Dagur - Tíminn Reykjavík - 23.05.1997, Síða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 23.05.1997, Síða 1
Jarðhræringar Fréttir og þjóðmál Akureyri „Suðurlands- skjáJfti“ á Norðurlandi Nánast sömu líkur eru á stórum Norðurlands- jarðskjálfta og Suðurlands- skjálfta á næstu árum. Petta kemur fram í fréttaviðtali við Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðing í Degi-Tímanum í dag. „Það eru nánast sömu líkur á að stór skjálfti komi við norðurströnd- ina og á Suðurlandsundirlend- inu. Tölfræðilega er eilítill mun- ur á en hann er innan skekkju- marka,“ segir Ragnar. Hann segir jarðskjálftafræð- inga hafa í þessu sambandi mestar áhyggjur af Húsavíkur- svæðinu, þ.e.a.s. svæðinu í kringum Skjálfanda. Þar sé virk sprunga og hafi síðast komið þar stór skjálfti árið 1872, vafa- laust ekki minni en 6,5 á Richt- er. Nú er verið að setja upp net jarðskjálftamæla undan Norð- urlandi, í þeim tilgangi að bæta jarðskjálftaspár. BÞ - Sjá bls. 2. Akureyringar urðu felmtri slegnir í gær þegar mikinn reyk lagði frá flugvellinum. Eflaust hefur þeim lótt þegar í Ijós kom að Skódabifreið í flugvélarlíki hafði orðið fyrir barðinu á slökkviliðsmönnum sem voru að sviðsetja bruna. Engum sögum fer af því hvernig æfingin heppnaðist. Mynar.Gs Sakamál Ekki skilyrði til endurupp- töku Geirfínnsmálsins Ragnar Hall, settur ríkis- saksóknari vegna hugs- anlegrar endurupptöku svokallaðs Geirfinns- og Guð- mundarmáls, skilaði áliti sínu í gær og kemst þar að þeirri niðurstöðu að ekki séu skil- yrði til að endurupptaka mál- ið. Rökstuðningurinn fer til Hæstaréttar og sagði Ragnar hann ekki til umfjöllunar af sinni hálfu fyrir fjölmiðlum á meðan málið væri í gangi í Hæstarétti. Ragnar Aðalsteinsson, lög- maður og réttargæslumaður Sævars Ciesielskis, útbjó ítar- lega greinargerð eftir gagna- söfnun Sævars og komst að þeirri niðurstöðu að ótvíræð skilyrði væru til endurupptöku málsins. Skilaði hann greinar- gerðinni til Ragnars Hall í febrúar og ligg- ur mikil vinna að baki áliti Ragnars Hall, að hans sögn. Hann sagðist hafa unnið sjálfstætt að álitinu, aðrir hefðu ekki komið þar að. Eftir heimildamynd Sigur- steins Mássonar, sem nýverið var sýnd í Sjónvarpinu um Geir- iinns- og Guðmundarmálið, hef- ur þrýstingur vaxið í þjóðfélag- inu um að ástæða væri til að taka málið upp fyrir dómstólum upp á nýtt. Ragnar Hall vildi ekkert um það segja. Spurður hvort ákvörðunin nú hafl verið vandasöm, sagði Ragnar: „Allar svona ákvarðanir eru byggðar á þeim gögnum sem Hggja fyrir. Þetta mál var flókið og yfirgripsmikið." Greinargerð Ragnars Aðal- Ragnar Hall, settur saksóknari í Geirfinnsmálinu. steinssonar var um 190 blaðsíð- ur en Ragnar Hall vildi ekki svara því beinlínis hvort hann teldi eitthvað nýtt hafa komið fram. „í greinargerðinni er margvíslegur rökstuðningur en ég tel hann þó ekki þess efnis að hann leiði til endurupptöku málsins." Hann sagði einnig að þrátt fyrir ofangreinda niður- stöðu væri hann ekki að leggja blessun sína yfir málsmeðferð- ina sem Sævar og ijölmargir að- ilar málsins hlutu. „Það þarf í sjálfu sér ekki að vera neitt samasemmerlsi þar á milli. Það var búið að dæma um málsmeð- ferðina á sínum tíma.“ BÞ „Margvíslegur rök- stuðningur í greinar- gerð Ragnars Aðal- steinssonar. Ég tel hann þó ekki leiða til endurupptöku.“ BUCK&DECKER Handverkfæri SINDRI í -sterkur í verki “ £ BOSGARTUNt 31 * SIMI S6Í, '25Í * BBgTAStMI SSÍ 5CÍ4

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.