Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.05.1997, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.05.1997, Blaðsíða 1
Fréttir og þjóðmál Síldin Skagafjörður Þriðjungur kvótans þegar veiddur Mikil sfldveiði hefur verið á sfldarmiðunum í færeysku lögsögunni eftir að veðrið skán- aði aðfaranótt miðvikudags og voru um 14 bátar á landleið í gær, margir með fullfermi. Búið er að veiða um 73 þúsund tonn af 233 þúsund tonna heildar- kvóta, en veitt er úr sameiginleg- um potti sem kunnugt er. Sfldin veiðist nú nokkuð sunnar en ver- ið hefur, sem eykur möguieikana á því að hún fari suður fyrir köldu tunguna austur af landinu og verði þá mun nær landi þegar hún heldur norður með því, bæði stærri og feitari. GG Árekstrar á meðferðarheimili Ingvar Guðnason, sálfræðingur, og Anna Hlín Bjarnadóttir, forstöðu- maður meðferðarheimilisins að Bakkaflöt í Skagafirði, eru í einka- viðtali við Dag-Tímann í dag. Tvö alvarleg strok og ofbeldi 14-15 ára ungmenna gagnvart starfsmanni hafa truflað heimilisfriðinn á Bakkaflöt. Mynd GS Möðruvellir ; Reykjavík Feraiingarbörnin bitbein presta Presturinn á Möðru- vöilum vill ferma. Foreldrar segja nei. Djúpstæður ágreiningur hefur risið í Mööruvalla- prestakalli um það hvaða prestur eigi að ferma þau sex börn í sókninni sem staðfesta eiga skírnarheit sitt á annan dag hvítasunnu. Sóknarprestur- inn, sr. Torfi Stefánsson Hjalta- h'n, hefur verið í doktorsnámi í Svíþjóð í vetur en tók við brauð- inu 1. maí sl. Sr. Hulda Hrönn Helgadóttir, sóknarprestur Hrís- eyinga, hefur leyst sr. Torfa af í vetur og þar með tekið væntan- leg fermingarbörn til spurninga. Þegar sr. Torfi tók aftur við krafðist hann þess að ferma börnin, en það sætta for- eldrar ferming- arbarnanna sig ekki við. Einn sóknarnefndar- manna segist álíta það eðlilegt að sr. Hulda Hrönn fermi börnin og sú skoðun eigi mikinn hljómgrunn innan sóknarnefndarinnar, hafi ekki verið rætt hennar. nokkrum misserum þar sem lýst var andstöðu við prestinn og biskup íslands beðinn að hlutast Baldur Kristjánsson biskupsritari „Engin dœmi um mál af þessu tagl Alltaf samkomulag milli prestanna um það hvernig að ferming- unni skuli staðið. “ þó málið á fundum Undirskriftalistar voru látnir ganga um sveitina fyrir til um að hann yrði settur af. Sóknarpresturinn hefur einnig verið víttur af siðanefnd presta og í lok júnímánaðar 1996 neit- aði hann brúðhjónum um afnot af kirkjunni. Baldur Kristjánsson, biskups- ritari, segir að Ólafur Skúlason, biskup, sé að skoða hvernig leiða megi málið friðsamlega til lykta. „Sr. Hulda Hrönn hefur séð um fermingarundirbúning- inn og þar stendur hnífurinn í kúnni. Það hefur ekkert annað komið upp á borðið í þessu máh en að börnin verði fermd í Möðruvallakirkju á annan í hvítasunnu, spurningin sem svara þarf er, hvaða prestur geri það. Það eru engin dæmi um máU af þessu tagi. Það hef- ur alltaf orðið samkomulag milli prestanna um það hvernig að fermingunni skuli staðið.“ GG Lést eftir líkamsárás Héraðsdómur Reykjavíkur úr- skurðaði í gær tvo menn í gæsluvarðhald til 4. júní, vegna meintrar líkmsárásar þeirra á veitingastaðnum Vegas í Reykja- vík, aðfaranótt þriðjudags. Þar réðust þeir á ungan mann og veittu honum höfuðáverka, með þeim afleiðingum að hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur í fyrri- nótt. Hinn látni hét Sigurður Sigurmundsson, 26 ára sjómað- ur á Eyrarbakka. Lögregla handtók á þriðjudag þrjá menn sem grunaðir eru um árás þessa og sem fyrr segir voru tveir þeirra dæmdir í gæsluvarðhald síðdegis í gær. Þá hafði Héraðsdómur enn ekki tekið afstöðu til gæsluvarðhalds- óskar RLR yfir þriðja manninum. Einn þessara þriggja manna hefur margoft komið við sögu lögreglu vegna ýmiskonar of- beldis- og fíkniefnamála. Hinir tveir eru ekki heldur lögreglu- mönnum með öllu ókunnir. -sbs. Lífið í landinu Blaðauki Skóg- rækt WILO ÍKWff > NeysluvQtnsdælur SINDRI -sterkur í verki

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.