Dagur - 04.03.1999, Page 8
8- FIMMTUDAGUR 4. MARS 1999
FIMMTUDAGUR 4. MARS 1999 - 9
FRÉTTASKÝRING
ro^ir
FRÉTTIR
FRIÐRIK
ÞOR
GUÐMUNDS
SON
SKRIFAR
Þrír jarðgangapaJkkar
á Austurlandi, göng
milli Ólafsfjarðar og
Siglufjarðar, Dýra-
fjarðargöng, Hellis-
heiðargöng, göng milli
Vestmannaeyja og
meginlandsins og
Sundabrautin (jarð-
göng Reykvíldnga!)
myndu kosta 45 til 50
miHjarða króna út-
gjöld. Ekkert aí þessu
nema Sundabrautin er
innifalið í 116 miHj-
arða króna langtíma
vegáætlun tH ársins
2010 - utan hvað Al-
þingi afhenti ríkis-
stjóminni óutfyUta
j ar ðgangaáví sun.
„Skrifaðu höfn,“ sagði frambjóð-
andi eitt sinn við aðstoðarmann
sinn þegar þeir voru á yfirreið um
kjördæmi frambjóðandans og
hann þurfti að lofa öllu fögru til
að versla sem flest atkvæði. Nú
þegar kosningabaráttan er að
hefjast vegna þingkosninganna í
vor er eitt það fyrsta sem heyrist:
„Skrifaðu jarðgöng." Háværastur
er sjálfur Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra, sem lýsti því yfir
á dögunum að þar sem Þormóður
rammi á Siglufirði og Sæberg í
Ólafsfirði hefðu sameinast væri
sjálfsagt að byggja jarðgöng milli
bæjanna. Leiðtogar annarrá kjör-.
dæma hafa brugðist hart við þess-
um ummælum, ekki síst Austfirð-
ingar, sem telja sig hafa í hönd-
unum uppáskrift um að Austur-
Iand sé næst á dagskrá jarðganga-
gerðar.
Það vill svo til að vorið 1998
samþykkti Alþingi langtíma vegá-
ætlun til 12 ára eða til ársins
2010. Sú vegáætlun gerir ekki
ráð fyrir jarðgöngum á þessu
tímabili, en tekið fram að ef til
slíkra framkvæmda komi á áætl-
unartímabilinu þá verði það gert
samkvæmt sérstakri ákvörðun
stjórnvalda, þar sem verði Iíka
tekin afstaða til fjármögnunar-
innar. Hins vegar er gert ráð fyrir
því að veita nokkru fé til jarð-
gangarannsókna á Austurlandi,'
Norðurlandi og Vestfjörðum, 120
milljónir króna alls á tímabilinu.
Að meðaltali 10 milljónir á ári
eingöngu í rannsóknir.
Jarðgöng hafa verið gerð á Vest-
fjörðum og undir Hvalfjörðinn og
samgönguráðherra var ekki í vafa
um stöðuna eins og hún blasti við
í maí 1997: „Ég hygg að ef hátt-
virtir þingmenn yrðu spurðir í
einrúmi mundi hver og einn svara
því með mér að miðað við það fé
sem nú er aflögu til vegagerðar sé
algerlega borin von að menn geti
búist við því að hægt verði að ráð-
ast í jarðgöng í fyrirsjáanlegri
framtíð."
Skrifaðu göng“ segja frambjóðendur núna og víst er að i samgöngumálum getur orðið jarðgöng laðað að sér ófá atkvæðin. Samgönguráðherra reið á vaðið með kosningaloforð, Austfirðingar minna á að þeir séu „næstir í röðinni" og það ýtti
við Vestfirðingum. Og svo koll af kolli.
Austfirðir og
Vestmannaeyjar: um 30
milljarðar
I langtímaáætluninni var ekki að
finna jarðgöng inn milli Siglu-
fjarðar og Ólafsfjarðar og fyrir
það var samgönguráðherra
skammaður, en hann varðist með
því að benda á að það væri ekki
samstaða um það á Alþingi í
hvaða jarðgöng skuli næst ráðist
ef af verður.
Og víst er að ýmsar háleitar - og
sumar verulega kostnaðarsamar -
hugmyndir eru í gangi um jarð-
gangagerð, þrátt fyrir að ekkert
slíkt sé að finna í vegáætlun,
nema með tilvísun til sérstakra
ákvarðana stjórnvalda. Lítum á
helstu hugmyndirnar og áætlanir
um kostnað.
A Austurlandi er talað um þijá
möguleika til að velja úr. I fyrsta
lagi er talað um rúmlega fimm
kílómetra jarðgöng milli Fá-
skrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar
sem kosta myndu um 2,3 millj-
arða. I öðru lagi er talað um 4,2
kílómetra göng milli Norðfjarðar
og Eskifjarðar upp á 2 milljarða. í
þriðja lagi er síðan talað um
nokkurs konar jarðganganet sem
tengja myndi Norðfjörð, Mjóa-
fjörð, Seyðisfjörð og Hérað,
þrenn göng upp á alls 16 til 18
kílómetra, sem kosta myndu ná-
lægt sjö milljörðum króna. Aust-
fjarðapakkinn er því upp á 11-12
milljarða.
Atkvæðabeita samgönguráð-
herra eru jarðgöng milli Ólafs-
fjarðar og Siglufjarðar. Sam-
kvæmt áætlun Vegagerðarinnar
eru þar uppi hugmyndir um 10
kílómetra göng, sem kosta myndu
u.þ.b. fjóra milljarða króna.
Hjálmar Jónsson, stjórnarþing-
maður að norðan, er ekki í vafa:
„Hagkvæmasti kosturinn í jarð-
gangagerð er á milli SigluQarðar
og Olafsfjarðar."
Talsmenn þessara leiða telja sig
vera næsta í röðinni, en aðrir eru
að banka hart upp á. Alþingi hef-
ur þannig gefið_ grænt Ijós 4.- þá—
hugmynd Arna Johnsen að byggð
verði jarðgöng milli Vestmanna-
eyja og meginlandsins. Ymsir
hrista höfuðið yfir þessari hug-
mynd, en grófar frumáætlanir eru
til um að slík jarðgöng myndu
kosta á bilinu 15 til 20 milljarða
króna. Sérfræðingar þykjast þeg-
ar sjá fyrir sér veruleg vandamál
vegna bergsins á leiðinni og gos-
virkninnar. Stjórnarmeirihlutinn
hristi höfuðið þó ekki meira en
svo að samþykkt var að verja allt
að 6,5 milljónum króna til að
rannsaka þennan möguleika og
vinnur Vegagerðin að því verkefni
núna.
Jarðgong imdir Hellisheiðina
pöntuð
Annar Sunnlendingur vill ekki
láta sitt eftir liggja og hefur lagt
til jafnvel enn metnaðarfyllri
hugmynd um jarðgöng. Isólfur
Gylfi Pálmason hefur þannig
stungið upp á jarðgöngum undir
Hellisheiðina. „Af hveiju eru ekki
göng í gegnum Hellisheiði inni í
myndinni?" spurði þingmaðurinn
og sagðist telja þetta vera nauð-
synlegt mál. Vegagerðin hefur
sett nokkra útreikninga á blað
sem innihalda þó fyrirvara um
hreyfingu jarðskorpunnar og um
jarðhitann. Á blaðinu stendur þó:
um það bil 8,5 kílómetra jarð-
göng sem myndu kosta upp und-
ir fimm milljarða króna
Sunnlendingar eru með meira
á prjónunum; þrýsta á um Suður-
strandarveg milli Suðurlands og
Reykjaness (sem þó fékk ekki
pláss á Iangtímaáætluninni) og
Reyknesingar berjast ötullega fyr-
ir því að gera Reykjanesbrautina
tvíbreiða, en það kostar um 1,5
milljarða króna.
Vestfirðingar vilja engir eftir-
bátar vera og telja að jarðgöng
undir Hrafnseyrarheiði til teng-
ingar norður- og suðurhluta Vest-
fjarða eigi að komast inn í endur-
skoðaða vegáætlun. Með öðrum
orðum jarðgöng milli Dýrafjarðar
og Arnarfjarðar. Fyrir Vestfirðing-
um fara í þessu máli stjórnarþing-
mennirnir Kristinn H. Gunnars-
son og Einar Kr. Guðfinnsson.
Einhverju fé hefur verið varið í að
rannsaka þennan möguleika, en
áætlanir að öðru leyti skammt á
veg komnar. Áætlunin um
Hrafnseyrarheiðina gerir ráð fyrir
2,5 milljarða króna kostnaði í
fimm til sex kílómetra jarðgöng.
Enn er ótalin einhver þýðingar-
mesta og stærsta samgöngubótin,
sem eru „jarðgöng" Reykvfkinga:
Sundabrautin. Sú framkvæmd er
talin kosta á bilinu 6 til 7 millj-
arða króna, en langtímaáætlun
vegamála gerir ráð fyrir rúmum
tveimur milljörðum króna til árs-
ins 2010. Þá má nefna nokkrar
stórar vegaframkvæmdir; Isa-
fjarðardjúpið (einn milljarður),
Möðrudalsöræfin (einn milljarð-
ur) og Búlandshöfðinn á Snæ-
fellsnesi (500 milijónir).
Samgönguráðherra: Ekki
heimta göng
Jarðgöngin sem menn eru að
panta kosta offjár. Ef reiknað er
með gangapökkunum þremur á
Austurlandi, göngum milli Olafs-
fjarðar og Siglufjarðar, Dýrafjarð-
argöngum, Hellisheiðargöngum,
göngum til Vestmannaeyja og
Sundabrautinni (sem að litlum
hluta er reyndar jarðgöng!) er ver-
ið að tala um 45 til 50 milljarða
króna útgjöld. Aðeins Sunda-
brautin er af þessu innifalin í 116
milljarða króna langtíma vegáætl-
un til ársins 2010. Þar er og t.d.
að finna 6,2 milljarða í Reykja-
nesbrautina (að breikkuninni
meðtalinni) og 3,2 milljarða (
Norðausturveg.
Þótt engin jarðgöng sé að finna
í langtíma vegáætlun Alþingis
gætti ríkisstjórnin sín á því að fá
óútfyllta ávísun; ákvörðun um
jarðgangagerð lyti sérstakri
ákvörðun hennar. Sjálfur er Hall-
dór Blöndal samgönguráðherra
ekki í vafa, en á þingi sagði hann:
„Ég tel óhjákvæmilegt að ráðast í
stórframkvæmdir á þessu 12 ára
tímabili sem eru ekki inni í áætl-
uninni.“
Og hann hefur flutt Austfirð-
ingum skýr skilaboð um boðskap
þingmanna þeirra; kannast ekki
við loforð um að næstu jarðgöng
komi á Austurlandi og segir: „Við
erum að tala um verulegar fjár-
hæðir og það er fullkomlega
* óskiljanlegt að mínum dómi hvers
vegna þingmenn geta ekki unað
því að menn reyni fyrst að átta sig
á því hvar jarðgöng eigi að vera,
kostnaðaráætlun og öðru slíku...
Ég held þess vegna að þingmenn
bæði Austurlands og Norðurlands
eigi aðeins að athuga sinn gang,
leggja fé til rannsókna og gera sér
grein fyrir því hvernig þeir vilji
standa að málum þegar að jarð-
gangagerðinni kemur. Það eru
ekki forsendur fyrir því að hægt sé
að heimta jarðgöng hér og jarð-
göng þar,“ sagði ráðherrann fyrir
ári síðan. En sami maður „heimt-
ar“ nú jarðgöng fyrir norðan -
væntanlega vegna óvæntrar sam-
einingar Þormóðs ramma og Sæ-
bergs.
Austfirðingar: Við eriun
næstir!
Að vonum hafa Austfirðingar tek-
ið „heimtingu“ norðanmanna
óstinnt upp. Á þingi hefur EgiII
Jónsson veitt samþingmönnum
sögulexíu um stefnumörkun
stjórnvalda frá 1991 og tillögu
nefndar um næstu stórverkefni. 1
nefndinni hefði m.a. núverandi
samgönguráðherra átt sæti.
„I framhaldi af þessu er sett
upp skipting [stórverkefna] á þrjú
tímabil frá árinu 1991 til 2002.
Þar eru tillögurnar þær að jarð-
göng í Ólafsfjarðarmúla verði fjár-
mögnuð á fyrsta tímabili, Vest-
fjarðagöngum verði lokið á öðru
tímabili og Austfjarðagöngum á
hinu þriðja. Það vill svo til að það
er einmitt á þessu ári sem fyrstu
framkvæmdirnar við jarðgöng á
Austurlandi áttu að hefjast," sagði
Egill Jónsson.
Hjörleifur Guttormsson var
ekki eins kurteis við samgöngu-
ráðherra og Egill og fullyrti:
„Ahugi [Halldórs Blöndals] á því
að standa við gefnar yfirlýsingar
varðandi jarðgöng á Austurlandi
hefur aldrei verið til staðar."
Ráðningu frestað
Á bæjarstjórnarfundi í vikunni var
samþykkt tillaga frá Ásgeiri Magn-
ússyni, formanni bæjarráðs, að
frestað yrði ráðningu fjögurra
slökkviliðsmanna vegna athuga-
semda sem borist höfðu. Ástæðan
fyrir því að ekki var gengið frá
ráðningunni er vafaatriði varðandi
það hvort heimilt sé að ráða í starf
menn, sem ekki hafa réttindi sem
sjúkraflutningamenn ef annar um-
sækjandi hefur slík réttindi. Einn
18 umsækjenda sem ekki átti að
ráða er méð slík réttindi en ekki Ásgeir Magnússon.
þrír þeirra sem til stóð að ráða.
Ásgeir Magnússon sagði í sam-
tali við Dag í gær að vissulega væri það sérkennilegt að pólitískir full-
trúar í bæjarstjórn og framkvæmdanefnd stæðu í mannaráðningum
af þessu tagi, enda hefðu pólitíkusarnir sjaldnast faglegar forsendur
til að meta hæfi umsækjenda á faglegum forsendum. Formaður bæj-
arráðs segir það sína skoðun að breyta ætti reglunum þannig að
slökkviliðsstjóri og varaslökkviliðsstjóri ættu að geta gengið frá
mannaráðningum á eigin ábyrgð.
Helgarstrætó í siunar
Framkvæmdanefnd Akureyrar hefur nýverið tekið þá ákvörðun að
áframhald verði á helgarakstri Strætisvagna Akureyrar í sumar. Nýt-
ing vagnanna í helgarakstri hefur að vísu ekki verið mikil frá því að
þessi tilraun hófst, en engu að síður telja menn eðlilegt að halda til-
rauninni áfram. Leiðakerfi strætisvagnanna er nú í endurskoðun og
er ljóst að það verður að taka talsverðum breytingum þegar hin nýja
Borgarbraut verður tekin í gagnið síðsumars. Verið er að skoða nýt-
ingarmál vagnanna og hafa menn hug á að fá Iíka mælingu á sumar-
nýtingu vagnanna, þar á meðal nýtingunni um helgar. Ljóst er að
sárafáir fara með vögnunum snemma á morgnanna um helgar, en
samkvæmt upplýsingum Dags myndi það kosta mikla röskun á samn-
ingum við bílstjóra og öðru ef menn færu út í að hreyfa við núver-
andi áætlun.
Vilja byggja við Oddeyrarskóla
Skólanefnd Akureyrar hefur
gert um það sérstaka bókun að
strax verði hafist handa við
hönnun viðbyggingar við Odd-
eyrarskóla og útvegað ljármagn
til þess að hefja framkvæmdir
strax á þessu ári. Þessi bókun
kemur í kjölfar þess að gerð
hefur verið ný nemendaspá fyr-
ir leikskóla og grunnskóla á Ak-
ureyri sem nær til ársins 2004 -
2005. I húsrýmisþarfarhluta
þeirrar spár kemur fram að um
700-1200 fermetra vantar við
skólann. Að sögn Guðmundar Þórs Ásmundssonar skólafulltrúa
munar hér mestu um að skólinn er að fá inn 8. og 9. bekk og útlit
fyrir að strax á næsta ári verði að fá við skólann tvær lausar kennslu-
stofur. Að öðru leyti virðist nemendaspáin ekki raska áformum við
hina skólana, nema hvað að ljóst er að hraða verður uppbyggingunni
við Giljaskóla eftir þarnæsta vetur. Það eru því fyrst og fremst í Odd-
eyrarskóla og Giljaskóla sem grípa þarf til ráðstafana, og eru hug-
myndirnar þær að leysa þörfina að hluta með viðbyggingum og að
hluta með lausum kennslustofum.
Skólanefnd vill að byggt verði við
Oddeyrarskóla á Akureyri.
8S8ÍSTEX.
ÍSLENSKUR TEXTÍUÐNAÐUR H F.
Aðalfundur ístex hf. verður haldinn föstudaginn
12. mars 1999, kl. 16.15 í húsnæði félagsins í Mosfellsbæ.
Dagskrá:
1. Almenn aðalfundarstörf samkvæmt
16. grein samþykkta félagsins.
2. Heimild aðalfundar til handa félagsstjórn til kaupa á
eigin hlutabréfum.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Reikningar félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins í
Mosfellsbæ, viku fyrir aðalfund, hluthöfum til sýnis.
Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent á skrifstofu félagsins
að Álafossvegi 40A, Mosfellsbæ, á fundardag.
Mosfellsbæ 26. febrúar 1999
Stjórn ístex hf.
4-