Dagur - Tíminn Reykjavík - 08.05.1997, Síða 6

Dagur - Tíminn Reykjavík - 08.05.1997, Síða 6
18 - Fimmtudagur 8. maí 1997 JDagnr-Símtmn MENNING OG LISTIR Sýningar: Föstudaginn 9. maí kl. 20.30. Laugardaginn 10. maí kl. 20.30. Síbustu sýningar Það ætla allir að sjó Vefarann! Leikstjórn: Halldór E. Laxness Sýningin er ekki við hæfi barna Ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýningin hefst. Sýnt er á Renniverk- stæðinu, Strandgötu 49. Miðasalan er opin alla virka daga nema mónudaga fró kl. 13-17. Miðasalan er í Sam- komuhúsinu, Hafnarstræti 57 Sími í miðasölu er 462 1400. iDagur-ÍEmrám - bestí tími dagsins! íslenskur myndlist- armaður vekur hrifningu gagnrýn- anda hjá Jyllands Posten... Bera Nordal sagði í viðtali hér í blaðinu fyrr í vetur að þróunin virtist hafa verið sú að ungir íslenskir myndlistarmenn væru að ein- angra sig frá norræna mark- aðnum og fannst henni það slæmt. Þvf er ánægjulegt þegar íslenskir myndlistarmenn vekja einhverja eftirtekt í norrænum myndlistarheimi, fyrir þá sjálfa og landa þeirra. Myndlistar- maðurinn Jón Gíslason, búsett- ur í Þýskalandi en hélt sýningu í Hafnarborg sem lauk fyrr í þessari viku, hlaut allmikið hól hjá Karen Louise Juhl Christen- sen gagnrýnanda hjá Jyllands Posten fyrir sýningu sem hann hélt á BaneGarden Kunst & Kultur á Jótlandi í mars sl. Kar- en segir verk Jóns vera frjósöm og villt og sýninguna stóra og vægast sagt litríka. Sprengikraftur „Alþjóðlegur expressjónismi eða ekki þá málar Jón Gíslason í „stórum dráttum" í gulu, svörtu, rauðu, grænu og bláu. Hann málar Qölda af stórum og litlum fígúratífum myndum með ofsalegum og ósjálfráðum, gróf- um og litamettuðum pensil- strokum. Verk Jóns snúast ekki um smáatriði heldur sprengikraft- inn sem verður til við árekstur lita og mótífs... Þetta er ekki spurningin um að höndla liti á fágaðan hátt heldur að ná til veraldarinnar með uppáþrengjandi senum úr lífi og athöfnum; að kynna áhorfendum sínum heim sem virðist sannfærður um tilvist lffsfjörs og kraftmikillar víddar - í manneskjunni jafnt sem náttúrunni,“ og til að ljúka lof- samlegu máli sínu segir Christ- ensen sýninguna vera bæði safaríka og kraftmikla. Þetta verk, “Par að elskast" var á sýningu Jóns í Danmörku. Rannveig Fríða Bragadóttir heillaði portúgalska áheyr- endur upp úr skón- um. Caput-hópurinn er nú staddur í Portúgal þar sem hann tekur þátt í Gul- benkian tónhstarhátíðinni, einni viðurkenndustu nútíma- tónlistarhátíð í Evrópu. Þann 5. maí hélt hópurinn tónleika í aðalsal Gulbenkian tónleikahallarinnar með ítalskri tónlist við gífurleg fagnaðarlæti ijölmargra áheyrenda. Guð- mundur Óli Gunnarsson stjórn- aði tónleikunum, ítalski selhst- inn Jacob Scalfi var einleikari og Rannveig Fríða Bragadóttir söng einsöngshlutverkið í verki ftalans Fausto Rometellin, „Mediterrano". Hún heiffaði portúgalska áheyrendur upp úr skónum. Þann 6. maí var norræn tón- list á dagskrá hópsins, m.a. ný verk eftir Áskel Másson og Atla Ingólfsson. Framtíðarverkefni Caputs er m.a. þátttaka í „Summartónar" hátíðinni í Færeyjum í júní og júlí og upptaka á óperu Hauks Tómassonar, „Guðrúnarkviðu hinni fjórðu", sem gekk fyrir fullu húsi í nokkrar vikur í Kaupmannahöfn sl. sumar. Sænska útgáfufyrirtækið RIS mun gefa óperuna út. Rannveig Fríða Bragadóttir. ÞJÓDLEIKHÚSIÐ Stóra sviðið kl. 20.00 FIÐLARINN Á ÞAKINU eftir Boch/Stein/Harnick 8. sýn. í kvöld, fimmtud. 8. maí. Uppselt. 9. sýn. laugard. 10. maí. Uppselt. 10. sýn. föstud. 16. maí. Uppselt. 11. sýn. mánud. 19. maí. (annar í hvítasunnu) Uppsell. 12. sýn. föstud. 30. maí. Uppselt. 13. sýn. laugard. 31. maí. Uppselt. 14. sýn. sunnud. 1. júní. Nokkur sæti laus. 15. sýn. miðvikud. 4. júní. Nokkur sæti laus. 16. sýn. föstud. 6. júní. Nokkur sæti laus. 17. sýn. laugard. 7. júní. Nokkur sæti laus. VILLIONDIN eftir Henrik Ibsen Á morgun, föstud. 9. mai Næstsíðasta sýning Miðvikud. 14. maí. Síðasta sýning KÖTTUR Á HEITU BLIKKÞAKI eftir Tennessee Wiliams 14. sýn. sunnud. 11. maí. 15. sýn. fimmtud. 15. maí. 16. sýn.fimmtud, 29. mai. LITLI KLÁUS OG STÓRI KLÁUS eftir H.C. Andersen Sunnud. 11. mai kl. 14.00. Nokkur sæti laus Síðasta sýning Tungskinseyjuhópurinn í samvinnu við Þjóðleikhúsið Óperan TUNGLSKINSEYJAN ettirAlia Heimir Sveinsson Frumsýning miðvikud. 21. maí 2. sýn. föstud. 23. maí 3. sýn. laugard. 24. maí Litla sviðið kl. 20.30 LISTAVERKIÐ ettir Yazmina Reza Föstud. 9 maí. Uppselt. Laugard. 10. maí. Uppselt Föstud. 16. maí. Uppselt. Mpnud. 19. maí. Uppselt Sunnud. 25. maí. Uppselt Föstud. 30. maí. Laus sæti. Laugard. 31. maí. Laus sæti. Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 13-18, frá miðvikudegi til sunnudags kl. 13-20 og til 20.30 þegar sýningar eru á þeim tíma. Einnig er tekið á móti símapöntunum frá kl. 10 virka daga. Safarík og kraftmikil Caput í Lissabon

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.