Dagur - Tíminn Reykjavík - 21.05.1997, Side 1
Verð í lausasölu 150 kr.
ÍUamtr- CLLtmmn 7
^ Miðvikudagur 21. maí 1997 - 80. og 81. árgangur 92. tölublað BladA.
Fréttir og þjóðmál
Háfsfjara Akureyri
Vikartindur
skorinn
Vikartindur verður horíinn af
Háfsfjöru í haust - en nú
þegar eru menn byrjaðir að
logskera skipið. Verður unnið
við það á sólarhringsvöktum á
næstunni. Fjörur hafa verið
hreinsaðar og margt eitt félagið
aflað fjár: íþróttafélög, lions-
klúbbar, karlakórar, stúdents-
efni úr framhaldsskólum og
ýmsir fleiri. Komust færri að en
vildu.
Friðjón Guðröðarson, sýslu-
maður Rangæinga, segir að frá
því Vikartindur strandaði í
marsbyrjun hafi lögregla verið
með stöðuga gæslu á strand-
stað.
„Það hefur verið allskonar
lið á sveimi í ijörunni. En núna
höfum við ekki lengur tök á því
að vera með lögreglumenn
þarna allan sólarhringinn, við
þurfum að fara að sinna öðrum
verkefnum í héraðinu. Það er
einnig minni ástæða til þess að
vera með löggæslu þarna, þeg-
ar að staðaldri verða menn að
vinna í skipinu," segir Friðjón.
í það heila talið hafa lög-
reglumenn verið 2.200 klukku-
stundir á vakt á strandstað Vik-
artinds.
Sjá frásögn og mynd á bls.6
Mynd GS
Góðmálmar
Stórfé frá Kanada til
gullleitar á íslandi
Á annað hundrað
milljónir í áhættufé,
erlent og innlent sér-
fræðingsvit og leitað í
Mosfellsbæ og á
Reykjanesi.
Kanadískt fjármögnunar-
fyrirtæki sem sérhæfir sig
í leit að málmum leggur
fram talsvert á annað hundrað
milljónir króna í því skyni að
leita að gulli á íslandi á þessu
ári. Fyrirtækið Melmi hf. í eigu
Iðntæknistofnunar íslands og
Glóir gullið í augum leitarmanna í sumar? Tækin
eru til, sérfræðingar komnir og nú afl þeirra hluta
sem gera skal: peningar!
Kísiliðjunnar er frumkvöðull að
gullleitinni.
Hallgrímur
Jónasson, for-
stjóri Iðntækni-
stofnunar, sagði í
gærkvöld að leit
að gulli væri haf-
in að nýju. Leitað
er í Mosfellsbæ og
á Reykjanesi.
„Við erum að
leita okkur að
sérþekkingu til að
koma að þessu
máli. Það koma
að þessu aðilar
frá Ástralíu og
tveir frá Svíþjóð
sem munu vinna hérna að hluta
til,“ sagði Hallgrímur Jónasson.
Talsverð bjartsýni rfldr í gull-
málum, enda mundu erlend
fjárfestingarfýrirtæki varla verja
svo miklu fé til leitarinnar ella.
„Ef þetta gengur þokkalega í
sumar, þá má reikna með að
meira fé komi til verksins,"
sagði Hallgrímur.
Um þessar mundir eru þrír
útlendingar að vinna við gullleit-
ina og tveir íslendingar. Unnið
hefur verið takmarkað síðan í
febrúar, með hléum. Leitað hef-
ur verið á Reykjanesi, en nú
verður imnið áfram í Mosfells-
bæ. Hallgrímur sagði í gær að
leitin muni trúlega berast víðar
um landið í sumar. -JBP
Hlýindi og
heitir litir
Það er skammt stórra högga
á milli í veðurfari Norðlend-
inga. Fyrir viku var hrímköld
jörð og horfur á kuldatíð fram
eftir mánuði en veðurguðirnir
hafa sjálfstæðan vilja og út-
deildu um hvítasunnuna vor-
veðri eins og það gerist best,
hlýindum og sól. Héðinn Jónas-
son, málarameistari á Akureyri,
dró upp málningarpensilinn í
gær í Þingvallastrætinu og mál-
aði heiminn rauðan til að fagna
sumrinu. Komin er brún slikja
á ásjónur bæjarbúa og ekki
laust við að þess gæti líka á
þeim Reykvíkingum sem héldu
sig úti við um helgina. Nú fara í
hönd fimm daga vinnuvikur eft-
ir fimmtudaga og aðra frídaga.
Hún var samt ekki að spá í það
litla stúlkan á Ráðhústorginu á
Akureyri í gær sem söng mót
(heldur kaldri) gjólu, bílum og
gangandi: „BÍ BÍ BÍ BÍ - vorið
er komið víst á ný!“ BÞ
BIACK&DECKER
Handverkfæri
SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTUNI 31 * SÍMI 562 7222 • BRÉFASÍMI 562 1024