Dagur - 04.03.1999, Qupperneq 3
Xfc^*r
FIMMTUDAGUR 4. MARS 1999 - 3
FRÉTTIR
Stj ómarþmgmeim
standl í lappimar
Finnur Ingólfsson segir að fyrir liggi áætlanir um umfangsmiklar framhaldsathug-
anir á álveri við Reyðarfjörð.
Þingmeiui Sjálfstæð-
isflokksms á Austur-
landi kröfðu iðnaðar-
ráðherra um skýr svör
um stöðu mála varð-
andi samningana við
Norsk Hydro um hygg-
ingu álvers á Reyðar-
firði.
Arnbjörg Sveinsdóttir, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins í Austur-
landskjördæmi, kom af stað fjör-
ugum umræðum á Alþingi í gær
þegar hún spurði Finn Ingólfs-
son iðnaðarráðherra um hver
raunveruleg staða álvers og virkj-
unar á Austurlandi væri. Egill
Jónsson krafði iðnaðarráðherra
um skýr svör í málinu. Þá fór Jón
Kristjánsson í pontu og sagði að
stjórnarliðar ættu að standa í
lappirnar í þessu máli og styðja
við bakið á iðnaðarráðherra í
þeim hatrömmu deilum sem um
málið væru.
„Nú hafa enn og aftur borist
fréttir af því að hik sé á Norsk
Hydro varðandi samninga um ál-
ver á Austurlandi. Þegar ég bar
þessa fyrirspurn fram voru uppi
fréttir um að Norsk Hydro
hyggðist ætla að festa kaup á ál-
bræðslu Norðuráls á Grundar-
tanga. Nú berast fréttir um að
mikið samdráttarskeið herji á
Norsk Hydro og ekki sé nokkurr-
ar ákvörðunartöku að vænta það-
an á næstunni," sagði Arnbjörg.
Hún sagði að sú óvissa sem
ríkir um fyrirhugaðar fram-
kvæmdir væri mjög óheppileg
fyrir atvinnu og byggðaumræðu á
Austurlandi. Tímasetningar um
ákvarðanir hafi verið gefnar allt
frá ágúst 1997 en að enn hefði
lítið gerst og fréttaflutningurinn í
þessu máli að undanförnu hefði
enn aukið á þá óvissu sem Aust-
firðingar búa við.
Engin breyting
Finnur Ingólfsson iðnaðarráð-
herra sagði að unnið hefði verið
að undirbúningi samninga viö
Norsk Hydro um byggingu álvers
um nokkurt skeið. Hann sagði
vinnuna hafa gengið samkvæmt
áætlun og að tímabundnir erfið-
leikar NH hafi ekki breytt áform-
um fyrirtækisins hér á landi.
Hann sagði að fyrir Iægju áætlan-
ir um umfangsmiklar framhalds-
athuganir á álveri við Reyðar-
fjörð. Að þeim verði unnið á
næstunni og um mitt ár sé stefnt
að því að undirrita samkomulag
milli NH og fslenskra stjórnvalda
um framhald málsins.
Ossur Skarphéðinsson sagði
iðnaðarráðherra vera eina mann-
inn í heiminum sem hefur trú á
því að NH ætli að reisa þetta
stóriðjuver hér á landi. Enn frem-
ur væri hann sá eini sem trúir því
að NH ætli að undirrita einhvern
samning um mitt þetta ár.
„Hefur iðnaðarráðherra ekki
fylgst með fréttum og hvað tals-
menn NH hafa verið að segja,“
spurði Össur og spurði ráðherra
hvort hann væri ekki tilbúinn til
að láta Fljótsdalsvirkjun fara í
lögformlegt umhverfismat þar
sem NH muni ekki reisa álver
hér á næstunni.
Egill vill skýr svör
Egill Jónsson, þingmaður Aust-
urlands, sagði ljóst að það væri
ekki á færi iðnaðarráðherra að
ráða fyrir um það hvort NH reis-
ir hér stóriðju. Það væri aftur á
móti á hans færum að, vinna að
þessum málum hér á landi. Egill
sagðist hafa verið furðu lostinn
yfir svari iðnaðarráðherra við fyr-
irspurn Arnbjargar.
„Ég vil ganga eftir því að ráð-
herra tali skýrar um það hvort
ekki séu hafnar viðræður við
neina aðra aðila en NH um stór-
iðju hér á landi. Ef hann stað-
festir það hér að svo sé ekki ligg-
ur fyrir að þetta mál er í verri far-
vegi en áður lá fyrir,“ sagði Egill
Jónsson.
Jón Kristjánsson, þingmaður
Framsóknarflokksins á Austur-
landi, sagði að þetta væri stærsta
atvinnuþróunarverkefni sem
hefði verið í gangi á Austurlandi.
Það byggðist á orkuöflun í stór-
um stíl og um þetta væru
hatrömm átök.
„Það er nauðsynlegt fyrir alla
stjórnarliða að þeir standi í Iapp-
irnar í þessu máli,“ sagði Jón
Kristjánsson. - S.DÓR
Bjarni Ármannsson: Ég kannast ekki
við að stjórnendur Fiskveiðasjóðs hafi
forsendur til að tjá sig um málið.
Afneitar
rógburöi
Bjarni Ármannsson, forstjóri
Fjárfestingarbanka atvinnulífs-
ins (FBA), segir af og frá að
bankinn standi í einhverri
ófrægingarherferð á hendur fyrr-
um starfsmanni sínum. „Það er
algjörlega rangt mál að við séum
að bera út rógburð á þann hátt
sem fram kemur í frétt Dags af
stefnu fyrrum starfsmanns
FBA,“ segir Bjarni og á þar við
stefnu Asbjörns Þorleifssonar og
kröfu hans um alls 48 milljóna
króna bætur frá FBA vegna
meints ólöglegs brottreksturs.
Bjarni segir stefnu FBA að tjá
sig ekki um málefni hvorki nú-
verandi né fyrrverandi starfs-
manna, en að nauðsynlegt sé að
leiðrétta rangfærslur. „Við höf-
um ekki gerst sekir um rógburð.
Þá er það alrangt að starfskjör
stjórnenda FBA taki mið af af-
komu bankans, þótt nú sé verið
að vinna að uppsetningu slíks
kerfis. Loks kannast ég ekki við
að síðasta stjórn Fiskveiðasjóðs
fyrir sameiningu geti hafa íjallað
um þetta mál og ég kannast ekki
við að stjórnendur sjóðsins hafi
forsendur til að tjá sig um mál-
ið,“ segir Bjarni. I Degi í gær var
talað um stuðning stjórnar Fisk-
veiðisjóðs við Ásbjörn, en þar
átti að standa stjórnendur, þ.e.
æðstu yfirmenn starfsliðs sjóðs-
ins. - FÞG
Afkoma Krossaness
versnaði miUi ára
Eiginfjáxstaða fyrir-
tækisins hefur styrkst
á undanfömum áruiii
og hækkun eigin fjár
nam 6,8%.
Krossanesverksmiðjan var rekin
með 36,7 milljóna króna hagnaði
á síðasta ári, sem er töluvert
minni hagnaður en árið 1997, en
þá nam hann 109,5 milljónum
króna. Rekstrartekjur félagsins
námu 746 milljónum króna og
lækkuðu um 27% milli ára en
rekstrargjöld 599 milljónum
króna og lækkuðu um 20% milli
Krossanesverksmiðjan.
ára. Hagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsgjöld nam því 147
milljónum króna. Eiginfjárstaða
fyrirtækisins hefur styrkst á und-
anförnum árum. Hækkun eigin
íjár nam 6,8% og eigið fé í árslok
1998 var um 519 milljónir króna
og eiginfjárhlutfall hækkaði úr
55% í 67%.
Jóhann Pétur Andersen, fram-
kvæmdastjóri, segir skýringuna á
lakari afkomu vera þá að sumar-
og haustvertíðin hafi ekki verið
nema svipur hjá sjón samanborið
við árið 1997, sem leitt hafi til
þess að móttekið hráefni hafi far-
ið úr 84.900 tonnum 1997 niður
í 49.600 tonn 1998. Á aðalfundi
18. mars nk. mun stjórn gera til-
lögu um að greiddur verði 7%
arður til hluthafa.
Vilja auka sjálfstæði skóla
Gailað skaðabótafnunvarp
„í frumvarpinu er að finna lagatæknilega ágalla, sem gera það að
verkum að vart eða ekki verður hægt að gera upp mál án milligöngu
dómstóla, verði frumvarpið að lögum,“ segir í fréttatilkynningu frá
aðalfundi Sambands ísl. tryggingafélaga, þar sem frumvarp það til
breytinga á skaðabótalögum sem nú liggur fyrir Alþingi var harðlega
gagnrýnt. Frágangur á „skrautfjöðrum" frumvarpsins, sem felist í
tjölmörgum stuðlum og reikniverki, sem vakið hafi athygli sérfræð-
inga, sé hinn undarlegasti. Bersýnilegt sé að án breytinga sé „vitandi
vits verið að stofna til ágreinings, sem ekki verður leystur nema fyrir
dómstólum í hverju einstöku tilviki.11 — HEl
Kortanotkim slær met
Krítarkortanotkun fslendinga sló fyrri met í fyrra. Hlutfallslegur
ljöldi krítarkorta á Islandi er með því alhæsta sem þekkist í heimin-
um. Samanlögð velta debet- og kreditkorta er 183 milljarðar króna.
Hiutfall kortatiðskipta af einkaneyslu er um 60% hér á landi en til
samanburðar má nefna að það er 14% í Bretlandi og 12% á Spáni.
Hagnaður Visa-Greiðslumiðlunar nam 172 milljónum króna í lyrra
sem er um 42% meiri hagnaður en árið á undan.
Borgarfulltrúar sjálfstæðismanna
vilja að hafinn verði undirbún-
ingur við gerð rekstrar- og þjón-
ustusamninga við grunnskóla
borgarinnar. Tilgangurinn er að
tryggja faglegt sjálfstæði skól-
anna. Lagt er til að settur verði á
Iaggirnar starfshópur til að vinna
að slíkum samningum við fjóra
skóla með það í huga að þeir geti
tekið gildi frá og með næsta
skólaári.
I greinargerð með tillögunni
kemur fram að með henni sé ver-
ið að stíga mikilvægt skref til að
tryggja aukið sjálfstæði grunn-
skóla borgarinnar. Með þessu sé
einnig verið að snúa af braul
þeirrar miðstýringar sem starf-
semi Fræðslumiðstöðvar hefur
leitt til. Með þessum samningum
sé gert ráð fyrir því að samið
verði um allan rekstrarkostnað
skóla í einni heild og skólastjórn-
endur fái frelsi til að reka skól-
ann innan þess heildarramma.
- GRH
Rómantíski prinsinn til íslands
Píanóleikarinn Richard Claydermann er á leiðinni til íslands og verð-
ur með tónleika í Laugardalshöll 3. apríl nk. Með honum leikur 9
manna hljómsveit. Claydermann er Islendingum að góðu kunnur,
hann hefur selt hér á landi fleiri plötur en nokkur annar listamaður,
að Bubba Morthens einum undanskildum. Hljómplötur hans hafa
selst í meira en 65 milljónum eintaka í heiminum. Nancy Reagan
kallaði Claydermann „Rómantíska prinsinn". - PJESTA