Dagur - Tíminn Akureyri - 04.04.1997, Síða 9

Dagur - Tíminn Akureyri - 04.04.1997, Síða 9
Jbigur-®íntmn Föstudagur 4. apríl 1997 - 21 JOagur-CLttittttn Lífog^þcV mælir með... ...mælir ekki með myndinni Evíta sem sýnd er í Laugarás- bíói. Vissulega er tón- listin skemmtileg en hana er hægt að hlusta á af geisladiski og njóta prýðilega. Tilþrif stórstjarnanna í Evítu hvað leik varð- ar eru af skornum skammti og því engin ástæða til að sitja yfir myndinni í tæpa þrjá klukkutíma. ...Völundarhúsi Sigga Páls í Borgar- leikhúsinu fyrir 6 ára pjakka. Einn slíkur gaf (óumbeðinn) leik- ritinu hvorki meira né minna en ***** og mælir eindregið með sýningunni (og líklega ekki síður sýningar- tímanum þar sem háttatíminn dróst úr hömlu). Einkum hreifst hann af reykn- um sem fyllti sviðs- rýmið og hve tilkomu- mikil steypan var þegar hún hrundi úr loftinu. (Fullorðinn fylgdarmaður var eitthvað nískari á stjörnugjöfina). DELERÍUM BÚBÓNIS / / SYNTIBORGARNESI Leikdeild Ungmennafélags- ins Skallagrfms frumsýnir gamanleikritið „Deleríum Búbónis" eftir Jónas Árnason og Jón Múla Árnason í leik- stjórn Jóns Einars Gústafssonar þann 5. apríl næstkomandi. Leikritið er kunnur gamanleik- ur sem notið hefur vinsælda í áratugi en það var síðast sett á svið í Borgarnesi fyrir réttum þrjátíu árum. Þá leikstýrði ann- ar höfundurinn, Jónas Árnason, sýningunni og fór einnig með hlutverk jafnvægismálaráðherr- ans. Mikið er sungið í leikritinu og sem dæmi um lög má nefna „Einu sinni á ágústkvöldi“ og „Úti er alltaf að snjóa“. „Deleríum Búbónis" gerist í Reykjavík árið 1960. Ægir Ó. Ægis forstjóri og jafnvægis- málaráðherrann, mágur hans, reyna að fresta jólunum til þess að forða sér frá yfirvofandi gjaldþroti. Á sama tíma eyðir eiginkona Ægis öllum peningum hans í að fjármagna ballett sem dóttir þeirra fer með aðalhlut- verk í. Leikritið er sýnt í samkomu- húsi Borgnesinga, Félagsmið- stöðinni Óðali. ...fimm klukkustunda stans- lausri skemmtan sem hafa má af meinlausa greyinu Flosa Ól- afssyni sem enn er sæmilegur til heilsunnar og riijar upp æskuminningar og bersöglismál á þriggja snælda hljóðbók í kvosinni sem var að koma út. (Að vísu þurfa menn í fyrstu að vera félagar í Hljóðbókaklúbbn- um til að geta gripið hana upp af boðstólunum en hún hlýtur að koma á almennan markað innan tíðar). Jh s * * I Hjá okkur finnur þú m.a. ferSabækur barnabækur • handbækur IjóS • hestabækur • kyniífsbækur • ævisögur spennusogur myndabækur • ættfræSirit fræSsluefni • spennuefni afþreyingu • skáldskap • heilafóSur Áemmtun • útivist • dulspeki • tækni landkynningarefni • ferSalög • íþróttir • matreiSslubækur og margt fleira. I Bókamarkaðurinn stendur L aðeins yfir i nokkra daga. ■—i Ekki láta þatta einstaka tækifæri framhjá þér fara. bókatitlar OPID DAGLEGA10-19 Hafnarstræti 93 (Áiur Vöruhús KEA) Gengið inn hjá Stjörnuapóteki Hinn áriegi bókamarkaður Féiags islenskra bókaútgefenda stendur nú yfir á Akureyri, Símar 898-5868 og 897-6427. 24 . mais-7, a m 24. MARS TIL 7. APRÍL i

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.