Dagur - 04.03.1999, Side 7
FIMMTUDAGUK i. MAKS 1999 - 7
ÞJÓÐMÁL
KEANettóog
Akureyrarvöluir
BENEDIKT
GUÐMUNDS-
SON
skrifar
Það má með sanni segja að nýja
árið hafi byrjað með stæl.
Umræða sem hófst í lok síðasta
árs, en fór íyrir ofan garð og
neðan hjá almenningi vegna
anna við að fagna jólum og nýju
ári, gerir það að verkum að við
heíjum nýtt ár með hitamál þar
sem bæjarbúar skiptast í tvö horn
með eða á móti. Hér er átt við
hugmyndir að byggingu verslun-
arhúsnæðis á sjálfum Akur-
eyrarvelli.
Samanburður
I mínum huga er Reykjavík það
bæjarfélag sem við horfum til
þegar um samanburð er að ræða
innanlands. Ekki Kópavogur eða
Hafnafjörður einfaldlega vegna
þess að þau hafa ekki sömu
skyldum að gegna sem bæjar-
félag, vegna nálægðarinnar við
Reykjavík, eins og Akureyri. Þau
njóta nærverunnar við Reykjavík
og hafa ekki þurft að Ijárfesta í
ýmiskonar þjónustu sem Akur-
eyri þarf að Iáta sínum bæjar-
búum í té. Fyrir vikið hafa þessi
bæjarfélög geta þjónað sínum
íbúum betur á öðrum sviðum.
Má þar nefna menningu og listir
og æskulýðsstarf en þessir þættir,
ásamt fleirum, eru skörinni
hærra þar en hér í bæ. Það er
ekki þar með sagt að hér hafi
ekkert verið gert en vissulega
gætum við látið meira eftir okkur
ef fjármunir bæjarins væru ekki
bundnir í hitaveitu, vatnsveitu
o.fl. Þrátt fyrir að Akureyri þurfi
að binda sína Ijármuni í varan-
legum verðmætum til framtíðar
sem hér hafa verið nefndir er það
staðreynd að fjárhagsleg staða
bæjarins er mun betri en þeirra
sem hér hafa verið nefndir.
Hvað viljum við?
Með þeirri hugmynd að byggja
verslunarhúsnæði á Akureyrar-
velli er ýtt úr vör umræðu sem
tímabært er að hefjist meðal
bæjarbúa en hún er sú hvernig
viljum við sjá þetta mið-
bæjarsamfélag okkar þróast á
komandi árum. Eru einhveijar
Iíkur á því að þessi miðbær þróist
á einhvern annan hátt en gengur
og gerist í kringum okkur í bæjar-
félögum sem við getum borið
okkur saman við hvort sem það
er hérlendis eða erlendis? Víðast
hvar erlendis í bæjarfélögum á
stærð við Akureyri, sem kallast
öllu jafna svefnbær í útjaðri
stærri borga, sækir fólk vöru og
þjónustu til verslunarmiðstöðva
milli svefnbæjanna og borganna.
Þannig hefur þróunin orðið og
byggist m.a á því að gömlu
miðbæjarhlutarnir sem einu
sinni þjónuðu sem verslanir hafa
breyst í tímanna rás í skrifstofu-
og þjónustukjarna á vegum hins
opinbera meðan verslunin hefur
verið á undanhaldi. Einstaka
Fyrir mér er AkureyrarvöHur ekkert heilagur en samt finnst mér prýði af honum þar sem hann er“, segir
Benedikt meðal annars í grein sinni.
sérverslun, krár og veitingastaðir
halda enn stöðu sinni í
miðbæjunum en aðrir hafa leitað
til staða þar sem meira rými er
fyrir bílastæði og möguleikar á
verslunarrekstri með lágmarks
tilkostnaði hvað varðar bygg-
ingarmáta og íburð í innrét-
tingum. Því virkar það sem öfug-
mæli að tala um byggingu
lágvörumarkaðar í miðbænum.
Er það þetta sem við viljum sjá
rísa í hjarta bæjarins? Húsnæði
á borð við hvað við sjáum í
Skeifunni eða Smáranum í
Kópavogi r Gímald innan um
íbúðarbyggð og verslunarbyggð
sem byggir á allt öðrum prinsip-
pum en rekstur lágvörumarkaðar.
Imyndaðu þér lesandi góður,
skemmu sem er jafn stór íþót-
tavellinum með hæð upp í mæni
sem nemur a.m.k. 6 metrum.
Imyndið ykkur verslun eins og er
í Smárahvamminum. Vildu þið
sjá slíka byggingu við hliðina á
ráðhúsi bæjarins á gamla góða
Akureyrarvelli? Er þetta í anda
þess sem almennt er að gerast í
kringum okkur? Hvar er
aukningin í verslunarrými í
Reykjavík og höfuðborgar-
svæðinu? Er það á Laugaveg-
inum eða í Rankastræti eða
Hljómskálagarðinum? Er það við
Hamraborg í Kópavogi eða við
Strandgötu í Hafnafirði? Nei
það er þar sem umferðaræðarnar
og samgöngukerfið er greiðast til
allra átta. Við Kringluna og í
Smárahvammslandi. Því skyld-
um við þá stefna að því að reisa
verslunarkjarna sem næst
miðbænum þar sem umferðin er
hvað erfiðust til og frá og hver
trúir því að við höfum almennt
nokkuð að gera með 10.000 m2
verslunarrými á næstunni fyrir
ekki stærra markaðssvæði? Ef
nú Nettó ætlar ekki að nota
meira en 2000-3000 m2 sjálfir,
(sem er miklu meira rými en þeir
ætluðu að nota í því húsnæði
sem þeir íjárfestu í með fyrirvara
um samþykki hafnarstjórnar
Reykjavíkur), og Rúmfata-
lagerinn 3000 m2. Hverjir eiga
að nýta það sem eftir stendur?
Hvaðan koma þeir? Kannski
koma þeir úr miðbænum eða af
Glerárgötunni en hverjir koma í
þeirra stað í miðbæinn og á
Glerárgötuna? Við erum jú enn
að tala um sama gamla góða
markaðssvæðið sem ekkert fjölg-
ar á og bágt á ég með að trúa að
stækkun Nettós og Rúmfata-
lagersins breyti því. Hvernig er
umhorfs í miðborg Reykjavíkur í
dag? Er nokkur verslun lengur
niður í Kvosinni? og fer þeim
ekki fækkandi á Laugaveginum?
Því skyldi það eitthvað verða
öðruvísi hér, því skyldum við ætla
að lágvörumarkaður breyti þar
einhverju um. Eg blæs á allt
kjaftæði um að lágvörumarkaður
sem næst miðbænum efli hann
og styrki. Þvert á móti það
verður honum til bölvunar.
Eigendur verslana í miðbænum
hafa löngum talið að þetta eða
hitt gæti hjálpað og lífgað upp á
miðbæinn, nú síðast Norður-
pólinn. En hver var raunin? Það
sem fyrst og fremst getur lífgað
upp á miðbæinn er manneskju-
legra umhverfi. Gera miðbæinn
meira aðlaðandi fyrir gangandi
fólk skipuleggja uppákomur í
miðbænum og þannig mætti
Iengi telja. Við hljótum að gera
þá kröfu að verslunarflóran sem
fjölbreytileg og henni komið fyrir
í samræmi við það. Litlar og fal-
legar sérverslanir í miðbænum
ásamt þokkalegri matvöruver-
slun, krám og veitingastöðum og
stórmarkaðir og lágvöruverslanir
þar sem samgöngukerfið ber
þann fjölda sem verslar þar og
umferðaræðarnar liggja til sem
flestra átta.
Með eða móti
Það er eflaust hægt að finna rök
með þessari hugmynd og gaman
væri að heyra hvað KEA-menn
sjálfir segja t.d. um flutning
byggingavörudeildar félagsins út
í Glæsibæjarhrepp. Einhvern
vegin hef ég þá tilfinningu að sá
flutningur hafi verið mjög svo vel
heppnaður og staðsetning
frábær. Fjöldi viðskiptavina
hefur eflaust aukist umtalsvert
sem og velta. Staðsetning KEA
Nettó er alls ekki slæm en ég geri
mér grein fyrir að aðkoman að
versluninni er erfið. En því
verður ekki á móti mælt að þetta
er ein aðal umferðaræð bæjarins
og það hlýtur að vera hægt að
finna Iausn á því hvernig best er
að tryggja eðlilegt rennsli til og
frá versluninni. Það er a.m.k.
fráleit rök hjá forráðamönnum
KEA að halda því fram að
uppsetning ljósa við gatnamótin
hjá Nettó skapi vanda og fólk vilji
ekki bíða á Ijósum þegar það fer
að versla...! Eg er hræddur um
að það væri sama hvar Nettó væri
staðsett alltaf væri nauðsyn á
umferðarljósum til að miðla
umferðinni eðlilega. Við getum
litið til Reykjavíkur þess vegna.
Það vantar ekki Ijósin í kringum
Kringluna og Skeifuna. Hvað
varðar stækkunarmöguleika
verslunarinnar er spurning hvort
það væri til bóta að flytja Nettó
yfir götuna í gömlu plast-
verksmiðjuna ef sú bygging er
eitthvað stærri en núverandi hús-
næði Nettó. Annars eru óbyggð
svæði víða og nefni ég sem dæmi
svæðið sunnan og neðan við
Bjarg þar sem vel mætti koma
fyrir stóru verslunarrými og
þægilegri aðkomu ef hugað væri
að því áður en framkvæmdir
hæfust. Einnig má benda á upp-
fyllinguna neðan Glerárgötu og
sunnan Strandgötu, nú ef menn
trúa því virkilega að lágvöru-
markaður í miðbænum sé það
sem geti bjargað honum því þá
ekki að byggja hann sem næst
miðbænum. Þar á ég við
bílastæðið austan Skipagötu
suður að Kaupvangsstræti. Þar
mætti byggja hús með
bílastæðum í kjallaranum og ekki
komast menn nær miðbænum en
það.
Akiireyrarvöllur
Fyrir mér er Akureyrarvöllur
ekkert heilagur en samt finnst
mér prýði að honum þar sem
hann er. Vissulega \ildi ég sjá
meiri notkun á vellinum og vísa
ég þá til tillagna, sem ég tók þátt
í að móta ásamt Þórarni
Sveinssyni og fleirum, um bygg-
ingu gervigrasvallar á gamla
moldarvellinum sem ætti 10 ára
afmæli á þessu ári ef menn hefðu
borið gæfu til að framkvæma
þann gjörning þá. Síðan er löngu
tímabært að taka upp aðalvöllinn
og setja hitalagnir í hann og
þekja eða sá í hann að nýju. Svo
á auðvitað að nota þennan völl
frá því að fyrsti leikur er spilaður
í Islandsmóti á vori og eins lengi
og hægt er fram á haust. Allt tal
um flutning vallarins til að koma
fyrir fleiri hlaupabrautum og
gangstétt vestan Glerárgötu eru
vangaveltur sem sem engin rök
eru fyrir. I mínum huga væri
meira um vert að fá varanlegt
tartanefni á núverandi brautir
sem og atrennubrautir fý'rir
stökk-greinar og kastgreinar. Eg
er sannfærður um það ef gerð
yrði talning gangandi vegfarenda
um Glerárgötuna þá gæfi sú
niðurstaða ekki tilefni til að hafa
gangstétt beggja vegna götunnar.
Allt tal um að íþróttafélögin geti
tekið við þeirri starfsemi sem
fram fer á Akureyrarvelli er út í
hött og þeir sem hafa starfað fyrir
félögin vita að álagið á
svæðunum má ekki verða meira
en það er í dag. Hvaða hug-
myndir eru um byggingu nýs
svæðis í stað Akureyrarvallar ef
niður-staðan verður sú að bijóta
öll lögmál um uppbyggingu
bæjarfélaga og planta lágvöru-
markaði á völlinn? Hvað þarf að
greiða fyrir lóðina ásamt þeim
mannvirkjum sem á henni eru? I
mínum huga þarf að fá fyrir
Akureyrarv'öll upphæð sem færi
Iangt með að byggja upp sam-
bærilega aðstöðu annarsstaðar.
Það verður ekki gert á
félagssvæðum Þórs og KA því þar
er ekkert rými. Ef félögin færu
að spila alla sína deildarleiki á
svæðum félaganna myndi það
leiða til þess að fækka þyrfti
æfingum til að álagið yrði ekki
svæðunum um megn. Það er því
ekkert sem fær mig til að kyngja
rökum um hag íþróttafélaganna
af því að Akureyrarvöllur verði
settur undir stórmarkað. Þau
eru ekki í stakk búinn til að taka
við þeirri starfsemi sem til þessa
hefur farið fram á Akureyrarvelli
og reyndar myndi það eingöngu
hafa í för með sér aukið álag á
svæðunum sem þegar eru full-
nýtt þann tíma ársins sem þau
eru nýtanleg. Eg skora á bæjar-
yfirvöld að hafna framkominni
tillögu um byggingu stór-
markaðar á Akureyrarvelli.
Vissulega er fagnaðarefni ef ein-
hverjir vilja íjárfesta fyrir 1 til 2
milljarða í bæjarfélaginu en
reynum að finna þeim aðilum
aðra staði undir slíka byggingu.
Reynum ekki að sporna við
þróuninni sem er sú að stór-
markaðir og lágvöruverslanirnar
eru þar sem umferðin er greiðust
og samgöngukerfið virkast. Eg
skora á bæjarbúa að láta skoðun
sína í ljós þannig að eitt af fáu
grænu svæðunum í miðbænum
fái að halda sér um ókomna tíð.