Dagur - 17.03.1999, Síða 7
MIÐVIKUDAGV R 17. MARS 1999 - 7
Xhyur.
ÞJÓÐMÁL
Fjamám - tæknin
er ekkí aðalatriðið
Mér finnst á stundum að í umræðunni um fjarkennsiu og notkun á tölvum í skólum hafi gleymst til hvers nem-
endur eru í skóium. í því efni vil ég fullyrða að kennarar við fjarkennslu VMA eru komnir af því stigi að hugsa um
dýra tækni og flókinn búnað. Þeir einbeita sér að því að nemendur læri, “ segir Jóhannes m.a. í grein sinni.
Hvernig lærum við nýja hluti?
Hvaða aðstæður verða helst til
þess að við lærum eitthvað nýtt?
Þessar spurningar þurfa ætíð
að vera í huga þeirra sem starfa
við skóla og ekki síður í huga
þeirra sem fjalla um skólamál á
opinberum vettvangi. í þessari
grein mun ég reyna að rekja eina
af helstu kenningum um það
hvernig fólk Iærir og tengja hana
við umræðu um Ijarnám.
Eg hef starfað við Verkmennta-
skólann á Akureyri undanfarin ár
og tekið þátt í Ijarkennslu VMA
með því að kenna Iíffræði. Við
sem störfum við fjarkennslu
VMA höfum tekið eftir því. að
mikið er rætt úm Ijarkennslu en
því miður er stundum verið að
nota sama heitið um tiltölulega
mismunandi aðferðir sem ef til
vill er ekki réttlátt að bera sam-
an.
Hugsmíðahyggj a
Hvað á maður að gera þegar
maður er að kenna einhverjum
eitthvað? Þetta er spurning sem
nýliðar í kennslu þurfa að glima
váð. Flest okkar hafa reynslu af
því að sitja undir útskýringum
kennara á einhverju námsefni og
allir vissu að hann ætlaðist til
þess að við lærðum það af hon-
um. Slíkar aðferðir bera mikinn
keim af þeirri afstöðu til náms að
hægt sé að færa vitneskju frá ein-
um aðila til annars. Slík afstaða
ber það líka með sér að allir sjái
hlutina sömu augum og að hægt
sé að lýsa hlutum, hugmyndum
og tilfinningum á hlutlægan hátt.
Raunvísindi hafa lengi vel haft
það að leiðarljósi að hver sem er
getibeitt fyrirfram ákveðnum
rannsóknaraðferðum og séð það
sama og allir aðrir sem nota
sömu aðferðir við sömu aðstæð-
ur. Þetta viðhorf er kennt við
objektívisma eða hluthyggju og
út frá því er eðlilegt að ætlast til
að nemendur læri hlutina þegar
kennarinn segir þeim hvernig
þeir eru.
Annað sjónarhorn á það hvern-
ig við skoðum hlutina og hvernig
við lærum er kennt við
constructivisma eða hugsmíða-
hyggju. Þar er gert ráð fyrir því
að hver einstaklingur þurfi að
búa sér til sína eigin hugmynd
um það sem hann er að læra. Við
notum svo þessa hugmynd á
meðan hún dugar okkur. I raun
er verið að tala um að besta hug-
myndin lifi af í höfðinu á okkur.
Það er auðvelt að nefna dæmi
um að við lærum oft á þennan
hátt. Þegar barn lærir ensku er
líklegt að orðið „big“ komist inn í
orðaforðann nokkuð fljótt. Hægt
er að nota orðið „big“ um allt
sem er stórt eða mikið. Það kem-
ur þó fljótt að því að þetta orð
passar ekki við öll tækifæri.
Barnið lærir að í sumum tilfell-
um eru orð eins og „great",
„huge“, „enormous" og „gigantic"
notuð í staðinn fyrir „big“. Barn-
ið er að læra þegar það breytir
hugmyndum sínum um orðið
„big“ og bætir við nýjum hug-
myndum sem ná yfir íjölbreyttari
aðstæður og samhengi.
Annað dæmi er það sem henti
mig í ökuferð með tveggja ára
barni. Það rigndi á framrúðuna
og rúðuþurrkur voru í gangi.
Barnið segir allt í einu „bíllinn er
að greiða sér“. Það sem barnið
var að gera var að nota hugmynd-
ina: „þegar við drögum einhvern
hlut yfir svæði og gerum allt voða
fínt þá heitir það að greiða sér“.
Barnið var að nota hugmynd sem
það hafði á takteinum og beitti
henni á nýja reynslu.
Eg fullyrði að við gerum þetta
mjög oft. Við notum skilgrein-
ingar oghugmyndir um alla
mögulega hluti og beitum þeim
sem okkur finnst að passi best í
það og það skiptið. Ef við komust
að því að þær hugmyndir sem við
búum yfir duga ekki þá þurfum
við að breyta fyrirliggjandi hug-
myndum eða að búa til nýjar. Þá
erum við að Iæra.
Það er alltaf mjög mikilvægt að
kennarar láti reyna á þær hug-
myndir sem nemendur búa yfir
og leitist við að sýna þeim fram á
að þær hugmyndir sem kennar-
inn \ill koma til skila nái ef til vill
betur yfir reynsluna en þær hug-
myndir sem nemendur búa þegar
yfir. Ef kennari segir einfaldlega
við nemendur að danir hafi ekki
verið vondir við íslendinga í
gegnum tíðina þá er ekkert sér-
lega líkiegt að það skili sér. Ef í
náminu felst vinna með heimild-
ir og rökræður um samskipti
dana og íslendinga þá er líklegt
að það dugi til að nemendur
þroski með sér hugmyndir um
þessi mál og þá segjum við að
nemendur séu að læra.
Fjaxkennsla VMA
Nú vil ég benda þér sem ert að
lesa þessa grein á það að þú ert
örugglega að nota mjög ákveðna
hugmynd um kennslu og nám.
Þessi hugmynd um kennslu felst
í því að hópur nemenda situr í
kallfæri við kennarann og hlustar
á hann eða gerir annað sem
kennarinn ætlast til að gert sé. I
þessu tilfelli koma nemendur og
kennari saman á sama tíma eftir
fyrirfram mótaðri stundaskrá.
Nú er rétt að benda á að þetta
er alls ekki eina leiðin við að
kenna og læra. Eg ætlast til að þú
breytir þeirri hugmynd sem þú
hefur um kennslu og nám þannig
að nemendur þurfi ekki að vera
að vinna allir á sama tíma og
kennarinn ekki heldur. Þarna
skilur líka Ieiðir með Ijarkennslu
VMA og margri annarri kennslu
jafnvel þótt hún sé nefnd fjar-
kennsla. Eg er alls ekki
að tala um það að fjarkennsla
VMA sé betri eða verri en önnur
kennsla heldur að hún sker sig úr
á ýmsan hátt. Ymsar stofnanir og
þar á meðal Háskólinn á Akur-
eyri nota fjarfundabúnað til
kennslu þannig að nemendur
geti verið íjarri kennaranum en
þeir þurfa samt að vera á ákveðn-
um stað á ákveðnum tfma fyrir
framan fjarfundabúnaðinn. Kost-
ir þessarar aðferðar eru ótvíræðir
t.d. að umræður verða í nem-
endahópnum og við kennarann
og að nemendur geta komið
spurningum til kennarans um
leið og verið er að fjalla um efn-
ið. Ókostur er hinsvegar að allir
nemendur og kennari verða að
vera til staðar á sama tíma.
Fjarkennsla VMA hefur hins-
vegar byggst á því að nota ein-
faldan búnað, póstforrit og inter-
nettengingar til að senda bréf á
milli kennara og nemenda. I
minni fjarkennslu sendi ég bréf á
póstlista og þessi bréf fá allir
nemendur í hlutaðeigandi áfanga.
I bréfinu eru leiðbeiningar um að
Iesa ákveðinn kafla vel og taka
sérstaklega eftir þessu eða hinu.
Ennfremur sendi ég bréf með
verkefni fyrir nemendur að leysa.
Eg nota fyrirfram ákveðna daga
vikunnar til að senda þessi bréf
og nemendur hafa viku skilafrest
á verkefnum. Þegar nemandinn
gefur sér tíma þá les hann náms-
efnið samkvæmt fyrirmælum í
bréfinu og leysir verkefnið. Hann
sendir úrlausnina í tölvupósti og
ég fer yfir og sendi leiðréttingar
innan sólarhrings. Þarna vinna
nemendur í sínum tíma og ég í
mínum og engarkröfur eru um að
allir séu við störf á sama tfma. Eg
læt nemendur mína gera verkleg-
ar tilraunir og athuganir heima
hjá sér, segja frániðurstöðunum
og útskýra af hverju hlutirnir
gerðust eins og raun varð á. Við
notum gagnvirk verkefni á ver-
aldarvefnum til að nemendur æfi
sérstök atriði. I lok annarinnar
hefur forstöðumaður fjarkennslu
VMA samið við einhverja aðila
sem næst heimili nemanda um
að halda próf fyrir hann.
Nemendur í íjarkennslu VMA
taka próf í grunn- og framhalds-
skólum \íðsvegar á landinu, í
sendiráðum og ræðismannsskrif-
stofum um allan heim og á ýms-
um öðrum stöðum.
Nú ert þú vonandi búinn að
breyta þeim hugmyndum um
kennslu sem þú hafðir áður. Ef
ekki þá hjálpar það ef til vill að
segja þér að nemendur í Ijar-
kennslu VMA eru yfirleitt
ánægðir, þeir ná góðum árangri
og íjarkennsla VMA hefur vaxið
mikið umfram það sem Ijárveit-
ingar til hennar hafa gert ráð fyr-
ir. Það getur varla bent til annars
en að þessi aðferð hafi einhverja
kosti fyrir suma nemendur.
Ef meira þarf til að sannfæra
þig þá er rétt að gera grein fyrir
því aðafar lítið af þeim tækjum
og hugbúnaði sem er notað við
fjarkennslu VMA hefur þurft að
búa til sérstaklega fyrir fjar-
kennsluna. Ennfremur er rétt að
geta þess að kostnaður við fjar-
kennsluna er sá sami og við
venjulegt skólahald þótt kennar-
inn sinni hverjum nemanda sér-
staklega hvað yfirferð úrlausna
snertir. Það má líka velta fyrir sér
hagræðinu fyrir nemendur að
þurfa ekki að ferðast að skóla og
geta unnið að náminu í sínum
eigin tíma.
Tækni eða nám?
Þegar fjallað er um fjarkennslu
er brýnt að gera sér grein fyrir því
aðþar er um ýmsar leiðir að
ræða. Við verðum að vita um
hvað við erum að tala þegar við
ræðum um að nota nýja tækni í
skólastarfi. Erum við ef til vill
bara að tala um að nota nýja
tækni til að kenna en ekki til þess
að læra? Erum við viss um að
nemendur okkar læri eitthvað?
Það er þó það sem máli skiptir og
þar skiptir tæknin minna máli en
það sem nemandinn lærir.
Mér finnst á stundum að í um-
ræðunni um fjarkennslu og notk-
un á tölvum í skólum hafi
gleymst til hvers nemendur eru í
skólum. í því efni vill ég fullyrða
að kennarar við í fjarkennslu
VMA eru komnir af því stigi að
hugsa um dýra tækni og flókinn
búnað. Þeir einbeita sér að þ\i að
nemendur læri.