Dagur


Dagur - 02.08.2000, Qupperneq 18

Dagur - 02.08.2000, Qupperneq 18
18- MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2000 Thypir 0 a & VÍKUR |p BÍjAÐID Goðin kvödd með virðiiigu Þorgeirsskirkja verð- ur vígð með viðhöfn á swmudag og á eftir verður hátíðardag- skrá við Goðafoss. Prófastur segir að goðin verði kvödd með virðmgu, áður en þeim verður fleygt í fossiun. Þorgeirskirkja í Ljósavatnsskarði verður vígð n.k. sunnudag og hefst athöfnin kl. 13.30. Séra Karl Sigurbjörnsson, biskup mun vígja kirkjuna og búist er við ljölmenni. Meðal annars hef- ur öllum fÁ'rrverandi og núver- andi prestum Þingeyjarprófasts- dæmis verið boðið til athafnar- innar. ..Þarna verður síðan sungin hefðbundin messa en að henni lokinni verður orðið gefið frjálst þeim sem taka vilja til máls eða afhenda gjafir", segir Pétur Þór- arinsson prófastur Þingeyinga. Heimamcnn munu síðan bjóða gestum upp á kaffiveitingar í sainaðarheimilinu, sem reyndar er óklárað enn. Umdeild bygging Kirkjubyggingin í Ljósavatns- skarði hefur verið nokkuð umdeild og það m.a. gagnrýnt að ekki sé beinlínis þörf fyrir þessa kirkju í svo fámenn- um söfnuði. En að- standendur Þor- geirskirkju hafa bent á að þetta sé í raun kirkja allrar þjóðarinnar, og um leið minnismerki og tákn um kristnitök- una. Hugmyndir um bygginguna eru nokkurra áratuga gamlar en verkið er að mestu fjármagn- að með opinberu fé, en að auki hafa frjáls framlög borist kirkj- unni. Byggingarkostnaður nem- ur um 90 milljónum króna, en kirkjan er ekki fullfrágengin, meðal annars eru kirkjubekkirn- ir ekki komnir og því vcrður not- ast við lausa stóla á vígsluat- höfninni. Þorgeirskirkja verður safnaðarkirkja Ljósavatnssóknar en gamla kirkjan við Ljósavatn verður aflögð. Sóknarprestur er séra Arnafdur Bárðarson á Hálsi. Táknræn athöfn Að vígsluathöfn lokinni verða kirkugestir selfluttir með rútum að Goðafossi þar sem fjölbreytt hátíðardagskrá fer fram. „Þetta er gert til þess að koma í veg fyr- ir umferðaröngþveiti og vanda- mál vegna bílastæða við Goða- foss. Gestir munu geyma bíla sína við kirkjuna og verða síðan fluttir þangað á rútunum eftir athöfnina við Goðafoss", segir séra Pétur. Við Goðafoss mun blásarasveit frá Húsavík leika og Halldór Kristinsson, sýslumaður Þingey- inga flytur ávarp. Hátíðarræð- una flytur séra Bolli Gústafsson vígslubiskup. Frumflutt verða tvö hátíðarljóð sem unnu til verðlauna í ljóðasamkeppni sem fram fór í fyrra í tilefni af kristni- tökuhátíðinni. Þeir séra Örn Friðriksson og Einar Melax hafa samið lög við þessi ljóð sem verða sungin við raust við Goða- foss. Söngfólk úr kirkjukórum sýslunnar mynda mik- inn samkirkjukór á staðnum sem telur um 150 manns og mun syngja fýrir við- stadda. Þá verður fluttur leikþáttur eftir Jónas Kristjánsson um Þor- geir Ljósvetningagoða þar sem goðinn hend- ir skurðgoðum sínum í fossinn. Þetta atriði hefur farið fyrir brjóstið á ásatrúar- mönnum sem telja að þarna sé verið að óvirða trú þeirra og fagna afnámi trúfrels- is á íslandi. „Þetta verk Jónasar Kristjánssonar frá Fremstafelli er meitlað og gott og sýnir vel hugarástand Þorgeirs sem er að kveðja sína gömlu trú og bindast nýrri. Það er algjör misskilningur hjá vinum okkar í ásatrúarsöfn- uðinum að hér sé veriö að óvirða trú þeirra, þetta er fyrst og fremst táknræn athöfn um breytingu, þáttaskil, þegar nýtt tekur við að gömlu. Við munum kveðja gömlu goðin með fullri viröingu við Goðafoss og ég held að ásatrúarmenn ættu bara að koma á staðinn og taka þátt í há- tíðarhöldunum með okkur“, sagði séra Pétur Þórarinsson. - JS Þeir feðgar Sigmar Kristjánsson matsveinn og Jónas Sigmarsson skipstjóri hampa hér vænum skötusel. Þeir stunda skötuselsveiðar á Hafnarröstinm ÁR-250 sem gerð er út frá Þorlákshöfn. Þingeyingar koma vfða víð. - mynd: þorgeir baldurs. Jón Friðrik Benónýsson leikur Þor- geir Ljósvetningagoða. Leitóðyfir fljótíð Leikþátturinn „Þorgeir við Goða- foss“ verður hluti af þeirri dagskrá sem flutt verður við Goðafoss n.k. sunnudagskvöld. Það er við hæfi að Jónas Kristjánsson, handrita- fræðingur frá Fremstafelli, stein- snar frá Goðafossi, skuli hafa samið þáttinn sem tekur um 20 mínútur í flutningi, því þama er Jónas á heimavelli. Amór Benón- ýsson leikstýrir uppfærslunni og kemur ekki á óvart að þessi sýning er nýstárleg eins og fleiri uppsetn- ingar Amórs. Þama verður nefni- lega Ieikið yfír Skjálfandafljót og er hugsanlega einsdæmi í leiklistar- sögu Islands og væntanlega víðar að heilt fljót sé á milli leikenda og áhorfenda. Þeir hafa allavega ör- ugglega ekki reynt þetta yfir Miss- isippi þó ýmislegt taki þeir sé fyrir hendur vestur í Ameríku. I tengslum við sýninguna mun 12 manna hópur í fornbúningum ríða gæðingum frá Ljósavatni og sem leið liggur að leikstað við fljót- ið austanvert. Þar verður í aðal- hlutverki Jón Friðrik Benónýsson sem leikur Þorgeir Ljósvetninga- goða. Handan fljótsins verða svo áhorfendur staðsettir gegnt leik- sviðinu. Þeir sem hafa komið að Goðafossi vita að þar er niöur foss- ins all verulegur og því augljóslega tæknilegum vandkvæðum bundið að koma hinu talaða orði jJtr fljót- ið svo viðstaddir megi nema. Þetta leysir leikstjórinn með öflugu hátalarakerfi og lýrirfram upptök- um á texta og verður forvitnilegt að vita hvemig til tekst. Jón í hlutverki Þorgeirs mun að sjálfsögðu kasta heiðnum skurð- goðum sínum í fossinn eins og munnmæli herma að hann hafi gert fyrir 1000 árum. Goðin sem notuð eru að þessu sinni eru skor- in út af hagleiksmanninum Ingólfi lngólfssyni frá Grundargili. Um 20 manns koma að þessari sérstæðu leiksýningu við fossinn. - JS Völsungar á sigflngu Völsungar sigla hraðbyri að sigri í sínum riðli í 3. deildinni í knatt- spyrnu. Liðið er langefst og hefur ekki tapað Ieik. S.I. föstudag var leikið gegn Magna á Húsavík og þar höfðu Völsungar sigur, skor- uðu 5 niörk gegn 2 mörkum Grenivíkurgesta. Mörkin skomðu þeira Milan 2, Arngrímur Arnar- son, Pálmi Ral’n Pálmason og Nicola. Næsti leikur X’ölsunga er í kvöld gegn Neista á Hofsósi og næsti hcimaleikur er svo 1 5. ágúst gegn Nökkva. - JS

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.