Dagur - 11.08.2000, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2000 - 17
X^Mf-
LÍFIÐ í LANDINU
Flottará
Futurice
Þrjár tískulínurfjögurra
fatahönnuða verða kynnt-
ar í kvöld á Futuríce,
stærstu tískusýningu sem
haldin hefurveríð hérá
landi. Bára ogHrafnhild-
urHólmgeirsdætur kynna
Aftur, Ragna Fróðadóttir
sýnirnýjustu línuna frá
Path ofLove og Sæunn
Þórðardóttir afhjúparfót-
infráÆ.
Síðastliðið haust voru Ragna, Bára
& Hrafnhildur og Sæunn valdar úr
hópi 65 umsækjenda til að hanna
nýja tískulínu fyrir tískusýningar
Futurice, sem haldnar verða í Bláa
lóninu í kvöld og á morgun. Frá því
úrslit lágu fyrir hafa þær varla hugs-
að um annað. Sýningin sem blaða-
menn frá helstu tískutímaritum
heims og fulltrúar að minnsta kosti
tveggja umboðsskrifstofa fyrir kaup-
endur fá að sjá í kvöld, hefur því
verið í undirbúningi í heila tíu mán-
uði. Þannig eru vinnubrögðin í hin-
um alþjóðlega tískuheimi, en þetta
er í fyrsta skipti sem slíkt er reynt
hér. Markmiðið er að koma Islandi
og íslenskum fatahönnuðum á kort-
ið í tískuheiminum. Ef það tekst
gæti Futurice orðið að árlegum við-
burði.
Sjálfir hafa hönnuðirnir ekki þurft
að gera neitt nema hanna - en það
hefur verið meira en nóg vinna
segja þær. Allur annar undirbúning-
ur hefur verið í höndum Eskimo
models í Reykjavík og Daggar Bald-
ursdóttur í London, en hún er þaul-
vön að skipuleggja slíka viðburði
fyrir þekkta tískukónga. Innan Fut-
urice eru nokkrar tískusýningar og
fá Ragna, Sæunn, Bára og Hrafn-
hildur allar að halda sérstaka sýn-
ingu fyrir sínar fatalínur. Sex aðrir
íslenskir hönnuðir taka hins vegar
þátt í sameiginlegri sýningu á morg-
un, 12 ágúst, ásamt norskum og
finnskum hönnuðum. Munurinn
felst fyrst og fremst í því að á sam-
sýningunni á hver hönnuður aðeins
tíu alklænaði og fær ekki að ráða
heildaryfirbragði sýningarinnar líkt
og þeir sem hafa eigin sýningu. Þeir
hönnuðir þurfa líka að geta boðið
upp á þrjátíu alklænaði og að hafa
hugsað fyrir næsta skrefi, sem er
fjöldaframleiðsla á línunni.
Spiumið í efnið
Það er betra að vera við því búinn að
pantanir berist í kjölfar sýningarinn-
ar, þó enginn þeirra hönnuða sem
Dagur ræddi við hafi verið farinn að
hugsa mikið lengra í alvöru en fram
að stóru stundinni í kvöld. Bára og
Hrafnhildur höfðu þó velt málinu
nokkuö fyrir sér, því þær hanna flíkur
á óvenjulegan hátt, sem ekki liggur
Ijóst fyrir hvernig mætti fjöldafram-
leiða. Ragna fer lfka einstakar leiðir,
en hún segir ekkert því til fyrirstöðu
að hægt væri að sauma fötin hennar í
einhverju magni.
Ragna Fróða hefur lengsta reynslu
þeirra af því að hanna undir eigin
merkjum, þó hún hafi aldrei áður
gert fullbúna Iínu. Hún setti Path of
Love á fót fljótlega eftir að hún lauk
námi í fatahönnun í París árið 1995
og selur nú föt í Kirsjuberjatrénu við
Vesturgötu í Reykavík og í Iskúnst í
Osló. Fyrir ári útskrifaðist Ragna svo
úr textíldeild Myndlista- og handíða-
skóla Islands, þar sem hún bætti við
sig námi og þekkingu á meðferðum
efna. En það eru einmitt efnin sem
einkenna Path of Love.
„Þar scm ég get tekið tilbúið efni
og breytt því f mitt hef ég miklu meiri
möguleika á að hanna einstakar flík-
ur." I meðförum Rögnu breytast litir
efnisins eins og fyrir töfra en hún lýs-
ir aðferðinni þannig: „Sama efnið
býður upp á óteljandi möguleika, sem
fara eftir því hvernig ég læt efnin
spila saman í mismunandi lögum.“
Persónuleg áferð er loks kórónuð
með útsaumi, sem gerir flíkurnar
rómantískar. Þannig ræður efnið
ferðinni við sníðavinnuna, sem
Ragna gerir oftast beint í efnið. „Eg
grófsníð flíkina fyrst af því efnið get-
ur aflagast og fínsníð í lokin. Stund-
um vinn ég í bút og bút í einu, en
það kemur líka lyrir að ég rissa upp
mynd áður en ég legg af stað. Þó ég
sé yfirleitt með ákveðin form í huga
teikna ég aldrei á efnið áður en ég fer
með það í vélina.“
Nálgunin er eins og hjá listamanni
sem vinnur verkin sín beint í efnið,
en sjálf h'kir Ragna vinnunni við
spuna. Utkoman ræðst af vinnuferl-
inu, sem þýðir ekki að hún saumi all-
ar flíkurnar sjálf enda væri slíkt óyfir-
stíganlega mikil vinna fyrir Futurice.
„Ég hef kennt mínum saumakonum
aðferðina og þarf því aðeins að hafa
yfirumsjón með vcrkinu."
Notað og endumýtt
Efnin eru líka útgangspunktur
hönnunar Báru og Hrafnhildar, en
þær segjast hafa „komið út úr
skápnum sem fatahönnuðir með
Futurice". Þeirra skólun hefur verið
undirbúningur sýningarinnar og
bein reynsla af íslensku tísku-versl-
analífi, þar sem þær hafa komið við
sögu sem innkaupastjórar, stílistar,
verslunareigendur, innanhússhönn-
uðir (Thomsen, Spútnik) og fata-
hönnuðir undir merkjum verslana.
Þrátt fyrir að vera nýkomnar fram
sem skapandi hönnuðir vöktu þær
athygli úti strax í vetur eftir að
Björk Guðmundsdóttir hafði nefnt
þær sem efnilegustu fatahönnuði
næsta árþúsundar í Dazed & Confu-
sed. Systurnar líta á tilnefninguna
sem mikinn heiður, ekki aðeins af
því Björk er fræg heldur hafa þær
dálæti á fatasmekk hennar.
Einhverjir muna kannski eftir því
að áður en Björk sló í gegn gekk
hún ol’t í notuöum fötum, en það
eru einmitt slíkar fli'kur sem veitt
hafa Hrafnhildi og Báru innblástur.
Þær kalla fatalínuna Aftur og vísar
nafnið til þess að þær nota ein-
göngu notuð efni í fötin. En þegar
Hrafnhildur og Bára tala um efni
eiga þær í raunninni við flíkur. Það
þýðir ekki að þær saumi upp úr
gömlum fötum. „Við erum búnar að
vera innkaupastjórar fyrir verslanir
með notuð föt f mörg ár og höfum
þannig komist í sambönd við verk-
smiðjur úti sem flokka efni eftir
ákveðinni forskrift," segja þær. „Við
lítum á fötin sem efni og notum þau
sem slík. Flíkurnar eru klipptar upp,
en þii getur ekki horft á flíkina til-
búna og séð ermi af gömlu frakka
hér og kraga þar. Við styttum ekki
buxur og setjum á þær pallíettur og
við breytum heldur ekki jökkum í
vesti. Þetta þýðir einfaldlega að
okkar efni eru smærri og að það
þarf útsjónarsemi til að sjá hvcrnig
hægt er að búa til úr þeim heilar
flíkur.“
Kvenlegar líuur
Þeim hefur tekist að þróa aðferð sem
hægt væri að nota til að ijöldafram-
leiða fötin, en vegna þess hvernig
efnin cru unnin verður hver fli'k
áfram einstök. „Það er númer eitt,
tvö og þrjú að engin flík sé eins. Það
er okkar sérstaka.“ Þær Ieyna því ekki
að fötin eru ætluð tfskusinnuðu fólki,
viðskiptavinum með óbilandi áhuga á
fötum og tísku. „Það er ekkert
launungarmál að sá hópur er ekki
nema 4% af öllum markaðnum," seg-
ir Sæunn Þórðardóttir, sem líka
hannar föt fyrir fólk „sem eyðir meiri
fjármunum í föt en gengur og gerist.“
Einkenni fatnaðar Sæunnar eru
sérlega kvenlegar línur, enda út-
gangspunktur hennar við hönnun-
ina líkami konunnar. „Ég nota lík-
amann og hanna flíkur utan á
hann.“ Hún segist þó ekki komast
hjá því að hugsa um samspil efna og
sniðs og er alltaf með efnið í hugan-
um þegar hún hannar. Sæunn hefur
einu sinni áður sent frá sér fatalínu,
„en það var minilína með tíu mis-
munandi módelum og aðeins einni
flík í númeri." Línan Æ fékkst hjá
Dýrinu og seldist upp. Síðan hefur
Sæunn einbeitt sér að Futurice, en
hún ákvað að taka sér frí frá námi í
fatahönnun í lðnskólanum til að
geta gert það. „Eg byrjaði á að læra
kjólasaum og kannski hefur það
áhrif á hvernig ég sé fötin. Þau eru
kvenleg og kynþokkafull og meira í
ætt við samkvæmisklæðnað en föt
sem hægt er að nota dags daglega.“
MEÓ
Bára og Hrafnhildur Hólmgeirsdætur: Aftur þýðir
endurnýtingu eða dauða.
Sæunn Þórðardóttir: Kvenlegt og kynþokkafullt Æ.
Ragna Fróðadóttir: Path ofLove, rómtískur útsaumur og
fjölbreytt litróf.