Dagur - 04.03.1999, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 4. MARS 1999 - S
Xfc^HT.
FRÉTTIR
L
Hafa óbundnar
hendur um heriun
Þingmenn Samfylkingarinnar hafa óbundnar hendur gagnvart þingsályktunartillögu Ragnars Arnalds o.fl.
Þingmeim Samfylk-
mgarmnar með
óbimdnar hendur þeg-
ar greidd verða at-
kvæði um tillögu um
að bandaríski herinn
verði látinn fara.
Senn kemur að því að tillaga
þingmanna óháðra og Ragnars
Arnalds, þingmanns Samíylking-
arinnar, um að hafinn verði und-
irbúningur að brottför hersins á
Keflavíkurflugvelli komi til um-
ræðu og afgreiðslu á Alþingi.
Menn hafa beðið með óþreyju
eftir því hvernig þingmenn Al-
þýðubandalagsins, sem nú eru
komnir í þingflokk Samfylking-
arinnar, bregðast við. Til þessa
hafa þingmenn flokksins ævin-
lega verið samþykkir því að her-
inn fari en kratar að hann veri.
„I gegnum tíðina hafa verið
skiptar skoðanir um herstöðvar-
málið innan allra stjórnmála-
flokka. Það hefur alla tíð verið
okkar skilningur í Samfylking-
unni að við virtum þær skoðanir
sem einstakir þingmenn okkar
hafa í þessu máli. Það munum
við gera að þessu sinni. Þess
vegna munu þingmenn Samfylk-
ingarinnar ekki greiða eins at-
kvæði um þessa tillögu,“ sagði
Margrét Frímannsdóttir, formað-
ur Alþýðubandalagsins og tals-
maður Samfylkingarinnar.
Bíða á með afgreiðslu
Hún segir að samfylkingarmenn
telji ekki rétt að svo komnu máli
að afgreiða þessa tillögu nú.
Astæðan sé sú að það er verið að
Ieggja í þá vinnu að endurskoða
varnarþörf Iandsins út frá breytt-
um aðstæðum.
„Þarna er um að ræða vinnu
sem ekki hefur verið farið í áður.
Það er ný skilgreining á öryggis-
hugtakinu og við viljum ljúka
þeirri vinnu í samstarfi þings og
utanríkisráðuneytis, en utanrík-
isráðherra bauð upp á að útvíkka
starfshópinn. Við viljum fara í
þessa vinnu og síðan verði tekin
afstaða til þess á hvaða forsend-
um íslensk stjórnvöld fari í við-
ræður við Bandaríkjastjórn þegar
bókunin er úti,“ sagði Margrét
Frímannsdóttir.
Það verður afar fróðlegt að
heyra þá ræða þessi mál þing-
menn Samfylkingarinnar, sem
koma úr Alþýðubandalaginu, og
hina sem stofnuðu þingflokk
óháðra og eru aðalflutnings-
menn tillögunnar. — S.DÓR
Sverrir Hermannsson hafnar sögu-
sögnum um afturkipp hjá Frjáls-
lyndum.
Sverrir í
hringferð
„Það er nú öðru nær en að ein-
hver afturkippur sé í okkar fram-
boðsmálum eða flokksstarfi yfir-
leitt. Hér er allt á fijúgandi ferð
maður,“ sagði Sverrir Hermanns-
son, formaður Fijálslyndaflokks-
ins, í samtali við Dag, aðspurður
um sögusagnir sem uppi hafa
verið um að afturkippur væri í
framboðsmálum flokksins.
Sverrir sagði að búið væri að
stofna kjördæmisráð í Reykjavík
og á Reykjanesi. I næstu viku
sagðist hann hefja hringferð um
Iandið þar sem hann ætlar að
koma flokksstarfinu í fullan gang
og vinna að stofnun kjördæmis-
ráða, sem síðan munu sjá um að
stilla upp listum í kjördæmunum.
Hann sagðist verða var við rífandi
áhuga fyrir málstaðnum um allt
land.
„Framboðsmálin í Reykjavík
eru enn í ákveðinni skoðun,“
sagði Sverrir Hermannsson.
- S.DÓR
Skólavönibúðin seld
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra undirritaði í gær fyrir
hönd ríkisstjórnarinnar, samning
við fyrirtækið GKS hf. um sölu á
Skólavörubúðinni. Búðin hefur
til þessa verið rekin af Náms-
gagnastofnun.
Að undangengnu útboði Ríkis-
kaupa og að tillögu Fram-
kvæmdanefndar um einkavæð-
ingu, ákvað menntamálaráð-
herra að taka tilboði GKS í bún-
að, innréttingar, vörubirgðir og
rekstur Skólavörubúðarinnar.
Tilboðið hljóðaði upp á 36,8
m.kr. sem var 74% hærra en
næsthæsta tilboðið. Andvirði
Skólavörubúðarinnar mun renna
til Námsgagnastofnunar. Ríkis-
stjórnin samþykkti tillögu
menntamálaráðherra um sölu
búðarinnar á fundi sínum fyrr í
vikunni.
Samið um sjúkraflutninga
Samningar tókust vdð austfirska
sjúkraflutningamenn á þriðju-
dagskvöfdið á öllu félagssvæði
Heilbrigðisstofnunar Austur-
lands frá Vopnafirði suður á
Djúpavog. Sjúkraflutningamenn
á Egilsstöðum eru aðilar að
ráðningarsamningnum þar sem
þeir eru starfspienn sjúkrahúss-
ins og björgunarsveitin á Seyðis-
firði sér um flutningana þar í
v'erktakavinnu og því þarf að
semja sérstaldega við þá. Aður
hafði náðst samkomulag um að
greiða tveimur mönnum á
hverju sjúkraflutningasvæði 2
bakvaktartíma á sólarhring.
Sj úkrafI utni ngamenn vildu ekki
sætta sig við að aðeins væri vær-
ið á vakt á einum bíl á Reyðar-
firði og Eskifirði þar sem þá liði
oi langur tími frá útkalli og þar
til hjálp bærist ef vaktin væri t.d.
á Reyðarfirði en hjálparbeiðnin
bærist frá Eskifirði. A það sætt-
ist stjórn Heilbrigðisstofnunar-
innar. — G9
Tveir Nígeríiuneim í haldi
Tveir Nígeríumenn sitja nú í gæsluvarðhaldi á Islandi eftir að Hæsti-
réttur dæmdi Nígeríumann í gæsluvarðhald í gær. Fyrir var einn mað-
ur í haldi sem talinn er hafa svikið um 11 milljónir króna út úr Is-
landsbanka. Rökstuddur grunur var um samráð mannanna tveggja og
er jafnvel talið að störf þeirra tengist alþjóðlegum glæpahring. Vitað
er að maðurinn sem var dæmdur í gæsluvarðhald í gær hafi þegið
greiðslur frá hinum, en hann ber því við að um lán hafi verið að ræða.
I veigamiklum atriðum skaraðist framburður mannanna tveggja og
það var m.a. haft til hliðsjónar hjá Hæstarétti í gær. Aðeins 2 milljón-
ir króna hafa komið í Ieitirnar.
DeCode hækkar
Gengi hlutabréfa í deCode Genetics, móðurfyrirtæki Islenskrar
erfðagreiningar, hækkaði um 40% í febrúar og hefur tvöfaldast frá í
desember. Samkvæmt frétt Rfkisútvarpsins er þetta þó ekki eins-
dæmi. Þannig hafa hlutabréf í hugbúnaðarfyrirtækinu Oz hækkað
um 150% frá áramótum.
Stúlkan íiuidin
Stúlka sem strauk frá meðferðarheimili í Skagafirði um helgina
fannst í íbúð í Reykjavík í gær. Hennar hafði verið Ieitað af lögreglu
og tóku barnaverndaryfirvöld við stúlkunni.
Framhvæmdastjóri Jökuls hættir
Jóhann Magnús Olafsson, fram-
kvæmdastjóri útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtækisins Jökuls á Rauf-
arhöfn, hefur sagt starfi sínu lausu
og mun hann hætta störfum í
næsta mánuði. Asbjörn Olafur As-
björnsson, ljármálastjóri félagsins,
hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri í stað Jóhanns Magnúsar og
tekur hann við því starfi 15. mars
nk.
Jóhann segir þetta ágætan tíma-
punkt til þess að breyta til. Hann
segir reksturinn síðustu tvö ár hafa
verið fremur þungan en fari batn-
andi. E.t.v. sé staðan á síðasta ári
sú besta síðan hann tók við fyrir-
tækinu. - GG
Jóhann Magnús Ólafsson.