Dagur - 21.11.2000, Síða 19
Mýflug er eina lands-
hlutafélagið sem tór-
ir á landinu. Þrjú
hafa hætt undanfarið
og framkvæmda-
stjóri Mýflugs telnr
þetta óæskilega þró-
un.
Leifur Hallgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Mýflugs, segir
það mikil vonbrigði að flugfélag
hans skyldi ekki hafa fengið
sjúkraflugslegginn er snýr að
þjónustu á Vestfjörðum. Sl.
föstudag var tilkynnt hvaða fé-
lög myndu hreppa sjúkraflugs-
hnossið og hafði Leiguflug Is-
leifs Ottesen hetur í viðureign-
inni um Vestfirði. Boð LIO
reyndist tiiluvert undir því verði
sem Mýflug setti upp fyrir
þjónustuna.
„Auðvitað er ekki hægt að
leyna þvf að þetta urðu okkur
mjög mikil vonbrigði en við
höldunt okkar samningi um
Vestfjarðaflugið til áramóta og
það er ekkert við þessu að gera.
Eg vek hins vegar athvgli á því
að nú má segja að búið sé að
skipa málum þannig að öllum
þessum verkefnum er deilt nið-
ur á flugfélög á Reykjavíkur-
svæðinu. Fyrir 10 árum voru til
landshlutafélög líkt og Flugfé-
lag Austurlands, Flugfélag
Norðurlands og Flugfélagið
Ernir en nú er þetta allt saman
húið að vera. Mýflug var kanns-
ki eina landshlutafélagið sem
eftir var í þessum hópi og
kannski halda menn að þessi
þróun sé eðlileg, góð og hag-
kvæm. Eg hef hins vegar verið
þeirrar skoðunar að svo sé
ekki,“ segir Leifur.
Framtíðin á huldu
Hann tekur þó fram að með
þessu sé hann ekki að segja að
Mýflug neyðist til að leggja upp
laupana en staðan sé óljós.
„Það er erfitt að segja til um
Leifur Hallgrímsson: Miki! vonbrigði.
framtíðina en ég tel að markað-
ur sé fyrir starfsemi okkar, það
hljóti alltaf að koma upp þær
aðstæður að flvtja verði níu
manna hóp eða minna á milli
áfangastaða. Við munum skoða
ástandið næsta ár en ef í ljós
kemur að ekki sé markaður fyr-
ir rekstri vélar á heilsársgrund-
velli verðum við að endurskoða
reksturinn.“
Öryggiö eykst
Flugfélag Islands fékk stærsta
pakkann í sjúkrafluginu og
Leifur telur að öryggi íbúa í
hinum fjölmörgu dreifðu
byggðum landsins muni aukast
eftir breytingarnar sem nú eru
hoðaðar. Félagið hefur öflugar
vélar og að sögn Leifs er nieð
útboðinu húið að gera þeim
kleift að standa mjög vel að
þessum málum. Félagið verði
með mannskap á vakt allan sól-
arhringinn en kostnaður ríkis-
ins aukist væntanlega við þess-
ar breytingar.
Bi>
Reykj avíkurfélög
ein í sjúkraflugi
Fiskimað-
uriiui við
Strand-
götu
Umhverfisráð Akureyrar hefur
ákveðið að styttan Litli fiski-
maðurinn, sem lengi stóð fyrir
framan Búnaðarhankann en
þurfti að víkja vegna frarn-
kvæmda á svæðinu, verði sett
niður austan við skemmtiháta-
hryggjuna við Torfunef. Er
þessi staðsetning ákveðin í
framhaldi af tillögu frá Bjarna
Reykjalín, skipulags- og hyg-
ingafulltrúa, Ingólfi Armanns-
svni. menningarfulltrúa og
Hannesi Sigurssyni, forstöðu-
inanni Listasafns Akureyrar.
Styttan Litli fiskimaðurinn er
gjöf frá vinabæ Akureyrar, Ála-
sundi, sem gefin var í tilefni af
aldarafmæIi kaupstaðarréttinda
bæjarins árið 1962.
Á þessari samsettu mynd sést hvernig styttan af Litla fiskimanninum gæti tekið sig út á nýja staðnum austan
skemmtibátahafnarinnar. Rétt er að undirstrika að styttan er ekki komin á staðinn heldur er hér um samsetta
mynd Dags að ræða.
Ákveðið hefur verið að byrja að
rukka ellilífeyrisþega um aðgangs-
eyri að sundlaugunum, gjaldið
verður 120 krónur.
ÍTA nær í
3,5 milljón
Iþrótta og tómstundaráð Akur-
eyrar hyggst ná inn 3,5 milljón
króna viðbótartekjum miðað við
fyrri áætlanir með sérstakri
gjaldtöku. í fyrsta lagi á að taka
fast gjald vegna veisluhalda í
íþróttahöllinni, Gjaldið verður
90.000 kr. fyrir hvert kviild og
300 krónur fyrir hvern gest um-
frarn f\rrstu 300 gestina. Gert er
ráð týrir að þetta skili tekjurn
upp á hálfa milljón króna.
I öðru lagi hefur verið ákveðið
að byrja að rukka ellilífeyrisþega
um aðgangseyri að sundlaugun-
um og skíðamannvirkjum.
Gjaldið verður 120 krónur og er
reiknað með að ellilífeyrisþegar
muni þannig skila inn tekjum
fyrir ÍTA upp á 3 milljónir
króna. Samtök cldriborgara hafa
hrugðist skjótt við og sent inn
mótmæli vegna þessara hækk-
ana.
Gert er ráð fyrir rétt rúmlega 13,7
milljóna hagnaði af rekstri Norður-
orku á næsta ári.
Hagnaður
verði hjá
Norðurorku
Gert er ráð fvrir rétt rúmlega 13,7
milljóna hagnaði af rekstri Norð-
urorku á næsta ári. Þetta kemur
fram í fjárhagsáætlun fvrirtækis-
ins sem samþykkt hefur verið i
bæjarráði og tekin verður til af-
geiðslu í bæjarstjórn í dag, þriðju-
dag. Gert er ráð fýrir tekjum hjá
fyrirtækinu upp á rúmlega 1,7
milljarða en rekstrargjöld eru
áætluð rúmur milljarður. Þá er
gert ráð fyrir að neikvæðar fjár-
magnstekjur geti orðið tæpar 99
milljónir og að hagnaðurinn verði
sem fýrr segir í kringum 13,7
milljónir.
Samkvæmt fjárhagsáætluninni
á að ijárfesta í varanlegum rekstr-
arfjármunum íýrir 128,5 milljón-
ir og einnig á að greiða niður
skuldir um 260 milljónir. Þá er
talið að með því að auka hlutafé í
félögum komi inn um 24 milljón-
ir. Handhært fé í árslok 2001
mun þvi verða rúmar 1 1 milljónir
króna.