Dagur - 11.08.2000, Qupperneq 1
Allir á biðlista
fengið úrlausn
Fjöldi rýma í lang-
tímavímuefnameð-
ferð fyrir unglmga
hefur nær tvöfaldast á
hálfu öðru ári.
Biðlisti eftir vímuefnameðferð
fyrir unglinga er horfinn, enda
lætur nærri að fjöldi rýma í lang-
tímameðferð hafi tvöfaldast á
síðustu átján mánuðum.
„Eftir tilkomu nýju heimilanna
á þessu ári gátum við nánast
tæmt þessa lista eftir langtíma-
mcðferð. Allir sem voru á biðlist-
um eftir langtímameðferð fengu
úrlausn sinna mála,“ sagði Bragi
Guðbrandsson forstöðumaður
Barnaverndarstofu, í viðtali við
Dag.
Hitt er aftur annað mál, að
margir þessara krakka eru með
það sem við köllum Ijölþætt
vandamál, hvar af neyslan er
kannski einn parturinn. Og við
erum með miklu
fleiri meðferðar-
heimili þar sem
vistaðir eru
krakkar með slík
vandamál, þar
sem ennþá er
einhver biðtími,
en skemmri þó
en oft áður. En
eftir að byggingu
nýrrar bráða-
þjónustudeildar
við Stuðla, sem
væntanlega lýkur
í lok þessa árs,
held ég að við
verðum á grænni
grein. Því það er bráðamóttakan
sem verið befur helsti flösku-
hálsinn hjá okkur.“
Færri ungfíMar
Aðspurður hvort ungum vfmu-
efnaneytendum færi stöðugt
fjölgandi svaraði Bragi: „Ég vil
nú meina að í yngsta aldurs-
hópnum, þ.e.
grunnskólaaldr-
inum, hafi
vímuefnavand-
inn fremur
skroppiö saman
en aukist að
undanförnu.
Þrátt fyrir fjölg-
un rýma eru nú
heldur færri
unglingar á
grunnskólaaldri
vímuefnameð-
ferð hjá okkur
en var fyrir
tveim árum. Við-
bótin hefur eig-
inlega öll farið í að mæta þessum
nýju árgöngum sem komu inn í
kerfið með hækkun sjálfræðis-
aldursins úr 16 upp í 18 ár.“
A þessu ári segii Bragi þrennt
standa upp úr. I fyrsta lagi opn-
un nýs langtímameðferðarheim-
ilis fyrir 6 unga vímuefnaneyt-
endur í Jökuldal á Héraði. í
annan stað gildistöku nýs þjón-
ustusamnings við Virkið um
meðferð 10 ungmenna á Arvöll-
um á Kjalarnesi. Og þvínæst
fjölgun rýma úr 6 í 8 við flutning
frá Varpholti að Laugalandi í
Eyjafirði. Opnun unglingadeild-
ar SAA frá áramótum hafi líka
vcrið mikið framfaraspor. Og
enn megi nefna nýlegan þjón-
ustusamning við Landspítalann
sem efnislega gangi út á mjög
náið samstarf allra þessara stofn-
ana á sviði unglingameðferðar
um að gera hana sem markviss-
asta.
Undir Barnaverndarstofu
heyra nú 9 stofnanir. Auk móð-
urskipsins Stuðla, þar sem allir
byrja og geta dvalið í allt að fjóra
mánuði, eru það: Laugaland,
Jökuldalur og Arvcllir, sem ein-
beita sér að vímuefnameðferð og
síðan Hvítárbakki, Háholt,
Torfastaðir, Geldingalækur og
Arbót sem eru með fjölþættari
meðferð. -HEI
Bragi Guðbrandsson,
forstöðumaður Barnastofu.
Viðsnún-
ingurSH
Velta SH samstæðunnar nam
21,5 milljörðum króna á fyrri
hclmingi ársins á móti 19,3
milljörðum sama tíma árið áður.
Veltuaukning er 11% og hagnað-
ur fyrir fjármagnsliði reyndist
538 milljónir króna en var 289
milljónir í fyrra. Hagnaður af
reglulegri starfsemi eftir skatta
nam 189 milljónum króna sam-
anborið við 72 milljónir árið á
undan. Að teknu tilliti til ann-
arra, liða skilaði reksturinn nú
189 milljóna króna hagnaði á
tímabilinu á móti 154 milljóna
króna tapi íyrri hluta árs 1999.
Veltufé frá rekstri var 391
milljón króna á móti 205 millj-
ónum króna sama tímabil árið
1999. Hreint veltufé nam 127
milljónum króna og hefur
minnkað um 1,7 milljarða frá
áramótum. Astæður má rekja til
þess er félagið keypti hlutabréf í
þremur erlendum sjávarútvegs-
lyrirtækjum fyrir um 1,7 millj-
arða króna.
Texti:Það er ekkert grín að setja hvítu kúluna niður þegar komið er inn á grínið. Ragnhildur Sigurðardóttir, GR, Is-
landsmeistari 1998, er hér að einbeita sér á einu gríninu á landsmótinu í golfi á Jaðarsvelli á Akureyri. Sjá um-
fjöllun um mótið á bls. 9
Farþegum verður fækkað og veð-
urguðirnir verða í aðalhlutverki.
Færrií
Fokker
Aðstæður munu breytast mjög í
innanlandsflugi á Reykjavíkur-
flugvelli í lok mánaðarins. Þá
heijast malbikunarframkvæmdir
þar sem norður-suður og austur-
vestur flugbraut vallarins skar-
ast og verður þá yfirleitt aðeins
hægt að lenda stærri véium á
norðaustur-suðvestur brautinni.
Flugfélag íslands mun bregðast
við þessu með því að fækka far-
þegum í vélunum, þar sem na-sv
brautin er mun styttri en hinar
tvær. Veðurguðirnir verða í lykil-
hlutverki. Ef vindáttir reynast
óhagstæðar verður að lenda vél-
unum á Keflavíkurflugvelli.
Jón Karl Olafsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Islands,
segir að breytingin muni að lík-
indum eiga sér stað á bilinu 25.
ágúst til 1. september. „Við ætl-
um að minnsta kosti að re- ía
þetta. Skilyrðin eru erfiðari, ; ar
sem þessi braut er ekki sambæri-
Ieg hinum. Hún er styttri og all-
ur búnaður í kringum hana
öðruvísi. Hinn kosturinn er að
loka flugvellinum og flytja alla
starfsemi til Keflavíkur. Það yrði
mjög kostnaðarsamt dæmi þan-
nig að við ætlum a.m.k. að gera
tilraun cn gerum ráð fyrir töfum
einhverja daga,“ segir Jón Karl.
Sama öryggi
Minni flugvélar geta lent á hlut-
um stærri brautanna kjörað-
stæður þarf til að Fokkervél-
arnar geti lent. Jón Karl hafnar
því að aðgerðirnar verði á kostn-
að öryggis. Hann segir að um
leið og veður verði tvísýnt, verði
fluginu beint til Keflavíkur en
innritun muni samt haldast í
Reykjavík „Við þurfum að tak-
marka farþegafjöldann Við get-
um ekki flogið með 50 farþega á
þessari flugbraut heldur reikn-
um við með að þeir verði um 40.
I einherjum tilvikum getum við
svo orðið að fækka þeim frekar,
við vonumst við eftir sem bestu
veðri.“ bþ
Sjá einnig um flugmál bls. 4
SPARIDAGAR
BdDOMJUISr
Geislagötu 14 • Sími 462 1300
kraftmikil og heimilisleg tilboð
á úrvals vörum
8. - 18. ágúst
BRÆÐURNIR
Lágmúla 8 • Sfmi 530 2800