Dagur - 11.08.2000, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2000 - 19
LEIKHÚS
KVIKMYNDIR
TÓNLIST
SKEMMTANIR
Gay Pride
á Hinsegin dögum
FyrsU alvöru Gay Pride skrúð-
gangan verðurfarin íReykjavík
á Hinsegin dögum um helgina.
Hátíð á Ingólfstorgi. Alvöru
kabarett í Kaffileikhúsinu í
kvöld.
Það er Ijóst að samkynhneigðir munu setja
svip sinn á götur og menningarlíf Reykjavík-
urborgar um helgina því í gær hófust
Hinsegin dagar sem líkur á laugardaginn.
Hátíðin hófst formlega í gær með opnun
ljósmyndasýningar Siggu Birnu frá Gay
Pride göngunni í New York í fyrra í Regn-
bogasal Samtakanna 78, Laugavegi 3. Gay
Pride eða Hýrt stolt á rætur sínar að rekja til
þess þegar lögreglan réðst að samkyn-
hneigðum sem höfðu safnast saman á Stone
Wall hommabarnum við Christopher Street
í NewYork 27. júní árið 1960. í fyrsta skipti
réðust hommarnir gegn handtökum Iögregl-
unnar, enda voru þeir saman komnir til að
minnast uppáhaldsleikkonu sinnar, Judy
Garland, sem var jarðsett þennan dag.
Fregnin af mótspyrnunni barst eins og eldur
í sinu um borgina og strax árið eftir var at-
viksins minnst með göngu í bæði New York
og San Francisco.
TU minnis mótstöðu
Gay Pride göngurnar eru nú, 31 ári síðar, ár-
Viginio Lima hefur stundað rannsóknir á evrópskri
kabaremóniist millistríðsáranna sem Ljóshærði
engilinn byggist á. Ein og aðeins ein sýning í Kaffi-
leikhúsinu. mvnd: þök.
legur viðburður í 90 borgum í heiminum og
vekja hvarvetna mikla athygli fyrir að vera
skrautlegar og skemmtilegar. Göngurnar eru
ekki allar farnar þann 27. júní heldur
dreifast þær yfir sumarið og eru sumar sótt-
ar af sama fólkinu. Heimir Már Pétursson
vonast til þess að Reykjavík komist hér með
á listann yfir Gay Pride borgir heimsins og
að hún eigi eftir að laða til sín samkyn-
hneigða ferðamenn Iíkt og gerst hefur víðast
hvar annars staðar.
Gangan í Reykjavík leggur af stað frá
Hlemmi á morgun, laugardag, kl. 15. Geng-
ið verður niður Laugaveg og endað á lng-
ólfstorgi, þar sem útiskemmtun með tónleik-
um og uppákomum hefst kl. 16. Fjallkarlinn
og fjallkonan, Andrea Gylfadóttir og Lög-
reglukórinn, Drottningar, Páll Oskar og Fel-
ix Bergsson eru f hópi helstu atriða ásamt
hljómsveitinni Bellatrix sem slúttar gciminu.
Millistríðsára kabarett
Til að hita upp fyrir gönguna er ekki úr vegi
að bregða sér í Kaffileikhúsið í kvöld þar
sem brasilíski leikarinn Viginio Lima tregður
upp með einstæðan kabarett. Ljóshærði eng-
illinn kemur frá London og er óður til þeirr-
ar kaharetthefðar sem átti blómaskeið sitt á
meginlandi Evrópu á þriðja og fjórða áratug
20. aldarinnar. Haldið er að heiman með
Marlene Dietrich til Hollywood og víða
komið við á leiðinni. Vigino Lima frumsýndi
Ljóshærða engilinn í Canal Café Ieikhúsinu í
London árið 1998 og hlaut svo frábærar við-
tökur að hann hefur þurft að taka sýninguna
upp aftur og aftur. Stjórnandi og danshöf-
undur er David Waring. Peter Murphy sá
um tónlistarútsetningar og leikur á dragspil í
sýningunni. Honum til fulltingis verður Ein-
ar Örn Einarsson píanóleikari. Aðeins þessi
eina sýning og hefst hún kl. 21 í Kaffileik-
húsinu í Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3.
Miðapantanir í 551 9030.
MEÓ
Heim að Hólum
Hólahátíð 2000fer
fram á Hólum íHjalta-
dal um helgina.
Hefð virðist vera orðin fyrir því að
ræðumenn á Hólahátíð flytji eft-
irminnilegar hátíðarræður og
vakti það sérstaka athygli lands-
manna þegar Davíð Oddsson, for-
sætisráðherra llutti „rússnesku
mafíuræðuna" svokölluðu og fjall-
aði að mestu leyti um Ijármagns-
markaðinn, einnig vakti athygli
ræða Olafs Ragnars Grímssonar
um Islenskan erfðaiðnað, þar sem
hann varpaði fram ýmsum sið-
ferðilegum spumingum. Að þessu
sinni mun Sólveig Pétursdóttir,
dórns- og kirkjumálaráðherra
llytja hátíðarræðu á Hólahátíð og
híða sjálfsagt margir spenntir eftir
því hvort Sólveig muni viðhalda
fyrrnefndri hefð.
Hátíðardagskrá Hólahátíðar
Að þessu sinni stendur Hólahá-
tfðin ylir í 2 daga og hefst Laug-
ardaginn 12. ágúst og lýkur
sunnudagskvöldið 13. ágúst.
Fyrri dagurinn felur f scr dagskrá,
sem er skipulögð af kristnihátíð-
arnefnd Skagaljarðarprófasts-
dæmis og seinni daginn er svo
hin hefðbundna Hólahátíð, sem
verið hefur mcð svipuðu sniði.
Dagskráin er sem hér segir:
Laugardagur 12. ágúst
KI. 11:00 Lagt af stað frá
Bændaskóla áleiðis upp í Gvcnd-
arskál þar sem haldin veröur
messa. Sr. Dalla Þórðardóttir
prestur á Miklabæ hefur umsjón
með messunni, sem hefst í skál-
inni kl. 13:00.
KI. I 1:00 verður skipulögð dag-
skrá fyrir börn á staðnuni, á með-
an fullorönir ganga til messu upp
í Gvendarskál. Það verða leikir,
skoðunarferð í kirkju, vatnalífs-
sýning, sund og hestar.
Kl. 16:00 hefjast tónleikar und-
ir berum himni. Sr. Bragi J. Ingi-
bergsson sóknarprestur á Siglu-
fírði mun þá fyrst flytja ávarp, en
síðan munu barnakórar úr pró-
fastdæminu taka lagið ásamt
Rökkurkórnum, skaglirska kam-
merkórnum, auk þess sem tón-
listarfólk frá Sauðárkróki llytu r
svokallað „kirkjupopp.11 Jóhann
Már Jóhannsson mun einnig taka
lagið.
Kl. 18:00 hefst grill á staðnum
og þar getur fólk gætt sér á grill-
Sólveig Pétursdóttir, dóms- og
kirkjumálaráðherra flytur hátíðar-
ræðuna á Hólahátíð 2000.
uðum pylsum í boði Kaupfélags
Eyfirðinga, Kaupfélags skagfirð-
inga og Aðalabakarísins á Siglu-
fírði.
Um kvöldið kl. 20:00 verða svo
tónleikar í Hóladómkirkju, þar
sem ýmsir flytjendur munu koma
fram m.a. Alftagerðisbræður, auk
þess sem fluttir verða sálmar úr
sálmasamkeppni.
Kl. 21:00 veröur svo varðeldur í
umsjón skáta frá Sauðárkróki
norðan við Grunnskólann á Hól-
um og við varðeldinn verða
sungnir ýmsir skemmtilegir
söngvar, jafnvcl hin víðfrægi
„Undir bláhimni."
Sunnudagur13.ágúst
Seinni dagur Hólahátíðar hefst á
hátíðarmessu í Hóladómkirkju kl.
14:00. Þar munu kvcnprestar úr
héraðinu þjóna. Sr. Ragnheiður
Jónsdóttir sóknarprestur á Hofs-
ósi og sr. Guðbjörg Jóhannsdóttir
sóknarprestur á Sauðárkróki
munu þjóna f)TÍr altari, en sr.
Dalla Þórðardóttir sóknarprestur
í Miklabæ mun prédika. Vígslu-
biskup Sr. Bolli Gústavsson lýsir
yfir blessun f lokin. Meðhjálpari
er Bolli Pétur Bollason guðfræð-
ingur.
Eftir messu kl. 15:00 verður
boðið til kaffíhlaðborðs í Hóla-
skóla.
KI. 16:30 hefst svo menningar-
dagskrá í Hóladóinkirkju. Dóms-
og kirkjumálaráðherra Sólveig
Pétursdóttir flytur hátíðarræðu.
Þá mun Hjörtur Pálsson rithöf-
undur flytja frumsamin ljóðallokk
í tilefni hátíðar, scm ber vfirskrift-
ina Hólaljóð. Sigrún Eðvaldsdótt-
ir fiðluleikari mun flytja verk eftír
Jóhann Sebastian Bach.
■UMHELGINA
Sumartúnleikar
í Skállioltskirkju
Fimmta og síðasta tónleika-
helgi Sumartónleika í Skál-
holtskirkju verður helgina 12.
og 13. ágúst. Fyrri tónleikamir
verða á Iaugardag ld. 15 þar
sem verður flutt blásaratónlist
frá barokktímanum. Flytjend-
ur eru Bonner Barock Solist-
en, þýskur hópur sem hefur
sérhæft sig í flutningi
barokktónlistar.
Kl. 17. sama dag mun
Manuela
Wiesler
flautuleikari
flytja innlend
og erlend ein-
leiksverk frá
tuttugustu
öld sem fjalla
um náttúr-
una, fugla,
stjörnur og
sólina.
Manuela var
búsett hér á
Iandi um
árabil og tók þátt í að hleypa
Sumartónleikunum af stokk-
unum fyrir 25 árum. Hún hef-
ur einatt tekið þátt í þeim síð-
an, nú síðast fyrir 7 árum.
Tónleikar Manuelu verða end-
urteknir á sunnudaginn kl. 15.
Boðið er upp á barnagæslu í
skólanum meðan á tónleikum
stendur. Aðgangur að Sumar-
tónleikanum er ókeypis og eru
allir velkomnir.
Gjömingux í Hlemini
Hildur Jónsdóttir myndlistar-
maður ætlar að fremja gjörn-
ing í galleri@hlemmur.is við
Þverholt á morgun, laugardag,
klukkan 17. Þetta eru síðustu
forvöð til kynna sér verk
Hildar, sem hefur undanfarinn
mánuð sýnt teikningar og
myndbönd í galleríinu undir
yfírskriftinni „Hið góða, vonda
og ljóta eðli náttúr-unnar".
Verk Hildar eru nákvæmar
trélita-teikningar og videóverk
af ýmsum fyrirbærum
náttúrunnar, en bún hefur á
annað ár rannsakað garðinn
og
eyðimörk-
ina. Hildur
kemur lyrir
í eigin
verkum
sem
sögumaður
eða
„prestur"
og mun
Teikning eftir Hildi tala um
Jónsdóttur. h'ð góða,
—------- vonda og
Ijóta eðli
náttúr-unnar í performance-
inum. Hildur stundaði nám
við Myndlista- og
handíðaskóla íslands árin
1991 - 1994 og hefur verið
nemandi við Hochsehule (,r
bildende K nste-Hamburg frá
árinu 1994. Ilún er búsett í
Hamborg. Sýningin er opin
fram á sunnudag frá ldukkan
14 til 18.
s._________________________J
Manueia Wiesier
flautuleikari.