Dagur - Tíminn Reykjavík - 08.05.1997, Side 9
JDggiarÆmnwirt
Eimmtudagur 8. maí 1997 - 21
LANDBUNAÐUR I LANDINU
aðurinn við notkun rafgirðinga yrði því
um 77 og hálf milljón króna á ári.
Samnýting tækja
Með samnýtingu tækja eins og rúllu-
bindivéla og pökkunarvéla má lækka
verulega framleiðslu-
kostnað rúllubagganna.
Áætlað er að sé rúllu-
bindivél og pökkunarvél
notuð til framleiðslu
500 rúllubagga á ári
kosti um 1028 krónur
að framleiða hvern
bagga, en sé framleiðsla
með sömu tækjum orðin
2.000 baggar á ári er
kostnaðurinn á hvern
bagga kominn niður í
704 krónur.
Framleiðslukostnaður
sauðfó vegur mun þyngra en heygæða
krafan. „Munar þar mestu um að fjár-
stofninn er fóðraður til góðs viðhalds
Spara md um
1.420 krónur d
vetrarfóðraða kind
með breyttum
búsbyggingum.
fóðurs fyrir
lengst af vetrar. Kjörtímaáhrif sláttar
eru því mun daufari en t.d. við mjólkur-
framleiðslu. Þetta þýðir að fleiri hey-
skapardagar standa sauðljárbændum til
boða en kúabændum. Afkastakrafa til
heyvinnuvéla er því að sama skapi
minni,“ segja þremenn-
ingarnir í riti sínu. Og
ennfremur: „Með vilja
og góðu skipulagi á því
að vera hægt að komast
yfir mikinn heyskap
með öflugu vélgengi,
eins og áralöng reynsla,
m.a. úr Andakilshreppi,
sýnir (Guðjón Egilsson
og Lárus G. Birgisson,
1992). Hliðstæðri sam-
vinnu er einnig unnt að
beita við losun, flutning
og dreiflngu á skít/taði undan fénu. Til
þess að geta nýtt kosti þeirrar tækni sem
nú býðst til búverka með hagkvæmum
hætti er það frumskilyrði að dreifa fjár-
festingarkostnaðinum á sem flestar ein-
ingar framleiðsiunnar (kg þurrefnis, kg
búfjáráburöar o.s.frv.).“ Þeir benda rétti-
lega á að það sé fjármagnskostnaðurinn
eða vextirnir sem knýi á
um góða nýtingu fjár-
festinganna. „Vextirnir
hafa líka þau áhrif að
meiru má kosta til að
komast af með minni
fjárfestingar. Ýmsar
kröfur og viðmiðanir
sem urðu til á dögum
neikvæðra eða mjög
lágra vaxta þarfnast nú
fordómalausrar end-
urskoðunar."
Þeir benda á nauðsyn
þess að ígrunda vel íjár-
festingar í tækjum:
„Mikilvægt atriði hagkvæmrar vélvæð-
ingar er það hvernig dráttarvélarnar
nýtast (Witney, 1988). þær vega jafnan
hvað þyngst í vélareikningi búanna en
ætla má að dráttarvélar nemi um það bil
helmingi verðmætis búvélakaupa (Pétur
Jónsson, 1993; Upplýsinga þjónusta
landbúnaðarins, 1996). Kostgæfni við
mat á dráttarvélaþörf
búanna og dráttarvéla-
kaup er því líkleg til
þess að skila sér í efna-
legri afkomu búanna."
Ef til vill hafa sauðijár-
bændur möguleika á að
lækka framleiðslukostn-
að sinn og auka með því
tekjur sínar af búunum.
Miðað við þær upplýs-
ingar sem fram koma í
ágripi þremenninganna
er það sannarlega um-
hugsunarefni að ekki
skuli meiri gaumur hafa
verið gefinn að sparnaði og betri nýtingu
fjárfestingar í sauðijárbúskap en raun
ber vitni.
-ohr
Heildarsparnaður-
inn við notkun
rafgirðinga
eingöngu yrði þvt
um 77,5 milljónir
króna d dri.
Búvéladekk,
vinnuvéladekk
sælliance
TIRE COMRANY (19 92) LTD.
Góð dekk á góðu verði
Við tökutn mikið magn
beintfráframleiðanda sem
tryggir hagstætt verð.
Sendum hvert á Iand sem er.
DEKKJA
HÖLLIY
Akureyri • Sími 462 3002
Ilagnr-ÍEiitmm
- besti tími dagsins!
„ Vél hinna vandlátu“
Mest selda vökvasklpta dráttarvélin
á íslandi til margra ára
VÉLARs
ÞJéNUSTAHF
JÁRNHÁLSI2,110 REYKJAVÍK, SÍMI587 6500, FAX 567 4274
Vegna hagstæðra innkaupa og
lækkandi gengis þýska marksins
getum við boðið þessar vélar á
ótrúlega hagstæðu verði.
Járnhálsi 2, pósthólf 10180,130 Reykjavík, sími 587 6500, fax 567 4274
Útibú Akureyri Óseyri 1 a, sími 461 4040, fax 461 4044