Dagur - Tíminn Akureyri - 04.04.1997, Side 6

Dagur - Tíminn Akureyri - 04.04.1997, Side 6
18 - Föstudagur 4. apríl 1997 Jtagur-®mtmn Miaið í saltcm si'ó Kötturiim sagði „ekki ég“ Jonni á Uppsölum skrifar af miðunum að er ljótt að vera fullur á hestbaki. Það ber öllu sið- uðu fólki saman um. Það er líklega þess vegna sem það ÞJÓÐLEIKHÚSID Stóra sviðið kl. 20.00 ÞREK OG TÁR eftir Ólaf Hauk Símonarson Aukasýning Föstud. 11. apríl. kl. 20.30. 90 sýning, allra síðasta sinn KÖTTUR Á HEITU BLIKKÞAKI eftir Tennessee Wiliams 5. sýn. í kvöld föstud. 4. apríl. Uppselt. 6. sýn. sunnud. 6. apríl Uppselt. 7. sýn. fimmtud. 10. apríl Uppselt. 8. sýn. sunnud. 13. apríl Uppselt. 9. sýn. miðvikud. 16. apríl Nokkur sæti laus. 10. sýn. fimmtud. 24. apríl Nokkur sæti laus. VILLIÖNDIN eftir Henrik Ibsen Á morgun 5. apríl. Örfá sæti laus. Laugard. 12. apríl. Sunnud. 20. apríl. LITLI KLÁUS OG STÓRI KLÁUS eftir H.C. Andersen Sunnud. 6. apríl kl. 14.00. Sunnud. 13. apríl kl. 14.00 Sunnud. 20. apríl kl. 14.00 Smíðaverkstæðið kl. 20.30 LEITT HÚN SKYLDI VERA SKÆKJA eftir John Ford Laugard. 5. apríl kl. 15.00 Laugard. 12. apríl kl. 20.30 Uppselt. Sunnud. 20. apríl kl. 20.30 Uppselt. föstud. 25. apríl kl. 20.30 Aukasýning laugard. 19. apríl kl. 15.00 Athygll or vakin á afl sýningln er ekki viö hæfi barna. Ekki er hægt að hleypa gestum inn . / sallnn eftir að sýning hefst. Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 13-18, frá miðviku- degi til sunnudags kl. 13-20 og til 20.30 þegar sýningar eru á þeim tíma. Einnig er tekið á móti síma- pöntunum frá kl. 10 virka daga. er svona skemmtilegt. Það trúir því heldur enginn sem hefur ekki reynt það, hvað er hægt að syngja fallega þegar maður er aðeins mjúkur, á hestbaki. Það eru hreinlega forréttindi að uppiifa sig syngja svona fallega, að maður fái kökk í hálsinn og harmi það eitt, að það skuli ekki vera fleiri sem njóta þess. Og á svoleiðis stundum, þegar hestarnir fara bara fetið og knaparnir hallast hver að öðr- um til að röddunin klúðrist ekki, getur meira að segja hent sig, að togarasjómaðurinn verði svo hamingjusamur að hann gieymi því að hann hefur aldrei getað sungið. En þetta má auð- vitað ekki tala um, af því að það er reglulega ljótt að vera fullur á hestbaki. Alveg sama þó það gerist ekki nema svona annað hvert ár. Það er heldur ekki alveg eðlilegt að leyfa börnunum sín- um að horfa á Tomma og Jenna. Um það geta allir hugs- andi menn verið hjartanlega sammála. Þess vegna er það sem ég fæ stundum samviskubit þegar ég kalla ádætur mínar og segi þeim að Tommi og Jenni séu að byrja. Ég veit nefnilega að það eru ekki merkilegir for- eldrar sem gera svoleiðis. Það er líka Ijótt að drepa sum dýr. Það er allt siðað fólk sammála um. Það þykir skelfi- legt að drepa tófur og ísbirni, slæmt að drepa lóur og spóa en hinsvegar er mjög fínt að drepa lax. Rjúpur og gæsir er meira en velkomið að drepa og þykir gott mál, nema hjá mjög við- kvæmu fólki. Og eins og svo oft áður, er ég svo óheppinn, að Freyvangs- leikhúsið Sýnum firna fyndinn gamanleik: „Meb vífib í lúkunum" eftir Ray Cooney Leikstjóri: Hákon Waage 18. sýning föstud. 4. apríl kl. 20.30 19. sýning laugard. 5. apríl kl. 20.30 Ncestsíðasta sýningarhelgi. Mibapantanir í síma 463 1195 millikl. 18og20. Á öbrum tímum er hægt ab panta í gegnum símsvara. vera þannig innrættur, að það að reyna að drepa tófur var það skemmtilegasta sem ég gat hugsað mér, meðan ég gat enn borði mig um með byssu. Og ég reyni töluvert oft að drepa sil- ung þó svo að mér takist það ekki nema mjög sjaldan. Nú gæti vel verið, að það hatl haft slæm áhrif á mig, að þeim sem kenndu mér að fara með byss- una og stöngina, fannst þetta ekkert leiðinlegt sjálfum og annað hitt að ég átti það til að reiðast illilega þegar tófan hafði drepið lamb sem hann pabbi minn hafði ætlað sér að drepa sjálfur seinna um haustið. En hvað um það, ég ætti sennilega að skammast mín fyrir adrena- línkikkið sem ég fékk þegar re- furinn var að komast í skotfæri og þegar silungurinn nartaði. Ég er líka voðalega feginn yflr því að hafa aldrei drepið ís- björn. Ég veit nefnilega ekki hvort er hægt að lifa með því að hafa drepið ísbjörn. En það er auðvitað ekki skynsamlegt að viðurkenna upp á sig, veiðieðli, af því að öllu siðuðu fólki kem- ur saman um að það sé óeðli. Og nú svitna ég pínulítið af því að ég er að komast að al- vöru málsins. Ég veit ekki hvað ég er búinn að drepa marga þorska, ufsa og karfa, um æv- ina. Þeir eru sennilega of marg- ir ef þeir taka allir á móti mér á æðsta degi. Það að hafa atvinnusína af því að drepa þessa flska og hvernig það er gert, er sem bet- ur fer enn ekki mikið í umræð- unni hjá siðuðu íólki. En Guð hjálpi okkur sjómönnum þegar siðaða fólkið uppgötvar að allur fiskur sem er veiddur á ísland- smiðum er skorinn á háls og drepinn á hinn hryllilegasta hátt. Að vísu fylgir því sáralítið Leikfélag MA sýnir „Sjö stelpur" eftir Erik Torstenson. Leikstjórn: Guðbjörg Thoroddsen. Frumsýning laugard. 5. apríl. 2. sýning mánud. 7. apríl. 3. sýning þriðjud. 8. apríl. 4. sýning miðvikud. 9. apríl. 5. sýning föstud. 11. apríl. 6. sýning laugard. 12. apríl. Allar sýningar hefjast kl. 20.30. Miðasala í Samkomuhúsinu. Miðaverð kr. 500,- - ódýrara en í bíó - Ekki ég. adrenalínkikk, en Mammon hefur útbúið okkur sjómenn þannig að það gleður okkur því meira sem fiskarnir eru fleiri sem drepnir eru. Þó svo að dauðinn sem slíkur gleðji okkur ekki sérstaklega. En svona vangaveltur skipta fiskinn auð- vitað engu máli. Hans ógæfa er söm eftir sem áður. Að lokum þetta. Það hefur reyndar ekkert með veiðieðli eða drápslöngun að gera. Það Haukur Ágústsson skrifar Sigurður Skagfjörð Stein- grímsson, baritónsöngvari, efndi til tónleika í Miðgarði í Varmahlíð í Skagafirði fimmtudaginn 20. mars. Undir- leikari hans á píanó var Bjarni Þór Jónatansson. Sigurður hefur verið í söng- námi undanfarin ár og hefur lokið námsferli sínum hér á landi. Hann hyggur á fram- haldsnám í Evrópu á komandi vetri. Tónleikarnir í Miðgarði voru fyrstu einsöngstónleikar hans og er það mjög við hæfi, að hann skyldi efna til þeirra í Skagafirði, en þangað á hann ættir að rekja. Rödd Sigurðar er veruleg, virðist liggja vel og hefur falleg- an hljóm. Hún nær góðum styrk og áferð á miðsviði en á það til að verða nokkuð hljómlítil á hæstu og lægstu tónum. Á þeim má ekki drepa mann. í því er ég meira að segja næstum sam- mála siðmenntaða fólkinu. En ég get samt ekki hlaupist frá þeim hugsunum að það eru til mannskrímsli sem ég vil að séu skotin í hausinn þegar þau verða uppvís að því að svívirða sakleysi lítilla barna. Og ég vil ekki heyra neitt helvítis mann- úðarkjaftæði handa svoleiðis fólki. Punktur og basta. lægstu verður hún einnig dálítið þróttlaus, svo sem kom fram t.d. f laginu 01’ Man River eftir Jerome Kern, þar sem ekki náðist sú fylling sem skyldi. Sigurður Skagfjörð virðist hafa best vald á rödd sinni í all- þróttmiklum söng. Þetta kom vel fram í til dæmis Die Ehre Gottes aus der Natur, Sverri konungi eftir Sveinbjörn Svein- björnsson við ljóð Hannesar Hafsteins og Tho Vagabond, þar sem náðust góð hrif. í hinu hlýja lagi My Curly-Headed Ba- by náði Sigurður SkagQörð innileika og ró, en í laginu Ég lít í anda liðna tíð eftir Sigvalda Kaldalóns við ljóð Höllu Eyjólfs- dóttur gætti nokkurs óróa í röddinni. Fyrir kom, að röddin væri nokkuð ójöfn og á stund- um sem næst þvinguð, svo sem í aríu Escamilos úr óperunni Carmen eftir Biszet og í í ijar- lægð eftir Karl O. Runólfsson við ljóð Valdimars H. Hallstaðs. Það er tilhlökkunarefni, verði þess aftur kostur að heyra Sigurð Skagfjörð á tónleikum, að mega þá nema þá framför, sem hann ugglaust mun taka. Einsöngstónleikar í Miðgarði

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.