Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.05.1997, Qupperneq 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 03.05.1997, Qupperneq 1
HELGARÚTGÁFA Suður-Þingeyjarsýsla Forsetasól Opinber heimsókn hófst í gær. Opinber heimsókn forseta íslands, herra Ólafs Ragnars Grímssonar og eiginkonu hans, Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur, í Suð- ur-Þingeyjarsýslu hófst form- lega kl. 10 í gærmorgun þegar forsetahjónin komu í Safnahús- ið á Húsavík. Þegar gestir gengu í hlað braust sóhn fram úr skýjaþykkni og baðaði sviðið birtu, rétt eins og forseti hefði komið með sólskinið með sér ellegar gestgjafar gert ráðstaf- anir í þessa veru. í ávarpi sem forsetinn flutti í safnahúsinu sagði hann m.a. að stundum væri sagt að heim- sóknir forseta lýðveldisins ættu kannski fyrst og fremst að vera yfir hásumarið, en hann teldi einnig við hæfi að koma á öðr- um árstímum, þegar skólarnir væru starfandi, atvinnulífið í fullum blóma og mannlífið héldi þeim takti sem það væri að jafnaði í árið um kring. Hvarvetna sem forsetahjón komu var þeim forkunnarvel tekið. Æskan gegndi stóru hlut- verki þennan dag og lék á hljóðfæri og söng fyrir forseta- hjónin í Safnahúsinu og skólum bæjarins. Og 400 ungmenni fögnuðu forsetahjónunum með eftirminnilegum hætti þegar forseti setti KÞ mótið í hand- knattleik sem Völsungur stend- ur fyrir og sótt er af liðxun af öllu landinu. Forsetahjónin sóttu heim Hvamm, dvalarheimili aidr- aðra, Húsavíkurkirkju, og þrjú framleiðslufyrirtæki, Kjötiðju KÞ, Aldin hf. og Netagerð FH. í gærkvöld var síðan almenn samkoma í Félagsheimilinu þar sem bæjarbúar fjölmenntu og hylltu forseta sinn og menning- arleg dagskrá var flutt. í dag eru forsetahjónin á ferð um Reykjahrepp, Aðal- dælahrepp, Skútustaðahrepp, Reykdælahrepp og Ljósavatns- hrepp. Þessari opinberu heim- sókn lýkur síðan um hádegi á morgun en í fyrramálið heim- sækja forseti og fylgdarhð Háls- hrepp og Bárðdælahrepp. js Vestmannaeyjar Ferðafrömuður hættir Páll Helgason, ferðafröm- uður í Vestmannaeyjum, hyggst selja allan rekstur sinn. Hann hefur rekið fyrirtæki sitt frá 1973 og verið umsvifa- mikill og áberandi í ferðaþjón- ustu. Páll vill ekki gefa nánari ástæðu fyrir því að hann hyggst selja reksturinn, segir að þetta sé bara spurning um peninga. Tveir aðilar hafa sýnt fyrirtæki Páls áhuga og mun skýrast á næstu dögum hvort af kaupum verður. Páll hefur rekið ferða- mannabátinn PH-Viking og sex rútur. ÞoGuÆyjum Davíð skrifar Blair Allow me to cxtcnd my congratulations on thc succcssful results of yesterday clections and to wish you evcry succcss in mccting the challcngcs that lie ahead. I look, forward to continue and further devetop the excellent relations cxisting bctwecn our two countries and hopc that wc will have an opportunity to establish contacts in ihc ncar future. Yours sincerely, Davíð Oddsson forsætisráðherra skrifaði nýjum starfsbróður sínum í Bretlandi og árnaði allra heilla við krefjandi störf. Þá óskaði Davíð eftir áframhaldandi góðum samskiptum þjóðanna og vonaðist eftir tækifærí til að koma á sambandi fljótlega. Myndin sýnir skeyti Davíðs til Blairs. Fréttir og þjóðmál Það var þröng á þingi á Húsavík í gær þegar Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, forsetahjón hófu opinbera heimsókn í Suður-Þingeyjarsýslu. Ekki er annað að sjá en að forsetinn kunni vel við sig í félagsskap Húsvíkinga. Mynd: js Frægð Anna Mjöll með Julio Anna Mjöll Ólafsdóttir syngur með söngvar- anum heimsfræga, Julio Iglesias, á fimm sýningum í Las Vegas í næstu viku. Anna Mjöll Ólafsdóttir söngkona hefur fengið vinnu hjá Julio Iglesias, söngvaranum heimsþekkta, og kemur fram með honum á hóteli, sem heitir Cesar’s Pal- ace, í miðborg Las Vegas í fyrsta skipti um miðja næstu viku og verða sýningarnar sam- tals flmm, kvöld eftir kvöld. Ól- afur Gaukur, faðir Önnu Mjall- ar, segir að hún muni bæði syngja með Iglesias „í frontin- um“ (framsveit) og munu þau til dæmis taka dúett saman auk þess sem hún mun syngja bak- raddir hjá honum. Bent á Önnu Mjöll Julio Iglesias hefur verið með eina svarta söngkonu sem bak- rödd frá því síðasta haust og hefur verið að leita að annarri söngkonu, helst ljóshærðri, í bandið frá 1995. Um hundrað stúlkur hafa komið í próf til hans síðustu tvö árin en engin hefur náð að festa sig í sessi. Fyrir nokkrum vikum var starfsmaður hans að leita að söngkonu í Los Angeles og var þá bent á Önnu Mjöll. Honum leist svo vel á hana að hann bað hana að koma í áheyrn og æf- ingar til Miami. Söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir hefur tekið „stakkaskiptum“ og líka stór skref á framabrautinni. Hjartaknúsarinn mikli nýtur að- stoðar hennar. „Þangað kom hún fyrir nokkrum dögum ásamt þremur öðrum söngvurum og nú er hún ein eftir. Það er búið að ráða hana til Vegas og verið að ganga frá seinustu æfingunum í þessu skyxn. Hún er byrjuð að syngja með honum en þetta er svo nýskeð að það er ekki búið að semja endanlega. Það var ákveðið fyrir tveimur dögum að hún færi með honum til Vegas,“ segir Ólafur Gaukur. Talsverðar líkur eru á að Anna Mjöll fari með Iglesias í tónleikaferð, sem fyrirhuguð er á næstunni. Það á þó eftir að skýrast betur. Ein svört og önnur hvít Þegar Dagur-Tíminn hafði sam- band við Önnu Mjöll í Miami sagðist hún kunna mjög vel við Julio, samstarfsmenn hans og hina bakraddarsöngkonuna. Ig- lesias sé afar geðfelldur í við- kynningu, hafi tekið sér mjög vel og smellt kossi á kinn eftir fyrsta dúettinn sem þau sungu saman. Þá hafi hún náð góðu sambandi við hina söngkonuna. Það ríki enginn samkeppnis- andi milli þeirra heldur reyni þær að vinna saman eins og all- ir aðrir í bandinu. Meiningin sé að hafa söng- konurnar sem andstæður á sviði, eina svarta og dökkhærða og aðra hvíta og ljóshærða. Þess má geta að Anna Mjöll hefur unnið með Lionel Ritchie og fleiri heimsfrægum stjörnum -GHS Sjá viðtal í Lífinu í landinu. . e Islendingaþættir fylgia blaðinu í dag Vnrmaskiptar Alfa Laval SINDRI -sterkur í verki SORGARTUN! 31 * StMi 562 7222 * BREFASÍWU 562 1024

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.