Dagur - 04.03.1999, Síða 12
12 - FIMMTUDAGU R 4. MARS 1999
ry^tr
Sirrti 462 3500 • Hólabraut 12 • www.nett.is/borgarbio
SERHVER MAÐUR
ORRUSTU. SEAN
PENN, WOODY
HARELSON, JOHN
TRAVOLTA, NICK
NOLTE, GEORGE
CLOONEY & FLEIRI
STÓRLE"'ARAR
- TILNEFND TIL 7
ÓSKARSVERÐLAUNA
M.A. SWA firSTA
MYNDIN
Fimmtud
THIN RED LINE
HER ER A FERÐINNI
BLOÐUG HROLL-
VEKJA. JAMÍS
WOODS LEIKUR
BLOÐSUGUBANA
SEM VINNUR FYRIR
VATÍKANIÐ. HANN
ASAMT URVALS-
SVEIT BLOÐSUGU-
BANA ÆTLAR AÐ
DREPA SIÐUSTU
BLOÐSUGUNA SEM
TIL ER I HEIMINUM.
EN ÞAÐ ER HÆGARA
SAGT EN GERT.
AÐALHLUTVERK:
JAMES WOO"DS &
DANIEL BALDWílN
Fimmtud.
kl. 21 og 23
nniPQLHYi
V DDt™]
D \ G I T A L
nvjfl bio
RÁÐH ÚSTORGI
SÍMI461 4666 TRX
DIGITAL
Sjáið hana aftur, nú ÍTHX
Sýnd kl. 18:50
ÍÞRÓTTIR
KNATTSPYRNA
Engiis minnimáttarkennð hjá
Drillct
Egill „Drillo" Olsen, fyrrum
landsIiðsþjáSari Noregs, hefur
náð frábærum árangri með
norska liðið VáJerenga, sem leik-
ur gegn Cheísea í Evrópubikarn-
um í kvöld. Það er heldur engin
minnimáttarkennd að þvælast
fyrir þessum norska messíasi,
eins og landar hans lcalla hann.
Fyrir leik Noregs og Brasilíu á
HM síðastliðið sumar sagði
Drillo að brasilíska landsliðið yrði
mun betra undir sinni stjóm en
Sagallos. Nákvæmlega það sama
sagði hann um Chealsea og Vialli
í gær. Svar Gianluca Vialli var að
þá ætti Norðmaðurinn bara að
hafa tal af herra Ken Bates og
sækja um þjálfarastöðuna hjá
Chealsea. „Hún er örugglega
mun betur borguð en hjá Váler-
enga,“ sagði Vialli.
Góðui árangur á Englandi
Egil „Drillo" Olsen hefur stýrt
norska landsliðinu níu sinnum
gegn Englendingum og aldrei
tapað. Þrír sigrar og sex jafntefli
er uppskeran. „Leikurinn við
Chealsea í kvöld er bara eins og
hver annar leikur. Enginn býst
við neinu af okkur enda liðið ekki
í neinni Ieikæfingu og því er eng-
in pressa liðinu. Verði úrslitin
hagstæð þá er það bara af hinu
góða,“ sagði Olsen.
Enska pressan hefur farið
hörðum orðum um „DriIlo“ og
lýst því yfir að Englendingar hati
ieikstílinn hans. „Eg býst ekki við
að eiga framtíð fyrir mér sem
þjálfari í Englandi. En Italía og
Spánn gætu verið inni í myndinni
hjá mér,“ sagði Norsarinn. — GÞÖ
Viggó tekur
viðhjáFH
Viggó Sigurðs-
son, handknatt-
leiksþjálfari,
sem undanfarin
ár hefur þjálfað
í Þýskalandi,
hefur gert
munnlegt sam-
komulag við
FH-inga um að
taka við þjálfun
meistaraflokks
karla fyrir næsta leiktímabil. Að
sögn Jóhannesar Long, varafor-
manns handknattleiksdeildar
FH, var gert samkomulag við
Viggó í fyrradag og mun hann
hefja störf hjá félaginu í sumar.
„Viggó er að ganga frá sínum
málum í Þýskalandi og við mun-
um ganga frá skriflegum samn-
ingum við hann, þegar hann
kemur heim. Við FH-ingar ætl-
um okkur stóra hluti í handbolt-
anum á næstu árum og við
stefnum á toppinn. Við munum
gera allt til að styrkja liðið sem
mest og tími frekari uppbygging-
ar hjá félagint, í nánd,“ sagði
Jóhannes.
Meistaradeild
Evrópu
Úrslit leikja í gærkvöld:
Man. United-Inter Milan 2:0
Real Madrid-Dynamo Kiev 1:1
B. Munchen-Kaiserslautern 2:0
Juyentus-OIympiakos
Kefíavík og Njarðvík berjast á toppnum.
Sudumesj aliðin
í efstu sætuuum
Þegar þrjár umferðir
eru eftir í DHL-deild-
inui í körfuknattleik
er ekki enn ljóst hvaða
lið hreppir deildar-
meistaratitilinn og
hvaða átta lið komast
í úrslitakeppnina.
Tuttugasta umferð DHL-deildar-
innar í körfuknattleik hefst í
kvöld og verða þá spilaðir fimm af
sex leikjum umferðarinnar:
Kl. 20.00 KR-Skallagrímur
Kl. 20.30 Þór Ak.-Haukar
Kl. 20.00 UMFN-ÍA
Kl. 20.00 Tindastóll-Keflavík
Kl. 20.00 Snæfell-UMFG
Sfðasti Ieikur umferðarinnar
milli KFÍ og Vals fer svo fram á
morgun kl. 20:00 á Isafirði.
Deildarmeistaratitillmn í
augsýn
Fari svo að Keflvíkingar vinni
sinn leik gegn Tindastóli, eru þeir
svo gott sem búnir að tryggja sér
deildarmeistaratitilinn, þar sem
þeir eiga eftir nokkuð öruggan
heimaleik í 21. umferðinni gegn
Þór. Tapi þeir aftur á móti leikn-
um á Sauðárkróki, eiga Njarðvík-
ingar einnig möguleika á titlin-
um, en þeir eiga þó eftir erfiða
leiki í Iokaumferðunum, gegn
Grindavík á útivelli og gegn
Haukum heima. Síðasti leikur
Keflvíkinga er aftur á móti gegn
Snæfellingum í Hólminum, sem
oft eru erfiðir heim að sækja.
Næstu lið, sem eru Grindavík
og KR með 26 stig og ísfirðingar
með 24 stig, munu svo berjast um
þriðja sætið, en öll hafa þau
tryggt sig í úrslitakeppnina og
sigla því lygnan sjó í síðustu um-
ferðunum. Fyrstu fjögur sætin
skipta þó öll máli því þau gefa
heimaleikinn í fyrstu umferð úr-
slitakeppninnar.
Baráttan um sæti í
úrslitakeppninni
Þau lið sem enn eiga möguleika á
að komast í úrslitakeppnina í ár,
eru Tindastóll, sem er svo gott
sem öruggt áfram miðað við stöð-
una í dag, en það er með 20 stig
og á eftir áðurnefndan heimaleik
gegn Keflvíkingum i næstu um-
ferð og síðan heimaleik gegn KR
og útileik gegn Þór, og Snæfell
með 18 stig, en Ieikur heima gegn
Grindavík í kvöld, á svo Hppka í
útileik í næstu umferð og svo
Keflavík heima í Iokin. Leikja-
prógram Snæfellinga verður að
teljast nokkuð erfitt, en þeir eru
til alls líklegir og 18 stigin eiga
eftir að fleyta þeim langt.
Þá eru það Skagamenn sem eru
með 16 stig, en þeir eiga í kvöld
útileik gegn Njarðvík, síðan
heimaleik gegn ísfirðingum og
heimsækja síðan nágranna sína í
Borgarnesi í síðustu umferðinni.
Þar mæta þeir ljóngrimmum
Sköllunum sem nú verma næst-
neðsta sætið.
Fjórða liðið sem berst um það
að komast í úrslitakeppnina eru
svo Haukarnir, sem eru með 14
stig. Þeir eiga útileik gegn Þór í
kvöld, síðan Snæfell heima í
næstu umferð og útileik gegn
Njarðvík í síðustu umferðinni.
Það er því Ijóst að baráttan um
áttunda sætið mun standa á milli
Snæfells, ÍA og Hauka og rniðað
við stöðuna er mjög erfitt að spá í
spilin og allir leikir hjá liðunum
upp á líf og dauða.
Botnslagurmn
Staða neðstu liðanna í deildinni
er sú að Valur er í neðsta sætinu
með 4 stig, en Þór og Skallagrím-
ur eru í næstu sætum með 8 stig
hvort félag. Valur á útileik gegn
Isfirðingum á morgun, síðan
heimaleik gegn Skallagrími í
næstu umferð og siðan útileik
gegn KR í síðustu umferðinni.
Ekkert annað en kraftaverk getur
því bjargað Iiðinu frá falli.
I DHL-deiIdinni er reglan sú að
aðeins eitt Iið fellur beint niður í
1. deild, en næstneðsta liðið leik-
ur um laust sæti við næstefsta lið-
ið í 1. deild. Það verður hvn' b'kleet
hlutskipti annað hvort Þórs cöa
Skallagríms að taka þátt í þeim
slag.
Leikir síðustu umferðanna:
21. umferð
Sunnud. 7. mars
ÍA-KFÍ
UMFG-UMFN
Keflavík-Þór Ak.
TindastóII-KR
Haukar-Snæfell
Valur - Skallagrímur
22. umferð
Fimmtud. 11. mars
Skallagrímur-ÍA
KR-Valur
Þór Ak.-Tindastóll
KFÍ-UMFG
UMFN-Haukar
Snæfell-Keflavík