Dagur - 31.08.1999, Page 4
4 -I’RIÐJUD AG UR 31. ÁGÚST 1999
-Ð%ývr
RAFVEITA AKUREYRAR
Sá hluti tæknideildar Rafveitu Akureyrar,
sem sér um rekstur og framkvæmdir
orkukerfisins, auk birgðahalds er fluttur
að Rangárvöllum.
Rafveita Akureyrar.
FRÉTTIR
Ökumaður, sem grunaður er um akstur undir áhrifum lyfja, ók tvisvaryfir á rauðu á gatnamótum Lönguhiíðar og Miklu-
brautar um heigina og endaði ævintýrið með árekstri. mynd: hilmar þór.
EXPRESS
HAGLASKODN
Mávahlíð 41, Rvík, sími 562 8383
OG SÖLUAÐILAR UM ALLT LAND
—HÆFftBETUR
9 Sjörnubrotin plasthylki
9 Plastbolla forhlöð
9 16-24mm sökkull
9 VECTAN-hágæða púður
• 36, 42 og 46 gr. hleðsla
• 3% ANTIMONY-högl
• Stærðir 1, 3, 4, 5
9 Hraði: 1375fet/sek.
9 ClP-gæðastaðall
_______
SPORTVÖRU
GERÐIN HF.
$ SUZUKI
-4«« ' —
Kotndu i
reyttslu-
akstur!
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
Hefur þú séð svona verð á 4x4 bil?
• Mest seldi bíllinn í Japan(!), annað árið í röð.
• öruggur Suzuki fjölskyldu- og fjölnotabíll.
• Skemmtilegur bíll meðmiklum staðalbúnaði:
ABS hemlaiæsivörn
rafdrifnu aflstýri,
samlæsingu, o.m.fl
Ódýrasti 4x4
bíllinn á Islandi
imiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiHiiiiiiiiitiiiiii
GL 1.099.000 KR.
GL 4x4 1.299.000 KR.
mmmimmmmimmmmmmmmiii
Fór tvisvar yfir á
rauðu á lyfjiim
I dagbók lögreglunnar
í Reykjavík fyrir dag-
ana 27. til 30. ágúst
eru umferðaróhöpp og
ólæti á almannafæri
hýsna áberandi.
Fámennt og rólegt var í miðbæn-
um á föstudagskvöld, að mati lög-
reglu. Fólk hélt sig að mestu á
veitingahúsunum og gekk heim-
flutningur síðan ágætlega. Öllu
meiri ölvun var að kvöldi laugar-
dags og fjölmennt á veitingahús-
um fram til sunnudagsmorguns.
Lögreglan vekur sérstaka at-
hygli ökumanna á því að á næstu
dögum hefst skólastarf grunn-
skóla á nýjan leik. Ökumenn eru
beðnir að sýna aðgæslu í ná-
grenni skólanna og verður hún
með nokkurn viðbúnað af þessu
tilefni eins og undanfarin ár.
Sjö ökumenn eru grunaðir um
ölvun við akstur eftir helgina og
22 vegna hraðaksturs.
Arekstur tveggja bifreiða varð
að Flétturima síðdegis á föstudag.
Ökumenn bifreiðanna og farþegi
úr annarri fluttir á slysadeild.
Skemmdir urðu á grindverki og
flytja varð bæði ökutækin af vett-
vangi með aðstoð kranabifreiðar.
Flúðu af vettvangi
Ökumaður, sem grunaður er um
akstur undir áhrifum lyfja, ók um
miðnætti á föstudag norður
Lönguhlíð á mót rauðu Ijósi við
Miklubraut. Þegar ökumaður
gerði sér grein fyrir umferðarbroti
sínu sneri hann við og ók suður
sömu götu á öfugum vegarhelm-
ingi aftur á móti rauðu ljósi og
hafnaði á bifreið sem kom úr
gangstæðri átt. Flytja varð öku-
mann þeirrar bifreiðar á slysa-
deild. Báðar bifreiðar voru flutt-
ar af vettvangi með kranabifreið.
Tilkynnt var um árekstur á Bú-
staðabrú að morgni laugardags.
Þegar ökumaður og farþegi bif-
reiðarinnar gerðu sér grein fyrir
því að lögregla var á leiðinni
hlupu þeir af vettvangi. Ökumað-
ur náðist mjög fljótlega í ná-
grenninu en farþegi, sem var að
sögn blóðugur í andliti, komst
undan en náðist síðar um morg-
uninn.
Ölvaður á reiðhjóli
Sfðdegis á laugardag hjólaði ölv-
aður maður á reiðhjóli utan í tvær
bifreiðar og braut spegil á báðum
bifreiðunum auk annarra minni-
háttar skemmda. Reiðhjólamað-
urinn var fluttur á lögreglustöð.
Rúmlega þrjú aðfaranótt
sunnudags varð árekstur tveggja
bifreiða á Kringlumýrarbraut við
Miklubraut. Ökumenn og farþeg-
ar voru flutt á slysadeild, alls sex
talsins, en áverkar þeirra ekki
taldir mjög alvarlegir.
Þá slösuðust farþegar sem ekki
notuðu öryggisbelti er tvær bif-
reiðar skullu saman á Breiðholts-
braut snemma á sunnudags-
morgun.
Fíkniefnaviðskipti í
,,beinni“
A eftirlitsmyndavélum Iögreglu
sást að morgni Iaugardags til
tveggja manna í Pósthússtræti
taka upp plastpoka með hvitu
duftkenndu efni afhenda það
þriðja aðila, sem skoðaði efnið,
skilaði því aftur og gekk á brott.
Lögreglumenn voru sendir á vett-
vang og handtóku þeir tvo menn á
Lækjartorgi skömmu síðar. Á
þeim fundust ætluð fíkniefni og
voru þeir fluttir á lögreglustöð og
síðan í fangahús.
Lögreglumenn höfðu afskipti af
borgara aðfaranótt mánudags og
fannst við Ieit í bifreið hans ætluð
fíkniefni. Hann var handtekinn
og fluttur á lögreglustöð.
Kastað í gegnum rúðu
Lögreglu barst tilkynning um að
fimm aðilar hefðu ráðist á mann á
Smiðjustíg við Hverfisgötu árla
morguns á Iaugardag. Árásar-
mennirnir fimm létu sig ekki
muna um að kasta fórnarlambi
sínu í gegnum rúðu á verslun á
staðnum og varð að flytja hann á
slysadeild. Lögreglan er að vinna
úr upplýsingum um hvetjir árás-
armennirnir eru.
Að morgni sunnudags urðu
átök milli manna í Austurstræti.
Einn einstaklingur notaði brotna
flösku í átökunum og varð að
flytja karlmann á slysadeild með
áverka á höfði eftir átökin.
Karlmaður gekk berserksgang
utan við veitingahús í Þingholts-
stræti að morgni sunnudags.
Dyraverðir hugðust róa manninn
en kom þá til átaka þeirra á milli.
I átökunum brotnuðu tvær rúður
auk minniháttar áverka. Árás-
armaðurinn var handtekinn og
vistaður í fangahúsi lögreglu.
Þá kom til átaka milli dyravarða
og gests veitingastaðar við Lækj-
argötu aðfaranótt sunnudags.
Gesturinn var handtekinn af lög-
reglu og fluttur á Iögreglustöð.
Einnig voru höfð afskipti af öðr-
um karlmanni sem ekki gat sætt
sig við störf Iögreglu á staðnum.
Reynt að stela handjámum
Lögreglu var tilkynnt um að IítiII
drengur hefði íallið rúma tvo
metra ofan af lofti f húsi í Grafar-
vogi síðdegis á föstudag. Hann
var fluttur á slysadeild en meiðsl
eru ekki talin alvarleg.
Karlmaður var handtekinn í
Lækjargötu eftir að hann hafði
gert tilraun til að stela handjárn-
um af lögreglumanni sem þar var
við skyldustörf. Maðurinn var
fluttur á lögreglustöð og má
vænta ijársektar fyrir athæfi sitt.
Kona á þrítugsaldri var hand-
tekin að morgni sunnudags eftir
að hafa valdið skemmdum á bif-
reið í Þingholtunum. Hún var
vistuð í fangageymslum Iögregl-
unnar. - bjb
Kolmiumaveiðar ganga illa
Kolmunnaveiði Islendinga á
Hvalbaksgrunni gengur
frámunalega illa og eru þau skip
sem þar eru að fá um 500 tonn á
sólarhring, f það mesta. Þær
væntingar sem útgerðamenn
gerðu til góðrar veiði á þessu
sumri ganga alls ekki eftir, en all-
mörg skip hafa farið í vélaskipti,
þar sem þau höfðu ekki nógu
stóra vél og spilbúnað til þess að
draga flotvörpuna nógu hratt á
eins miklu dýpi og kolmunninn
almennt heldur sig. Kostnaður
útgerðarinnar skiptir hundruð-
um milljóna króna. Utgerðirnar,
flestar, halda þó skipum áfram á
veiðum til að ’skapa sem mesta
veiðireynslu áður en veiðar á kol-
munna verða kvótasettar.
Veiðin er orðin um 83 þúsund
tonn, en af því hafa erlend skip
Iandað um 9.500 tonnum. Lang-
mestum kolmunnaafla hefur ver-
ið landað á Seyðisfirði, eða 23
þúsund tonnum, en þar lönduðu
í fyrradag Sveinn Benediktsson
SU, Hákon ÞH og Björg Jóns-
dóttir ÞH alls 2.300 tonnum.
Næstu löndunarhafnir þar á eftir
að magni til eru Fáskrúðsfjörður,
Neskaupstaður og Eskifjörður
með um 15 þúsund tonn. - gg
.muar/gáH i ligaz ' !d ióunfem munio inl gol í fióG.<?
6s is cgudá ibnýa iáriftd iiiáz.nai?. iziá'.t ivláa 'ud rrl grilumoáiriftz