Dagur - 11.08.2000, Qupperneq 21
FÖSTUDAGUR 11. A G Ú S T 2 000 - 21
Xfc^MT.
Jeremy og Björk
f lonir
Það eru ekki bara Bára, Hrafnhildur, Ragna og Sæ-
unn sem verða með tískusýningar á Futurice í Bláa
lóninu í kvöld, Breski hönnuðurinn Tristan Webber verður
einnig með sjó að ógleymdum bandaríska Parisarbúanum
Jeremy Scott, sem er svo í miklu uppáhaldi hjá Björk að hún
hefur samið sérstaka tónlist fyrir sýninguna. Fleiri tónsmíðar
eiga þó örugglega líka eftir að vekja athygli. Daníel Ágúst
samdi sérstaka tónlist fyrir Rögnu og svo má ekki gleyma því
að bæði Móa og The Vinylistics og Gus Gus koma fram í
kvöld. Á morgun hefst stór samsýning á sama stað á hádegi
eftir að Bang Gang hefur lokið sér af með fötum Hugrúnar,
Þuríðar Rós,
Þorbjargar,
Ragnheiðar,
Bergþóru,
Brynju og
Maríu frá fs-
landi auk
norskra og
finnskra
fatahönn-
uða.
Kammertónlistarhátíð 10 ára
Árlegir sumartónleikar með kammertónlist verða haldnir í tí-
unda sinn á Kirkjubæjarklaustri helgina 11. til 13. ágúst.
Flytjendur á Kirkjubæjarklaustri um helgina ásamt Eddu Er-
lendsdóttur pínaóleikara og stofnanda hátíðarinanr eru ungir
tónlistarmenn, Finnur Bjarnason tenór, Guðrún Hrund Harð-
ardóttir víóla, Nína Margrét Grfmsdóttir píanó, Sif Túliníus
fiðla, Sigurbjörn Bernharðsson fiðla, og Sigurður Bjarki
Gunnarson selló. Á tónleikunum í kvöld kl. 21 verða flutt
verk eftir Jón Nordal, Hindemith, Brahms og Ravel. Á morg-
un hefjast tónleikarnir klukkan 17, en þá verður frumflutt
verk eftir Mist Þorkelsdóttur. Á efnisskrá sunnudagstónleik-
anna sem hefjast kl. 15 eru píanótríó Sveinbjörns Svein-
björnssonar, Ijóð og píanókvintett eftir Schubert.
Flakkið hverfur
Sumarsýning Norræna hússins Flakk eða sú sérstaka tilfinning að vera bæði
heima og heiman, sem staðið hefur yfir í Norræna húsinu frá því 27. maí, lýkur
sunnudaginn 13. ágúst. Þetta eru því síðustu forvöð að kynna sér verk eftir unga
norræna og alþjóðlega myndlistarmenn, sem að beiðni listfræðinganna Per Gunn-
ar Tverbakk og Andreu Kroksnes samþykktu að fara á flakk í verkum sínum.
Myndlistarmennirnir heita Frans Jacobi, Seppo Renvall, Ole Jörgen Ness, Egil
Sæbjörnsson, Þórodd Bjarnason, Annika Ström, Alexsandra Mir, Mattias
Harenstam, Susan Templin og Sarah Morris. Flakk er m.a. styrkt af Norrænu sam-
tímalistastofnunni NIFCA. Sýningin er opin frá kl. 12 -17.
stund og stað opnar í Audio visual art
gallery Listasumars sýning á videolista-
verki eftir John Hopkins.
Handverk 2000
Um helgina stendur yfir handverks-
sýningin Handverk að Hrafnagili í
Eyjafjarðarsveit. Tugir handverks-
manna og -kvenna sýna og selja verk
sín á sýningunni sem er opin til kl.
21, nema á sunnudag til kl. 18.
MANNFAGNAÐIR
Kaffisamsæti að Hólavatni
Kaffisala verður í sumarbúðum
KFUM og K sunnudaginn 13. ágúst
frá kl. 14 til 18. Venja er að sumar-
starfinu ljúki með kaffisölu, sem er
liður í fjáröflun sumarbúðanna og
gefur hún einnig velunnurum starfs-
ins og öðrum tækifæri til að koma að
Hólavatni og kynna sér starfsemina
og skoða sig um. I tutlugu ár hefur
verið skipulega unnið að skógrækt í
landi Hólavalns og voru gróðursett
um 2300 lerkitré þar í sumar auk
þess sem miklar framkvæmdir liafa
verið í fjöru vatnsins s.s. við hryggju
og bátaskýli. Tilvalið að eyða sunnu-
dagseftirmiðdegi í kaffisamsæti á
Hólavatni í Eyjafjarðarsveit.
Dagskrá Mærudaga á Húsavík
í kvöld kl. 20 í tjaldinu Hattakvöld.
Komið mcð skemmtileg höfuðföt.
Skemmtidagskrá með borðhaldi:
Sameiginlegt hlaðborð: Nú mæta all-
ir. Fjölskyldur og einstaklingar koma
með kvöldmatinn sinn og leggja til á
hlaðborðið. (Ekki gleyma horðbún-
aði). Kleinukeppni, smurhrauðstertu-
kepni, hattakeppni, hæfileikakeppni,
vegleg verðlaun í boði. Kl.23.00
Fjöruganga og varðeldur.
Laugardagur 12. ágúst
Fjölskyldu og markaðsdagur. KI.
09:00 - 18:00. Golf, Katlavöllur.
Landsmót í golfi. Kl. 11:00.-l 2.00
Dorgveiðikeppni. Kl.13:00-17:00
Markaðsdagur f tjaldinu- Þarftu að
selja eitthvað. Kl: 13:00 Botnsvatns-
hlaup í umsjón Skokka. Kl. 15:00-
16:00. Sandkastalakeppni f suður-
fjöru. Kl. 14:00 Hrútasýning og verð-
Iaunaafhending. Gæludýrasýning. KI.
14:00 Andlitsmálun fyrir börn. Allir
sem eiga flugdreka koma og fljúga
þeim og setja þannig svip á daginn.
Kajakar til leigu í Húsavíkurhöfn.
Gúmmíbátaferðir á vegum Björgunar-
sveitarinnar Garðars. Slökkviliðs-
sprell. Vatnsfótboltaslagur á Suður-
garði. Jeppasýning, 4x4 klúbburinn
sýnir gersemar og tröll. Kl. 15:00-
16:00 Hott hott á hesti, gæðingar frá
Saltvík. KI. 13:00-19:00. Afmælis-
skotmót Skotfélags Húsavíkur í
Fjallshólum. 20.30-24:00. Bryggju-
ball. Færibandið heldur uppi stans-
lausu fjöri. Kl. 24:00 Flugeldasýning.
Sunnudagur13.ágúst
Sögudagur. Kl. 10:30 Söguganga á
vegum Safnahússins. Gengið um
Stangarbakka undir leiðsögn Sigur-
jóns Jóhannessonar. Kl: 21:00. Jass á
Bauknum. Hið heimsfræga Robin
Nolan jassband leikur.
OG SVO HITT...
Bókmenntavaka í Deiglunni
Á Bókmenntavöku í Deiglunni, Lista-
gili á Akureyri í kvöld kl. 20.30 verð-
ur Ijóðadagskrá um Braga Sigurjóns-
son og Guðmund Frímann. Lesarar
eru Aðalheiður Steingrímsdóttir, Jón
Erlendsson, Kristjana Jónsdóttir,
Geröur Árnadóttir, Inga Margrét
Árnadóttir og Þórarinn Guðmunds-
son. Aðgangur ókeypis.
Dans fellur niður
Kvöldskemmtun með Önnu Richards
sem vera átti í Deiglunni, Listagili á
vegum Listasumars á Akureyri laug-
ardaginn 12. ágúst kl. 20.30 fellur
niður af óviðráðanlegum orsökum.
Draugavaka um helgina
Minjasafnið á Akureyri er opið um
helgina kl. 11 - 17. Sunnudagskvöld-
ið 13. ágúst verður draugavaka í safn-
inu. Fluttar verða frásagnir af eyfirsk-
um draugum og brugðið á leik.
Draugavakan hefst kl. 22. Á eftir
gel’st tækifæri til að skoða sýningar
safnsins. Aðgangur kr. 300 l'yrir 16
ára og eldri, ellilífeyrisþegar greiða
ekki aðgang.
Jóga og hugleiðsla í Skjaldarvík
í kvöld kl. 20 byrjar námskeið og
hugleiðsla í Skjaldarvík skammt fyrir
utan Akureyri í urnsjón indverska
jógameistarans Guruji og stendur
fram á sunnudag. Aðgangur að sam-
omum Gurujis er ókeypis og öllum
heimill á meðan húsrúm leyfir. Leita
má nánari upplýsinga í síma 565-
4875 eða með fyrirspurnum gegnum
netið. Netfangið er: bryndisjakobs-
dottir@hotmaiI.com.
Fornbíladagur á Hvanneyri
Afmælishátíð Búvélasafnsins verður
kl. 13-18 laugardaginn 12. ágúst. Þá
verður sýning á bílum
Fornbílaklúbbsmanna. Vænta má
sérstakra sýningaratriða þeirra.
Búvélasafnið verður opið og mun
verða brugðið á leik með nokkrar
forndráttarvélar safnsins. Sérstakur
heiðursgestur Búvélasafnsins á
afmælishátíðinni verður Sæmundur
Sigmundsson sérleyfishafi í
Borgarnesi sem sýna mun nokkra
fornbíla sína.UIIarselið sinnir gestum
sérstaklega og mun m.a. bjóða þeim
að taka þátt í tóvinnu. Borgfirðingar
og nágrannar, sem forntæki eiga -
bfla eða dráttarvélar - eru eindregið
hvattir til þess að nota nú tækifærið
laugardaginn 12. ágúst og að koma
með gripi sfna að Hvanneyri og sýna
þá'
Golfmót á 66° N
Laugardaginn 12. ágúst verða tvö
mót á Golfvellinum á 66° N að
Lónkoti í Skagafirði. Golfklúbbur
Mývatnssveitar og Golfklúbbur
Sandgerðis halda innanfélagsmót
eftir hádegi.
Allt um ætisveppi
Tímamót
hjá Herði
Magnaðasti viðburð-
ur menningarborgar
-Hörður Sigurgestsson
forstjóri í helgarviðtali
Skapandi systur
Kynlíf, bækur, bíó, heilsa, fluguveiði
og fleira