Dagur - Tíminn Akureyri - 27.06.1997, Page 11

Dagur - Tíminn Akureyri - 27.06.1997, Page 11
^Bagur-Œímímt Föstudagur 27. júní 1997 -11 Hitt & þetta 30 gripnir á Korpunni Hinn nýi Korpúlfsstaðavöllur hefur notið mikilla vinsælda í sumar og á það jafnt við um félaga í Golfklúbbi Reykjavíkur og utan hans. Margir þeirra sem spila völl- inn hafa þó haft þann vana á að byrja að spila þegar eftir- litsmenn vallarins eru farnir til síns heima, til að sleppa við borgun. Á einu síðkvöldi í vikunni voru 30 kylfingar sem ekki höfðu greitt vallar- gjaldið stöðvaðir við leik. Það mun hins vegar ekki óalgengt að um það bil tíu kylfíngar séu stöðvaðir á dag, að sögn eftirlitsmanns hjá GR. Þess má geta að ílestir þeirra sem stundað hafa „næturgolf* að undanförnu eru ekki í klúbbum og eru að kynnast íþróttinni. Hægt er að benda þeim og öðrum sem hafa áhuga á að að- gangur er ókeypis á par-3 völhnn á Korpunni, sem ætl- aður er fyrir byrjendur og þá sem vilja æfa sig í styttri höggunum. Þrír nýir klúbbar á leið í GSÍ Þrír nýir klúbbar á Suður- landi hafa sótt um inngöngu í GSÍ og eru þeir allir á Suð- urlandi. Þetta eru Golfklúbb- ur Þorlákshafnar og Golf- klúbbur Kiðjabergs og Önd- verðaness sem báðir eru í Grímsnesinu. Umsókn klúbbanna verður samþykkt innan GSÍ, þaðan fer hún til héraðssambands og síðan til ÍSÍ. Með því að gerast með- limir í GSÍ, þá fá kylfmgar í klúbbunum kost á því að skrá forgjöf sína og taka þátt í opnum mótum. Sjö þúsund kylfíngar Mikil aukning hefur orðið í klúbbum á suð-vesturhorn- inu í sumar og að sögn framkvæmdastjóra GSÍ, Frí- manns Gunnlaugssonar, munu kylfingar sem skráðir eru í klúbba, innan vébanda GSI vera orðnir um eða yfir sjö þúsund talsins. Þess má geta að fyrir áratug voru iðkendur aðeins 2300. „Ég gæti trúað að kylfing- ar hér á landi séu orðnir um eða yfir sjö þúsund talsins og ólíkt öðrum íþróttagrein- um hefur aukning orðið á hverju ári. Hún hefur yfir- leitt verið um 12-15% á ári og þessar tölur sýna að golf- íþróttin er á réttri leið hér á landi,“ sagði Frímann. Listi frá ÍSÍ yfir iðkendur í íþróttagreinum fyrir árið 1996 liggur ekki fyrir, en á árinu 1995 var golf í 5. sæti með 5692 iðkendur, um 80 færri en eru í frjálsum íþróttum. Knattspyrnan er hins vegar langvinsælust, með 15090 iðkendur, körfu- knattleikur með 6512 og hestamenn voru 6185. Ef miðað er við stöðuga fjölgun í golfíþróttinni má búast við því að golf verði orðið næst vinsælasta íþróttagrein landsins, þegar á næsta ári. Margir keppendanna tóku forskot á sæluna í fyrrinótt, þegar leikið var 9 holu mót með „texas scamble" fyrir- komulagi. A myndinni sést Ólafur Búi Gunnlaugsson, varaformaður GA, munda trékylfu sína eftir upphafshögg á 1. holunni. Mynd: fe Sérslök stemmning Það ríkir alltaf sérstök stemmning á Arctic-open mótunum sem haldin eru á Jaðarsvelli í kringum Jónsmessuna á ári hverju. Ellefta mótið var sett við hátíðlega athöfn í fyrrakvöld, þegar keppendur, sem eru 138 talsins, þar af um fjörtíu erlendis frá, gæddu sér á veitingum í golfskálanum. Mótið hófst síðan um klukkan 18 í gærdag og kylfingar munu leika 18 holur bæði kvöldin. GOLFSÍÐAN tók nokkra keppendur tali í fyrrakvöld. Elsti keppendinn Robert Little frá New Jersey sagð- ist hafa heillast af landi og þjóð fyrir tveimur ár- um þegar hann kom hingað. „Mér finnst skrýtið að Robert Little- sjá þessa birtu, í Reykjavík dimmir að minnsta kosti í nokkrar stund- ir,“ sagði Little á sínu fyrsta kvöldi norðan heiða. Ég spila yfirleitt þrisvar í viku heimafyr- ir, en þetta eru nokkuð öðru vísi aðstæður, öðruvísi gras og tré eru mun fyrirferðarmeiri á völl- um í Bandaríkjunum," sagði Little, sem er elsti keppandi mótsins, 77 ára að aldri. „Ég flýg samt minni eigin vél,“ sagði Little kankvís, þegar aldur hans barst í tal. Keppendur í Arctic-open greiða tólf þúsund krónur fyrir að keppa á mótinu, en Bjarni sagði að hann setti verðið ekki fyrir sig. „Mér finnst þetta til- tölulega vel sloppið, þar sem menn fá fatnað, tvær veislur og tvo hringi á vellinum. Ég næ líka yfirleitt takmarkinu sem ég set, en það er að hafa gaman að þessu," sagði Bjarni sem er með 11 í forgjöf. Eitthvað sem ég væri til að reyna Tom Betell, kemur frá Vermont í Bandaríkjunum og hefur skrif- að fyrir hin ýmsu blöð og tíma- rit. „Ég mun ljalla um þetta mót fyrir tímarit sem heitir Diver- sion og er einskonar ferða- og frístundarit sem vinsælt er meðal læknastéttarinnar, en eins og þú veist þá hafa læknar yfirleitt mjög gaman af því að spila golf,“ sagði Betell, sem gripinn varð golfbakteríunni fyrir tveimur árum. „Ég frétti af þessu móti þegar ég var á flæk- ingi á alnetinu og hugsaði þá með mér að þetta væri eitthvað sem ég væri til í að reyna. Ég hafði síðan samband við ýmis tímarit, en það tók mig ár að fá þetta verkefni. Ég hef mjög gaman að því að leika á mis- munandi völlum, en verð þó að játa, að þetta er í fyrsta skipti sem ég spila utan Bandaríkj- anna.“ Takmarkið er að hafa gaman að þessu „Ég er orð- inn sextug- ur, börnin eru upp- kominn og þá getur maður leyft sér að spila meira,“ sagði Bjarni Gíslason, úr GR, að- spurður um Bjarni G.slason. það hvort hann spilaði mikið. „Þetta er í sjötta skiptið sem ég kem hingað og ég væri ekki að koma hingað ár eftir ár, nema vegna þess að mér líkar vel að spila á þessu móti. Ég bjó á Ak- ureyri f fimm ár og nota því tímann til að hitta gömlu félag- ana, jafnt sem ég drekk í mig andrúmsloftið," sagði Bjarni. Mót á Króknum Opna Golfhandbókarmótið verður haldið á Hlíðarenda- velli á Sauðárkróki á morgun, laugardag og hefst kl. 10. Um er að ræða 18 holu höggleik í karla-, kvenna- og ung- lingaflokki og eru verðlaun veitt fyrir besta skor, með og án for- gjafar í hverjum flokki. Skrán- ing er í golfskálanum í síma 453-5075 á milli 18- 21. Alvöru sportvöruverslun með golfdeild Golfsett Golfskór Golffatnaður Golfkerrur Golfpokar Golf gjafavara 5% staðgreiðsluafsláttur Unglingasejt me5 poka kr. 14.900,- Fullorðinssett 1/2 m/pútler kr. 11.900,- Armúla 40, símar 553 5320 og 568 8860 Í&SEÉ&. Björgvinver ekki títíiinn Björgvin Þorsteinsson úr GA sigraði á Arctic- mótinu í fyrra, án forgjafar, en hann er nú við keppni á írlandi, á Evrópumótinu og Ijóst er að hann ver ekki titil sinn. Heimamennirnir Sigurpáll Geir Sveinsson og Birgir Haraldsson eru lík- lega þeir sem flestir tippa á sem sigurvegara. Rick Reimers, sem sigraði á mótinu fyrir tveimur árum, er einnig líklegur til að blanda sér í baráttuna, en ílest allir aðrir erlendu keppendurnir eru spurn- ingamerki. Egill Orri Hólm- steinsson úr GA hefur titil að verja með forgjöf, en þar er ómögulegt að spá fyrir um úrslit. Bíll í verðlaun Ef einhver keppandi fer liolu í höggi á 18. holunni, þá eignast hinn sami bif- reið af gerðinni VW Polo, sem Hekla hefur umboð fyrir. Þess má geta að þeir sem gáfu bifreiðina eru tryggðir fyrir því „óhappi" og mun tryggingin hafa kostað 70 þúsund krónur. Allir velkomnir! Mótsstjórn Arctic Open vildi koma því á framfæri að allir bæjarbúar eru vel- komnir til að fylgjast með mótinu. Ræst verður út í kvöld frá klukkan 18, en síðasti hópurinn mun væntanlega hefja leik klukkan 11:30. Búast má við því að síðasti hópurinn ljúki leik um klukkan 5 urn morguninn. Opin mót — Arctic Open

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.