Dagur - 11.08.2000, Page 5
FÖSTVDAGUR 28. JÚLÍ 2000 - S
Tkyftr.
FRÉTTIR
Saurflædi á Akur-
eyri alvarlegt mál
Skítur flæddi út um
allt, bæði iim í hús og
uin allar götur eftir
að skýfafl olli flóðum
á Oddeyriimi. Örverur
í skólpi geta verið
hættulegar möiuium.
Ófrcmdarástand var á Oddeyr-
inni á Akureyri í fyrrakvöld þegar
úrhellisrigning olli miklum
vatnsflóðum. Nánast allt tiltækt
lið slökkviliðsins á Akureyri var
kallað út og stóð baráttan við
stffluð holræsi og vatnselg utan
og innanhúss í þrjá klukkutíma.
Vitað er um tjón í nokkrum hús-
um. Astandið var verst í Gránu-
félagsgötu og Hríseyjargötu en
einnig urðu vandræði við Lund-
argötu og Grundargötu.
Ingimar Eydal, varðstjóri hjá
slökkviliðinu á Akureyri, segir að
slökkviliðið hafi fengið fyrstu til-
kynningu um vatnsleka í hús
kl. 18.30 en síðan hafi tilkynn-
ingum Qölgað ótt og títt. „Það
rigndi rosalega og við sendum
alltaf meiri og meiri mannskap á
staðinn, fórum á milli húsa og
bentum fólki á að reyna að Ioka
fyrir niðurföll í kjöllurum til að
vatnið kæmi ekki upp. Svo
dreifðum við okkar tækjum og
búnaði og aðstoðuðum fólk þótt
eitt til að hreinsa og þrífa á Odd-
eyrinni, að sögn Sigurðar
Bjarldind.
Háflóð var þegar flóðin urðu
og átti það þátt í að svo fór sem
fór. Eigi að síður urðu afleiðing-
arnar verri en eðlilegt getur talist
og voru starfsmenn Akureyrar-
bæjar önnum kafnir við að at-
huga það í gær hvað úrskeiðis
hafði farið. Bærinn er bótaskyld-
Vatn og skítur flæddu inn um hýbíli manna á Akureyri með
óskemmtilegurm afleiðingum fyrir íbúa.
margir gætu hjálpað sér sjálfir.
Við reyndum að halda í horfinu
þangað til holræsakerfið fór að
taka við. Það var ekki fyrr en um
kl. hálftíu sem kerfið fór að virka
rétt,“ segir Ingimar.
Hlutaðeigandi íbúar hafa lýst
mikilli gremju út í bæjaryfirvöld,
enda var ástandið skelfilegt hjá
sumum. „Það flæddi þarna kúk-
ur og skítur út um allt. Bæði inn
í hús og út um allar götur,“ segir
Ingimar. 12 hús urðu verst úti.
Þrifin ekkert smámál
Sigurður Bjarklind hjá Heil-
Eins og sjá má höfðu niðurföll á eyrinni ekki undan
með þeim afleiðingum að vatn flæddi um allt
brigðiseftirliti Norð-
urlands eystra segir
að framkvæmdastjóri
stofnunarinnar,
Valdimar Brynjólfs-
son, hafí verið kall-
aður á vettvang þegar
flóðin hófust til ráðleggingar.
„Þetta er auðvitað alvarlegt mál.
Því er ekki að leyna að í svona
skólpi eru ýmsar gerðir af örver-
um sem geta verið hættulegar
mönnum," segir Sigurður.
Starfsmenn bæjarins, slökkvilið,
einstaklingar og starfsmenn
tryggingafélaganna hafa lagst á
ur vegna tjónsins en hann er að
sjálfsögðu tryggður fyrir áföllum
sem þessum. Dagur náði hvorki í
bæjarverkstjóra né yfirmenn á
tæknideild vegna málsins en
einn starfsmanna bæjarins sagði
um ástandið: „Það er allt búið að
vera brjálað hérna.“ — BÞ
Gallaöir
hjólbarðar
Mikið hefurverið til umfjöllunar
innköllun hjólbarðaverksmiðja
Bridgestone/Firestone á þremur
gerðum hjólbarða. Astæða inn-
köllunarinnar er grunur um
galla, sem taldir eru hafa valdið
slysum í Bandaríkjunum og m.a.
hafa kostað mannslíf. Sam-
kvæmt tilkynningu verksmiðj-
anna í gær verða eftirtaldar
þrjár tegundir innkallaðar nú
þegar.
Firestone P235/75R15
ATXFirestone P235/75R15
ATXIlFirestone
Wilderness AT P235/75R15
Bridgestone/Firestone í Evr-
ópu tilkynnti í dag að evrópskum
eigendum verði boðið að fá nýja
hjólbarða. Bridgestone/Firestone
leggur áherslu á að ekki sé vitað
til þess að slys hafi orðið í Evr-
ópu sökum þeirra, enda mjög
takmarkað magn slíkra hjólbarða
í umferð í álfunni.
Gúmmívinnslan hf. á Akureyri
er umboðsaðili fyrir hjólbarða
frá Bridgestone/Firestone og
geta eigendur hjólbarðategund-
anna þriggja leitað til fyrirtækis-
ins. — GJ
StúLkan
látin
Stúlkan sem hefur legið á
gjörgæslu eftir flugslysið í
Skerjafirði sl. mánudagskvöld
er látin.
Stúlkan sem var fædd árið
1980 var úrskurðuð látin
skömmu eftir hádegi í gær.
Hún hét Heiða Björk Við-
arsdóttir til heimilis að íra-
bakka 30 í Reykjavík. Hún
lætur eftir sig unnusta.
Skjár Einn út á land
Árni Þór Vigfússon og Ágúst Ólafsson á blaðamannafundi sem haldinn var
í Umferðarmiðstöðinni í gær.
íslenska Sjónvarpsfé-
lagið hefur fest kaup
á helmings hlut í
SkjáVarpi.
íslenska Sjónvarpsfélagið á og
rekur sjónvarpsstöðina Skjá
Einn og mun stöðin hefja út-
sendingar á dreifikerfi SkjáVarps
I. scptember. Um lcið hefjast
útsendingar SkjáVarps á höfuð-
borgarsvæðinu og í Reykjanes-
bæ. Með samnýtingu dreifikerf-
isins ná útsendingar Skjás Eins
og SkjáVarps til um 90 prósenta
þjóðarinnar.
Helmings hlutur í SkjáVarpi
kostaði íslenska Sjónvarpsfélag-
ið um eitt hundrað milljónir
króna og hafa fyrirtækin gert
samkomulag um náið samstarf í
upplýsinga- og fréttaöflun, dreif-
ingu efnis og markaðsmálum.
En björninn er ekki unnin með
því einu að kaupa dreifikerfi
SkjáVarps þar sem það hefur
ekki getu til að senda út hreyfi-
myndir. íslenska Sjónvarpsfélag-
ið verður því að leggja í tölverðan
kostnað til að geta hafið útsend-
ingar og eru menn að tala um að
ódýrara hefði verið að kaupa
bara nýjan sendi. „Þetta er mis-
skilningur sem stafar af því að
þeir eru ekki að senda út hreyfi-
myndir heldur senda þeir í gegn
um tölvu skjámyndir. Þeirra
tækni heldur áfram að vera eins
en okkar útsending verður svo
sannarlega lifandi og á fullri
hreyfingu," segir Arni Þór Vig-
fússon, sjónvarpsstjóri Skjás
Eins. En geta allir náð stöðinni
eða þarf örbylgjuloftnet. „Nei,
SkjáVarpið gerði smátækni-
kraftaverk. Þeirra rás skarast inn
á VHF en VHF er gamla góða
greiðan sem allir eru með og því
geta allir tekið á móti þessum út-
sendingum."
Ná til 90% þjóðarinnar
Skjár Einn sendir út á dreifikerfi
SkjáVarps, kl. 19:00-02:00 dag
hvern og er miðað við að útsend-
ingarnar heljist 1. september, en
mánuði síðar verður útsending
Skjás Eins á öllu dreifikerfi
SkjáVarjrs. A öðrum tímum sól-
arhrings sendir SkjáVarp út með
sama hætti og verið hefur. Hægt
verður að kalla fram upplýsingar
SkjáVarps á nýju textavarpi þegar
dagskrá Skjás Eins er send út á
dreifikerfinu.
Dreifikerfi SkjáVarps nær í dag
til 56 þúsund manns á 22 stöð-
um á landinu. Á næstu mánuð-
um verður dreifíkerfíð stækkað
og nær þá einnig til höfuðborg-
arsvæðisins og Reykjanesbæjar.
Fyrir árslok mun samnýting
dreifikerfsins tryggja að útsend-
ingar SkjáVarps og Skjás Eins
nái til um 90 prósenta þjóðar-
innar.
Stofnað hefur verið sérstakt
hlutafélag um rekstur SkjáVarps
og samningurinn við Islenska
Sjónvarpsfélagið hefur engar
breytingar í för með sér í rekstri
fyrirtækisins, aðrar en þær að
það eflist. - GJ
Kaupa Allianz
Hópur ijárfesta með þá Hrein Loftsson og Arna Gunn-
ar Vigfússon í broddi fylkingar hefur keypt meirihluta
hlutafjár í Allianz söluumboði, sem eftirleiðis mun
bera heitið Allianz Island hf. - söluumboð. Fyrri eig-
endur Allianz munu áfram eiga rúmlega 13% í félag-
inu. Hreinn tekur við formennsku í stjórn félagsins og
Arni Gunnar hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra.
Vegur lokaðist vegna skriðufalla
Skriða féll á veginn í Dalsmynni í Fnjóskadal í S-Þingeyjarsýslu f fyrra-
kvöld ogvar veginum Iokað af öryggisástæðum um nóttina. I gærmorgun
var vegurinn aftur opnaður og eru ekki önnur dæmi uin skriðufall á vegi
í umdæmi Vegagerðarinnar á Norðurlandi. Mikil úrkoma olli skriðunni í
Dalsmynni en skriðan var minniháttar að sögn starfsmanns hjá Vega-
gerðinni. - BÞ
Alvarlegt umferðarslys
Maður á sjötugsaldri slasaðist alvarlega þegar bifreið hans valt í Norður-
árdal í Skagafirði í gær. Sjúkrabílar frá Sauðárkróki og Akureyri ásamt
tækjabíl slökkviðliðsins mættu á staðinn. Maðurinn var síðar sendur með
sjúkraflugi frá Akureyri til Reykjavíkur.
Eldtngiu komiu til Québec
Seglskútan Elding kom til hafnar í borginni Québec í Kanada í fýrradag.
Þar með er hún komin í lokaáfangastað leiðangursins „Vínland 2000“ og
aðeins heimsigling eftir. I nágrenni Québec er talið líklegt að hafi verið
„Vínland" Leifs heppna, samkvæmt kennningum Páls Bergþórssonar,
veðurfræðings, í bókinni „Vínlandsgátan". Þegar til borgarinnnar kom
höfðu leiðangursmenn verið á siglingu inn Lárensflóa frá L’Anse aux
Meadows á Nýfundnalandi frá því í þyijun þessa mánaðar. Komið var
við í fáeinum hafnarbæjum á leiðinni og tekið land á eynni Anticosti
norður af Gaspéskaga í Québecfylki. Líklegt er talið að þar sé komin
Bjarney sú sem segir frá í Grænlendingasögu. Þar eiga Leifur heppni og
menn hans að hafa gengið á land.