Dagur - 16.12.2000, Page 9
32- LAUGARDAGUR 16. DESEMBEli 2000
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 20 0 0 - 33
FRÉTTASKÝRING
FRÉTTIR
tækið verði auglýst til sölu, og
segir hann heimamenn lulla
áhuga á að ná þessu til sín. „Það
þurfa að koma að rekstrinum
menn sem þekkja hann vel, en
við verðum að byrja með litlar
skuldir þannig að í þetta sinn
verði reksturinn til framhuðar, en
ekki rekstur sem hangir bara í eitt
til tvö ár. Starfsfólkið hefur verið
í óvissu allt síðan 1993 er fyrir-
tæki Einars Guðfinnssonar varð
gjaldþrota, og það er algjörlega
ólíðandi fyrir fólkið,“ segir Lárus
Aðspurður um hvort Bolvíking-
ar muni leggja hlutafé til endur-
reisnar rækjuverksmiðjunnar,
standi þeim það til boða segir
Lárus: „Það var gert er Einar
Guðfinnsson varð gjaldþrota
1993. Þá komu Bolvíkingar sam-
an í félagsheimilinu og stofnuöu
útgerðarfélagið Osvör og lögðu
margir fé í það hlutafélag. Það
hlutafélag var síðan selt til Aðal-
björns Jóakimssonar í Hnífsdal
og síðan var það fyrirtæki selt út-
gerðarfyrirtækinu Þorbirni í
Grindavík, og þar með var kvót-
inn horfinn og togararnir farnir
úr plássinu,“ sagði Lárus.
Snör viðbrögð Einars
En það eru líka góðar fréttir seg-
ir Lárus.
„Jákvæðu fréttirnar eru þær að
ég hafði samband við Abyrgöa-
sjóð launa á miðvikudag og fékk
þau svör að fólkið fengi bara dag-
vinnutaxtana borgaða auk fasts
bónuss. Ég var ekki sáttur við það
og sendi suður greinargerð með
útreiknuðum launum eins starfs-
mannsins með bónus, álagi og
næturvinnu. Mismunurinn var
42 þúsund krónur, svo mismun-
urinn var gríðarlegur. Einar Guð-
finnsson þingmaður gekk í málið,
talaði við félagsmálaráðherra,
sem síðan tjáði mér að fólkið
fengi frá Abyrgðasjóði launa
sömu laun og það hefði unnið
fyrir þegar vinnsla stöðvaðist.
Verkalýðsfélagið ætlar síðan að
borga mismun á atvinnuleysis-
bótum og útborguðum launum
þegar þar að kemur verði verk-
smiðjan ekki farin aftur í gang.
Ég vona því að fólkið sé svolítið
vonbetra. Mér er því skylt að
flytja þakkir frá Verkalýðsfélaginu
til Einar Kristins Guðfinnssonar
þingmanns og Páls Péturssonar,
félagsmálaráðherra, fyrir að hafa
komið þessu máli á hreint. Þeirra
afskipti eru góð jólagjöf til fólks-
ins nú svo skömmu fyrir jól,“ seg-
ir Lárus.
Skeyti frá
Vestmannaeyinguin
„Við höfum fengið stuðnings-
kveðjur frá Vestmannaeyingum,
en verkalýðsfélögin þar eru þau
einu sem það hafa gert. Okkur
finnst skrýtið að önnur verkalýðs-
félög og aðrir þingmenn Vest-
fjarða skuli ekki hafa samband.
Það eru margir sárir og jafnvel
reiðir yfir því. Það kann að vera
að þeir hafi talað við bæjarstjór-
ann, en það þarf líka að tala við
fólkið," segir Lárus Benediktsson,
formaður Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Bolungarvíkur.
Vonbrigði frekar en vonleysi
Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri í
Bolungarvík, segir að gjaldþrot
Nasco-Bolungarvík sé endurtekn-
ing á því sem hafi gerst í þrígang
á tiltölulega fáum árum. Vonleys-
ið sé kannski ekki svo mikið, en
vonbrigðin þeim mun meiri. Því
Afar slæmt ástand í
atviimumálum á Bol-
ungarvík veldur
áhyggjum og kvíða á
jólaföstimni. Atvinnu-
leysið er farið að hafa
slæm áhrif á fjárhag
Boluugavíkur sem
breytt hefur tekju-
áætluu sinni.
OIl vinnsla liggur niðri hjá rækju-
verksmiðju Nasco-Bolungarvík
sem lýst var gjaldþrota fyrir sköm-
mu og engar líkur á að þar verði
unnin rækja á næstunni. Lítið
hráefni er fyrirliggjandi óunnið,
en það verður auðvelt að selja það
til annarrar rækjuverksmiðju þar
sem frekar ber á hráefnisskorti en
ofgnótt í rækjuiðnaðinum.
Tryggvi Guðmundsson lögmaður
á ísafirði sem er skiptastjóri
þrotabúsins, segir að næst liggi
fyrir fundur veðhafa þar sem rætt
vcrði um næstu skref. Sá fundur
var í gær. Gerist ekkert á næstu
misserum helur það neikvæð
áhrif á íbúaþróunina, því fyrir-
vinnur flytja burt í atvinnuleit og
síðan fylgir fjölskyldan með síðar
ef ekkert rætist úr í heimabyggð.
„Það hefur ekkert verið rætt
um leigu eða kaup á verksmiðj-
unni en eðlilega eru Bolvíkingar
með væntingar um að allt fari á
besta veg. En það er ekkert í spil-
unum ennþá scm gefur tilefni til
þess, því miður. Afstaða veðhafa
segir til um næstu skref í þessu
máli. Prestur til að lýsa kröfum í
þrotabúið eru tveir mánuðir frá
auglýsingu en auglýsing þess efn-
is mun birtast í Lögbirtingablað-
inu strax á nýju ári,“ segir Tryggvi
Guðmundsson, skiptastjóri.
Veðhafar ráða ferðínni
Lárus Benediktsson, formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags
Bolungarvíkur segir að liðlega 90
manns sé nú á atvinnuleysisskrá í
Bolungarvík, en fý'rír hafi verið
12 manns, eða um 20% allra
vinnufærra manna í Bolungarvík.
„Hljóðið í fólki hér er eðlilega
dauft, en það vill taka þátt í því að
hjól atvinnulífsins fari aftur að
snúast, eigi það þess einhvern
kost. Það hefur verið opið hús
hérna í Verkalýðshúsinu síðan á
mánudag eftir starfsmannafund
og það hefur alltaf verið slæðing-
ur af fólki hér, þó mest hafi verið
fyrsta daginn, eða 50 til 60
manns, „ segir Lárus. Þrátt fyrir
allt var góð stemning í hópnum
að sögn Lárusar og margir höfðu
í frammi gamanmál. „En ég þyk-
ist vita að mörgum hefur ekki ver-
ið eins létt í sinni og þeir vildu
vera láta. Það hefði verið heppi-
legra að halda starfsmannafund-
inn strax á laugardeginum, dag-
inn eftir að fjölmiðlar skýrðu frá
gjaldþrotinu og ég er því sann-
færður um að fólkinu íeið mjög
illa alla þá helgi,“ segir Lárus.
Veðhafar ráða nú ferðinni og
kveðst Lárus reikna með að íyrir-
Afturhvarf til fortíðar
í útgerð
- Hafa stjórnvöld sýnt atvinnumál-
um Vestfirðinga lítinn álmga?
„Stjórnvöld hafa sýnt því áhuga
að leysa vandann, en það hefur
bara ekki lánast vel. Þeir sem
fengu t.d. hvað mest af Vestfjarða-
aðstoðinni notuðu fjármagnið til
að kaupa kvóta, seldu hann síðan
og fluttu fjármagnið burt. Þessar
byggðir urðu til vegna nálægðar
við fengsæl fiskimið og hag-
kvæmara var að stunda útgerð frá
þessum stöðurn á þau mið. Þegar
veiðiheimildirnar eru farnar hafa
menn ekkert gagn af nábýlinu
nema fyrir smábátana. Segja má
að útgerðin á Vestfjörðum, ekki
síst öryggismálin, séu komin 30 ár
aftur í tfmann þegar mcnn eru að
berjast um hörðustu vetrarmán-
uðina á litlum bátum. Það er mik-
il öfugþróun. Nýju og stóru skipi
var fagnað því það tryggöi (iryggi
sjómanna og aukna sókn á miðin.
Það er því kraftaverk að það skuli
ekki hafa orðið stórkostleg slys
síðustu misseri þegar menn eru að
róa á þessum hornum í alls konar
veðrum," segir Sighvatur Björg-
vinsson, þingmaður Vestfirðinga.
Ráðstafanir í atvinnumálum
mistekist
Birna Lárusdóttir, forseti bæjar-
stjórnar ísafjarðarbæjar, segir að
forsendur fjárhagsáætlana sveitar-
félaga hrynji að miklu leyti þegar
stór hópur fólks fer á atvinnuleys-
isskrá. Þannig sé ekki hægt að
ganga út frá útsvarstekjum ein-
staklinga og tekjum og gjöldum
þeirra fyrirtækja sem verði gjald-
þrota, eins og nú hefur átt sér stað
í Bolungarvík.
„Við höfum of oft lent í þessu
hér á lsafirði, og það gerir alla
áætlanagerö mjög ómarkvissa.
Astandið í Bolungarvík hefur
vissulega áhrif hér á Isafirði, t.d.
nú í jólavertíðinni. Bolvíkingar
verða að hugsa sinn gang þegar
þeir skreppa til Isafjarðar í versl-
unarleiðangur þó það sé einnig
töluverð verslun hjá þeim. Það
eru ekki sömu fjárráð og þeir
höfðu gert ráð fyrir til jólaundir-
búnings, og það hefur áhrif á
verslun og þjónustu á lsafirði,
samverkandi áhrif í svona Iitlu
samfélagi.“
- Hafa ráðstafanir í atvinnumál-
um Vestfirðinga mistekist?
„Hvaða ráðstafanir? Undir-
stöðuatvinnuvegirnir eru nánast
að hverfa við Djúp, aðeins eitt
bolfiskxánnsluhús í Hnífsdal, það
er verið að vinna sjávarafla í sus-
hiverksmiðju og einstaklingar
halda uppi rnjög öflugri fram-
leiðslu í smærri vinnslum og
vinna afla af smábátum. Smábáta-
útgerðin er að verða það sem við
byggjum á, verða sérstaða okkar.
Við höfum töluverðar áhyggjur af
því að það virðist eiga að hreyfa
verulega viö þessu, þ.e. kvótasetja
þær tegundir sem enn standa þar
fyrir utan. Þá mun hrikta verulega
í undirstöðum þess sjávarútvegs
sem enn er hér á Vestfjörðum og
forsendum þess að húa hér fækk-
ar,“ segir Birna Lárusdóttir, forseti
bæjarstjórnar ísafjarðar.
neinn aðila upp í erminni sem
getur tryggt áframhald atvinnu-
reksturs þarna í Bolungarvík.
„Ef þú herð þetta skelfilega
ástand í Bolungarvík sem og víðar
á Vestfjörðum sanran við fréttirnar
frá Vestmannaeyjum þar sem ann-
að af tveimur stórum frystihúsum
brennur og fólk missir vinnuna,
þá er ólíku saman að jafna. A ísa-
firði hafa bæði fry'stihúsin hætt
starfsemi, þar af annað í eigu eins
sterkasta útgerðarfyrirtækis á Is-
landi á sínum tíma, Norðurtang-
ans, svo ástandið þar var eins og
bæði Isfélagið og Vinnslustöðin
hefði hætt starfsemi. I Bolungar-
vík var starfrækt stórt holfisk-
frystihús, en ekki Iengur, og hitt
stóra sjávarútvegsfyrirtækið á
staðnum er orðiö gjaldþrota. Þetta
kemur á mjög slæmum tíma því
andinn í Bolungarvík var orðinn
mjög góður og ég fann það á fólk-
inu að það hafði aftur orðið trú á
framtíðinni og að erfiðleikarnir
væru loks að baki. Þegar syrta tók
í álinn í atvinnulífinu á Vestfjörð-
um fóru sveitarfélögin út á þá
braut að veita fyrirtækjum ábyrgð-
ir til þess að þau gætu lifað áfram,
en síðan féllu margar þessar
ábyrgðir á sveitarfélögin. Oll
stærstu atvinnufyrirtækin hafa
lagt niður rekstur, skipin eru horf-
in og síðan hætist brottflutningur
fólks við.“
- Er þetta ekki orðinn vítahring-
ur? Það dregur úr tekjum sveitarfé-
laganna vegna minnkandi útsvars-
tekna, þjónustustigið minnkar og
þá eykst fólksflóttinn?
„Jú, þetta er svona vítahringur.
Það sem hefur komið þessum
byggðum til bjargar er að smá-
bátaútgerðin hefur eflsl og komið
Þetta gjaldþrot veldur því að
bæjaryfirvöld í Bolungarvík hafa
endurskoðað fjárhagsáætlun hæj-
arins og hafa útsvarstekjur verið
lækkaðar um 13 milljónir króna,
niður í 160 milljónir króna. Ég vil
hins vegar gleðjast yfir þeim
skilningi sem ég verð var við hjá
Sparisjóði Bolungarvíkur og
Byggðastofnun um að menn snúi
saman bökum. Það ríkti bjartsýni
í upphafi ársins þegar bæði
Burðarás og Skagstrendingur
keypu sig inn í Nasco-Bolungar-
vík, og mér finnst t.d. undarlega
seint hafa verið gripiö í taumana
hjá Burðarási, sem hefur á sínum
snærum marga fjárgæslumenn og
er fyrirtæki sein er að setja fjár-
magn í fyrirtæki sem það vill hafa
arð af. Það hefði komið sér af-
skaplega vel fyrir okkur ef fyrir-
tækið hefði verið gert gjaldþrota
fyrr, t.d. í sumar og haust, og
kannski hefði verið hægt að kom-
ast hjá gjaldþrotinu og grípa til
róttækra björgunaraðgerða. Ná-
Halldór Halldórsson: Það er ekki
verjandi að á síðustu 7 árum hafa
verið notaöar 8 kennitölur I rekstr-
inum.
lægð jólanna gerir ástandið líka
dapurlegra," segir Ólat’ur Krist-
jánsson, bæjarstjóri í Bolungar-
vík.
Versnandi ástand
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
á Isafirði, segir að áhrif gjald-
þrotsins hafi áhrif á Isafirði þar
sem um samtengt atvinnu- og
þjónustusvæði sé að ræða. Það sé
einnig ekki verjandi lengur að á
síðustu 7 árum hafi verið notaðar
8 kennitölur í rekstrinum, sem
segir meira um stöðugleikann en
mörg ár. Astandið hafi farið
versnandi frá árinu 1980 þegar
kvótakerfið hafi verið tekið upp,
en það hafi komið verst niður á
Vestfirðingum.
Hann segist raunar svolítið
hissa á því að forsætisráðherra
skuli ætla að heimsækja Vest-
mannaeyjar en ekki Bolungarvík,
áhrifin séu hlutfallslega miklu
vægari í Vestmannaeyjum en í
Bolungarvík. 100 manns hafi t.d.
Sighvatur Björgvinsson: Þingmenn
hafa ekki neinn aðita upp í erminni
sem getur tryggt áframhald at-
vinnureksturs í Bolungarvik.
misst atvinnuna þegar Básafell
hætti, og þá hafi enginn forsætis-
ráðherra birst á Isafirði. Störfum
ó Isafirði hafi fækkað um nær 300
á síðustu þremur árum og endur-
skoða þyrfti tjárhagsáætlun næsta
árs, en t.d. séu útsvarstekjur árs-
ins nær 20 milljónum króna lægri
en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætl-
un fyrir árið 2000.
Bæjarstjóri segir að því megi
hins vegar ekki gleyma að margt
jákvætt sé einnig að eiga sér stað á
Vestfjörðum, s.s. uppbygging í
tölvugeiranum og fý'rírtæki á Isa-
firði eins og 3X-StáI og Póls-raf-
eindatækni séu að gera það mjög
gott og 6000 manna samfélag við
norðanverða Vestfirði eigi mikla
möguleika. I Ijósi þess séu Vest-
firðingar kannski að velta sér of
mikið upp úr eymdinni.
Ástandið orðið vítáhrlngur
Sighvatur Björgvinsson, þingmað-
ur Samfylkingarinnar á Vestfjörð-
um, segir þingmenn ekki hafa
Birna Lárusdóttir: forsendur fjár-
hagsáætiana sveitarféiaga hrynja
þegar stór hópur fólks fer á at-
vinnuleysisskrá.
fylgi ákveðið öryggisleysi og því sé
fullur áhugi á því að flýta gjörð
gjaldþrotsins eins og hægt er. Ef
fólk veit að fyritækið gæti farið af
stað eftir t.d. tvo mánuði vekur
það vonir um að það sé ekki
svartnætti í framtíðinni. Nýir eig-
endur átti sig þá hugsanlega á því
við hvað sé að eiga þegar kemur
að væntanlegum kaupum og
koma íyrirtækinu af stað. Gjald-
þrotið kunni hins vegar að gera
verksmiðjuna að rekstrarhæfari
einingu, þvi' Ijarmagn þurfi að
vera til staðar til að komast af
stað.
„Við vitum hins vegar að hrá-
efnisöflun í rækju er ákaflega erf-
ið frá miðjum desember fram í
febrúar. Æskilegast væri að það
væru heimamenn sem hæfu
reksturinn að nýju, því við erum
orðin þreytt á því að aðkomu-
menn stökkvi frá borði þegar illa
hefur gengið og sumir jafnvel far-
ið með kvóta með sér,“ segir Ólaf-
Úlafur Kristjánsson: Gjaidþrot
Nasco-Bolungarvík er endurtekning
á því sem hefur gerst í þrígang á
tiltölulega fáum árum.
GEIRA.
GUÐSTEINS-
SON
SKRIFAR
Atvtnnuhrestur á Vestíj örd um
að nokkru leyti í staðinn fyrir
stóru vertíðarbátana og togarana,
sem eru horfnir þar sem trillubát-
arnir fyrir vestan hafa aukið afla
sinn sjöfalt og getað tryggt hráefni
til vinnslu. Ef sú breyting, sem
búið er að lögfesta, gengur í gegn,
þá fer smábátaútgerðin líka.“
Frá fyrsta samlestri félaga í Leikfélagi Akureyrar á Sniglaveislunni í Sam-
komuhúsinu í gær.
Fyrsta leikna
Sniglaveislan
Fyrsti samlestur Leikfélags Ak-
ureyrar á Sniglaveislunni eftir
Ólaf Jóhann Ólafsson fór fram f
gær. Um ræðir nýja leikgerð sem
unnin er eftir þessari vinsælu
skáldsögu Ólafs Jóhanns, sem
kom út árið 1994 og vakti rnikla
og verðskuldaða athygli.
Verkið fjallar um örlagaríkt
kvöld í lífi Gils Thordarsens
stórkaupmanns. Gils er þekktur
athafnamaður og stórbokki.
Hann er ekkjumaður og býr einn
í glæsilegu húsi. Arsfjórðungs-
lega heldur hann mikla átveislu
l’yrir sjálfan sig og sparar þá
hvergi veisluföng. Þegar sagan
hefst stendur slík veisla fy rir dyr-
um og ber þá óvæntan gest að
garði. Gils býður honum inn,
grunlaus um erindi gestsins.
Fljótlega kemur í ljós að gestur-
inn er ekki allur þar sem hann er
séður, spennan hleðst upp, átök
vaxa og uppgjör er óumflýjan-
legt.
Gunnar Evjólfsson leikur Gils
Thordarsen, í öðrum hlutverk-
um eru: Sigurþór Albert Heimis-
son, Sunna Borg og Hrefna
Hallgrímsdóttir.
Leikstjóri er Sigurður Sigur-
jónsson, leikmvnd og búninga
gerir Elín Edda Arnadóttir, lýs-
ingu hannar Halldór Örn Ósk-
arsson og hljóðmynd Hilmar
Örn Hilmarsson.
Sýningin er samvinnuverkefni
\áð Leikfélag Islands. Frumsýn-
ing verður í Samkomuhúsinu á
Akureyri þann 26. janúar næst-
komandi og verður sýningar-
fjöldi takmarkaður. Frá og með
miðjum marzmánuði flyst sýn-
ingin til Reykjavíkur og verður
sýnd í Iðnó. — bþ
Þjórsárbnx, raílími-
vegir og Reykjavík
Vegaframkvæmdum
fyrir 800 milljómr
frestað á næsta ári.
Lendir að mestu á
Hiöfuðborgarsvæðinu.
Gísli S. Einarssonar alþingis-
maður sagði á Alþingi í vikunni
að í sumar hefði komið fram að
frestun vegaframkvæmda á
næsta ári myndi aðallega lenda á
höfuðborgarsvæðinu. Þá sagði
samgönguráðherra að ekkert
lægi fyrir um málið. Við 1. um-
ræðu fjárlaga í haust hefði sam-
gönguráðherra sagt að við 2.
umræðu myndi það liggja fyrir
hvaða vcgaframkvæmdum yrði
frestað á næsta ári.
Nú væri húið að afgreiða fjár-
lög og enn hefðu engin gögn
borist um hverju á að fresta.
Þess vegna spurði Gísli hvaða
framkvæmdum ætti að fresta
fyrir upphæð sem næmi 800
milljónum og hvort það væri rétt
sem heyrist nú að hún lendi
næstum öll á höfuðborginni.
Skortur á imdirbúniagi
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra sagði rétt að fresta
framkvæmdum upp á 800 millj-
ónir frá því sem vegaáætlun ger-
ir ráð fyrir. Hann sagðist gera
ráð fyrir að um yrði að ræða
framkvæmdir við svokallaða
orku- og iðjuvegi, Þjórsárbrú og
síðan framkvæmdir á höfuð-
borgarsvæðinu.
Hann sagðist myndi leggja
fram breytingartillögur við vega-
áætlunina þegar hún kemur til
kasta þingsins.
Sturla sagði alveg ljóst, varð-
andi framkvæmdir á höfuðborg-
arsvæðinu, að þær væru ekld all-
ar jafnvel undirbúnar. Það hafi
líka verið að koma í ljós síðustu
vikurnar að kostnaður hefur
aukist verulega við framkvæmdir
eins og færslu Hringbrautar,
mislæg gatnaniót við Reykjanes-
braut og Breiðholtsbraut. Síðan
væru Víkur- og Vesturlandsvegar
gatnamótin f skoðun núna vegna
breytinga á aðalskipulagi.
Allt þetta leiðir til þess að
framkvæmdum mun seinka. Þær
fara seinna af stað á næsta ári en
við höfðum gert ráð fyrir," sagði
Sturla.
Gísli S. Einarsson sagðist hafa
um ]rað öruggar upplýsingar frá
Reykjavíkurborg að ekkert skorti
upp á undirbúning vegafram-
kvæmda í höfuðborginni, eins og
borgarstjóri hefur margtekið
fram. - S.DÓR