Dagur - Tíminn Reykjavík - 08.05.1997, Page 8

Dagur - Tíminn Reykjavík - 08.05.1997, Page 8
20 - Fimmtudagur 8. maí l997 Jlagitr-'ðlmmm LANDBUNAÐUR I LANDINU Miðað við það rekstrarumhverfi sem nú mótar sauðfjárræktina virðist óumflýjanlegt að breyta ýmsu í framleiðsluferli hennar eigi þeim, sem hana stunda, að takast að hafa af henni viðunandi tekjur. Tækni- lega á fátt að vera því til fyrirstöðu. Með öðrum orðum: Með breyttum hugsunarhætti, markvissari vinnubrögð- um og aukinni samvinnu geta sauðfjár- bændur stórbætt afkomu búa sinna. Fasteignakostnað á vetrarfóðraða kind má lækka úr um 2.300 kr. á ári í um 550 kr. Til við- bótar má enn spara í þeim lið með því að gefa fénu heilar rúllur í gjafagrindur. Vinnu við fóðrun sauðQár má stytta um tvo þriðju þess tíma sem hefð- bundið er. Rafgirðingar kosta innan við helming þess sem hefðbundnar girðingar kosta. Með samnýtingu rúllu- og pökkunarvéla er hægt að lækka framleiðslu- kostnað á hvern rúllu- bagga um hundruð króna, auk þess sem hægt er að lækka veru- lega kostnað vegna heimakstiu's með sam- nýtingu tækja. Þrír Hvanneyringar tóku saman nokkur at- riði um sauðfjárbúskap fyrir ráðunauta- fund 1997, þeir Grétar Einarsson og Gísli Sverrisson hjá bútæknideild Rann- sóknarstofnunar landbúnaðarins og Bjarni Guðmundsson hjá búvísindadeild Bændaskólans á Hvanneyri. Pættirnir sem þeir tóku fyrir voru fjárhirðing og heyöflun, vinna, vélar, útihús og kostn- aður. Niðurstöður þeirra eru mjög at- hyglisverðar og í raun sláandi. Hér verð- ur drepið á þeim helstu. Ódýrari hús Séu fjárhús byggð með hefðbundinni heygeymslu (hlöðu) og djúpri tað- geymslu er árskostnaður á kind um 2.300 krónur þó svo að styrkir fáist greiddir eins og lög kveða á um. Með grunnum taðgeymslum lækkar kostnað- urinn í um 2.000 krónur á ári og í um 1.600 með taðgólfi. Þessar tölur hækka verulega sé gert ráð fyrir að lán séu á 6% vöxtum. Reynslan hefur sýnt að rúllubagga þarf ekki að geyma innan dyra. Séu húsin byggð með stálgrind sem burðarvirki (ekki uppsteypt) og ekki gert ráð fyrir hlöðu auk þess að beitt verði nýrri gjafatækni, þ.e. að rúllurnar séu gefnar í heilu lagi verður kostnaður- inn um 550 krónur á vetrarfóðraða kind á ári, eða um fjórðungur þess sem hann annars væri. Séu húsin með vélgengum kjallara er kostnaðurinn áætlaður um 880 krónur á kind. Spara má um 1.420 krónur á vetrarfóðraða kind með breyttum hús- byggingum. Þremenn- ingarnir setja reyndar ákveðna fyrirvara um taðhús. Ný gjafatækni Með því að gefa heyrúll- ur í heilu lagi í sérsmíð- aðar gjafagrindur spar- ast veruleg vinna sem annars fer í að bera heyið fram á jöturnar. Sömuleiðis sparast verulegt gólfpláss (allt að 15-20%) þar sem jöt- urnar verða óþarfar. Kostnaðarlækkunin á kind er áætluð 200-400 krónur á ári. Nánar er fjallað um þessa breyttu gjafatækni annars stað- ar í landbúnaðarblaði Dags-Tímans. Útmokstur Það segir sig sjálft að sé ekki kostur á að koma vélum við að moka út úr fjárhús- um verður útmoksturinn mjög vinnu- frekur. Á 400 kinda búi eru það um 13 dagsverk að moka út með handafli. Úr vélfærum taðkjöllurum eru það hins veg- ar um 1,9 dagsverk og úr grunnum, vél- færum kjöllurum um 3,8 dagsverk. Útmokstur úr taðhúsum, opnanlegum á stöfnum er um 3,4 dagsverk. Á seinni árum hafa verið byggð hús með um 2 m djúpum áburðargeymslum sem eru lok- aðar á öllum hliðum. Taðið er þá bland- að vatni með mykjudælum, svonefndum skádælum. Aðeins þarf lúgur ofarlega á veggjum til að koma þeim við, bæði til blöndunar og dælingar upp í tank. Þess- ar geymslur verða mun ódýrari í bygg- ingu þar sem ekki þarf dyrabúnað til að koma vélum inn. Umhverfi húsanna get- ur þá einnig verið á sömu hæð sem er Á 400 kinda biii eru það um 13 dagsverk að moka lít með handafli. Ur vélfcerum taðkjöllurum eru það hins vegar um 1,9 dagsverk og úr grunnum, vélfcertim kjöllurum um 3,8 dagsverk. Guðmundur Hallgrímsson, bústjóri á Hvanneyri, með nýborið lamb í höndunum. kostur vegna umferðar, fjárhags o.fl. Þá er einnig kostur að unnt er að nota sömu tækni og notuð er í fjósum, bæði við losun húsanna og útakstur ekki síst ef unnt er að koma við samrekstri á tækjunum. Sauðburður Vinna við sauðburð er mjög breytileg frá einum bæ tif annars, þó um sömu húsa- gerðir sé að ræða. Þremenningarnir benda á að vinnumagn og hagræðingar- þættir í sauðburði virðist bundnir ein- staklingum fremur en tilteknu innra skipulagi húsanna. „í grófum dráttum má segja að án skipulegrar aðstöðu mældist vinnan oft um 4-5 mín. á dag á vetrarfóðraða kind, um 2-3 mín. þar sem skipulagðri aðstöðu var komið upp og um 1,5-2 mín. þar sem sauðburði er seinkað og ærnar látnar bera mikið til úti.“ Girðingar Áætlað er að árlega séu settir upp um 500 km af nýjum girðingum. Hefðbundin net- og gaddavírsgirðing kostaði um 315 þús. kr. á kílómetra á síðasta ári. Raf- girðing sem við flestar aðstæður hefur sambærilegt vörslugildi kostar um 160 þús. krónur á kílómeter. Heildarsparn- HORFT TIL VEÐURS Sauðfj árbúskapui’ á barmi byltingar? Olgeir Helgi Ragnarsson skrifar Það er í raun full ástæða til að spyrja þeirrar spurningar hvort sauð- fjárþúskapur í landinu sé á barmi byltingar. í landbúnað- arblaði Dags-Tímans í dag koma fram mjög athyglisverð- ar upplýsingar um möguleika á gífurlegum sparnaði við sauðfjárbúskap. Þessar upp- lýsingar koma bæði frá rann- sóknarstofnunum landbúnað- arins á Hvanneyri og Jóhann- esi Sveinbjörnssyni, sem er að ljúka mastersritgerð við land- búnaðarháskólann í Uppsala í Svíþjóð. Hér er ekki aðeins verið að tala um prósentubrot í sparn- aði, heldur upphæðir sem hlaupa á hundruðum þúsunda á ársgrundvelli, hátt í sjötíu prósent vinnusparnað við , vetrarfóðrun og yfir 1.400 króna sparnað á hverja vetr- arfóðraða kind með breyttum húsbyggingum. Á 300 kinda búi þýðir það um 420 þúsund krónum meira í vasa bóndans á ársgrundvelli fyrir utan vinnusparnaðinn. Nú er tæpur áratugur síðan heyrúllutækni við heyskap hóf innreið sína í einhverjum mæli. Þrátt fyrir þá breytingu sem það hefur þýtt við hey- Eftir mögur ár hafa komið magrari ár að undanförnu, en nú sjá sauðfjár- bcendur e.t.v. fram á möguleika til að auka tekjurnar af búum sínum með þvt að lcekka tilkostnað. skap og aukið öryggi við hey- verkun hefur breytingin á vetrarfóðrun samfara rúllu- byltingunni orðið lítil sem enginn. Algengast er að menn ýmist beri heyið á sjálfum sér fram jöturnar eins og gert hefur verið frá ómunatíð eða aki því í vögnum. Heyrúllur hafa menn ekki gefið í heilu lagi nema helst úti við á vorin. Nú hafa hins vegar verið í gangi tilraunir á Hvanneyri með að gefa heilar heyrúllur við vetrarfórðun sauðfjár. Það hefur komið í ljós að það er vel mögulegt og aðferðin hef- ur verið þróuð þannig að slæðingur er orðinn sáralítill, en hann er þáttur sem menn hafa sérstaklega sett fyrir sig í þessu sambandi. Sömuleiðis er í blaðinu í dag bent á sam- nýtingu tækja sem möguleika á verulegum sparnaði fyrir bændur. Sá möguleiki er einnig tilkominn vegna rúllu- tækninnar og öryggisins sem hún skapar við heyverkun. Ef til vill stendur sauðfjár- búskapur í landinu nú á barmi byltingar. Eftir mögur ár hafa komið magrari ár að undanförnu, en nú sjá sauð- fjárbændur e.t.v. fram á möguleika til að auka tekjurn- ar af búum sínum með því að lækka tilkostnað og ekki síður með því að styttri vinnutími við vetrarfóðrun gefur aukna möguleika á því að sinna öðr- um verkefnum sem gætu gefið tekjur. Betur væri að rétt reyndist.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.