Dagur - 10.11.1999, Side 1
Lðg um hópup]} -
sagnir þverbrotm
Fiskverkafólk mót-
mælir lögleysu.
Krefst sektarákvæða
og skaðabóta í endur-
skoðuu laga.
Stjórnvöld loka aug-
um.
Svo virðist sem töluverður mis-
brestur sé á því að atvinnurek-
endur í fiskvinnslu fari eftir
ákvæðum kjarasamninga og laga
um hópuppsagnir. A nýafstöðn-
um aðalfundi fiskvinnsludeildar
Verkamannasambands Islands
var þessari lögleysu harðlega
mótmælt. Bent er á að á sama
tíma og stjórnvöld ámálga að
herða lög við hópuppsögnum op-
inberra starfsmanna loki þau
augunum lyrir lagabrotum þegar
verið sé að segja upp almennu
verkafólki í tugavís. I ályktun
fundarins er þess krafist að gerð
verði breyting á lögum um hóp-
uppsagnir með ákvæðum um
sektir og skaðabætur.
Unglingar
í vanda
Tuttugu unglingar eru í brýnni
meðferðarþörf, en mega horfa
uppá langa biölista og tugir ung-
linga til viðbótar eru á hættu-
svæði. Urræði stjórnvalda hafa
dregist, því kerfinu gengur hægt
að leysa úr eigin vanda; kerfis-
læg vandamál tefja fyrir fjölgun
meðferðarúrræða.
Mál hnífstungupiltsins sem
Dagur hefur fjallað um undan-
farna daga er dæmi af unglingi
þar sem tímabært inngrip hefði
getað forðað örþrilhráði. Að-
standendur piltsins segja að
kerfið hafi brugðist - aðstoð hafi
borist of seint. Umboðsmaður
barna kallar eftir aðgerðum og
vísar til Barnasáttmála Samein-
uðu þjóðanna og lögreglan segir
að meðferðarpláss verði að vera
fyrir hendi, oft sé tími til inn-
gripa skammur. - FÞG
- Sjá opnuumfjöllun bls. 8-9.
Yfir 400 manns
Aðalsteinn Á. Baldursson, for-
maður fiskvinnsludeildar Verka-
mannasambands íslands, VMSI,
segir að hópuppsagnir séu meðal
annars ekki tilkynntar til stjórn-
valda, gengið sé framhjá trúnað-
armönnum, samráð sé nafnið
tómt og fátt eitt sé gert til að lág-
marka það tjón sem starfsfólk
verður fyrir vegna hópuppsagna.
A undanförnum mánuðum hafa
hópuppsagnir bitnað á yfir 400
félagsmönnum aðildarfélaga
VMSI. Aðalsteinn segir að þessi
ákvæði laganna séu þverbrotin af
atvinnurekendum í fiskvinnslu
víða um iand. Á aðalfundinum
hefði verið mjög heitt í fólki út af
þessum vinnubrögðum atvinnu-
rekenda og þá ekki síst yfir því að
þeir virðast komast upp með
þetta átölulaust. I það minnsta
hafa menn ekki orðið varir við að
stjórnvöld hafi fett fingur út í
þessi vinnubrögð. Hann segir að
innan verkalýðshreyfingarinnar
sé þetta litið mjög alvarlegum
augum og meðal annars hefur
ASÍ skrifað bæði félagsmálaráðu-
Aðalsteinn Arnar Sigur-
Baldursson. mundsson.
neyti og Vinnumálastofnun þar
sem bent sé á þessar lögleysur.
Útíhött
Formaður Samtaka fiskvinnslu-
stöðva, Arnar Sigurmundsson,
segist fljótt á litið telja að þarna
sé um að ræða eitt af þessum
álitamálum um dagsetningar á
tilkynningum til vinnumiðlana
þegar fyrirtæki segja upp starfs-
fólki. Hann segist hins vegar ekki
kannast við aðrar ásakanir fisk-
verkafólks og því komi þær á
óvart. Aftur á móti sé ekki hægt
að útiloka einhver mistök í þess-
um efnum. Þá finnst honum sér-
kennilegar kröfurnar um sektará-
kvæði og skaðabætur, enda sé
það út í hött. Á hinn bóginn sé
því ekki að leyna að atvinnuör-
yggið sé ekki það sama í físk-
vinnslu og í öðrum atvinnugrein-
um vegna óvissu um hráefni.
Potlur brotinn
Gunnar Sigurðsson hjá Vinnu-
málastofnun segir að það sé til
skoðunar að endurskoða lögin
um hópuppsagnir og gera þau
skýrari. Ef ráðist verður í endur-
skoðun laganna sé viðbúið að það
sé gert í samstöðu við aðila
vinnumarkaðarins. Hann segir
rétt að atvinnurekendur í fisk-
vinnslu hafa ekki allir uppfyllt öll
formsatriði vegna hópuppsagna
og þá einkum að tilkynna þær. Þá
sé oft pottur brotinn í samráðs-
ferlinu á milli fyrirtækis og starfs-
manna. Fyrir vikið upplifir starfs-
fólkið ákvörðun um uppsagnir
sem einhliða tilkynningu af hálfu
íyrirtækisins. Vegna alls þessa sé
meðal annars verið að vinna að
því hvernig hægt sé að upplýsa
atvinnulífið betur um skyldur
þess í þessum efnum. - GRH
„Við erum a móti þessari búllu,"
segir yfirmaður í Landsbankanum.
Keisara-
aðferð á
Maxiin’s?
Forráðamenn fyrirtækja við
Hafnarstræti hafa rætt óform-
lega sfn á milli um þann mögu-
leika að kaupa húsnæði það,
sem Walter Lenz gleraugnasali á
í Hafnarstræti 9 og hýsir nú
nektardansstaðinn Maxim’s
(Hafnarkrána). Væri með því
svipuð aðferð notuð og gekk upp
gagnvart Keisaranum við
Hlemm; hinn „óæskilegi" er
keyptur burt.
Degi er kunnugt um að þessi
möguleiki hafi verið ræddur
óformlega af forráðamönnum
Landsbankans og svipuð hug-
mynd mun hafa verið rædd inn-
andyra hjá Eimskipafélaginu.
Skipafélagið á iyrir meirihluta
sömu fasteignar og leigir nektar-
dansstaðnum reyndar aðstöðu í
kjallaranum. Yfírmaður í Lands-
bankanum sagði í samtali við
Dag að þessi möguleiki á að
kaupa húsnæðið hefði verið
ræddur en sé enn ókannaður.
„Það eina sem liggur fyrir er að
við erum á móti þessari búllu,
sem við teljum skemma út frá
sér og eyðileggja ímynd Hafnar-
strætis."
Vildu húsnæði Geirs Haarde
Aðstandendur Maxim’s Iáta hins
vegar neikvæða umræðu um sig
lítið á sig fá og leita nú ráða til
að færa út kvíarnar í Hafnar-
stræti. Þannig leituðu aðstand-
endur Maxim’s nýlega eftir því
við eigendur veitingahússins Pí-
anó-barsins hvort barinn væri
hugsanlega til sölu, þ.e. rekstur-
inn og húsaleigusamningurinn.
Hefðu þessar viðræður náð
lendingu hefði sú sérstæða
staða komið upp að nektarbúll-
an Maxim’s væri komin yfir í
húsnæði í eigu fjármálaráðherra
Islands, því fasteignaeigendur
þeir sem leigja Píanóbarnum
eru bræðurnir Geir og Stcindór
Helgi Haarde. Ekkert varð þó úr
kaupum Maxim’s á Pfanóbarn-
um, því mönnum bar ekki sam-
an um verð. - FÞG
Flugleiðir kynntu í gær með viðhöfn í flugskýli á Keflavíkurflugvelli nýja ímynd fyrirtækisins, eða „nýtt útlit til nýrrar
aldar" eins og yfirskriftin var. Um leið lenti fyrsta farþegaþota Flugleiða í nýjum litum félagsins. Ný einkennisföt
fíugþjóna og flugstjóra vöktu ekki síst athygli viðstaddra sem gátu þreifað á fötunum. Á innfelldu myndinni er for-
stjórinn, Sigurður Helgason, ásamt fíugfreyju og fíugstjóra í nýjum búningum. í gær var einnig opnaður endurbættur
Flugleiðavefur á Netinu. myndir: e.ól.
flö fujifilm VELDU BESTU FRAMKttUUNINA
SAMANBURÐURÁ ENDINGU Á UTMYNDAPAPPÍR Niðurstöður Rannsóknar Wilhelm Imaging Research
Fujicolor Crystal Archive pappír 60 ár
Kodak Edge 7 og Royal VII pappír 18 ár
Kodak Portra III Professional pappír Konica Color QA pappír gerð A7 14 ár 14 ár
Skipholti 31, 568 0450 Agfacolor pappír gerð 11 13 ár
Kaupvangsstræti 1, Ak. 461 2850 Copyright 1999 Wilhelm Imaging Research Inc.
www.fujifilm.is
FUJIFILM
FRAMKOLLUN
UM ALLT LAND