Dagur - Tíminn Akureyri - 04.04.1997, Page 1

Dagur - Tíminn Akureyri - 04.04.1997, Page 1
Verið viðbúin vinningi! ^Dagur-^Iímtmi LIFIÐ I LANDINU FÖStudagur 4. apríl 1997 - 80. og 81. árgangur - 62. tölublað Verið m viðbúin vinmngi! /fiTT) Blcið essa dagana er ég að hnýta flugur fyrir sumar- ið. Ég er sérlega ánægður með fluguna sem ég hnýtti í 20 eintökum í gærkvöld. Ég held að hún verði algjör sprengja í sumar. Ég veit að þeir bíða í röðum eftir að fá að taka hana,“ segir Þorsteinn G. Gunn- arsson, útvarpsmaður frá Akur- eyri og framkvæmdastjóri sam- takanna íþróttir fyrir alla. Allir vita að Þorsteinn er úti- vistarmaður mikill, útilegu- garpur og skokkari en færri vita að hann er ástríðufullur veiðimaður og flinkur að hnýta flugur. Þorsteinn hefur stundað stang- veiði í rúm tutt- ugu ár og hnýtt flugur í frítíma sínum síðustu tíu ár. Hann er í tveimur „saumaklúbbum“, eins og hann kallar það, þar sem félagarnir hittast reglulega yfir veturinn og hnýta saman. Þorsteinn not- ar svo allan lausan tíma til að sitja við eldhúsborðið heima og hnýta flugur. „Ég held að það séu 21 ár síðan ég veiddi minn fyrsta fisk á flugu í Vörðuflóanum í Laxá í Mývatnssveit. Eftir það var ekki aftur snúið,“ riíjar Þorsteinn upp þar sem hann situr á skrif- stofu íþrótta fyrir afla og skipu- leggur sumarstarf samtakanna. Hann er þegar farinn að skipuleggja veiðiferðirnar í sumar en slær á létta strengi og segist vera smeykur við að svara spurning- um um þær því að hann eigi eftir að leggja planið fyrir konuna sína. „Ég fer í Grenlæk að vanda, líkast til oftar en einu sinni. Ég fer norður í Laxá í Mývatnssveit og hugsanlega í Laxárdalinn líka. Ég ætla að veiða í Fljótá og víðar þar sem ég finn bleytu,“ svarar hann. -En skyldi Þorsteinn vera fengsæll veiðimaður? „Það skiptir ekki máli vegna þess að þegár maður er búinn að veiða í einhvern tíma og hef- ur náð að gera stangveiði með flugu að lífsstíl þá skiptir það ekki máli hvað maður veiðir marga fiska. Stundum getur einn flskur yflr daginn gefið manni jafnmik- ið og tuttugu. Það er oft skemmtilegra að veiða þegar maður fær minna og þarf að hafa fyrir því en þegar hann sýnir við- brögð við hverju kasti." Þorsteinn kveðst hafa „veitt yflr sig“ fyrir allnokkrum árum. Þá hafi hann farið í veiðiferð þar sem hafi verið „landburður af fiski“ og „nánast þurft jeppakerru til að koma aflanum í burtu,“ útskýr- ir hann. Tilfinningin hafi verið ofsalega skrýtin þegar hann hafi horft á allan þennan afla og hugsað með sér „Hvað var ég að gera? Á ég eftir að borða þetta allt saman?“ Þetta hafi vakið margar grundvallar- spurningar um eðli stangveið- innar og siðferði veiðimannsins. Magnskyn hafi gjörbreyst. Þorsteinn er einna kunnast- ur fyrir störf sín á Rás 2 en í fyrra söðlaði hann um, gerð- ist fram- kvæmdastjóri íþrótta fyrir alla auk þess sem heyrst hefur í honum í Útvarpi Umferðarráðs. Hjá fþróttum fyrir alla er nóg að gera. Nýlega Þorsteinn G. Gunnarsson, útvarpsmaðurinn kunni frá Akureyri, hnýtir flugur heima hjá sér á kvöldin og undirbýr þannig veiðiskapinn í sumar. Hann telur að fiskarnir bíði í röðum eftir því að taka hana þessa. Mynd: Hilmar kynntu þau heilsuátakið Grænn lífseðill, sem unnið er í sam- vinnu við heilbrigðisráðuneytið og ÍSÍ. Þetta er átak sem hvetur fólk til aukinnar hreyfingar og hollara mataræðis. í ár eiga samtökin fimm ára afmæli og er ýmislegt skemmti- legt í bígerð. Únnið er að því að koma á laggirnar íjallaflakki í sumar þar sem fólk verður hvatt til að ganga á fjöll og safna stimplum og fá viður- kenningu fyrir að komast á fimm af tíu tindum. Þá verður skipulagður hjóladagur á nokkrum stöðum og íjölmargar skemmtilegar uppákomur verða í sundlaugunum. Rík áhersla er lögð á íjölskylduna á þessum ærsladögum. Sjálfur fer framkvæmdastjór- inn eftir því sem hann predikar. Hann stundar stangveiðina á sumrin, hjólreiðar, göngur og skokkar af miklu kappi sam- hliða veiðiskapnum. Þorsteinn fer í sér útivistarferðir með Qöl- skyldunni og svo hefur sauma- klúbburinn víkkað út starfsemi sína. Stofnaður hefur verið matarklúbbur þar sem hópur- inn hittist reglulega, eldar og borðar saman. „Við höfum líka farið veiðifé- lagarnir í gönguferðir með fjöl- skyldurnar og gist í tjaldi. Það er rosalega gaman. Við erum búnir að skipuleggja mjög spennandi túr, útivistar- og veiðiferð á Qöl- skyldugrund- velli,“ segir Þorsteinn og bætir við að hann telji gríð- arlega mikilvægt fyrir hvern og einn að ná að upplifa náttúr- una, skilja það að náttúran sé annað og meira en mynd sem gluggakarmarnir ramma inn fyrir mann. „Það er merkilegt að vera með góðum vinum eða aleinn úti í náttúrunni og skynja að maður er örlítill hluti af stórri heild. Það er mikilvægt að gefa sér tíma til að upplifa þessa hluti með fjölskyldu sinni og börnunum sínum. Það er fyrst og fremst það sem ég legg áherslu á. Það er alltof mikið um það að for- eldrar og börn kunni ekki að vera saman og horfi bara á vídeó eða fari í bíó þegar fjöl- skyldan er saman. Það er alltof algengt og í raun mjög sorglegt," segir hann. -GHS

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.