Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.05.1997, Qupperneq 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.05.1997, Qupperneq 1
Reykjavík Alfa Laval BORGARTÚNI 31 * SÍMI 562 7222 * BRÉFASÍMI 562 1024 HELGARUTGAFA Verð í lausasölu 200 kr. iuaaur Qmnxnn , ^ Laugardagur 10. maí 1997 - 80. og 81. árgangur 86. tölublað BlaðA. Fréttir og þjóðmál Alþingi Fiskistofa Sjálfráða 18 ára Samstaða er um það í alls- herjarnefnd Alþingis að leggja til að sjálfræðisaldur ungmenna verði hækkaður úr 16 árum í 18. „Þróunin hefur verið í þessa átt og þjóðfélagið er farið að kalla á þetta. Þetta er svona í okkar nágrannalönd- um og einnig í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna," segir Valgerður Sverrisdóttir, þing- flokksformaður Framsóknar- flokksins og varaformaður alls- herjarnefndar. „Þótt við getum verið með sérstöðu á ýmsum sviðum, þá flnnst mér ekki ástæða til þess í þessu máli.“ Nefnd sem dómsmálaráð- herra fól að endurskoða lög- ræðislögin tók ekki afstöðu til þess hvort rétt væri að hækka aldursmörkin, en í frumvarpi dómsmálaráðherra var gert ráð fyrir að þau yrðu óbreytt. Fiskistofa vill fá bankaleyndina burt Fiskistofa hefur kært Landsbankann fyrir að neita að láta sig fá skjöl um ákveðin viðskipti með fisk. Málið var tekið fyrir í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær. Fiski- stofa óskaði fyrir nokkru eftir skjölum frá Landsbankanum varðandi aðila í fiskvinnslu, sem Fiskistofa var að bak- reikna, eins og það er kallað. Það er gert þannig að bornar eru saman afurðirnar sem framleiddar eru og hráefnisinn- kaupin, ef gögnin eru til staðar. Bakreikningar af þessu tagi eru snar þáttur í eftirliti Fiskistofu. Þórður Ásgeirsson, Fiskistofu- stjóri, segir að stofnunin hafi vilj- að fá upplýsingar um viðskipti tiltek- innar fiskvinnslu við bankann sem gætu varpað frek- ara ljósi á bak- reikningana. Bankinn neitaði Fiskistofu um upp- lýsingarnar og bar við bankaleynd, en það sættir stofnunin sig ekki við. Þetta er í fyrsta sinn sem Fiskistofa fer dómstólaleiðina til þess að fá upplýsingar frá bankastofnun sem ber við Þórður Ásgeirsson Fiskistofustjóri „Fyrsta skipti sem Fiskistofa fer dóm- stólaleiðina til að fá upplýsingarfrá bankastofnun um fiskverkanda, “ bankaleynd. Bankinn hefur samþykkt að afhenda tiltekin gögn í málinu, en ágreiningur er um gögn til viðbótar þeim. „Við höfum lent í vandræð- um með að fá upplýsingar frá vinnsluleyfishöfum, en ástæða þess er oftast sú að bókhaldið hefur ekki verið nógu gott, þar er ekki að finna þá skráningu, sem á að vera fyrir hendi lögum samkvæmt. Sala á afurðum á sér stað gegnum banka og þar fá flestir fiskverkendur afurða- lán út á birgðir og fleira. Bank- ar liggja því oft með gögn til samanburðar sem varpað geta ljósi á hvað var verið að fram- leiða og hvað mikið af hverri tegund," sagði Þórður Ásgeirs- son, Fiskistofustjóri. GG Þjóðhagsstofnun Spörum ekkinóg Tyjóðhagslegur sparnaður er Jrminni um þessar mundir en æskilegt getur talist, að því er fram kemur í Hagvísum Þjóð- hagsstofnunar. Reiknað er með að hann verði 15,3% af lands- framleiðslu á þessu ári og áætl- anir gera ráð fyrir að hann fari heldur lækkandi á næstu 2 ár- um. Þetta er töluvert minni sparnaður en undanfarin ár og minni en að meðaltali í OECD ríkjum. Þar er þjóðhagslegur sparnaður að jafnaði um 20% af landsframleiðslu. Ástir gœsa hjá Hrafni Fuglalífið í Laugarnesi er að taka við sér þessa dag- ana, Hjá Hrafni Gunnlaugs- syni, sem elur gœsir og endur í garði sínum, hefur þessi villigœs fundið hina einu sönnu ást lífs síns. Sú ást er endurgoldin af ali- gœs og hefur borið ávöxt.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.