Dagur - Tíminn Akureyri - 02.09.1997, Blaðsíða 3

Dagur - Tíminn Akureyri - 02.09.1997, Blaðsíða 3
:Tv.....nrr ^)agur-®trntrat A»», LIFIÐ I LANDINU f'Pxt »' _ .1 . .. . v... ... O I */• -» v »» Þriðjudagur 2. september 1997 - 75 Mona Poulsen og Inger-Marie Olsen sem eru verkefnisstjórar „Kystsamfunnprosjek ted. Mynd: Brink VUjiun við byggð á landinu öllu? Það þarf að fá börn í sjávarplássum til að trúa á sjálf sig og að það sé góðra gjalda vert að vinna að uppbygg- ingu sinna, oft strjálbýlu, heima- byggða. Fólk flýr úr smábyggðum, sérstaklega unga fólkið og konurnar. Hvað er hægt að gera? í Noregi hefur viðspyrna gegn þessari þróun tekist vel og á eftir að skila enn betri árangri ef allt gengur eft- ir. í íjögur ár hefur tilrauna- verkefnið „Kystsamfunnprosj- ekted“ sem fer fram í Troms- fylki átt sér stað en í því er unnið að því að ungdómurinn skilji sig ekki frá heimabyggð sinni, að fólk skynji mikilvægi íiskvinnslu og að heimilum í strandarsamfélaginu hætti að fækka. Þær Inger-Marie Olsen og Mona Poulsen sem vinna að verkefninu í Noregi hafa síð- ustu daga kynnt hugmyndina fyrir íslendingum og eins fengið nýjar hugmyndir. Þær voru m.a. stórhrifnar af sjávarútvegs- deildum sem framhaldsskólar hér eru nú farnir að bjóða upp á. Það er fínt að búa í sjávarplássi Byggðapólitík er að sjálfsögðu ekki ný pólitík en hugarfars- breyting sem stærsta vopnið er það. Þær Inger-Marie og Mona vinna með börnum í leikskóla, grunnskóla og allt upp í háskól- ana og vinnan miðar að því að fólk fái trú á sjálft sig og sína heimabyggð. Þetta er atvinnu- átak sem beinist aðallega að því að konur nái að hasla sér völl í atvinnulífinu enda þótt frysti- húsið þurfi ekki á þeim að halda sökum vélvæðingar. „Við hjálpum t.d. konum sem hafa átt sér eitthvert tómstundar- gaman við að gera þá iðju að aðalatvinnu sinni. Þetta getur verið alls kyns handverk og í Noregi höfum við nú þegar skapað íjölmörg ný störf með þessum hætti“, segir Inger- Marie. „Þetta er ekki dýrt því vinnan er fljót að borga sig en í Noregi fær fólk styrki til þess að byrja og þannig stuðlar samfé- lagið að byggð alls landsins. Tökum sem dæmi 500 manna bæ sem byggir lífsaf- komu sína á fiskverksmiðjunni. Þá eru keyptar nýjar vélar og 55 konur verða atvinnulausar. Pólitikusarnir gera ekkert en halda að konurnar muni samt sem áður verða um kyrrt. Auð- vitað fara þær ef ekkert er að gert. í samskoíiar dæmi og þessu gripum við inn í og studdum handverk og skólann í bænum og þær konur sem vildu fara fóru en hinar hösluðu sér völl á nýjan hátt.“ Að læra um sína heimabyggð Þetta er hinn beini liður í því að halda fólki í strjálli byggðum en mikilvægasti þáttur verkefnis- ins er fræðsla. AUir skólar í Tromsfylki taka þannig þátt í verkefninu og segir Inger-Marie að kennararnir hafi nú þegar gert heilmikið til þess að krakkar sem koma frá litlum stöðum læri að meta sína heimabyggð og þá vinnu sem þar fer fram. „Við komum báðar frá litlum sjávarplássum,“ segja þær „og þegar við vorum í skóla þá lærðum við ekkert um fisk og fiskvinnslu. í rauninni hefur kennsla miðað að því að segja börnunum að ef þau vilja læra þá fari þau líka burtu. Því í heimabyggðinni sé ekkert fyrir þau að gera. Þetta er auðvitað alrangt og auðvitað á að gera veg sjávarútvegsins og annarr- ar starfsemi sem fram fer í litlu plássunum meiri í skólunum. í þessu verkefni okkar eru menn lika fljótir að sjá hve miklu þetta fær breytt og sjómenn hafa t.d. verið duglegir við að vinna með okkur, bæði við að uppfræða krakkana og okkur." Alls staðar hægt að hafa það gott „Fyrir utan fræðslu í leikskólum og skólum höfum við unnið með atvinnulausum og fólki í at- vinnulífinu. Þetta hefur gengið mjög vel en síðan á eftir að sjá langtímaárangurinn þegar leik- skólakrakkarnir eru orðnir full- orðnir. Þá von- andi hafa ýms- ar áherslur og gildi breyst. Það er t.d. ekki sjálfgefið að við byggjum á gild- um Evrópusam- bandsins enda ísland og Nor- egur utan þess. Efnahagssjón- armið eru þar ráðandi en við viljum líka benda fólki á aðra þætti sem geta ráðið því hvort fólki líður vel og hvar því líður vel. Við spyrjum t.d. hvort það sé eitt- hvað athugavert við að vilja vinna að grósku og uppvexti sinnar heimabyggðar án þess að það beri með sér beinan og skjótan hagnað fyrir einstak- linginnn. Jakkafatakarlarnir spyrja reyndar alltaf hvort það megi græða á slíku og við segj- um já því það er töluverður samfélagslegur bati sem felst í verkefni sem þessu og það er af hinu góða fyrir einstaklinginn. Við viljum því innleiða þá hugs- un að það sé alls staðar hægt að hafa það gott en að það þurfi stöðugt að vera á höttunum eft- ir nýjum atvinnutækifærum. Það eru tækifæri í öllum smá- bæjum.“ Ekkert ómerkilegt Á íslandi heimsóttu verkefnis- stjórarnir norsku Norræna hús- ið, Árnastofnun, menntamála- ráðuneytið, Vinnuskólann, Sjáv- arútvegsdeild Háskólans á Ak- ureyri og fleiri staði. „Kannski er megin munurinn á íslandi og Noregi sá að það hefur komið bein skipun að ofan í Noregi um að unnið skuli að því að viðhalda byggð á strandlengj- unni. En það þarf samt verkefni sem þetta því stjórnvöld virðast til lengri tíma ekki hafa áhuga á öðru en framleiðslu og hagn- aði. Ef fólk á íslandi vill að það séu byggðir á sem flestum stöð- um verður að fara að gera eitt- hvað í því. Við setjum peninga í þessa byggðastefnu og vonandi verður svo áfram. - En til þess að þetta takist þarf hugarfars- breytingu, fólk verður að trúa því að það að vinna að uppvexti smábyggðar sé gott og að vinna í fiski eða við fisk sé ekki ómerkilegra en hvað annað.“ -mar „í rauninni hefur kennsla miðað að því að segja börn- um að ef þau vilja lcera þd fari þau líka hurtu.((

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.