Dagur - 21.11.2000, Side 1

Dagur - 21.11.2000, Side 1
Slysum að fjölga vegna lausagöngu Lítill ökuhraði og hagstæð veðurskilyrði áttu stórau þátt í því að ekki fór verr þegar 40 manns lentu í alvarlegu rútuslysi. Kippur í slysum vegna búfjár undanfarið. Rannsóknamefnd umferðarslysa hóf athugun á rútuslysi í Fljótum í gær í samstarfi við Iögregluna í Skagafirði. 23 slösuðust þegar rúta ók út af veginum og valt við Barð á sunnudagskvöld. Björg- unaraðgerðir teygðu sig um allt land og voru slasaðir fluttir til Sauðárkróks, Akureyrar og Reykjavíkur. Slysið varð kl. 18.10 og voru björgunarsveitir Landsbjargar á Hofsósi, Siglufirði, Sauðárkróki, Varmahlíð, Akureyri, Dalvík, Ar- skógsströnd og Olafsfirði virkjað- ar til aðstoðar og flutnings slas- aðra. Sjúkrabílar og hjúkrunar- fólk kom fljótlega á staðinn og flutti þyrla Landhelgisgæslunnar einn til Reykjavíkur, sjúkraflugvél flutti annan til Akureyrar og nokkrir voru Iagðir inn á Sauðár- ltróki. Átta manns voru enn á sjúkrahúsum í gær en alls voru 39 manns í rútunni, 38 eldri borgar- ar og bílstjóri. Hann sveigði út af veginum að talið er til að forðast árekstur við hross sem birtist skyndilega á veginum. Enginn hinna slösuðu er í lífshættu. Fór betur en á horfðist Björn Mikaelsson, yfirlögreglu- þjónn á Sauðárkróki, eyddi gervöllum gærdeginum í athug- anir á vettvangi. Hann segir að betur hafi farið en á horfðist og vel hafi gengið að hjarga fólkinu með samstilltu átaki. Um tilurð slyssins segir Björn að Iausa- ganga búfjár sé ekki bönnuð á þessum slóðum en lausagangan er vandamál sem færst hefur í vöxt síðustu vikur samkvæmt upplýsingum frá Birni. „Þau eru alltof mörg þessi slys. Svo virtist sem ástandið færi skánandi en svo kom kippur í þetta í haust og á sfðustu mánuðum virðist aftur aukning," segir Björn. Slys vegna lausagöngu í Skagafirði eru mis- mörg en eru yfirleitt á annan tug árlega og stundum talsvert fleiri. Enginn hraðakstur Björn segir að veðurfarið hafi átt stóran þátt í hve björgun gekk vel í fyrrakvöld. T.a.m. hafi frostleysi verið mikilvægt með tilliti til að- hlynningar fólksins og allir hafi verið boðnir og búnir til að bregðast við kringumstæðum. Hraðinn á rútunni var ekki mik- ill samkvæmt fyrstu athugunum og er varkárni ökumanns talin eiga stóran þátt í því að rútan fór aðeins eina veltu. - BÞ FLeiri maimdráp Marktæk aukning hefur orðið í manndrápum undanfarið. Fjög- ur slík mál urðu árið 1991, þrjú árið 1992, eitt mál 1993, ekkert á árabilinu 1994-1995, tvö mál bæði 1996 og 1997, ekkert mál í hitteðfyrra, tvö mál í fyrra en fimm það sem af er þessa árs. Svo virðist einnig sem að- stæður gerenda hafi breyst. Framundir síðustu ár var hægt að afgreiða flest manndráp sem ölæðisverk, en nú færist í vöxt að fíkniefni komi við sögu. Velta má upp spurningum um öryggi íbúa sérstaklega á suðvestur- horni landsins. Ofneysla fíkni- efna, oft ofan í áfengi, ruglar dómgreind fólks og afleiðing- arnar eru oft á tíðum hörmuleg- ar. Dagur gerir líttekt á þessari óheillaþróun á hls. 5. Bros í Bláa lóninu Slökunarmáttur Bláa lónsins er rómaður og það var ráðherra heilbrigðismála kærkomið tækifæri að iíta þar við í gær í góðum féiagsskap. ingibjörg Páimadóttir var brosmitd þegar Ijósmyndara Dags bar að garði. mynd hilmar þúr. ísólfur Gyifi Pálmason, þ/ngmaður. , Tónmmja- safn a Stokkseyri Isólfur Gylfi Pálmason og fleiri þingmenn vilja að komið verði upp tónminjasafni á Stokkseyri. Þeir hafa flutt þingsályktunartil- lögu um að fela ríkisstjórninni að Iáta semja frumvarp til laga um stofnun og rekstur tón- minjasafns á Stokkseyri í sam- starfi við sveitarfélagið Arborg, héraðsnefnd Arnesinga og Byggðasafn Arnesinga og leggja fram f upphafi næsta löggjafar- þings. Flutningsmenn segja að með gildum rökum megi segja að vagga tónlistarlífs á Islandi í þeirri mynd sem nú er sé á Stokkseyri og Eyrarbakka. Það- an hafi verið margir þeirra menn sem stóðu í fremstu víglínu á sviði tónsköpunar, kennslu og uppbyggingar tónlistarlífs á fyrri hluta 20. aldar. Nægi að nefna aðeins fáa menn: tónskáldin og tónlistarmennina Sigfús Einars- son, Pál Isólfsson og Friðrik Bjarnason og athafnamanninn og menningarfrömuðinn Ragnar í Smára. Hvergi tónlistarsafn Þessir menn hafi átt sér einnig forfeður sem staðið hafi fyrir blómlegu tónlistarstarfi og öðru menningarlífi f þessum þorpum og lagt þar grunninn með starfi sínu. Megi þar nefna Selsbræð- ur, þá Bjarna, Jón, Isólfog Gísla Pálssvni á Stokkseyri. Flutningsmenn segja enn- fremur að tónmenningu Islands hafi ekki verið sinnt sem skyldi og frernur lítið verið skráð og fjallað um starf íslenskra tónlist- armanna. Þá sé hvergi til hér á landi sértækt tónlistarsafn þar sem finna mætti á einum stað muni og ritaðan fróðleik um þróun og sögu tónlistar. - S.DÓIt. OLYMPUS __Stafrænar myndavélar

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.