Dagur - 19.02.1999, Side 12
12- FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999
Frá framleiðendum „Forest Gump"
og ieikstjóra „Mrs. Doubtfire"
kemur þessi ógleymanlega stór-
mynd með vinsælustu leikkonum
Hollywood í dag, þeim Juliu
Roberts og Susan Sarandon.
nnr°°m,'i
D I Q I T A L
Pöstud. kl. 21 og 23.10
Vinsælasti og umdeildasti skemmti-
staður allra tíma. Þar var allt leyfi-
legt og diskóið réði rikjum. Þangað
komst enginn inn nema að vera
annaðhvort frægur eða moldríkur.
Upplifðu diskóið uppá nýtt og sjáðu
erótiska útgáfu þessarar umdeildu
myndar.
Föstud. kl. 21.
„Frábær, létt,
skemmtileg, hröð
og óborganlega
fyndin" eru orð
sem gagnrýnendur
hafa notað til að
lýsa þessari mynd.
Hinn franski Luc
Besson gerði han-
dritið af þessari
spennumynd, með
endi sem kemur
VERULEGA á óvart.
Kvikmyndir.is gefur
henni 4'I stjörnu.
□□l°OLBY|
Pöstud.
kl. 23.
CcrGArbíc
S 462 3500
ÍÞRÓTTIR
k.
Fyrsti Englendingiiriim
á olað
Slagsmálaleikur Chealsea og
Blackburn verður í minni geymd-
ur fyrir tvennt. I fyrsta lagi komst
fyrsti Englendingurinn á blað hjá
liðinu yfir markaskorara í vetur.
Jody Morris braut ísinn og skor-
aði mark Chelsea áður en Asley
Ward jafnaði fyrir Blacburn. I
öðru lagi gleymist leikurinn seint
þeim sem sáu knattspyrnustjór-
ann, Gianluca Vialli, sparka í
punginn á Broomes þar sem
hann stóð ógnandi yfir honum
liggjandi. Báðir fengu rauða
spjaldið að launum.
Með jafnteflinu heldur
Blacburn taki sínu á Chelsea á
Stamford Bridge þar sem liðið
hefur ekki tapað leik f 15 ár.
Virði dómaraim
Gianluca Vialli var að vonum
sáróánægður eftir leikinn við
Blackburn. Lið hans tapaði dýr-
mætum stigum í toppbaráttunni,
auk þess sem hann sjálfur fær
Ieikbann fyrir útafreksturinn.
Þar með verður Zola eini nothæfi
framheiji liðsins þegar Vialli tek-
ur út leikbannið. Engu að síður
brást knattspyrnustjórinn drengi-
lega við og sagðist virða dómar-
ann og hans störf þó sér þætti
dómur hans strangur.
Kom mér ekki á óvart
Everton skoraði jafn mörg mörk
gegn Middlesbrough á Goodison
Park á rnfðvikmfaginn og liðið
hafði skorað til samans á heima-
velli sínum í vetur. Knattspyrnu-
stjórinn, Walter Smith, var salla-
rólegur eftir leikinn og sagði að
markaveislan hefði ekki komið
sér á óvart. „Við erum búnir að
leika fjölda leikja í vetur þar sem
við höfum ekki náð að skora
þrátt fyrir fjölmörg góð mark-
tækifæri. Einhvern tíma hlaut að
koma að því að drengirnir fyndu
leiðina í netið. Það gerðist núna
og með það er ég ánægður.
Það sem gladdi stuðnings-
menn Everton mest var að sjá að
Nicky Barmby er aftur kominn í
landsliðsform. Hann bar af eins
og gull af eiri á vellinum.
Helöi og Stefáu í góðum
mámm
Helgi Sigurðsson og Stefán
Þórðarson leika með liðum sín-
um, Stabæk og Brann, á sterku
æfingamóti í La Manga á Spáni.
Báðir hafa verið á skotskónum
og sett sitt mark á keppnina.
Mótinu lýkur í dag. Þá leika Ros-
enborg og Stabæk til úrslita,
Brann og AIK frá Svíþjóð leika
um þriðja sætið, Helsingborg og
Orebro Ieika um fimmta sætið og
stórlið Gautaborgar verður að
leika um næstneðsta sætið við
Molde. - GÞÖ
Úrslit leikja
í gærkvðld
I gærkvöld fóru tram leikir í 19.
umferð DHL-deiIdarinnar í
körfuknattleik og urðu úrslit eft-
irfarandi:
ÍA-Snæfell 92:84
Skallagrímur-KFÍ 75:80
UMFG-Þór Ak. 101:70
Keflavík-KR 89:81
Haukar-Tindastóll 82:91
yal,ur-UMFN , , , . , 85:88 • — ""'i'
Nú kætast skautamenn á Akureyri.
SkautahoH á
Akureyritil-
búin í haust
Á svæði Skautafélags
Akureyrar er eiunig
rými fyrir hlaupa-
braut fyrir skauta-
hlaup og svæðið hýð-
ur upp á stækkunar-
möguleika sem ekki
hjdðast annars staðar.
Langþráður draumur skauta-
manna á Akureyri er nú í sjón-
máli en skautahöll fer á næst-
unni í alútboð. Skautahöllin á að
rísa yfir núverandi skautasveili.
Til þessarar byggingar er áætlað
að verja 1 50 milljónum króna og
á húsið að vera tilbúið til notk-
unar næsta haust. Bygging
skautahallar á Akureyri var á
stefnuskrá allra stjórnmálaflokk-
anna fyrir kosningarnar á síðasta
vori og m.a. sagði í stefnuskrá
Sjálfstæðisflokksins skýrt og
skorinort: Byggt verði yfir
skautasvellið og mannvirkið tek-
ið í notkun strax á næsta ári.
Magnús Finnsson, formaður
íshokkídeildar Skautafélags Ak-
ureyrar, segir skautamenn mjög
ánægða með þessi tíðindi enda
muni það jafna aðstöðu þeirra
við íshokkímenn í Reykjavík og
þá þurfi aðeins að spyrja að
ferðaveðri, ekki veðri á keppnis-
stað eins og t.d. asahláku. Magn-
ús segir að vissulega hafi komið
til greina að reisa skautahöllina
annars staðar en f innbænum
fengist undir hana lóð en á 30
þúsund fermetra lóð Skautafé-
lagsins hafi verið gert ráð fyrir að
þar væri hægt að setja niður
fleira en skautahöll. Þar er einn-
ig rými fyrir hlaupabraut fyrir
skautahlaup og svæðið bjóði upp
á stækkunarmöguleika sem ekki
bjóðist annars staðar. A staðnum
er auk þess fjárfesting sem nýtist
væntanlegri skautahöll, en und-
irbygging annars staðar mundi
kosta um 20 milljónir króna. I
ljósi þess að í framtíðinni mun
byggð rísa í Naustahverfi telur
Magnús staðsetninguna góða, en
markaðssvæði hússins verður
allur Eyjaljörður en töluvert er
um það að skólar bjóði nemeitd-
um á skauta, og ekki mun draga
úr því þegar hægt verður að vera
á skautum undir þaki í skjóli
fyrir veðri og vindum. - GG
Frítt 1 Holllna
Jón Gíslason, landsliðsþjálfari í
körfuknattleik, hefur valið Ieik-
mannahópinn sem leikur gegn
Bosníu-Herzegóvínu og Litháen
í riðlakeppni Evrópumóts lands-
liða í næstu viku. Tólf leikmenn
skipa hópinn, en tíu verða valdir
í hvorn leik.
Landsliðshópurinn:
Falur Harðarson, Keflavík
Birgir Örn Birgisson, Keflavík
Teitur Örlygsson, UMFN
Hermann Hauksson, UMFN
Eiríkur Önundarson, KR
Friðrik Stefánsson, UMFN
Guðm. Bragason, Weissenfelt
Herbert Arnarson, UMFG
Hjörtur Harðarson, Keflavfk
Friðrik Ragnarsson, UMFN
Fannar Ólafsson, Keflavík
Páll Axel Vilbergsson, UMFG
Það vekur athygli að tíu af tólf
leikmönnum í hópnum eru frá
Iiðum á Suðurnesjum og sá ell-
efti, Guðmundur Bragason, er
fyrryni, l<ýWaO,yr, ÖrinfJvílPíJgar
Þá er aðeins eftir einn, sem er
KR-ingurinn Eirfkur Önundar-
son, sem nú er aftur í landsliðs-
hópnum. Grindvíkingurinn Páll
Axel Vilbergsson kemur líka aft-
ur inn í hópinn, en hann hefur
áður leikið fimm landsleiki.
Leikurinn gegn tíosmu-
Herzegovínu fer fram í Laugar-
dalshöll miðvikudaginn 24. febr-
úar, en leikurinn gegn Litháum,
laugardaginn 27. febrúar, einnig
í Höllinni.
Körfuknattleikssambandið og
Lýsing hf., hafa gert með sér
samning um að Lýsing hf., bjóði
áhorfendum frítt á leikinn gegn
Bosníu-Herzegovínu á miðviku-
daginn, á meðan húsrúm leyfir.
Lið Bosníu-Herzegóvínu, er
nú í efsta sæti D-riðils með 15
stig, einu stigi meira en Króatía
og Litháen sem eru með 14 stig.
Þar á eftir kemur Holland í 4.
sæti með 11 stig, þá Eistland
með 10 og Island rekur lestina
með 8 stig.