Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.04.1997, Page 10

Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.04.1997, Page 10
10 - Föstudagur 11. apríl 1997 jOagur-ZEímmn J I u KNATTSPYRNA • Nýr styrkleikalisti FIFA HANDBOLTI • Úrslitakeppni karia Islenska landsliðlð niður um fjórtán sæti Islenska landsliðið í knatt- spyrnu hrapar niður um fjórtán sæti á nýjasta styrk- leikalista FIFA. íslenska lands- liðið er nú í 76. sæti og hefur ekki verið jafn neðarlega á lista í langan tíma og ekki eru marg- ir mánuðir frá því liðið var í kringum 50. sætið. Ástæðan fyrir hrapinu er þó ekki slakur árangur að undanförnu, liðið hefur ekki spilað frá því í fyrra, en aðrar þjóðir hafa hins vegar verið að næla sér í stig á listan- um. Meðal þeirra þjóða sem skut- ust uppfyrir ísland á listanum eru Ungverjar (74), Finnland og Kína, en síðastalda þjóðin stökk upp um nítján sæti á listanum og er nú í 60. sæti. Neðar á list- anum eru Evrópuþjóðir eins og Makedónía (80) og Wales (81) en 188 þjóðir eru á listanum. Brasilía er sem fyrr besta knattspyrnuþjóð veraldar og jók forskot sitt á næstu þjóðir KARFA Unglinga- landsliðið I Portúgal s Islenska unglingalandsliðið í körfubolta tekur nú þátt í Evrópukeppni unglingalands- liða sem fram fer í Portúgal dagan, 9.-13. apríl. Tólf strákar frá 6 liðum skipa landsliðið og þeir eru þesssir: Guðlaugur Eyjólfsson UMFG Guðmundur Þ. Magnússon KR Halldór Úlriksson KR Ingi F. Vilhjálmsson KR ísak Einarsson UMFT Jón Nordal Hafsteinsson Kefla- vík Logi Gunnarsson UMFN Lýður Vignisson Snæfell Morten Þ. Szmiedowicz Keflavik Svavar Atli Birgisson UMFT Sæmundur Oddsson Keflavík Sævar Sigmundsson KR Þjálfari liðsins er Hörður Gauti Gunnarsson og aðstoðar- maður hans er Jón Guðbrands- son. Fararstjóri er Eyjólfur Þór Guðlaugsson. íslenski dómarinn sem dæmir á mótinu er Leifur Sigfínnur Garðarsson, kennari úr Hafnarfirði. Homar félagsheimili Þórs: Salir til leigu Tilvaldir til hvers konar íþrótta- og tóm- stundaiðkana. Gufa - Pottur - Búningsaðstaða Hamar sími 461 2080 með sigrum í tveimur vináttu- leikjum. Þýskaland og Frakk- land halda stöðu sinni í 2.' og 3. sætinu og Spánverjar komust upp í fjórða sætið, úr því sjö- unda. Danir færðust upp um eitt sæti og eru í fimmta sæti listans. KNATTSPYRNA Leikiðá Akureyri Fyrsti opinberi knatt- spyrnuleikur ársins Norðanlands fer fram á Ak- ureyri í kvöld klukkan 18. Leiftur og KA mætast þá á Sana-vellinum í riðlakeppni Deildarbikarkeppninnar, en úrslit leiksins ráða miklu um það hvort liðið nær sæti í úr- slitakeppninni. Sautján aðrir leikir fara fram á laugardag og sunnu- dag og eru það þessir. Laugardagur L Þróttur N-KR kl. 11 Á Völsungur-ÍBV kl. 13 K Dalvík-Valur kl. 13 Á FH-Sindri kl. 15 K Þór-Skallagr. kl; 15 L Fram-Selfoss kl. 15 Á ÍA-Víkingur Ó kl. 17 Sunnudagur Á ÍBV-Breiðablik ki. 11 K Njarðvík-Sindri kl, 11 L Dalvík-Léttir kl. 11 ÁÞrótturN-FH kl. 13 K Víkingur R-Völsungur kl. 13 LFjölnir-Þór kl. 13 Á Leiftur-Haukar kl. 15 G Grindavík-ÍA kl. 15 L ÍR-Víkingur Ó kl. 15 Á Fylkir-Afturelding kl. 17 (Á=Ásvellir, L=Leiknisvöllur, K-Sandgras Kópavogi, G=Grindavíkurv.) Heiðmar Felixson reynir línusendingu á félaga sinn Jóhann Gunnar í leiknum gegn Aftureldingu í gærkvöld. Páll Þórólfsson er til varnar. Myn&. bg Sannfærandi hjá KA KA-menn virðast líklegir til að vinna íslandsmeist- aratitilinn eftir sannfær- andi sigur gegn Aftureldingu í þriðja leik liðanna að Varmá í gærkvöldi og eiga þess kost að tryggja sér lslandsmeistaratitil- inn á heimavelli sínum á morgun. Fyrri hálfleikurinn var ótrú- lega sveiílukenndur. Eftir mark frá KA á fyrstu mínútu leiksins, skoruðu heimamenn fimm mörk og það stóð ekki steinn yfir steini hjá gestunum á með- an Bergsveinn Bergsveinsson, tók þau skot sem komu á mark heimamanna. í kaflanum sem kom í kjölfarið höfðu liðin al- gjör hlutverkaskipti. Guðmund- ur Arnar varði hvert skotið á fætur öðru og í sóknarleiknum fóru þeir Róbert Julian Duran- ona og Sergei Ziza á kostum, en þeir skoruðu níu fyrstu mörk KA-manna í leiknum. KA-menn komust yfir 6:7, en þá skoruðu heimamenn þrjú mörk í röð. Lokakaflinn var hins vegar KA- manna sem nýttu vel hraðaupp- hlaup og höfðu þriggja marka vegnesti þegar gengið var til búningsklefa í leikhléi. Síðari hálfleikur var ekki ósvipaður bikarkúrslitaleiknum fyrr í vetur, nema nú voru norð- anmenn ekki í hlutverki þeirra sem eltu. KA-menn náðu um tíma flmm marka forskoti og heimamenn virtust aldrei hafa þann orkuforða sem til þurfti til að brjóta múrinn og jafna. Guðmundur Arnar Jónsson varði mjög vel í marki KA og Duranona og Ziza voru helstu tromp liðsins í sókninni. Þá átti Jakob frábæran leikkafia og hann hélt ógnun í sóknarleik KA framan af síðari hálfleiknum. Sóknarleikur KA var mun ijölbreyttari en í fyrri tveim leikj- unum og þá var vörn liðsins þétt. Páll Þórólfsson var yfir- burðamaður hjá Aftureldingu, var mjög sterkur í síðari hálf- leiknum. Bergsveinn varði feyknavel framan af, en þeirra besti maður í úrslitakeppninni, Bjarki Sigurðsson, fékk lítið rúm til að athafna sig. Þá meiddist Sigurður Sveinsson í fyrri hálfleiknum og varð það skarð fyrir skildi hjá liðinu. Fjórði leikur liðanna fer fram í KA-heimilinu á morgun og hefst hann klukkan 16. íhugaði að hætta Kristinn Björnsson tekur þátt í síð- asta mótinu á vei heppnuðum vetri. Kristinn Björnsson, skíða- kappi frá Ólafsfirði, hefur í nógu að snúast næstu daga, en hann mun taka þátt í norska meistaramótinu á skíðum sem hefst í Hemsidal í dag. Krist- inn tekur þátt í stórsvigskeppn- inni í dag, en hann mun einnig taka þátt í svigi, risasvigi og bruni. „Árangurinn var framar öllum vonum í vetur, en ég hafði ekki miklar væntingar. Undirbúningur- inn var hreinlega út f hött, ég fór allt of seint af stað. Ég hugleiddi að hætta, að það munaði bara Kristinn Björnsson. nokkrum dögum að það yrði,“ segir Krist- inn, sem að öllum likind- um verður undir 60. sæti í svigi á næsta punktalista alþjóða skíðasam- bandsins, en það er besti árangur sem íslenskur skíðamaður hefur náð í alpagrein. Enginn íslenskur landsliðs- þjálfari var á launum hjá SKÍ í vetur og samningaviðræður um þjálfun íslenska alpaliðsins gengu hægt fyrir sig. Síðan var samið við finnska landsliðið og Kristinn hef- ur æft með því í vetur, ásamt fé- laga sínum, Arnóri Gunnarssyni. „Ég er vongóður um að fá að halda áfram að æfa með Finnun- um næsta vetur, en þeir eru að fá nýjan þjálfara. Ég geri ráð fyrir því að næsta vetur muni ég ein- beita mér að svigi, rétt eins og í vetur. Ástæðan er sú að álagið er aðeins minna og ég hef átt við meiðsl að stríða á hné,“ segir Kristinn. Líklega munu fjórir íslending- ar taka þátt í norska meistara- mótinu, en það eru auk Kristins, þau Brynja Þorsteinsdóttir frá Ak- ureyri og Reykvíkingarnir Jóhann Haukur Hafstein og Jóhann Frið- rik Haraldsson. Sagt eftir leikinn Byrjunin var skelfíleg Við lögðum upp í leikinn með því hugarfari að vera á hreyfingu og að gefa þeim ekki boltann í hendurnar og það gekk sæmilega. Byrjunin var skelfileg, það var hreinlega eins ög við værum ekki komnir út úr búningsklefanum. Vörnin var sein til, én þegar hún fór í gang var hún mjög góð. Við náðum fimm marka forskoti í byrjun síðari hálfleiksins og ég held að það hafi tekið mjög mikla orku frá þeim að reyna að vinna þann mun niður, sagði Guðmundur Arnar Jónsson, markvörður KA. Erfíðara á heimavelli Þetta var örugglega okkar skásti leikur til þessa gegn Aftureldingu. Byrjunin var reyndar döpur, en við vissum að vörnin mundi koma upp og þá komu hraðaupphlaupin með.“ sagði Leó Örn Þorleifsson, línu- maður KA. „Það væri ánægjulegt að vinna heima og fá bikarinn fyrir framan okkar eigin áhorfendur. Það verður erfitt, þeir koma miklu sterkari til leiks heldur en í dag, það er allt eða ekkert hjá þeim núna og alls ekkert hægt að reikna með okkar sigri þó við séum á heimavelli," sagði Leó Örn. UMFA-KA 26:29 Gangur leiksins: 0:1, 5:1, 6:2, 6:7, 9:7, 10:10, 11:10, 11:13, (12:15), 12:17, 14:19,19:20, 21:24, 25:26, 25:29. Mörk Aftureidingar: ingimundur iielga- son 7/6, Páll Þórólfsson 7, Gunnar Andr- ésson 3, Jón Andri Finnsson 2, Bjarki Sigurðsson 2, Sigurður Sveinsson 1, Þor- kell Guðbrandsson 1, Einar Gunnar Sig- urðsson 1. Varin skot: Bergsveinn Borgsveinsson 15/1. Mörk KA: Sorgei Ziza 9/4, Róbert J. Duranona 7, Jóhann G. Jóhannsson 5, Jakob Jónsson 4, Björgvin Björgvinsson 2, Alfreð Gíslason 1, Leó Örn Þorleifsson 1. Varin skot: Guðmundur Arnar Jónsson 18. Dómarar: Egill Már og Örn Markússynir. Mjög góðir. Áhorfendur: Tæplega 700. ' t í ,.t.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.