Dagur - 17.03.1999, Blaðsíða 5
MIBVIKUDAGVR 17. MARS 1999 - S
FRÉTTIR
Vilj a listahátí d á
landsbyggðinni
Tveir meimiiigarfor-
kólfar leita eftir
stuöningi sveitarfé-
laga og menningar-
frömuða við þá hug-
mynd að efna til
Listahátíðar íslands,
sem mdtvægi við
Listahátíð Reykjavík-
ur.
Menntamálaráðuneytið veitti ný-
lega Hannesi Sigurðssyni, list-
fræðingi, og Sigríði Dóru Sverr-
isdóttur, menningarforkólfi á
Vopnafirði, styrk til að kanna
vilja sveitarfélaga og menningar-
fulltrúa á landsbyggðinni til þess
að taka þátt í Listahátíð Islands,
hátíð sem haldin yrði annað
hvert ár á móti Listahátíð í
Reykjavík. Hugmyndin er að
Listahátíð Islands yrði annars
eðlis en nafna hennar í Reykja-
vík. Hún myndi teygja sig yfir
sumarmánuðina og spannaði
breiðara svið menningar, s.s.
hagyrðingakvöld, handverkssýn-
Sigríöur Dóra Sverrisdóttir á Vopnafirði og Hannes Sigurðsson listfræðing-
ur vilja að komið verði á fót Listahátíð íslands, þ.e. listahátíð sem dreifðist
um landsbyggðina og styrkti þannig menningarlíf utan höfuðborgarsvæð-
isins.
ingar, rímnaflutning auk upp-
lestra, leik- og Iistsýninga.
Gert er ráð fyrir að framlag
sveitarfélaga til hátíðarinnar yrði
einkum í formi aðstöðu, þ.e.
sveitarfélögin sæju um að taka á
móti listafólki og útveguðu að-
stöðu, gistingu og fæði. Eins og
Hannes bendir á kom fram í
skýrslu Byggðastofnunar fyrir
tveimur árum að skortur á menn-
ingu og afþreyingu hvers konar
væri taíin ein helsta ástæða fyrir
fólksflótta af landsbyggðinni.
Hannes og Sigríður Dóra hafa
þegar fengið stuðningsyfirlýsing-
ar frá fulltrúum Ijölda sveitar- og
bæjarfélaga, m.a. var erindi
Hannesar og Sigríðar lagt fram á
fundi menningarmálanefndar
Akureyrarbæjar fyrir nokkrum
dögum sem Iýsti yfir stuðningi
við að áfram verði unnið að fram-
gangi hugmyndarinnar. Að sögn
Ingólfs Armannssonar, fræðslu-
málastjóra og starfsmanns menn-
ingarmálanefndar Akureyrarbæj-
ar, leist mönnum ágætlega á
þessa hugmynd en hægt væri að
útfæra hana á ýmsa vegu. Slík
listahátíð gæti orðið verulegur
styrkur fyrir þær menningarhá-
tíðir sem haldnar eru um allt
land á sumrin. „Það byði þá upp
á að hægt væri að setja upp bita-
stæðari og viðameiri dagskrár en
verið hefur.“
Hann taldi ekki fráleitt að rík-
isvaldið væri tilbúið til að styrkja
slíka hátíð, líkt og það hefur
styrkt Listahátíð í Reykjavík.
„Það er allavega í takt \ið það
sem mikið er boðað þessa dag-
ana, að það þurfi aðgerðir til að
bæta stöðu landsbyggðarinnar og
þá í þessum málaflokki ekki síð-
ur en öðrum. Eg held að augu
manna séu smám saman að opn-
ast fyrir því að það er orðin mjög
ákveðin krafa fólks, hvar sem
það býr á landinu, að hafa að-
gang að ýmis konar menning-
arafþreyingu." — LÓA
Borgarráð viH sporna við starfemi
erótískra veitingastaða.
Gegn erótísk-
uiu stöðiun
Borgarráð hefur samþykkt að
óska eftir viðræðum við félags-
málaráðuneyti, samgönguráðu-
neyti og dómsmálaráðuneyti um
aðgerðir til að sporna við eró-
tískum veitingastöðum. Helstu
áhyggjur borgaryfirvalda snúast
m.a. um það hvort vændi eða
fíkniefnaneysla þrífst í skjóli
þeirra.
I greinargerð með erindi verk-
efnisstjórnar um veitingamál
sem lögð var fyrir borgarráð í
gær kemur fram að sex erótískir
staðir séu starfræktir í borginni.
Þá virðist ekkert lát á Ijölgun
þeirra. Hins vegar virðist ekkert
vera í gildandi löggjöf sem heim-
ilar neinar sérstakar takmarkan-
ir á þessari starfsemi. Eina úr-
ræðið sé eftirlit lögreglu. I ljósi
þessara takmörkuðu úrræða
þarf að koma til breyting á gild-
andi lögum og því nauðsynlegt
að hefja viðræður við þessi þrjú
ráðuneyti um slíkar breytingar.
- GRH
Mikio
tapIS
Áætlanir íslenskra sjávarafurða stóðust ekki og var verulegt tap á rekstri I
fyrra.
Tap af rekstri Iceland
Seafood í Bandaríkj-
imiun nam 631 inillj
ón króna og Gelmer -
Iceland Seafood í
Frakklandi var rekið
með 44 milljóna
króna tapi.
Tap af rekstri íslenskra sjávaraf-
urða nam 668 milljónum króna
á árinu 1998 á móti 310 milljóna
króna tapi árið 1997. Tap af
reglulegri starfsemi fyrir skatta
nam 901 milljón líróna en m.a.
hafa verið seldar eignir sem ekki
voru taldar nauðsynlegar til að
þjóna meginstarfsemi félagsins.
Meginástæða þessa mikla halla á
síðasta ári er rakin til erfiðleika í
rekstri Iceland Seafood Corp.
(ISC) í Virginia í Bandarfkjun-
um, eða að 95% hluta.
Nýir stjórar
Breytingar hafa orðið í æðstu
stjórnunarstöðum hjá IS en
Finnbogi Jónsson hefur tekið við
starfi forstjóra IS en Benedikt
Sveinsson hefur látið af því starfi
en tekið við starfi forstjóra ISC.
Heildarsala samstæðunnar á ár-
inu 1998 nam 33 milljörðum
króna samanborið við 25 millj-
arða árið 1997, sem er 29%
aukning milli ára er má rekja til
þess að rekstur Gelmer-Iceland
Seafood í Frakklandi er inni allt
árið 1998 en aðeins tvo mánuði
árið 1997. Rekstrargjöld námu
33 milljörðum króna á móti 27
milljörðum króna árið 1997.
Áætlun stóðst ekki
Afar margt fór úrskeiðis í stjórn-
un og rekstri ISC, sem Ieiddi til
631 milljónar króna taps en gert
hafði verið ráð fyrir jafnvægi í
rekstrinum á þessu ári. Sam-
kvæmt bandarískum reiknings-
skilaaðferðum skal eignfæra
skattafrestun vegna rekstrartapa
og lækka tap á rekstrarreikningi
samsvarandi. Stjórnendum IS
þótti hins vegar ástæða til að
hafa vara á og því er aðeins
helmingur af reiknuðu skatta-
hagræði ársins hjá ISC eign-
færður í reikningum samstæð-
unnar. Ef þessi sérstaka niður-
færsla hefði ekki verið tekin
hefði tap samstæðunnar orðið
551 milljón króna í stað 668
milljóna króna. Gert er ráð fyrir
hagnaði af reglulegri starfsemi á
þessu ári.
Tap hjá Gelmer
Tap varð einnig af rekstri Gelm-
er - Iceland Seafood í Frakk-
landi, en þegar ÍS tók við rekstr-
inum haustið 1998 var fyrirtæk-
ið rekið með miklu tapi. Gert var
ráð fyrir 87 milljóna króna tapi á
síðasta ári en það reyndist vera
44 milljónir króna. Rekstur ann-
arra fyrirtækja innan samstæð-
unnar skilaði 7 milljóna króna
hagnaði, sem er nokkru lakara
en gert var ráð fyrir í áætlun árs-
ins. Fjárhagsleg endurskipulagn-
ing hefur leitt til lækkunar
nettóskulda samstæðunnar úr
3,3 milljörðum króna á miðju ári
1998 í 2,3 milljarða króna í árs-
lok. Boðið var út nýtt hlutafé að
nafnvirði 200 milljónir króna og
nam söluverð þess um 350 millj-
ónum króna. Leitað verður eftir
samþykki aðalfundar 26. mars
nk. til þess að auka hlutafé um
400 milljónir króna. — GG
Aldraðir skoðaðir frá öllum hliðiun
Að tillögu heilbrigðisráðherra hefur ríkisstjórnin
samþykkt að semja við Olaf Olafsson, fyrrum land-
lækni og nýkjörinn formann Félags eldri borgara,
um söfnun upplýsinga um félagslega stöðu aldraðra,
einangrun meðal þeirra, hvaða hópar þeirra þurfa
mest á samfélagshjálp að halda og í hvaða formi.
Jafnframt er Ólafi ætlað að skoða sérstaklega heilsu-
far aldraðra og þá þætti sem einkenna þá umfram
aðra, svo sem mikla lyfjaneyslu og e.t.v. litla al-
menna heilsueflingu. Mun þessi vinna að mestu Q/gfur Ólafsson
byggjast á fyrirliggjandi gögnum og rannsóknum, og formaður
beinist að Ijárhagslegum, telagslegum og læknis- Félags eldri
fræðilegum þáttum sem varða hagi aldraðra. borgara
Ríkisstjórnin samþykkti að veita 1.250.000 krón- ---
um til verkefnisins, sem Ólafi Ólafssyni er falið að
rínna f nánu samráði við framkvæmdanefnd um ár aldraðra og jafn-
framt að taka þátt í viðamikilli könnun heilbrigðisráðuneytisins á
högum aldraðra. — HEI
Ámihættur
Árni Sigfússon borgarfulltrúi hefur beðist lausnar
frá starfi borgarfulltrúa. Bréf þess efnis var lagt fram
á fundi borgarráðs í gær en vísað til borgarstjórnar.
I bréfi sínu segir Arni m.a. að við sfðustu borgar-
stjórnarkosningar hefði áframhaldandi þátttaka
hans á vettvangi stjórnmálanna byggst á sigri sjálf-
stæðismanna. 1 framhaldi af niðurstöðu kosning-
anna hefði hann lagt til að Inga Jóna Þórðardóttir
tæki við oddvitahlutverki af sér í borgarstjórnarflokki
sjálfstæðismanna. Arni telur í bréfi sínu til borgar-
ráðs að tími sé kominn til að stíga skrefið til fulls og
snúa sér að störfum á öðrum vettvangi. — GRH
„Herhergistaka46 á Fosshótel KEA
Fjögur ungmenni, öll fædd á árinu 1984, voru handtekin á Fosshót-
el KEA í gærmorgun en þau höfðu farið í óleyfi inn á eitt herbergi
hótelsins og komið sér þar vel fyrir með ýmsan varning frá hótelinu.
Ekki voru unnar skemmdir á herberginu en málið er nú í höndum
rannsóknadeildar lögreglunnar og ráðgjafardeildar Akureyrarbæjar.
Árni Sigfússon
vill hætta sem
borgarfulltrúi.