Dagur - 17.03.2001, Qupperneq 3
LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 -UL
ISLENDINGA ÞÆTTIR
Ólöf Einarsdóttir ássamt vinkonu sinni. Ólöf er til hægri.
Einar Sigurðsson og Helga ívarsdóttir með ívar Axel.
Framhald afforsíðu
I risi eru tvö íbúðarherbergi og
framloft sem allt er þiljað og mál-
að. Kjallari er undir hluta húss-
ins. Húsið var lengi rautt að utan
með hvítum gluggakörmum og
dökku skífuþaki. Arið 1949 er
búið að múrhúða húsið að utan
og setja vatnssalerni í risið. Ein-
hvern tíma á ferlinum var hyggð-
ur lítill kvistur á vesturhlið húss-
ins. Inngönguskúr er við húsið
sem ekki er getið um í byggingar-
Ieyfinu og má af því telja að hann
hafi verið byggður síðar.
Olöf Bjarnadóttir, ekkja Ivars
seldi Dietlev Thomsen húsið
með tilheyrandi lóð árið 1903. I
október ári síðar kaupir Einar
Sigurðsson eiginmaður Helgu
ívarsdóttur, tengdasonur Ólafar
Bjarnadóttur, ívarssel. 1 B -
skjölum kemur fram að Einar
samþykkir að leigja Alliance
norðurhluta túnsins sem var í
eigu ívarssels eða leigu, að stígn-
um sem lá að sjó í framhaldi af
Vesturgötu. Skilyrtur leigutími
var í fimmtán ár. Að honum liðn-
um var leigutaki skyldugur að
fjarlægja bænum að kostnaðar-
lausu öll mannvirki ef þess væri
óskað. Bærinn hafði rétt til grjót-
töku í landinu, að leggja vegi og
brautir yfir það og byggja þar
mannvirki ef bærinn þarfnaðist.
Þarna gætir nokkurs misræmis
um eignarrétt á landi lvarssels. I
B- skjölum er ekki annað hægt að
skilja en Einar Sigurðsson leigi
Alliance hluta lands ívarssels en
einnig eins og að framan greinir
að bærinn hafi rctt til að gera
eiginlega hvað sem er við landið.
Síðan það að Ólöf Bjarnadóttir
fái helming leigunnar sem Alli-
ance greiði fyrir aðstöðuna á
landi Ivarssels. Ekki er getið um
hvort Einár Sigurðsson eða básr-
inn fái hinn helming Iéigunnar.
Samkvæmt manritali frá árinu
1906 eiga heima í lvarsseli Einar
Sigurðsson húsráðandi , fæddur
3. september 1877 í Pálsbæ á
Seltjarnarnesi, Helga ívarsdóttir
kona hans, fædd 6. júlí 1877 í
Ivrsseli, ásarnt hörnum sínum,
Ivari Axel, fæddutn 1 I. nóvember
1901, Kjartani, fæddum 19. júlí-
1904 og Sigrfði , fæddri I 6. jan-
úar 1906. Einnig voru á heimil-
inu Bagidiildur Benediktsdóttir
vinnukonm' fædd 1887 og Guð-
rún Kctilsdótfir, fæðingarár ekki
vitað. i.
ívar Axel Einarsson átti heima í Ivarsseli alla ævi. Hann var maður listfengur, spilaði á hljóð-
færi og málaöi. „Gamlir dagar", sýning á verkum hans var íHlaðvarpanum árið 1991. Á
myndinni er ívar Axel til hægri en ekki er vitað hver hinn maðurinn er á myndinni.
Einar Sigurðs-
son var sjómaður,
hann var lengi á
skútunni „Guð-
rúnu Soffíu", en
þegar hann var í
landi stundaði
hann verka-
mannastörf.
Við manntal frá
1915 eru börn
hjónanna í ívars-
seli orðin sex og
hafa þá bæst við
hópinn: Ólöf,
fædd 1907, Sig-
urður, fæddur
1913 og óskírt
sveinbarn, fætt
1915. Ennfremur
eru þá á heimilinu
Sigríður Jónsdótt-
ir námsmær, fædd
18.ágúst 1877 að
Draugshlíðardal á
Rangárvöllum og
Herdfs Dagsdótti
lausakona, fædd
15. febrúar 1843
að Skógum á
Fellsströnd. Eina
dóttur eignuðust
þau Einar og
Helga árið 1916,
Aslaugu að nafni.
Frameftir árum voru stakk-
stæði og kálgarðar á landi Ivars-
sels. Húsmæðurnar þar unnu við
garðræktina og einnig við fisk-
verkun. Grjótgarðar voru í kring-
um túnið f ívarsseli sem Ivar
Jónatansson hlóð. Einnig voru
grjótgarðar í kringum túnkragana
á nærlíggjandi tómthúsbýlum.
Lengi vel voru engin hús austan
við ívarssel, bara stakkstæði Alli-
ance. Að norðan var Hannesar-
bær, Ananaust, Bakld og Haug-
hús. Grjótgarðarnir f Ivarsseli og
nærliggjandi grjótgarðar voru
seldir undir stakkstæði fyrir Alli-
ance. Alliance byggði húsnæði
fyrir starfsmenn sína, Selsbrekk-
urnar, langa og lágreista húsa-
lengju sem byggð var á landinu
þar sem húsbændur í Ivarsseli
höfðu kálgarða sína. Ivarssel
hefur verið í eigu sömu ættarinar
frá byggingu þess. Ivar Axel, elsti
sonur Einars og Helgu, átti
heima í Ivarsseli alla tíð en hann
Iést árið 1985. Einnig Aslaug,
yngsta dóttirin. Núna býr í hús-
inu Kjartan Ingimundarson
ásamt fjölskyldu sinni og er
Kjartan fimmti ættliðurinn í
Ivarsseli.
Heimildir ent frcí Árbæjarsafni
og Borgarskjalasafni.
Vesturgata 66B.