Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.05.1997, Page 1
Óiafsfjörður
Hrapaði í
klettum
Sautján ára piltur var hætt
kominn í fyrrakvöld þegar
hann hrapaði úr klettum í sjó
fram skammt frá Ólafsfirði. Tal-
ið er að það hafi orðið honum
til lífs að flóð var þegar slysið
varð, en fallið er 15-20 metrar.
Það var um kl. 20.00 í fyrra-
kvöld sem lögreglunni var
tilkynní um atvikið í Drangsgili,
um 800 metra fyrir norðan
gangamunnann, Ólafsíjarðar-
megin. Drengurinn var að tína
egg ásamt bróður sínum og
þriðja manni þegar óhappið
varð en honum tókst að komast
af sjálfsdáðum úr sjónum upp á
grjótnibbu með brotna hnéskel
og eitthvað skorinn.
Félagar hans létu lögregluna
vita og fóru hjálparsveitarmenn
á slöngubát á slysstað. Tók
nokkurn tíma að koma bátnum
af stað og var drengurinn kald-
ur þegar honum var bjargað.
Að sögn lögreglunnar í Ólafs-
firði hjálpaði til við björgunina
að kyrrt var í veðri en hefði
annars orðið að síga eftir piltin-
um.
BÞ
Fréttir og þjóömál
Reykjavík
Þungu fargi ér létt af eiginkonum íslensku fjallamannanna, sem stigu á tind Everestfjails í gærmorgun, en eru nú á leið niður fjallið eftir erfiða og hættu-
lega ferð. Mynd:Hilmar
Trúarbrögð II Geðheilbrigðismál
Búdda í Kópavogmn
Munu búddistar fá lóð við Vatnsenda?
Búddamusteri kann
að rísa á Vatnsenda
I landi Kópavogs,
en Bessastaðahrepp-
ur neitaði að leyfa
byggingu þess.
Samkvæmt heimildum
Dags-Tímans hafa yfirvöld
í Kópavogi rætt möguleika
á að leyfa byggingu musteris
búddista á Vatnsenda, eða í
Hnoðraholti.
Eins og kunnugt er hætti
sveitarstjórn Bessastaðahrepps
við að veita leyfi til musteris-
byggingar í hreppnum vegna
þess að forseti íslands og for-
sætisráðuneytið lögðu að henni
að gera það ekki.
I bréfi forsætisráðherra til
sveitarstjórnar
segir að ráðu-
neytið geri
ekki athuga-
semdir við
staðsetningu
búddahofs
hreppnum „af
trúarlegum
eða samskipta-
legum ástæð-
um.“
„Forseta-
embættið hef-
ur á hinn bóg-
inn vakið at-
hygli ráðuneytisins á sjónar-
miðum sem varða afstöðu til
þjóðhöfðingjasetursins á Bessa-
stöðum og tengsl musterisins
við þjóðhöfðingjaembætti í er-
lendu ríki,“ segir í bréfinu, en
prinsessan af Tælandi er vernd-
ari musterisins. „Er því talið
meira við hæfi að musteri þessu
verði valinn staður í öðru sveit-
arfélagi en því sem forsetasetr-
ið er þungamiðja í,“ segir að
lokum.
Kornelíus Sigmundsson for-
setaritari sagði í gær að emb-
ættið hefði ekkert um málið að
segja utan það sem kæmi fram í
bréfi forsætisráðherra.
Boltinn hjá
Kópavogsbúum
„Ég held að búddistar hafi leit-
að vítt og breitt um svæðið eftir
byggingalóð, þar á meðal til
okkar. Einhvern tíma sendu
þeir inn umsókn um lóð, en
ekkert orðið úr neinu. Ef hægt
er að finna heppilegan stað fyr-
ir þetta sé ég ekkert því til
fyrirstöðu að slík bygging komi
í bæinn. Við erum vel settir með
trúfélög hór í bæ,“ sagði Gunn-
ar Birgisson, verkfræðingur og
formaður bæjarráðs, í gær. Þar
í bæ stendur fyrir dyrum bygg-
ing musteris Baháí safnaðarins
frá ísrael, sem rísa mun á
næstu árum á Nónhæð.
Gunnar vildi ekki staðfesta
neitt um lóðaleit búddista í
Vatnsenda eða Hnoðraholti, né
heldur hver afgreiðsla bæjar-
stjórnar á slíku erindi yrði, sjálf-
ur væri hann jákvæður. -JBP
Hundruð barna
án meðferðar?
Valgerður Baldursdóttir, yfir-
læknir á barna- og unghnga-
geðdeild Landspítalans, segir að
ófremdarástand ríki í málefnum
geðfatlaðra barna hérlendis og
hún telji enga von um að úr ræt-
ist. Af þessum sökum aðallega
hafi hún sótt um ársfrí frá störf-
um. Valgerður segir hundruð
vegalausra barna í íslensku
samfélagi, aðeins sé sinnt broti
af þeim sem þuffi á hjálp að
halda. Skýringin sé m.a. skipu-
lagsleysi og þarft sé að samnýta
ráðuneyti í þessu samhengi.
Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra segir það valda
vonbrigðum að þrátt fyrir aukin
Ijárframlög til barna- og ung-
lingageðdeildarinnar, hafi ár-
angur af því starfi ekki skilað
neinu og verði orsakir þess
skoðaðar. Hún telur málefni
geðfatlaðra barna vera brýnt
úrlausnarefni, en þó þokist í
rétta átt með úrræðum ríkis-
stjórnarinnar. BÞ
- Sjá Itarúttekt um mállð bls. 6-7