Dagur - Tíminn Reykjavík - 16.05.1997, Blaðsíða 7
Óst fjirt.no
ÍOagur-^ttfom
Föstíidagur 'T6. maí 1997 - 7
E R L MNDAR F íi E T T I R
Bandaríkin
Mynd: AFP
Á leið út í geiminn
Geimskutlan Atlantis skýst
þarna í fagurlegum boga
upp á morgunhimininn,
en henni var skotið upp í gær-
morgun frá Kennedy geim-
ferðamiðstöðinni í Florída. Um
borð eru sjö geimfarar frá
Rússlandi, Bandaríkjunum og
Frakklandi, en skutlunni er ætl-
að að tengjast rússnesku Mír
geimstöðinni. Dvölin úti í
geimnum á að taka tíu daga
fyrir flesta áhafnarmeðlimina,
en Bandaríkjamaðurinn Micha-
el Foale verður þó eftir í Mír
stöðinni. Bandaríski geimfarinn
Jerry Linenger kemur hins veg-
ar til jarðar með flauginni í
staðinn, en hann hefur dvalist
undanfarið í geimstöðinni.
Saír
Beðið í ofvæni
Mikil eftirvænting ríkir f
borginni Lubumbashi
þar sem Kabila hefur
haft höfuðstöðvar sínar.
s
þessu sundurleita landi þar
sem stjórnmálaástandið
hefur liðið fyrir kerfis-
bundna kúgun og arðrán um
aldarskeið er erfitt að sjá hver
gæti notið raunverulegs stuðn-
ings í leiðtogahlutverkið. Hætt-
an er sú, að mati margra frétta-
skýrenda, að þar sé í raun eng-
um til að dreifa.
Sá sem dvelst í borginni Lu-
bumbashi, þar sem höfuðstöðv-
ar uppreisnarleiðtogans Laur-
ent Kabila eru, fær hins vegar
allt aðra mynd af ástandinu.
Þar blandast engum hugur um
að hann á að taka við sem leið-
togi landsins. Kabila er tví-
mælalaust maður dagsins.
Allt það er hins vegar frekar
nýtilkomið. Ekki er liðið ár frá
því að Kabila var lítt þekktur
utangarðsmaður - reiður and-
ófsmaður sem tekinn var að
reskjast og fáir hlustuðu lengur
á. En nú, sjö mánuðum eftir að
hann hóf vopnaða baráttu með
það að markmiði að koma Mo-
butu Sese Seko forseta frá völd-
um, veður hann í ráðgjöfum,
aðstoðarmönnum og áhangend-
um. Það fer einnig í vöxt að
hann fái gesti sem koma með
einkaþotum og flytja mikilvæg
boð frá erlendum ríkisstjórn-
um.
Vikum saman hefur spennan
vaxið í Lubumbashi ásamt vax-
andi trú borgarbúa á því að
völdin séu í þann veginn að
ganga í skaut Kabilas og fylgis-
manna hans. Stundum fylgir
þessari spennu óskhyggja, og
hún náði hámarki á þriðjudags-
kvöldið var þegar útvarpsstöð
uppreisnarmanna greindi frá -
sem reyndist ekki rétt - að her-
menn Kabila hefðu hertekið
Kinshasa, höfuðborg landsins.
Ibúar í Lubumbashi flykktust út
á torg til þess að fagna. Fólk
myndaði keðjur og dansaði um
göturnar hvert aftan í öðru.
Hermenn skutu úr byssum sín-
um upp í kvöldhimininn og
réðu sér ekki fyrir kæti.
Hótel Karavía í útjaðri borg-
arinnar hefur orðið miðpunktur
þeirra sem eru að spá í fram-
tíðina í saírskum stjórnmálum,
jafnt fréttamanna sem kaup-
sýslumanna, erlendra stjórnar-
erindreka og innlendra emb-
ættismanna. Þar biðu allir í of-
væni í kringum sjónvarpið á
barnum eftir því að staðfesting
kæmi á þessari frétt í CNN sjón-
varpsstöðinni, en sú bið varð
árangurslaus. Allir eru hins
vegar sannfærðir um að ekki
líði á löngu þar til opinber stað-
festing kemur á þvx' sem beðið
er eftir: að Kabila verði forseti
landsins sem þá mun heita aft-
ur Kongó.
-Washington Post
Bretland
Allt eða ekkert
Þingmenn Sinn Fein fá
ekki að nota aðstöðu
sína á þingi nema
sverja drottningu
hollustueið.
Betty Boothroyd, forseti
neðri deildar breska
þingsins, er með skýr
skilaboð handa leiðtogum Sinn
Fein, stjórnmálaarms írska lýð-
veldishersins (IRA): Þeir verða
að taka allan pakkann, eða
ekkert.
Hún beitti neitunarvaldi sínu
til þess að koma í veg fyrir að
Sinn Fein gæti opnað skrifstofu
í húsakynnum þingsins á þeirri
forsendu að þeir neiti að sverja
hollustueið við Elísabetu Breta-
drottningu, sem þeim þó ber að
gera eins og allir hinir þing-
mennirnir á nýkjörnu þingi.
Gerry Adams og Martin
McGuinness segjast ekki geta
gefið eftir, enda hafi þeir verið
kosnir á þing sem írskir þjóð-
ermssinnar með það á stefnu-
skrá sinni að Bretar fari frá
Norður-írlandi, og fulltúar
stjórnmálaarms IRA sem í þrjá
áratugi hefur barist gegn
breskum yfirráðum á Norður-
írlandi.
Adams og McGuinness höfðu
ekki í hyggju að sitja á þingi,
þrátt fyrir kosninguna, en þeir
ætluðu sér engu að síður að
nota aðstöðu sína sem kjörnir
þingmenn til þess að koma upp
skrifstofu fyrir Sinn Fein í þing-
inu. Þeir eru nú að kanna laga-
legan rétt sinn í málinu.
-Los Angeles Post
Austurríki
Páfi Mttir
Frá því Sovétríkin féllu hef-
ur Aleksí II, patríarki
níssnesku rétttrúnaðar-
kirkjunnar, ekki tekið vel í boð
Jóhannesar Páls II, páfa, um að
þeir tveir hittust að máli. Nú á
hins vegar að láta til skarar
skríða, og fundurinn verður í
Austurríki þann 19. júní næst-
komandi. Heimsóknin opnar
einnig þann möguleika að Jó-
hannes Páll páfi fari í opinbera
ferð til Rússlands, en af því get-
patríarka
ur ekki orðið nema með sam-
þykki rússnesku kirkjunnar.
Það var Bartholomeus, patr-
íarki í Konstantínópel, sem á
heiðurinn af að hafa komið á
fundinum. Þegar embættis-
menn í Vatíkaninu fréttu af því
að Bartholomeus ætti bókaðan
fund með Aleksí lögðu þeir til
að páfinn slægist í hópinn.
Barthólomeusi tókst síðan að
sannfæra Aleksí um að slá til.
-Newsweek
Styrkur vegna
sumarslátrunar
dilka
Til þess að örva sumarslátrun dilka hefur verið ákveðið
að greiða bændum sérstakt álagt vegna sumarslátr-
aðra dilka á þessu ári. Greiddar verða 1.200 kr. á
hvern innlagðan dilk í vikunni sem hefst 6. júlí nk. Sú
fjárhæð lækkar síðan vikulega um kr. 100,00 þar til
náð er 600,00 en þá lækkar greiðslan vikulega um kr.
200,00.
Framleiðsluráð landbúnaðarins greiðir álagið beint til
bænda að fengnum skýrslum sláturleyfishafa.
Nánari upplýsingar er hægt að fá í landbúnaðarráðu-
neytinu, Sölvhólsgötu 7, sími 560 9759 og hjá Fram-
leiðsluráði landbúnaðarins í Bændahöllinni, sími 563
0300.
Framkvæmdanefnd búvörusamninga.
*tv 1/ ri