Dagur - 22.08.2000, Síða 17
ÞRIÐJUDAGVR 22. ÁGÚST 2000 - 17
LÍFIÐ í LANDINU
Fundað um sögu
stj ómmálanna
Sigurður Gylfi Magnússon formaður Sagnfræðingafélags íslands: „THgangurinn með hádegisfundunum er
ekki aðeins að taka fyrir sagnfræðileg viðfangsefni heldur að skila þeim út í þjóðfélagið."
Fyrsti hádegisfimdurSagnfræð-
ingafélgs íslands á þessum vetri
verðurhaldinn íNorræna húsinu
í dag klukkan 12. Haustið verð-
urhelgað spumingunni „Hvað
erstjómmálasaga?“. Sigurður
GylfiMagnússon sagnfræðingur
ogformaðurfélagsins segirfrá
starfsemi komandi vetrar.
Sagnfræðingafélag íslands efnir til fyrsta há-
degisfundar vetrarins í dag, þriðjudaginn 22.
ágúst í Norræna húsinu. Ætlunin er að velta
því fyrir sér hvernig best sé að ijalla um
stjórnmál á nýrri öld og mun Auður Styr-
kársdóttir stjórnmálafræðingur hefja umræð-
una með fyrirlestrinum „Stjórnmálasaga:
Vald var það heillin". Fundirnir eru haldnír
annan hvern þriðjudag og standa yfir í ná-
kvæmlega 55 mínútur, frá kl. 12.05 til 13.00.
Forsætisráðherra um sögukemtslu
Iládegisfundir Sagnfræðingafélags íslands
vöktu nokkra athygli síðla vetrar þegar póst-
módernisminn var á dagskrá og var umræð-
an meðal annars tekin upp á síðum Dags,
þar sem bæði Friðrik Þór Guðmundsson
blaðamaður og pistlahöfundurinn Illugi Jök-
ulsson tjáðu sig um málið. Sigurður Gylfi
Magnússon formaður félagsins segir að til-
ganginum með fundunum sé náð ef efni
þeirra nær ekki aðeins til háskólasamfélags-
ins heldur út í þjóðh'fið.
„Þegar við byrjuðum með hádegisfundina
í janúar 1998 var megintilgangurinn að efna
til snarpra stuttra funda um hin ýmsu mál-
efni innan greinarinnar. Það voru aðallega
sagnfræðingar sem tóku þátt í fyrstu fundun-
um, en síðan hefur verið valin sú leið að leita
einnig til fræðimanna úr öðrum greinum.
Það endurspeglar nýja strauma í fræðunum,
þar sem múrar milli greina eru að falla og á
það kannski sérstaklega við um yngri fræði-
merrn. Við höfum því leitað til heimspekinga,
lögfræðinga og hagfræðinga til að tala, heyra
hvernig þeir taka á sömu vandamálum og
sagnfræðingar eru að glíma við.
í haust víkkum við þetta enn frekar með
því að taka inn fólk sem starfar á vettvangi.
Við höfum fengið Davíð Oddsson forsætisráð-
herra, til að taka til máls þann 31. október,
en hann hefur tjáð sig opinherlega um sögu-
kennslu og spurt hvernig standi á því að til sé
kynslóð barna sem ekki þekkir stjórnmála-
leiðtoga íslandssögunnai-. f framhald af því
má spyrja, hvernig á að skrifa stjórnmála-
söguna og á hvað skal leggja áherslu á þegar
hún er kennd.“
SMpbrot Svavars
„Svavar Gestsson kemur á fund félagsins
hálfmn mánuði síðar, en hann er að gera upp
sína pólitísku ævi á bók,“ segir Sigurður
Gylfi. „Þau hugmyndakerfi sem hann fylgdi
hafa beðið skipbrot og því þótti okkur for-
vitnileg að spá í hvaða þýðingu það hefur
haft fyrir hann og fyrir þjóðfólagið í heild
sinni. Stjórnmál einkenndu bæði þjóðlífið og
heimspólitíkina alla öldina, en þegar Berhn-
armúrinn féll árið 1989 breyttust öll viðmið
og stjórnmálasagan hefur tekið mið af því.
Spurningin Ifvað er stjórnmálasaga? á því
vel við í lok 20. aldarinnar.
En tilgangurinn með fundunum er ekki
aðeins að taka fyrir sagnfræðileg viðfangsefni
heldur að skila þeim út í þjóðfélagið. Það eru
allir velkomnir á fundina en þeir sem ekki
komast geta nálgast fyrirlestrana á Kistunni,
vefriti um hugvísmdi, sem við höfum átt í
samstarfi við.“ Þar lifa fyrirlestarnir áfram á
slóðinni www.hi.is/~mattsam/Kistan/. Nokkrir
þeirra fyrirlestara sem fjölluöu um póst-
módernisma verða einnig gefnir út á Atviks-
bók í haust.
Vantar samastað
Sagnfræðingafélag íslands telur 300 félaga
en Sigurður Gylfi telur þá ekki vera einu
ástæðuna fyrir góðri aðsókn á fundina. „Það
hefur orðið mikil ijölgun menntafólks í öllum
greinum hér á landi, sem finnur sér hvergi
samastað. Skýrasta dæmið um það er
kannski ReykjavíkurAkademían, sem taldi
sextán manns þegar hún var stofnuð fyrir
tveimur ármn en í dag eru 50 manns úr ólík-
um fræðigreinum þar með vinnustöðu.
Þarna hefur orðið ákveðinn bræðingur og
allt hefur þetta haft mikil áhrif á uppbygg-
ingu hádegisfundanna.“
Sagnfræðifólags íslands hefur gefið út lítið
plakat, þar sem hægt er að renna augunum
yfir starfsemi vetrarins í einu vetfangi. Há-
degisfundirnir eru vissulega ein uppistaðan í
því starfi, en félagið heldur jafnframt félags-
fundi, fundi um jólabækur í desember og
nokkrar ráðstefnur bæði í Reykjavík og á
landsbyggðinni. Á fyrstu ráðstefnu starfsár-
ins í október verður haldið áfram umræðum
um póstmódernisma, en eftir jól stendur til
að taka fyrir spurninguna Ilvað er heimild?. í
vor verður haldin í þriðja sinn ráðstefna úti á
landi, „í þeim tilgangi að styrkja fræðafólk á
landsbyggðinni. Hún er þannig uppbyggð að
allir geta sótt hana líkt og hádegisfundina, en
við verðimi næst í Stykkishólmi."
MEÓ
upp a
aðlaðandi
skemmta
MENNINGAR
LÍFID
Seiðandi
Svartiskógur
Á fjölmörgum
stöðum á lands-
byggðinni hefur
verið fundið
forvitnilegum og
atriðum til að
ferðamanninum og fá hann
til að dvelja. Á
ferð minni um-
hverfis landið á
átta dögum nú í
sumar lá leiðin
um Jökulsárhlíð
á Fljótsdalshér-
aði og þar var
ekki hægt annað
en stíga fast á
bremsuna þegar
komið var að
Hótel Svarta-
skógi því staður-
inn og andrúms-
loftið hreinlega seiddi mann
til sín. Fyrir utan persónu-
lega þjónustu vertanna, er
eftirminnilegt þegar hótel-
stjórinn, Benedikt Hrafnkel-
son settist við hljóðfæri og
spilaði og söng í yndislegu
skógarrjóðri bakatii við hót-
elið þar sem danspallur
freistaði fótfimra gesta og
upphófst hið mesta fjör.
Fuglamir í fjöruiml
„Fuglaskoðun" stendur skýr-
um stöfum skrifað á skilti
sem mætir augum ferða-
manns á Borgarfirði eystra
og ör bendir honum á að fara
bak við hús
sem stendur
niður við íjöru.
Fávísum dett-
Hóte/stjórinn
spilaði og
söng í
Svartaskógi.
ur í hug að
þaðan sé hald-
ið í gönguferð
Sandlóan er meg ginhverj-
einn fuglanna i um fugla-
fjörunni. fræðimanni
en annað
kemur í ljós.
Bak við húsið er annað hús,
lítið. Þar inni eru bekkir,
sjónaukar og fræðibækur um
fugla og þegar litið er út um
langan og mjóan glerlausan
glugga sem snýr út að sjón-
um blasir við ótöluleg mergð
fugla af hinum aðskiljanleg-
ustu tegundum, stórum og
smáum, trítlandi í ijörunni að
finna sér æti. Þarna reyndist
auðvelt að gleyma tímanum.
Ilstinað
skilj a listina
Um daginn var ég að taka til á
mínu litla en snotra heimili og
henti meðal annars gömlum
skóm sem mér þóttu útjaskaðir
og h'tið augnayndi. Ég áttaði mig
engan veginn á listrænu gildi
þeirra en það var áður en ég fór
á myndlistarsýninguna sem nú
stendur yfir á Kjarvalsstöðum.
Þangað fór ég, gekk inn í safnið
og fannst nokkuð druslulegt um
að litasl en þegar betur var að
gáð reyndist óreiðan vera sjálf
listaverkin. Það er svo skrítið að
það sem maður h'tur á sem drasl þegar
maður sér það heima hjá sér breytist í
list þegar það er komið í sýningarsal.
Þarna voru glerkassar á miðjum
gangi. Einn var l'ullur af snjáðum skóm,
ekki svo mjög óhkum þeim sem ég hafði
sett í ruslatunnuna nokkrum dög-
um áður. Annar glerkassi geymdi
stafla af óhreinum fötum, sem
minnti mig á að heima átti ég föt
sem biðu þess að komast í þvotta-
vél. I einu horni hafði brjóstsykur-
smolum verið raðað í hrúgu
þannig að til varð htið sælgætis-
fjall. Börnin ruku í það og þegar
þessi pistill kemur á prent hefur
hstaverkið sennilega verið étið
upp til agna og hefur skilað sér á
eðhlegan hátt aftur th náttúrunn-
ar. Á vegg voru fjölmörg kort af
New York eftir hstamann sem hafði
skráð ferðir sínar um borgina af mikilh
nákvæmni og kunningi minn einn sem
lagðist yfir verkið sagði mér að lilstamað-
urinn hefði meðal annars af andríki kort-
lagt í hvaða reitum borgarinnar hann
MENNINGAR
VAKTIIM
„Sennilega hef ég einungis yfirborðsskilning á list
þvi þegar hér var komið sögu gerðist ég afar frá-
hverf frekari vitneskju um klósettferðir listamanna
og flúði inn í þá álmu safnsins sem geymir nokkur
málverka Kjarvals.“
hefði haft hægðir.
Sennilega hef ég einungis yfirborðs-
skilning á list því þegar hér var komið
sögu gerðist ég afar fráhverf frekari vit-
neskju mn klósettferðir listamanna og
ílúði inn í þá álmu safnsins sem geymir
nokkur málverka Kjarvals. Fyrir konu
eins og mig var það vitaskuld eins og að
komast í helgidóm.
Um kvöldið var menningarnótt og þá
fór ég í Gaherí Fold. Ég hafði ekki efni á
að kaupa mér Kjarvalsmálverk en keypli
mér graííkmynd eftir Karóhnu Lárus-
dóttur. Sumum finnst það kannski skrýtið
en óg er afar fegin að vita af því að ég á
aldrei eftir að horfa á þá mynd og rugla
henni saman við óhreina þvottinn minn.