Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.05.1997, Síða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.05.1997, Síða 1
Stjórnmál Reykjavík Fréttir og þjóðmál B er betra Við kjósum það almennt frekar að boðið sé fram í nafni flokksins, en við höfum ekki gert það að neinu skilyrði," segir Halldór Ásgrúnsson, for- maður Framsóknarflokksins, aðspurður um afstöðu til sam- eiginlegra framboða flokka í sveitarstjómum. „Framsóknar- flokkurinn hefur tekið þátt í sameiginlegum framboðum í sveitarstjórnum víða um land. Yfirstjórn flokksins hefur ekki haft nein afskipti af því. Okkar fulltrúum í viðkomandi sveitar- félögum hefur verið það í sjálfs- vald sett að standa að slíku. í þessum sveitarfélögum er um að ræða fólk, sem á auðvelt með að koma sér saman um málefni viðkomandi sveitarfé- lags og ekkert því til fyrirstöðu að ná málefnalegri samstöðu. Það á hins vegar allt annað við í landsmálunum. Enda tek ég eftir því þegar A-flokkarnir koma saman til að ræða málin, þá kjósa þeir að ræða það sem er full samstaða um meðal flokkanna, en ágreiningurinn er ekki síst á sviði utanríkis- og auðlindamála. Þar eiga þessir flokkar tiltölulega litla sam- leið.“ -vj Stóll Ara lögmanns, sonar Jóns Arasonar biskups, er loksins kominn heim eftir meira en 150 ára fjarveru, en reyndar aðeins tímabundið. Danska Þjóð- minjasafnið lánaði hann á sýningu á norsk-íslenskri miðalda kirkjulist sem opnuð verður í Þjóðminjasafninu á laugadag. Safnið á sjálft stól, sem systir Ara, Þórunn Jónsdóttir, átti. Stólarnir eru báðir úr Grundarkirkju í Eyjafirði og skiluðu Danir öðrum 1930. Á sýningunni verða ýmsir kirkjumunir frá Nor- egi og íslandi og er tilgangurinn sá að sýna hvað sé líkt og hvað ólíkt í kirkjulist þessara frændþjóða. MyndiE.ói. Lestrarkennsla Bömin standa sig betur! 9 ára börn mun betri í lestri nú en fyrir fimm árum. Kennur- um að þakka? Góðar fréttir berast af betra læsi íslenskra níu ára krakka og nú er beðið eftir niðurstöðu könnunar á læsi 14 ára ungmenna. Niðurstöður eru rétt að birtast, og samkvæmt fyrstu fréttum eru ungir íslend- ingar á uppleið í lestri. íslensk lestrarrannsókn fór fram í fyrra. Rós í hnappagatið „Ef allt gengur eftir, þá er þetta sannarlega rós í hnappagatið fyrir keimarastéttina," segir Guðmundur B. Kristmundsson, dósent við Kennaraháskóla ís- lands. Hann hefur ásamt Þóru Krist- insdóttur, dósent við sama skóla, unnið í tæpt ár að samanburði á læsi barna. Niðurstaðan virðist lofa góðu. Guðmundur sagðist ekki vita til að samanburður sem þessi hefði verið gerður meðal ann- arra þjóða, enda víðast óhægt um vik. Erlendir skólamenn sýndu áhuga og hringdu til að forvitnast mn framvindu mála hér á landi. 9 ára í framför „Við erum að bera saman læsi úrtaks 1.300 nemenda, 650 níu ára og jafnmargra 14 ára. Við berum saman hvað í rauninni hefur breyst í læsi á 5 árum. „Það eru sterkar vísbending- ar í þá átt að 9 ára börnunum núna hafi farið nokkuð fram. Þetta er greinileg framför frá því 1991. Þá voru íslensku krakk- arnir í 8. sæti af 32 þjóðum í al- Inga Lára Gísladóttir, Akureyrarsnót. lesturinn. þjóðlegri könnun og þó vorum við skammaðir fyrir slælegan ár- angur. Þá var könnunin á lands- vísu, um 4 þúsund börn,“ sagði Guðmundur og sagði að ísland hefði verið svo lítið að minna Börnin standa sig betur nú við Mynd: GS hefði ekki dugað ekki í alþjóð- legum samanburði. Áhugasamir kennarar Áhugi á læsi eftir rannsóknina árið 1991 hefur verið gríðarleg- ur, meðal foreldra og ekki síst kennara. „Við höfum verið með þó nokkur námskeið fyrir kennara, haft þetta 30 pláss, en kannski 150 umsóknir. Og áhuginn er þvílíkur hjá kennurum að með ólíkindum er. En þarna voru löng námskeið og mikið pælt í kenningum og aðferðum. Einnig höfum við verið með mörg nám- skeið um mat á lestri og hundr- uð kennara sótt þau.“ Dagblöðin skipta máli „Þrír þættir varðandi lestur skipta miklu máh: heimiUð, dag- blöð og bækur. Það kom fram reikningslegt samband miUi blaðalesturs og gengis í lestri barnanna. Nú spyrja menn hvort það séu ekki bara krakkarnir sem eru vel staddir sem Uta í blöðin. Við vitum ekki svarið við því, en þarna er þó samband á milh," sagði Guðmundur. -JBP

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.