Dagur - 27.11.1999, Síða 5
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 - 21
Rödd illskunnar
skrifar
Mál og menning
hefur síðustu ár
sent frá sér í
sérstöku broti
skáldverk ungra
höfunda. Þetta
árið kemur út
skáldsaga eftir
Stefán Mána,
Myrkravél, en
árið 1996 kom
frá honum
skáldsagan
Dyrnar á Svörtufjöllum sem ég
hef ekki lesið en þessi nýja bók
vekur óneitanlega forvitni mína
á þeirri eldri.
Stefán Máni tekur í þessu
verki að sér það erfiða verkefni
að ganga inn í hugarheim morð-
ingja. Sagan er lyrstu persónu
frásögn manns sem situr í fang-
elsi eftir að hafa framið hroða-
legt morð og lýsir í myndbrotum
ævi sinni. Sterkustu myndirnar
eru úr bernskunni þar sem höf-
undi tekst ákaflega vel að lýsa
einangrun barns, hvernig það
lokast inni í eigin heimi, festist
þar og nær engu tilfinningasam-
bandi við aðrar mannverur. Sag-
an gefur ekki bein svör við því
hvort sögumaður hafi fæðst illur
eða hvort sinnuleysi umhverfis-
„En þrátt fyrir nokkra annmarka á
verkinu er þaö djörf og athyglisverð til-
raun til að skyggnast inn í hugarheim
illskunnar."
ins hafi myndað tómarúm í sál-
inni sem einungis verður fyllt
með ofbeldi og glæpum. Hins
vegar fer ekki svo að sögumaður
sé fullkomlega laus við að vekja
samúð þvf brotakenndar lýsingar
hans á bernskunni opinbera
varnarleysi og vanlíðan barns
sem skynjar umhverfi sitt sem
kalt og afskiptalaust.
Stíllinn hæfir söguefninu afar
vel. Hann er mjög knappur,
næstum ískaldur, og stundum
fannst mér texti bókarinnar
virka eins og þung og drungaleg
hamarshögg. 1 lýsingum á hin-
um ýmsu glæpum og fólskuverk-
um tekst Stefáni Mána misvel.
Einföld Iýsing á því þegar sögu-
maður kremur fugl til bana er
svo margfalt áhrifamciri en
lengri frásagnir af fólskuverkum.
Þegar líður á og geðveiki sögu-
manns magnast verður verkið of
endurtekningasamt. Höfund
skortir úthald og reynslu til að
ljúka sögu sinni. Morðið í lok
sögunnar vekur furðu lítil áhrif,
sérstaklega í samanburði við
fyrri hluta sögu þar sem minni
atburðir vekja sterkar kenndir
lesandans. Þannig er þetta bók
sem stendur ekki alveg við þau
fyrirheit sem hún gaf í svo góð-
um upphafsköflum. En þrátt
fyrir nokkra annmarka á verkinu
er það djörf og athyglisverð til-
raun til að skyggnast inn í hug-
arheim illskunnar.
MYRKRAVÉL
Höfundur: Stefán Máni
Utgefandi: Mál og menning
Hreinleiki, fegurð
og friðsæld
Hafa þjóðgarðar áhrif á
efnahag fólks eða er
hlutverk þeirra einungis
að vernda náttúruna
sem í þeim er? Sú
spurning er meðal
þeirra sem verður leit-
ast við að svara á ráð-
stefnu í Hátíðarsal Há-
skólans í dag, laugar-
dag. Meðal fyrirlesara
er Vilborg Júlíusdóttir.
„Ráðstefnan ber yfirskriftina
„Efnahagslegt gildi þjóðgarða"
og í upphafi míns erindis fjalla
ég um þróun ferðaþjónustu í
heiminum í örstuttu máli og um
spár um fjölgun ferðamanna.
Svo fer ég nokkrum orðum um
vægi náttúruperlna og friðlýstra
svæða en verðmæti þeirra hefur
aldrei verið skoðað í krónum og
aurum talið, enda enginn hag-
Þjóðgarðurinn i Skaftafelli hefur aðdráttarafl. mynd: jón k. snorrason
rænn mælikvarði til. Svo mun
ég kynna niðurstöður úr könn-
unum sem Ferðamálaráð hefur
gert um hvaða þættir það eru í
augum erlendra ferðamanna
sem eru mikilvægastir. Það virð-
ist einkum vera: náttúrufegurð,
hreinleiki, friðsæld og sérstök
menning. Út frá þessu leiði ég
mig inn í þjóðgarðinn í Skafta-
felli og nágrannabyggðir hans.
Ég tel að áhrifasvæði þjóð-
garðsins í Skaftafelli nái frá
Kirkjubæjarklaustri og austur
fyrir Höfn og skoða gistináttatöl-
ur þar. Niðurstöður mínar eru
þær að þjóðgarðurinn hafi ótví-
rætt aðdráttarafl og sé því mjög
mikilvægur þeim sem byggja af-
komu sína á ferðaþjónustu á
svæðinu."
GUN.
Kirkjulistaverk
á Nesinu
Á morgun, fyrsta sunnudag í að-
ventu, verður nýtt kirkjulistaverk
eftir listakonuna Herdísi Tómas-
dóttur helgað í almennri guðs-
þjónustu í Seltjarnarneskirkju
kl. 20. Hér er um textílverk að
ræða sem er að miklu leyti að-
lagað að byggingartormi Idrkj-
unnar og byggt á litum náttúr-
unnar scm umleikur Seltjarnar-
nesið. Frumhugmynd verksins
var sýnd á kirkjulistahátíð Hall-
grímskirkju í upphafi sumars
árið 1997. Þetta er fyrsta kirkju-
listaverkið sem hannað er sér-
staklega fyrir Seltjarnarnes-
Idrkju, en það er gert úr ull, hör,
sísal og koparþræði. Herdfs
Tómasdóttir, sem valinn var
bæjarlistamaður Seltjarnarness
árið 1997, hefur getið sér gott
orð sem veflistamaður og hefur
Herdís Tómasdóttir.
verið virk í myndlistalífi lands-
mannu til-margra ára: ■■ ■ - ■
á^LEIKFÉLAG^lÖá
EY KJ AV í K LRJ®
BORGARLEIKHÚSIÐ
ATHUGIÐ BREYTTAN
SÝNINGARTÍMA UM
HELGAR
Stóra svið:
Bláa herbergð
eftir David Hare, byggt á
verki Arthurs Schnitzler,
Reigen (Le Ronde)
Þýðandi: Veturliði Guðnason
Leikarar: Baldur Trausti
Hreinsson og Martha Nordal
Leikmynd: Sigurjón
Jóhannsson
Búningar Helga
Stefánsdóttir
Ljós: Lárus Björnsson
Hljóð: Ólafur Örn
Thoroddsen
Leikstjórn: María
Sigurðardóttir
Frumsýning fös 3/12
kl: 19:00, 2. sýn. sun 5/12
kl: 20:00 örfá sæti laus,
3. sýn. fös 10/12 kl. 19:00,
4. sýn. sun 12/12 kl.19:00
Jólahlaðborð og leikhús
Að sýningu lokinni er
framreitt girnilegt
jólahlaðborð af
meistarakokkum Eldhússins
Veisla fyrir sál og líkama
Stóra svið:
Litla hryllingsbúðin
eftir Howard Ashman
tónlist eftir Alan Menken
lau 27/11 kl. 19:00 uppselt,
lau 4/12 kl. 19:00 örfá sæti
laus.fim 9/12 kl. 20:00.
Sex í sveit
eftir Marc Camoletti
Sýningar hefjast aftur á
nýju ári.
Stóra svið kl. 14:00
Pétur Pan
eftir J.M. Barrie
sun 28/11 örfá sæti laus
sun 5/12 síðasti
sýningardagur
Litla svið:
Fegurðard rottn i ng i n
frá Línakri
eftir Martin McDonagh
fim 2/12 kl. 20:00, örfá
sæti laus, lau 4/12 kl.
19:00.
Sýningum fer fækkandi
Litla svið
Leitin að
vísbendingu um
vitsmunalff í
alheiminum
eftir Jane Wagner
lau 27/11 kl. 19:00,
uppselt
sun 28/11 kl. 19:00,
uppselt
- Sýningin túlkuð á
táknmáli.
Miðasalan er opin virka daga frá
kl. 12-18, frá kl. 13
laugardaga og sunnudaga
og fram að
sýningu sýningardaga
Símapantanir virka daga frá kl. 10
Greiðslukortaþjónusta
Sími 568 8000 Fax 568 0383
uiiti BíTZjíSI
[tnMriLJijEHjljÍtiiliiHll
ileikfelagakiirfyrarI
Miðasala: 462-1400
1ÓLAFRUMSÝNING
„Blessuð jólin“, -eftir
Arnmund Backman.
Fumsýning
17. desember
2. sýning
18. desember
3. sýning
19. desember
Miðasala hafin.
Jólakortasamkeppni
leikfélagsins
Skilafrestur til
27. nóvember
Vegleg verðlaun
Flugfar Ak.-Rvík.-AK.
með íslandsflugi
10.000,- kr. úttekt í Bókval
10.000,- kr. úttekt
á Café karólínu
8.000,- kr. úttekt
á Rósagarðinum
og kaffihlaðborð fyrir 4 í Vín
GJAFAKORT ■
GJAFAKORT
Einstaklingar, fyrirtæki
og stofnanir.
Gjafakort í leikhúsið er
skemmtileg jólagjöf
Þeir sem voru svo
elskulegir að senda
okkur klukkustrengi
geta nálgast þá á
miðasölutíma í
leikhúsinu.
InlnliiimiFillnl.illfilrlnl
ILEIKFELAG AKUREYRARl
Miðasalan opin alla virka daga
frá kl. 13:00-17:00 og fram að
sýningu, sýningardaga.
Sími 462 1400.
www.leikfelag.is
Kortasalan í fullum gangi!