Dagur - Tíminn Reykjavík - 04.01.1997, Page 7
Ikgur-®mmm
Laugardagur 4. janúar 1997 - 7
ERLENDAR FRÉTTIR
Fjöldagrafir teknar í Rúanda.
Dauðadómar vegna
þjóðarmorðs
Tveir Rúandabúar
hafa verið dæmdir til
dauða vegna hlut-
deildar þeirra í fjölda-
morðunum árið 1994
Dómstóll í bænum Kibungo
í suðausturhluta Rúanda
dæmdi í gær tvo menn til
dauða vegna þátttöku þeirra í
fjöldamorðunum árið 1994,
þegar a.m.k. hálf milljón
manns, flest Tútsar, voru
drepnir í hamslausum átökum
sem stóðu yfir í þrjá mánuði.
Voru þeir fundnir sekir um ell-
efu ákæruatriði, m.a. fyrir að
leggja á ráðin um ijöldamorð og
nauðganir. Báðir lýstu þeir yfir
sakleysi sínu, en þeir hafa nú
hálfs mánaðar frest til þess að
áfrýja dómnum.
Deo Bizimana og Egide Gat-
anaza eru þeir fyrstu sem
hljóta dóm vegna þjóðarmorðs-
ins, en 1946 aðrir Rúandabúar
hafa einnig verið ákærðir fyrir
að skipuleggja og undirbúa
þjóðarmorð. Og að auki bíða
um 85 þúsund manns þess í
troðfullum fangelsum landsins
að réttað verði í ákærumálum á
hendur þeim vegna minni
glæpa í tengslum við fjölda-
morðin árið 1994.
Embættismenn í Rúanda
hafa sagt að þegar búið er að
dæma og lífláta þá sem skipu-
lögðu þjóðarmorðið verði auð-
veldara að taka vægar á málum
hinna sem fylgdu skipunum
þeirra. Vonast embættismenn-
irnir til þess að sættir náist
frekar með þessu móti.
Sérstakur stríðsglæpadóm-
stóll Sameinuðu þjóðanna
vegna íjöldamorðanna í Rúanda
hefur einnig ákært 21 mann
fyrir að standa að skipulagn-
ingu og undirbúningi þjóðar-
morðsins, og þar af eru sjö í
haldi. Málum þeirra hefur mið-
að hægt áleiðis, en fyrstu rétt-
arhöldin eiga að heíjast þann 9.
janúar. -gb
Evrópa
Mörgæsir í kæliskáp
Ekkert lát er á heift-
arlegu kuldakasti í
Evrópu
* ........ .. ........—1
Idýragarði nokkrum í Hol-
landi hefur verið gripið til
þess ráðs að setja nýfæddar
mörgæsir í kæliskápa - til þess
að hlýja þeim. Mörgæsir þessar
eru af tegund sem á náttúruleg
heimkynni við strendur Suður-
Afríku og eiga því ekki að venj-
ast miklum kuldum. Þær geta
þó með góðu móti þolað allt
niður í 5 stiga frost, en í Hol-
landi undanfarna daga hefur
verið nálægt 10 stiga frost að
meðaltali. í kæliskápunum er
hins vegar um 5 stiga hiti,
þannig að mörgæsarungarnir
eru ekki í vandræðum með að
láta sér líða sæmilega vel þar.
Kuldakastið í Evrópu hefur
gert fleirum lífið leitt en mör-
gæsarungunum í Hollandi. Talið
er að rekja megi 206 dauðsföll
beint til kuldans sem nú hefur
staðið yfir í nærri tvær vikur.
Allar helstu ár í Evrópu eru ísi
lagðar, og ijölmargar stórar
hafnir líka. í gær voru meira en
12 þúsund togarar innlyksa í
Rónardal í Frakklandi vegna
íssins. Sums staðar í Frakklandi
höfðu járnbrautarlestir einnig
frosið fastar við teinana, og var
töluverðum erfiðleikum bundið
að koma þeim af stað aftur.
Kuldakastið nær yfir mest
allt meginland Evrópu, allt frá
Spáni norður til Rússlands, og
stafar af köldum loftstraumum
sem borist hafa til vesturs yfir
álfuna frá Síberíu. -gb
Jjáiahíi-
ófíemmtim VJt
1 ^ Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur jólatrésskemmtun fyrir börn félagsmanna, 7+$" sunnudaginn 5. janúar nk. kl. 15 á Hótel íslandi.
7^\ Miðaverð er kr. 600,- fyrir böm og kr. 200,- fyrir fullorðna. Miðar em seldir á skrifstofu VR í Húsi verslunarinnar, 8. hæð og við innganginn. Nánari upplýsingar í síma félagsins 568 7100.
* c c ^ \ Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
Félag járniönaöarmanna
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu við kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs
Félags járniðnaðarmanna fyrir næsta starfsár.
Tillögum um skipan stjórnar og trúnaðarmannaráðs fé-
lagsins skal skila til kjörstjórnar félagsins, á skrifstofu
þess að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð, Reykjavík ásamt
meðmælum a.m.k. 88 fullgildra félagsmanna.
Tillögur eiga að vera um 7 menn í stjórn félagsins og
auk þess tillögur um 21 til viðbótar í trúnaðarmannaráð
og 7 varamenn þeirra.
Frestur til að skila tillögum um skipan stjórnar og trún-
aðarmannaráðs rennur út kl. 17 fimmtudaginn 23.
janúar1997.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna.
Vinnumálaskrifstofa
félagsmálaráðuneytisins
Starfsmenntastyrkir
félagsmálaráðuneytisins
Starfsmenntaráð félagsmálaráðuneytisins auglýsir hér
með eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar
í atvinnulífinu, sbr. lög nr. 19/1992.
Styrkir eru veittir til að styðja skipulega starfsmenntun,
undirbúning, náms- og kennslugagnagerð, kennslu og
starfsþjálfun. Miðað er við að styrkir séu veittir vegna
viðfangsefna á árunum 1997-1998.
Rétt til að senda umsóknir eiga: samtök atvinnurek-
enda og launafóiks, einstök atvinnufyrirtæki, einkaaðil-
ar, eða opinberir aðilar sem standa fyrir starfsmenntun
í atvinnulífinu, starfsmenntaráð einstakra atvinnu-
greina og samstarfsverkefni á vegum tveggja eða fleiri
framangreindra aðila. Umsóknir frá skólum koma til
álita þegar um er að ræða samstarf við samtök sem
áður eru nefnd.
Umsóknir berist til vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðu-
neytisins, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 150 Reykjavík,
á sérstökum eyðublöðum sem þar fást og skal þeim
skilað þangað eigi síðar en 7. febrúar 1997.
Félagsmálaráðuneytið, 30. desember 1996.
ÚTBOÐ
Krossanes h.f. óskar eftir tilboðum í að mála að utan
stálgeyma og fleira á lóð verksmiðjunnar í Krossanesi.
Undirbúningur fyrir málun er sandblástur eða háþrýsti-
þvottur.
Helstu magntölur:
Yfirborð geyma 3830 fermetrar
Dælupípur 100 metrar
Reykháfur 210 fermetrar
Verklok eru 15. júlí 1997.
Útboðsgögn eru afhent á Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen h.f., Glerárgötu 30, Akureyri, frá 3. janúar
1997.
Tilboð verða opnuð þar mánudaginn 13. janúar 1997
kl. 15 að viðstöddum þeim bjóðendum, sem þess
óska.
KROSSANESm