamálamiðstöðvar
Eyjafjarðar sem lögð var niður
um síðustu áramót. Bæjarráð
samþykkti erindið á fundi á
fimmtudagsmorgun, en málið
verður tekið aftur upp við endur-
skoðun fjárhagsáætlunar en
hlutur Akureyrarbæjar í halla-
rekstri Ferðamálamiðstöðvarinn-
ar er um 75%.
Mikil vandræði hafa skapast
vegna óuppgerðra reikninga
Ferðamálamiðstöðvarinnar.
Björk Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Héraðsráðs Eyja-
fjarðar, segir að greiðslan frá Ak-
ureyrarbæ leysi aðeins úr allra
brýnustu fjárþörf en skuldir
Ferðamálamiðstöðvarinnar
nema liðlega 15 milljónum
króna, þar af tæpar 9 milljónir
króna vegna „jólaævintýris"
Norðurpólsins sem starfræktur
var á Akureyri frá 20. nóvember
til jóla. Skársta hugsanleg niður-
staða er að mati Héraðsnefndar
tæpar 13 milljónir króna, þar af
7,5 milljónir króna vegna Norð-
urpólsins. Þá er gert ráð fyrir
800 þúsund króna endurgreiðslu
frá Samgönguráðuneyti, tekjum
vegna jólatónleika, styrk frá At-
vinnuleysistryggingasjóði og
vegna bæklingaútgáfu frá Akur-
eyrarbæ auk niðurfellingar
reiknings f rá Rafveitu Akureyrar.
- GG
Raforkunotkun minnkadi
Almenn raforkunotkun minnk-
aði um 1,1% á síðasta ári, sam-
kvæmt yfirliti frá Orkuspár-
nefnd. Ástæðan er rakin til um
fjórðungs skerðingar á sölu
ótryggðrar orku frá Landsvirkjun
vegna hættu á vatnsskorti við
orkuver. Stórnotkun jókst aftur á
móti um 23% milli ára. Hlutur
stóriðjunnar var 58% í fyrra og
almenn notkun því um 42%. En
allt til 1996 var almenni hlutinn
stærri.
Sala ótryggðrar orku til stór-
iðju minnkaði um 35% á síðasta
ári. Gert hafði verið ráð fyrir 125
GWh minnkun vegna breyttra
samninga og að þeim hluta frá-
töldum verður samdráttur til
stóriðju 23% milli ára. Skerðing-
una segir Orkuspárnefnd þá
fyrstu í hálfan annan áratug.
AIls nam raforkuvinnsla á
landinu tæpum 6.280 GWh árið
1998. Síðustu tvö árin hefur hún
aukist um samtals rúmlega
1.160 GWh, sem er til dæmis
fjórðungi meira en öll orku-
vinnsla Blöndurírkjunar í fyrra.
- HEI
Vilja kvóta fyrir Lífeyrissjóð
sjómaiuia
Miðstjórn Frjálslynda flokksins leggur til að Lífeyrissjóði sjómanna
verði úthlutað 10 þúsund tonnum af þorski í 2 ár til að rétta við fjár-
hag sjóðsins, segir í tillögu sem send hefur verið sjávarútvegsnefnd
Alþingis.
I greinargerð segir að vegna þrenginga sjóðsins neyðist forsvars-
menn hans til að skerða greiðslur til lífeyrisþega um 12%. Við það
verði ekki unað enda hafi greiðslurnar ekki verið nein ofrausn fyrir.
„Sómi þjóðarinnar liggur við að aldraðir sjómenn séu ekki svo grátt
leiknir í lífskjörum," segir m.a. í greinargerðinni.
Eíliiig mótmælir skaöabótafrumvarpi
Stjórn Efmigar-stéttarfélags mótmælir harðlega frumvarpi til nýrra
skaðabótalaga þar sem gert er ráð fyrir að greiðslur úr Iífeyris- og
sjúkrasjóðum skerði skaðabætur. „Iðgjöld til almennu lífeyrissjóðanna
og greiðslur til sjúkrasjóða verkalýðsfélaganna eru hluti umsaminna
launa og afrakstur langrar og harðrar kjarabaráttu," segir í ályktun
stjórnarinnar. Hún skorar á ríkisstjórn og Alþingi að falla þegar frá
þessum hugmyndum og láta af „þessum sífelldu árásum á sjóði stétt-
arfélaganna," eins og segir orðrétt.
Fullkomiiasta prentvél landsins
Davíð Oddsson forsætisráðherra ræsti í gær í Prentsmiðjunni Odda,
Heidelberg Harris M 600 prentvél, sem er sú fullkomnasta á landinu
og veldur að sögn straumhvörfum í íslenskum prentiðnaði. Fyrsta
verk þessarar nýju vélar var að prenta blað Umhyggju, heildarsamtaka
langveikra barna. Dögg Pálsdóttir, formaður samtakanna, veitti fyrsta
prentaða eintakinu ríðtöku frá Þorgeiri Baldurssyni, forstjóra Odda.