Dagur - 21.11.2000, Qupperneq 6
6 - ÞRIÐJVDAGUR 21. NÓVEMBF.R 2000
OMýtr
ÞJÓDMÁL
Útgáfufélag: dagsprent
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjóri: elías snæland jónsson
Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson
Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6ioo OG 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjaid m. vsk.: t.goo KR. Á mánuði
Lausasöiuverð: 150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
Grænt númer: 800 7080
Netföng auglýsingadeildar: augl@dagur.is-gestur@ff.is-karen@dagur.is
Símar auglýsingadeildar: (REYKJAVÍK)563-i6i5 Ámundi Ámundason
(REYKJAVÍKJ563-1642 Gestur Páll Reyniss.
(AKUREYRI)460-6192 Karen Grétarsdóttir.
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6t6t
Símbréf ritstjórnar: 460 617i(akureyrí) 551 6270 (reykjavík)
Hvað býr að baki?
í fyrsta lagi
Það vekur almenna furðu að ekkert jákvætt skuli gerast í
samningamálum framhaldsskólakennara. Geir H. Haarde,
fjármálaráðherra, sem á að annast viðræður um nýjan kjara-
samning fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, virðist hafa meiri áhuga
á flestu öðru en að beita sér af alefli fyrir lausn þessarar alvar-
legu vinnudeilu sem nú þegar hefur lokað framhaldsskólum
landsins í tvær vikur. Hvorki fjármálaráðherra né mennta-
málaráðherra Sjálfstæðisflokksins sýna nauðsynlegt frum-
kvæði til lausnar á kjaramálum kennara á sama tíma og nem-
endur horfa fram á glataða önn.
í öðru lagi
Það er engu líkara en að ráðherrar fjármála og menntamála
séu reiðbúnir að fórna heilli önn framhaldsskólanema í von
um að með löngu verkfalli verði hægt að kúga kennara til að
láta af kröfum sínum. Nema hér búi að baki enn skuggalegri
pólitísk áform. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylking-
arinnar, lýsir þannig þeirri skoðun sinni í Degi í dag að með
aðgerðaleysi sínu séu sjálfstæðisráðherrarnir að nota verkfall-
ið til að búa í haginn fyrir einkaskóla: „Nú þegar er maður far-
inn að heyra það á málflutningi sjálfstæðismanna að best sé að
leysa það sem þeir kalla „vanda framhaldsskólakerfisins“ til
frambúðar með því að lyfta upp einkaskólum,“ segir Össur.
1 þriðja lagi
Auðvitað eru sjálfstæðismenn vísir til að beita öllum brögðum
til að ýta undir einkaskóla sem yrðu reknir annars vegar fyrir
skattfé almennings og hins vegar fyrir skólagjöld sem einung-
is efnameiri hluti þjóðarinnar hefði tök á að borga. Með því
móti væri farið að mismuna börnum þessa lands eftir efnahag
foreldra. Um leið yrði almenningur látinn greiða verulegan
hluta reikningsins vegna betri menntunar forréttindastéttar.
Slík stefna hefur ekki átt upp á pallborðið hjá Framsóknar-
flokknum sem hlýtur að hafa af því vaxandi áhyggjur hvert
samstarfsflokkurinn í ríkisstjóminni er að fara með framhalds-
skólann.
Elías Snæland Jónsson
Byggöaforstj óri
Garri \ar einn þeirra sem ætl-
aði að sækja um stöðu for-
stjóra Byggðastofnunar, en
svo ólánlega vildi til að hann
glevmdi sér og gætti þess ekki
að senda inn umsókn fyrr en
eftir að umsóknarfresturinn
rann út. Þegar svo nöfn um-
sækjenda voru birt fyrir helg-
ina sá Garri að hans umsókn
hafði ekki verið
tekin gild, trú-
lega vegna þess
hve seint hún
barst. Garri
verður víst að
taka því eins og
hverju öðru
hundsbiti, en
augljóslega
missir þjóðin
þar af hæfasta
umsækjandan-
um til að takast á við vanda-
samt verk.
Margir sóttu
En það er svosem ekki eins og
enginn hafi sótt um. Oðru
nær. Það voru hvorki meira
né minna en 14 manns sem
sóttu um. I sjálfu sér kemur
það ekki á óvart, vegna þess
að þetta er ein af topp stöðun-
um í þjóðfélaginu og gefur vel
í aðra hönd bæði virðingu, há
laun og frábær lífeyrisrétt-
indi. Þess utan er þetta inni-
vinna og álagið ekkert sér-
staklega íþyngjandi, eða ætti
ekki að þurfa að vera það. Að
mörgu leyti er þetta því
draumastaða allra sem á ann-
að borð eru með skriffinnsku-
genið í sér - og þeir eru ótrú-
lega margir.
Frá Sauðárkróki.
Landsbyggö í
meirihluta
Því er það að þegar betur er
að gáð hefði mátt ætla að enn
fleiri hefðu sóst eftir þessari
stöðu en raunin varð á. Það er
erfitt að trúa því að það séu
ekki nema 14 manns í land-
inu sem treysta sér lil að
gegna þessari
fínu stöðu, og
svo auðvitað
Garri sem varð
of seinn. Og
þegar listi um-
sækjenda er
skoðaður nán-
ar kemur
meira að segja
í ljós að það
------ eru ekki nema
þrír umsækj-
endur af höfuðborarsvæðinu
um stöðuna. Allir hinir eru af
landsbyggðinni og kemur það
þægilega á óvart að Ioksins
skuli koma upp staða þar sem
landsbyggðin hefur verulegt
tölulegt forskot á höfuðborg-
arsvæðið í einhverju. Venju-
lega er þessu nefnilega öfugt
farið, að allt sé miklu stærra,
Ilcira og merkilegra í höfuð-
borginni en á landsbyggðinni.
Garri velti því andartak fyrir
sér hvort það gæti verið að
höfuðborgarbúar væru hættir
að hafa áhuga á góðum emb-
ættum á vegum ríkisins, en
þótti það þó ótrúlegt. En svo
rann skýringin á þessari
óvenjulega fámenni höfuð-
borarhúa á umsóknalistanum
upp fý'rir Garra. Byggðastofn-
un á náttúrulega að vera á
Sauðárkróki! Er þetta ekki
byggðavandinn í hnotskurn?
GARRl
V.
■ * v JÓHANNES
’I a" * SIGURJÓNS
, SON
skrifar
Það er útbreiddur misskilningur
að Englar alheimsins hafi sópað
að sér flestum verðlaunum á
Edduhátíðinni s.l. sunnudags-
kvöld og 101 Reykjavík hafi hor-
ið skarðan hlut frá borði. Stað-
reyndin er nefnilega sú að óum-
deildur sigurvegari kvöldsins var
101 Reykjavík.
Það er að vísu rétt að Englarn-
ir munu svífa vængurn þöndum
til Englahorgarinnar og
Hollywood á meðan Friðrik besti
Ieikstjóri flýgur á töfrateppi eða
hórmottu tjl Bollywood og Ingvar
erkiengill og Margrét Helga
stormuðu heim ntcð styttur fyrir
bestan leik og Ingvar að auki mcð
augastað á Felix. Sem sé fráhær
árangur hjá Inglunum og við
fyrstu sýn virðist eftirtekjan hjá
101 Reykjavík vera heldur rýr, en
er það ekki þegar hetur er að gáð.
Ósýnilegir sniilingar
Málið er nefnilega að Eddustytt-
101 Reykjavík vairn allt!
urnar höfnuðu flestar í 101
Reykjavík með einum eða öðrum
hætti. Þannig sat sá er þetta rit-
ar norður á Húsavík á sunnu-
dagskvöldið og horfði á Edduna í
beinni á rás allra
landsmanna og var að
sjá í fyrsta sinn hina
og þessa verðlauna-
hafa sem voru taldir
mestir og bestir í sín-
um greinum í ís-
lensku sjónvarpi.
Þarna kom m.a. á svið
besti sjónvarpsmaður
Islands, Erpur nokk-
ur, með ákaflega frambærilega
og jjjóðlega húfu, scm þó hefur
varla ein og sér dugað honum til
Edduverðlauna. E11 við sem
húum íýrir norðan hníf og gaffal
höfum auðvitaö ekki hugmynd
um hvað þessi besti sjónvarps-
muöur íslands hefur sér til ágæt-
is annað en húfuna, því við höf-
um einfaldlega aldrei séð þenn-
an mann, fyrr en þarna á Eddu-
hátíðinni. En hann ku sjást
prýðilega og vera vinsæll meðal
þeirra sem búa í nafla hins ís-
lenska alheims, í 101 Reykjavík
og er þvf vísast vel að
nafnbótinni kominn.
Onnur verðlaun
sem féllu 101 Reykja-
vík í skaut voru Eddan
fyrir besta sjónvarps-
þáttinn á íslandi. Þau
kontu í hlut Silfur
Egils, sem mun ekki
kennsluþáttur kostað-
ur af stéttarfélagi
gull- og silfursmiða, heldur
feykivinsæll spjallþáttur sem ein-
hver rauðhærður og riðvaxinn
Egill heldur úti með miklum
ágætum að sögn þeirra í' 101
Reykjavík. Þetta virtist vera
svona heldur glaðlegur og geðs-
legur maður, |>egar maður sá
hann f fyrsta sinn á Eddhátíð og
ugglaust er þátturinn tans góður
líka, en um það vitum við auðvit-
að ekkert með vissu hér á norð-
lægum krummaskuðum.
Eddu frestað?
Aðstandendur 101 Reykjavíkur
þurfa sent sé ekki að kvarta eftir
Edduhátíðina miklu þar sem öll
verðlaun höfnuðu á endanum í
Kvosinni eða næsta nágrenni.
Og varla von á öðru þar sem
flestir filmumakarar og sjón-
varpsefnispiltar gera sín helstu
stykki á þessu svæði. Hitt er svo
aftur annað mál hvort ekki er
rétt að fresta næstu Edduhátíð
þangað til síðustu dreithýlis-
skjónarnir eru fluttir suður, þan-
nig að allir landsmenn eigi þess
kost að berja augum besta sjón-
varpsefnið og glæsilegasta sjón-
varpsfólkið og allir Islendingar
geti þá lagt dóm á þessa gargandi
og víða ósýnilegu snilld f 101
Reykjavík.
svairað
Ertu ánægð/ur með út-
hlutun EíldiiveÆíiun-
anna?
Sigmundur Ernir Rúnarsson
ritstj.frétta- og thvgimnálaþj.
StöAvar2.
„Að mörgu leyti
er ég það, en
minni þó á að
endalaust má
deila um hver sé
verðlauna verður.
Þannig þótti mér
til dæmis þáttaröðin Síðasti vals-
inn sem fékk Eddu-verðlaunin í
flokki heimildamynda vera lull-
komlega þess verðug, enda mjög
vel gerðir og fróðlegir þættir.
Englar alheimsins eru mjög gott
framlag okkar Islendinga til Ósk-
arsverðlaunanna, enda ein allra
besta kvikmynd sem gerð hefur
verið á landi á síðustu áratugum."
Ólafur H. Torfason
krikmyndagagnrýnandi.
„Að mörgu leyti
er ég það, en
hefði þó viljað sjá
í fleiri efnisflokk-
um verðlaun, svo
sem fyrir mynda-
tökur, klippingu
og nýstárleg efnistök. Af þessum
sökum þótti mér kvikmyndin ls-
lenski draumurinn falla svolítið
utangarðs. En ég er mjög sáttur
við þá viðurkenningu og verð-
laun sem Englar alheimsins
fengu, enda er myndin góð og ég
gæti vel trúað því að hún ætti
eftir að ná langt þegar í Óskarinn
kemur. Rétt einsog gerðist þegar
Börn náttúrunnar var okkar
framlag.“
Hilmar Karlsson
krikmyndagagnrýnatidi á DV.
„Það var ekkert
óvænt í Eddu-
verðlaununum að
þessu sinni því
fyrirfram mátti
búast við að
Englar alheims-
ins tækju til sín mörg verðlaun.
Þó hafði ég búist við að einhver
verðlaun færu til 101 Reykjavík,
en svo varð ekki. Englarnir hafa
höfðað mjög sterkt til Islendinga
og notið mikillar hylli og að því
leyti er ekki óeðlilegt að hún sé
valin framlag okkar í Óskarinn,
þó aftur á móti telji ég að 101
gæti náð meiri árangri á þeim
vettvangi."
Dóra Takefusa
sjónvarpsmaður á Skjá einum.
„Auðvitað er ég
ánægð með þau
og þá sérstaklega
árangur okkar á
Skjá einum, þar
sem við unnurn
til verðlauna fyrir
hesta sjónvarpsmanninn og
hesta þáttinn. Hvað varðar verð-
launin fyrir bestu kvikmyndina
þá er ég ekki fullkomlega dóm-
hær þar því ég hcf enn ekki séð
101 Reykjavík, en Engla al-
heimsins sá ég strax á frumsýn-
ingardegi og sú mynd hafði mik-
il áhrif á mig. Ég gæti vel trúað
því að sú mynd ætti eftir að ná
langt í Óskarnum, ]>ó ég viti
náttúrlega ekki enn hverjir
keppinautar hennar verða."