Dagur - 19.11.1999, Side 9
-'áÖT'^Tfc.
FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1999 - 9
tuspil?
ógeðfelldustu gerð". - Við horfum ekkert
ánægju, vitandi það líka að þeir eru að
in við stjórnvöld. Hún segir það
ábyrgðarhlut að leggja fram frum-
varpið nú og leggja til að það taki
gildi strax 1. janúar 2000. „Mér
finnst það óáþyrgt gagnvart þess-
um félögum sem sinna jafn mikil-
vægum verkefnum og raun ber
vitni. Þeir hafa ekki rætt við okkur
um þessi mál, heldur bara slengja
þessu fram og svo má það bara
ráðast hvernig hlutirnir gerast."
Sigrún segir erfitt að grípa upp
sfsvona 500 milljónir, en það er
nettóafrakstur Rauða krossins á
ári. Milli 80 og 90 prósent af tekj-
um Rauða kross Islands koma af
spilakössunum.
Fjölmargar skyldur RKÍ
Sigrún bendir á að Rauði krossinn
hafi skuldbindingar við ýmsa hópa,
bæði innanlands sem utan, og
reksturinn sé eins og hjá hverju
öðru fyrirtæki, áætlanir séu gerðar
tvö ár fram í tímann. Félagið vinni
að sjúkraflutningum, sinni miklum
fjölda af geðfötluðum einstakling-
um, reki athvarf fyrir börn og ung-
linga, haldi uppi nafni Islands
varðandi neyðaraðstoð erlendis og
þar sé til dæmis búið að gera
samninga þrjú ár fram í tímann.
„Þannig að það kemur mjög illa við
okkur þegar svona tillaga er sett
fram með þeim hætti sem þeir
gera það. Þeir taka líka þessa einu
tegund happdrættis út án þess að
hugsa nokkuð um önnur happ-
drætti. Mér finnst þetta frekar illa
ígrundað frumvarp,“ segir Sigrún.
Hún segir ýmsa af skjólstæðingum
Rauða krossins vera óörugga, líða
illa og spyrja: „Hvað verður um
okkur?“
Leysir ekki vandaiui
„Ogmundur kemur fram með ýms-
ar fullyrðingar sem ekki eru byggð-
ar á rannsóknum heldur gripnar
héðan og þaðan af sögusögnum,"
segir Sigrún en bendir á að hún
vilji ekki gera lítið úr spilafíkninni,
fólk hafi vissulega ánetjast henni.
„Það er fyrir hönd þessa fólks sem
þeir eru að flytja þetta frumvarp en
ég held bara að það leysi ekki
vandann. Við horfum ckkert fram-
hjá því að þetta getur haft sínar af-
Ieiðingar en samt ber að hafa það í
huga að langflestir, bæði hérlendis
og erlendis, eru að spila sér til
skemmtunar og ánægju, vitandi
það líka að þeir eru að leggja góðu
málefni lið. Við höfum gert mark-
aðskannanir sem sýna að yfirgnæf-
andi meirihluti fólks spilar í fimm
mínútur eða skemur," segir Sigrún
og vekur jafnframt athygli á því að
Rauði krossinn hefur ekki auglýst
sína kassa.
„Við vitum það að þessi hætta er
fyrir hendi, að það eru einhverjir
sem fá spilaáráttu. En það eru ekki
bara kassarnir. Það eru ýmis önnur
happdrætti hér sem hafa þessi
áhrif," segir Sigrún og nefnir með-
al annars Iottó, getraunir og bingó.
„Það er ekki rétta leiðin að banna
þetta. Það þarf að vera með
fræðslu og forvarnir. Við höfum
gert töluvert í þeim efnum en get-
um eflaust gert betur.“
Eríiöara aðgengi minnkar
áhættuna
Gísli Stefánsson dagskrárstjóri
göngudeildar SAA segir rökin fyrir
því að banna kassana meðal ann-
ars þau að erfíðara aðgengi minnki
áhættuna. „Ég held að það sé ekk-
ert vafamál að þegar þessir kassar
komu fram þá fór þetta vandamál
að spretta upp og það er ekkert
minnkandi, það vex. Eg held að
það græði enginn á þessu, hvorki
SAA, Rauði kross íslands eða Há-
skólinn," segir Gísli.
En hverfur fíknin þó kassarnir
fari?
„Nei, hún myndi nú ekki gera
það en flestir innan SÁÁ eru á því
að banna þetta. Það eru kannski
skiptar skoðanir því þetta er stór
félagsskapur en ég held að lang-
flestir séu á því að þetta sé ekki
g°tt.“
Gísli segir spilafíknina fara eftir
svipuðum leiðum og áfengisfíkn-
ina. Oft þurfí að grípa til þess ráðs
að senda fólk í meðferð vegna þess
að það ráði hreinlega ekki við sig.
„Við sjáum líkamleg fráhvarfsein-
kenni eins og svita, skjálfta, mikið
eirðarleysi og vanlíðan. Það þarf
að meðhöndla það. Meðferðin
virðist hafa gefið góða raun. Menn
virðast hafa geta nýtt sér meðferð-
ina og koma síðan hingað á göngu-
deildina og eru í áframhaldandi
meðferð,“ segir Gísli.
I framhaldi af meðferð mæta
spilafíklarnir á GA fundi, sem eru
sambærilegir AA-fundunum, og
eru nú haldnir þrír slíkir rundir á
viku. „Það er að koma upp hópur
af fólki sem hefur náð sér frá
þessu og það er mjög ánægjulegt
að sjá það. Við erum líka að ræða
það að fjölga stuðningshópum og
annað slíkt.“
Margrét
Frímannsdóttir.
FRETTIR
Vonbrigði
Samkvæmt
skoðanakönn-
un Félagsvís-
indastofnunar
mælist Sam-
fylkingin nú
með 16,6%
íylgi og hefur
tapað um 10
prósentustig-
um frá kosn-
ingunum í vor. Margrét Frí-
mannsdóttir var spurð hverjar
hún teldi vera ástæðurnar fyrir
þessu:
„Eg held að ein af ástæðunum
sé sú að þegar þessi skoðana-
könnun var gerð lá það ekki
endanlega fyrir hvort Samfylk-
ingin yrði gerð að formlegum
stjórnmálaflokki og allir sem að
Samfylkingunni standa, stæðu
að þeirri flokksstofnun. Lands-
fundur Alþýðubandalagsins var
ekki búinn þegar skoðanakönn-
unin var gerð. Vissulega er nið-
urstaða skoðanakönnunarinnar
vonbrigði að fara svona niður en
við verðum bara að taka því og
bretta upp ermarnar," sagði
Margrét. - S.DÓR
Kökubox
í öllum stærðum
og gerðum
Verð frá
295 kr.
4*ö
HUSASMIÐJAN
Sími 460 3416 • www.husa.is
Ar aldraðra
Málþing um akstur f
eldra fólks...
D a g s fc r á
.verður haldið í Asgarði, félagsheimili
Félags eldri borgara í Glæsibæ,
þriðjudaginn 23. nóvember 1999,
kl. 13:15-17:00
kl. 13:15 Þórhallur Ólafsson, formaður Umferðarráðs setur málþingið.
kl. 13:20 Ávarp dómsmálaráðherra, Sólveigar Pétursdóttur.
kl. 13:30 Ávarp Benedikts Davíðssonar, formanns Landssambands eldri borgara.
kl. 13:35 Aldursskipting íslensku þjóðarinnar. Þróun undanfarinna ára og áætluð fjölgun
aldraðra til ársins 2010. Sigrún Helgadóttir, deildarstjóri manntals- og
mannfjöldadeildar Hagstofu íslands.
kl. 13:55 Heilbrigðiseftirlit með öldruðum - hvaða heilsufarsleg vandamál koma helst í veg
fyrir að aldraðir geti ekið bifreið? Helga Hansdóttir, læknir á öldrunardeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur Landakoti.
kl. 14:15 ,,Gott er heilum vagni heim að aka", myndband Umferðarráðs. Aðalleikendur
Marinó Þorsteinsson og Sólrún Yngvadóttir.
kl. 14:35 Hvernig er hægt að auka öryggi bílstjóra á efri árum og lengja þann tíma sem
fólk ekur bifreið með sæmd? Sigurður Helgason, uppiýsingafulltrúi Umferðarráðs
og Guðbrandur Bogason, formaður ökukennarafélags (slands.
kl. 15:00 Kaffihlé.
kl. 15:30 Hvers konar tjónum lenda eldri ökumenn helst í? Einar Guðmundsson,
forvarnafulltrúi Sjóvá-Almennra trygginga hf.
kl. 15:50 Hvað er erfiðast fyrir aldraða ökumenn að fást við í akstri?
Guðmundur Þorsteinsson, ökukennari.
kl. 16:10 Sjónarmið eldri bílstjóra: Guðrún S. Jónsdóttir, húsmóðir, sem ekur ennþá bíl.
Páll Gíslason læknir, sem er hættur akstri.
kl. 16:25 Hver er besta leiðin til að fá aldraða ökumenn, sem ekki eru lengur færir um að aka, u,|
til þess að láta af því? Hjördís Jónsdóttir yfirlæknir á Reykjalundi. i j i ■
---------------------------- il:l
kl. 16:40 Aldraðir ökumenn - takmarkanir - áhætta , sérstakur kostnaður þegar komið er yfir
sjötugt. Ólafur Ólafsson, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni.
kl. 16:55 Samantekt og málþingsslit: Óli H. Þórðarson, framkvæmdastjóri Umferðarráðs.
Að málþinginu standa Félag eldri borgara í Reykjavfk og nágrenni,
_________Landssamband eldri borgara og Umferðarráð.___
Fundarstjóri: Salome Þorkelsdóttir, fyrrv. forseti Alþingis.
Hreyfing og teygjur: Soffía Stefánsdóttir, íþróttakennari.
Harmonlkuleikur: Emst F. Backman, íþróttakennari.
Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
Kaffiveitingar í boði Sjóvá-Almennra trygginga hf.
rz> i
m\
E!
FELAG
ELDRI
BORGARA
un
LANDSSAMBAND
ELDRIBORGARA
IUMFERÐAR
Iráð
x
3 r*
l