Dagur - 17.03.1999, Blaðsíða 12
+
12
MIDVIKUDAGUR 17. MARS 1999
Simi 462 3500 * Hólabraut 12 • www.nett.is/borgarbio
SOMB SECRETS WILL HAUNT YOU FÖREVER,
SUM LEYNDARMAL
MUNU ÁSÆKJA ÞIG
ALLA ÆVI!
SUMA DAUÐLANGAR
AÐ FA ANNAÐ
TÆKIFÆRI.
STRANGLEGA
B.l. 16 ARA.
pw
JMMER
Miðvikud. Id. 21
og 23.
PELASANTVILLE ER ÖRUGGLEGA -, ;1
A'MEÐÁL FRUMLEGUSTU, BEST i SAMFELAGI MAURA ER ERFITT
LE'ÍKÍfl 0G BEST GERÐU MYNDA AÐ VERA EINSTAKUR EN MVAUR-
AR-SINSt ÞETTA ER MYND SEM ALLIR UNNENDUR GÓÐRA KVIKMYNDA VERÐA AÐ SJÁ. ’VERULEGA SÆT MYND! ««»Miðvikud. kl. 23. AR GETA LÍKA VERIÐ GAURAR! Miðvikud. kl. 21. Miðaverð 600/300 kb
WBm
SMASAGNA-
SAMKEPPNI
DAGS OG
MENOR
Skilafrestur er 30. apríl
apr
Handrit skulu merkt meo
dulnefni, en nafn höfundar
fylgi meö í lokuðu umslagi.
Handrit sendist til:
Ljóðasamkeppni Dags og
Menor, Hrísalundurla,
600 Akureyri
eöa
Wma
B
Ljóöasamkeppni Dags og
Menor, Strandgata 31,
600 Akureyri.
fHjl
-^íno^
JJ
www vi 31 r
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR
-Dagur
IÞROTTIR
KNATTSPYRNA
Manchester United til Kina
Manchester United heldur í
sína aðra Kínaför, á tveimur
árum, í sumar. Liðið mun leika
tvo leiki í ferðinni, við Shenhua
FC þann 21. júlí í Shanghai og
24. júlí við South China FC í
Hong Kong. Ferðin er farin til
þess m.a. að markaðssetja
Manchester United á kínversk-
urh sjónvarpsmarkaði. Báðum
leikjunum verður sjónvarpað til
56 landa. Þegar Manchester
United lék við South China FC
árið 1997 seldust allir miðar
upp þrem mánuðum fyrir leik-
inn sem um 400 milljónir
manna íylgdust með í sjónvarpi.
Margir áhorfenda voru þá
pirraðir vegna þess að Ryan
Giggs og David Beckham léku
ekki með United vegna meiðsla.
Nú stendur til að halda þeim
heilum fyrir Kínareisuna.
Reiknað er með að markaðs-
setning leikjanna í sumar muni
ganga enn betur en síðast enda
verða miðar á völlinn ekki gefn-
Leeds vill ekki Hooijonk
Stjórnarformaður Leeds, Peter
Ridsdale, og þjálfarinn, David
O’Leary, harðneita því að þeir
hafi einhvern áhuga á að kaupa
vandræðagripinn hjá Notting-
ham Forest, Hollendinginn Pi-
errie van Hooijonk. Sögur voru
á sveimi um að Hollendingurinn
færi til Leeds í sumar fyrir
u.þ.b. 4 milljónir punda.
Leeds reyndi að fá Hooijonk
til liðs við sig fyrir jól og vildi þá
borga 5 milljónir punda. Nú er
öldin önnur og O’Leary segist
engan áhuga hafa á að kaupa
kappann nú. „Hooijonk er ekki
einn þeirra leikmanna sem ég er
að leita eftir núna,“ sagði þjálf-
arinn. Stjórnarformaðurinn tek-
ur í sama streng og segist ekki
hafa talað við nokkurn mann
hjá Nottingham Forest um kaup
á Hollendingnum á árinu.
Uglumar á veiðum í
Skotlandi
Danny Wilson, stjóri hjá Sheffi-
eld Wednesday, veiddi vel í
Glasgow í vikunni. Þá náði
hann í fremherjann hjá Celtic,
Simon Donnelly, og félaga hans,
miðvallarleikmanninn Phil
O’Donnell. Það sem gleður
stjórnarmenn Sheffield hvað
mest er að félagið þarf ekki að
Ieggja út krónu fyrir leikmenn-
ina vegna Bosmann reglunnar.
Þetta eru fyrstu leikmennirnir
sem Danny Wilson kaupir til
liðsins síðan hann fékk Danny
Sonner í sínar raðir, fyrir 75.000
pund, síðastliðinn október. Pilt-
arnir, sem eru báðir landsliðs-
menn, munu þó ekki koma til
Sheffield fyrr en eftir vertíðar-
Iok í skoska boltanum í vetur.
Bryan Robson viU íra
Bryan Robson hjá Middles-
brough hefur Iagt net sín í írskri
landhelgi að þ u sinni. Hann
er nú á eftir landsliðsmanninum
Keith O’Neil og vill borga
Norwich 700 þúsund pund fyrir
kappann sem er aðeins 23 ára.
Robson segist vongóður um að
nú takist að landa írska lands-
liðsmanninum til Teeside, vegna
Bosmann reglunnar. A síðasta
ári bauð hann 4 milljónir punda
í kappann en þá sagði Norvvich
lOTtma' v-v
íwwftp dU' iP 'iHH'
ikQ.
Magnús Finnsson, formaður íshokkídeildar Skautaféiags Akureyrar, telur
leikinn i fyrradag einn skemmtilegasta leik sem spilaður hefur verið í ís-
hokki hér á landi.
Meistaramir
kærðir
Skautafélag Reykja-
víkur varð um helgiua
íslandsmeistari í ís-
hokkí, eftir að hafa
sigrað Skautafélag
Akureyrar í öllum
þremur leikjum úr-
slitakeppninnar.
í fyrsta skipti sögunnar sáu liðs-
menn Skautafélags Akureyrar á
eftir Islandsmeistaratitlinum í ís-
hokkí til Skautafélags Reykjavík-
ur á mánudagskvöld.
AIIs voru leiknir þrír leikir í úr-
slitakeppni Islandsmótsins og
sigraði SR í þeim öllum. Fyrst 9-
5 í Reykjavík, síðan 7-4 í næsta
leik nyrðra á sunnudag og loks 6-
5 í síðasta Ieiknum á Akureyri í
fyrrakvöld. Leikurinn á sunnu-
dag er fyrsti tapleikur Skautafé-
Iags Akureyrar fyrir íslensku Iiði
á heimavelli í fimmtán ár. Urslit
í keppninni eru þó ekki endan-
lega ráðin, þar sem Akureyringar
hyggjast kæra Reykvíkinga fyrir
ólögmæta notkun leikmanna.
Magnús Finnsson, formaður
íshokkídeildar Skautafélags Ak-
ureyrar, telur málið snúast um
brot á reglugerð um hlutgengi og
félagaskipti. Leikmennirnir Per
Anderson og Stefán Tómasson
hafi fyrst verið tilkynntir inn í lið
SR, klukkutíma fyrir fyrsta úr-
slitaleikinn. Reglugerðin segi að
um íslenska leikmenn gildi að fé-
lagaskiptum innan keppnistíma-
bils skuli synjað í öllum tilfellum
nema umsækjendur hafi flust
búferlum á tímabilinu. Það megi
segja um Stefán, en þá taki fé-
lagaskiptin einn mánuð. Um er-
lenda Ieikmenn gildi að senda
þurfi umsókn til stjórnar ISS,
sem síðan verði að gefa út sér-
stakt keppnisleyfi. „Við teljum
okkur vera með mjög traust
mál,“ segir Magnús.
Langur tími gæti Iiðið þangað
til niðurstaða fæst. Kært verður
bæði hjá héraðsdómstóli IBR í
Reykjavík og hins vegar fyrir IBA
á Akureyri. Ef kæran vinnst,
verða allir úrlitaleikirnir þrír
dæmdir með 10 marka sigri fyrir
SA.
En hvað segir Magnús um þær
raddir að kæran sé tilkomin
vegna tapsárinda SA, sem alltaf
hefur farið með sigur af hólmi til
þessa? „Ekki vil ég viðurkenna
það. SR var strax gerð grein fyrir
því í upphafi f\;rsta Ieiks að notk-
un leikmannanna yrði kærð. Ég
vil hins vegar benda á að leikur-
inn í gær [fyrradag] er einn
skemmtilegasti leikur sem spil-
aður hefur verið í íshokkí hér á
landi.“ Hann telur fákunnáttu
hjá SR hafa valdið því að svo fór
sem fór. - BÞ
Töp gegn Svíiun
og Frökkum
íslenska landsliðið í
handknattleik sem
nú tekur þátt í
World-Cup í Svíþjóð
tapaði sínum öðrum
leik á mótinu í gær-
kvöld, þegar liðið
steinlá með tíu
marka mun 28-18
gegn Frökkum.
Leikur íslenska liðs-
ins var vægast sagt
slakur, en Frakkarn-
ir léku á als oddi.
Staðan í hálfleik var 14-10 fyrir
Frakka og ekki heil brú í leik
okkar manna eftir það.
Sem dæmi um slappleikann
hjá Iiðinu má geta þess að aðeins
eitt varið skot leit dagsins ljós í
öllum seinni hálfleiknum.
Markahæstir íslenska liðsins
voru þeir Dagur Sigurðsson með
sjö mörk og Olafur Stefánsson
Þessi frammi-
staða íslenska liðs-
ins gegn Frökkum
kom nokkuð á óvart
eftii a^cL.tuL i .K.
gegn Svíum f fyrra-
kvöld. Þar var allt
annað að sjá til
liðsins og eftir að
hafa Ieitt leikinn
framan af, var það
Úr leik Svía og íslendinga. aðeins á síðustu
mínútunum sem
Svíar sigldu framúr
og unnu 29-26. Liðið spilaði
þokkalega vörn og menn voru að
berjast til sigurs. Aðeins vantaði
herslumuninn til að hrista Sví-
ana af sér, en þegar þau tækifæri
buðust, tók gamla SMagrýlan í
taumana. Markahæstir gegn Sví-
um voru Olafur Stefánsson og
Valdimar Grímsson báðir með
sex mörk.
ölVL' fJiBll'ífi' RP rffltlflfliH'