Dagur - 31.08.1999, Blaðsíða 13
Xfe^ui'
ÞRIDJVDAGVR 31. ÁGÚST 1999 - 13U
ÍÞRÓTTIR
Fema hjá Andy Cole
Andy Cole skaut
Newcastle á bólakaf.
Liverpool yfirspiladi
Arsenal á Anfield
Road. Aston Villa í
annað sætið. Loks sig-
ur hjá Derby.
Southampton heldur
áfram sínu striki.
West Ham með í
toppslagnum.
Andy Cole, framherji Man.
United, var heldur betur á skot-
skónum þegar Rauðu djöflarnir
sigruðu Newcastle 5-1 á Old
Trafford í gær. Hann var í miklu
stuði og raðaði inn fjórum fyrstu
mörkum United, auk þess sem
hann átti allan heiðurinn af því
fimmta, sem Ryan Giggs skoraði.
Newcastle mætti nú fram-
kvæmdastjóralaust til leiks á Old
Trafford, eftir að Ruud Gullit
sagði af sér um helgina. Steve
Clarke, fyrrum aðstoðarmaður
Gullits, stjómaði Iiðinu og virðist
það litlu breyta. Liðið var jafn
dofið og fyrr og sjálfur landsliðs-
fyrirliðinn, Alan Shearer, náði
varla skoti á markið allan leik-
inn. Það var dæmigert fyrir gang
mála að Newcastle þurfti sjálf-
mark til að komast á blað, en það
gerði Henning Berg eftir að hafa
rekið stórutána í boltann og stýrt
honum framhjá Van Der Gouw,
markverði United.
Það er ekki hægt að segja að
það hafi verið uppörvandi fyrir
leikmenn Newcastle að mæta til
leiks á Old Trafford, eftir það
sem á undan er gengið hjá lið-
inu. Liðið hefur ekki unnið þar
leik síðan árið 1972 og ekki
bætti úr skák að það var að leika
Andy Cole hefur verið erfiður sín-
um gömlu félögum hjá Newcastle.
gegn Iiði sem stefndi að því að
klára sinn 26. heimaleik í röð án
taps.
Newcastle spilaði mest allan
seinni hálfleikinn á tíu leik-
mönnum, þar sem Grikkjanum
Nikos Dabizas var vísað af leik-
velli á 49. mínútu.
Loksins sigur hjá Liverpool
Það gerðist fyrir átta árum að
Arsenal vann sinn síðasta sigur
gegn Liverpool á Anfield. Með
Robbie Fowler og Patrik Berger í
banastuði átti hin heimsfræga
Arsenalvörn fullt í fangi með að
halda sér á Iöppunum. Tvö - núll
sigurinn hefði getað orðið mun
stærri. Það var margt sem gladdi
Gerard Houllier og stuðnings-
menn Liverpool í leiknum á
laugardaginn. I fyrsta lagi var
vörn Rauða hersins öryggið upp-
málað. Hyppia og Song áttu báð-
ir góðan leik og óvíst hvenær
Heggem og Staunton fá aftur að
reyna sig í byrjunarliðinu. I öðru
lagi hélt Robbie Fowler upp á
fæðingu sonar síns, á fimmtu-
daginn, með sínum besta leik í
tvö ár. Svo virðist sem hann hafi
tekið mark á orðum Houllier og
félaga sínum úr landsliðinu,
Alan Shearer, að láta lappirnar
og boltann tala sínu máli. I
þriðja Iagi voru það gleðitíðindi
fyrir Keegan að sjá Michael
Owen koma inná síðustu sek-
úndur leiksins. Hann er tilbúinn
fyrir Liverpool og landsliðið. I
fjórða lagi var hungrið í sigur til
staðar og það hefur skilað Liver-
pool sex stigum, gegn toppliðun-
um, í vikunni.
Arsenal náði ekki að skapa sér
eitt einasta marktækifæri allan
leikinn. Davor Suker sannaði af
hvetju John Toschak gat ekki
notað hann hjá Real Madrid þeg-
ar hann klúðraði vítaspyrnu, sem
Arsenal fékk í gjafapakka frá
annars ágætum dómara leiksins.
Arsene Wenger hefur fulla
ástæðu til að vera áhyggjufullur
ef þetta er frammistaðan sem
leikmenn hans ætla að sýna
stuðningsmönnum sínum í vetur.
John Gregory blæs í blöðnuta
Aston Villa byijar leiktímabilið
nú á sama hátt og í fýrra og er
strax komið í annað sætið. Það
stöðvaði sigurgöngu Middles-
brough með marki frá Dion
Dubiin. John Gregory getur því
glaðst yfir góðu gengi á fyrstu
vikunum, en á sama tíma hlýtur
hann að velta því fyrir sér hvort
blaðran hans springi á miðju
tímabili, rétt eins og á síðustu
leiktíð.
West Ham átti ekki í erfiðleik-
um með nýliðana frá Bradford.
Harry Redknap hefur byggt upp
gott framtíðarlið á Upton Park.
Hamrarnir eru í Evrópukeppni í
fyrsta sinn í 18 ár og eiga góða
möguleika á að ná Evrópusæti
aftur í vor haldi liðið áfram á
sömu braut.
Walter Smith, stjóri Everton,
varð arfavitlaus út í dómara leiks
Derby og Everton á Pride Park
þegar Fuertes opnaði marka-
reikning sinn og heimamenn
náðu sínum fyrsta sigri á Ieiktíð-
inni. Með ósigrinum komst
Liverpool upp fyrir nágranna
sína á stigatöflunni en Derby
fleytti sér frá botni deildarinnar.
Dúndur leikur á White Hart
Lane
Flest benti til að Tottenham
héldi áfram sigurgöngu sinni á
heimavelli á laugardaginn. Læri-
sveinar Grahams náðu forystu
gegn Leeds. Gestirnir úr norðri
voru þó ekki tilbúnir til að játa
sig sigraða í annað sinn á einni
\iku og náðu að knýja fram sigur
á síðustu metrunum í hörku Ieik
á White Hart Lane. Steffen Iver-
sen getur nagað sig í handarbök-
in yfir færunum sem hann klúðr-
aði fyrir Tottenham.
Southampton hefur byrjað
leiktíðina betur en nokkur bjóst
við. Það hélt sínu striki þegar
Sheffield Wednesday kom í
heimsókn og setti boltann tvisvar
í búrið hjá botnliðinu.
Drillo og hans menn töpuðu
enn einum leiknum á lokamínút-
unum þegar Dan Petrescu skor-
aði fyrir Chelsea undir lok leiks-
ins við Wimbledon. Fallbaráttan
virðist því blasa við þjóðsagna-
persónunni frá Noregi strax í
upphafi leiktímabilsins.
Sunderland varð að sætta sig
við 1-1 jafntefli á velli Ljósanna.
- GÞÖ.
Aston Villa - Middlesbro. 1 -0
(Dublin)
Bradford - West Ham 0-3
(Di Canio, Sinclair, Wanchope)
Derby - Everton 1 -0
(Fuertes)
Liverpool - Arsenal 2-0
(Fowler, Berger)
Southampton - Sheff. Wed. 2-0
(Kachloul, Oakley)
Tottenham - Leeds 1-2
(Sherwood) - (Smith, Harte)
Wimbledon - Chelsea 0-1
(Petrescu)
Sunderland - Coventry 1-1
(Phillips) - (Keane)
Man. United - Newcastle 5-1
(Cole 4, Giggs) - (Henning Berg,
sjálfsmark)
Islensku framherjamir skoruðu allir
Ámi Gautur Arason
frábær í marki meist-
aranua. AUir íslensku
framherjarnir skor-
uðu. Heiðar Helguson
markahæstur. Brann
komið í annað sætið.
Steinar Dagur Adolfs-
son Ula meiddur.
Norðmenn eiga nú, fyrstir Norð-
urlandaþjóða, tvö lið í Meistara-
deild Evrópu. Þessi lið, Rosen-
borg og Molde, mættust í 21.
umferðinni á Lerkendal, heima-
velli Rosenborg, og buðu upp á
það besta sem knattspyrnulið
norðurhjarans standa fyrir. Ros-
enborg hefur ekki bestu knatt-
spyrnumenn álfunnar í sínum
röðum en leikur þaulskipulegan
og agaðan fótbolta, sem skipar
Iiðinu meðal þeirra bestu. Liðið
sýndi sínar bestu hliðar þegar
það tók á móti Molde og snéri
leiknum á fimm mínútna kafla í
seinni hálfleik og sigraði 2-1.
Árni Gautur Arason átti frábær-
an leik í marki meistaranna, sem
hafa nú nánast gulltryggt tíunda
meistaratitilinn í röð.
„Ég veit nú ekki hvort við erum
húnir að tryggja okkur titilinn.
Við eigum eftir tvo erfiða útileiki,
gegn Brann og Stabæk, sem við
þurfum helst að vinna. En við
erum með sjö stiga forystu á
Brann núna og það verður erfitt
hjá Molde eftir tapið í kvöld svo
við ættum að geta náð í titilinn,"
sagði Árni Gautur. „Ég er nokkuð
ánægður með mína frammi-
stöðu. Ég er ánægður með að
hafa bjargað mér út úr vandamáli
sem ég átti sjálfur sök á og síðan
var gott að verja þetta síðasta
skot, einn á móti einum. Það
mikilvægasta var náttúrulega að
vinna leikinn og það fyrir framan
tæplega 19 þúsund áhorfendur í
rosa stemmningu."
Arni Gautur hefur varið mark
meistaranna þrjá leiki í röð. Á
hann von um að halda sæti sínu
út leiktíðina'? „Mér hefur gengið
vel í þessum leikjum og því sé ég
ekki að það ættu að verða neinar
breytingar þess vegna. En nú er
ég að fara heim í Iandsleikina og
maður er aldrei öruggur með
hvað gerist á þeim tíma. Ég kem
til baka bara daginn fyrir næsta
leik og þá er spurning hvort mað-
ur verður valinn í liðið.
Heiðar og Tryggvi góðir
Lilleström tók á móti Tromsö á
Heiðar Helguson er nú marka-
hæstur í norsku deildinni.
Árásen í miklum íslendingaslag.
Gestirnir höfðu betur og sigruðu,
1-2. Tryggvi Guðmundsson,
maður leiksins, skoraði fyrra
mark Tromsö og lagði upp það
síðara. Heiðar Helguson skoraði
mark Lilleström og er nú einn í
efsta sætinu í baráttunni um
gullskóinn.
„Við megum bara ekki við
neinum meiðslum og alls ekki
þegar við missum Rúnar. Þá ger-
ist ekkert á miðjunni. Það var
Iíka mjög slæmt að Sveinung gat
ekki leikið þennan leik. Fram-
herjinn sem lék með mér í dag er
fljótur og duglegur en hann leik-
ur ekki fyrir liðið. Vill gera allt
upp á sitt einsdæmi og því fáum
við alltof fá færi. Það var auðvit-
að mikilvægt fyrir mig að skora
eftir þrjá leiki án marks en ég
hefði frekar viljað að einhveijir
þrír aðrir hefðu skorað ef það
hefði dugað okkur til að vinna
leikinn," sagði Heiðar Helguson,
besti maður Lilleström í leikn-
um.
Tryggvi Guðmundsson var öllu
ánægðari. „Við spiluðum fínan
fyrri hálfleik og náðum þá tveggja
marka forystu. I seinni hálfleik
slöppuðum við alltof mikið af og
héldum bara að þetta væri allt í
höfn hjá okkur. Það er bara alls
ekki svoleiðis í fótbolta. Við vor-
um heppnir að sleppa með sigur-
inn þegar upp er staðið."
Stabæk vaknaði af dvalanum
Eftir hörmulega útreið í síðasta
leik vaknaði Stabæk af værum
dvala og gersigraði Válerenga, 3-
0. Pétur Marteinsson er orðinn
góður af meiðslunum og kom inn
á seint í leiknum. „Það var mikill
léttir fyrir okkur að vinna þennan
leik eftir niðurlæginguna í Bodö.
Válerenga er algerlega höfuðlaus
her og því hefðum \ið átt að
vinna þá miklu stærra. Við vorum
að brenna af fullt af færum. Þeir
eru bara búnir að missa allt
sjálfstraust eftir alla krísuna und-
anfarið og eiga sér varla viðreisn-
ar von, greyin," sagði Pétur.
Ríkharður Daðason átti mjög
góðan Ieik með Viking þegar lið-
ið vann Strömgodset 3-2, eftir að
hafa lent undir 0-2 á heimavelli
sínum. Ríkharður skoraði sitt 11.
mark og lagði upp annað.
Kongsvinger steinlá, 3-0, í
Moss. Meira áfall fyrir Kongsvin-
ger og íslenska landsliðið, er að
Steinar Dagur Adolfsson leikur
ekki knattspyrnu það sem eftir er
ársins. Hann er með brotna hné-
skel.
Odd Grenland heldur áfram að
gera það gott. Nýliðarnir lækk-
uðu rostann í Bodö/GIimt með 4-
2 sigri á heimavelli sínum í
Skien. - gþö
Einkuimir íslcndinganna:
Árni Gautur Arason, Rosenborg 8
Tryggvi Guðmundsson, Tromsö 7
Heiðar Helguson, Lilleström 6
Ríkharður Daðason, Viking 6
Auðun Helgason, Viking 5
Rosenborg - Molde 2-1
Lilleström - Troms 1-2
Moss - Kongsvinger 3-0
Odd Grenland-Bodö/Glimt 4-2
Skeid - Brann 1-2
Stabæk - Válerenga 3-0
Viking - Strömsgodset1 ■>" -■ 3-2 f •
.áivbflozi