Dagur - Tíminn Reykjavík - 23.05.1997, Blaðsíða 11
Jbtgur-'ðlmmm
Föstudagur 23. maí 1997 -11
mmmmm
Umsjón: Frosti Eið
GOLFSIÐAN
Atvinnumannamót
Karen komst ekki áfram
Karen Sævarsdóttir varð
að bíta í það súra epli að
komast ekki áfram á
Central Fidelity golfmótinu,
sem haldið var á London Dovms
golfvellinum í Vancouver í
Bandaríkjunum um síðustu
helgi. Karen lék fyrstu tvo
hringina á 158 höggum, - fjór-
Úr ýmsum áttum
tán höggum yflr pari vallarins
og var tveimur höggum frá því
að komast í gegn um niður-
skurðinn fyrir lokahringinn.
Petta var þriðja mót Karenar á
Futures- mótaröðinni og eins
og á hinum tveimur, vantaði
hana herslumuninn til að kom-
ast áfram eftir fyrstu tvo hring-
Karen
Sævarsdóttir.
ina. Sigur-
vegarinn í
mótinu lék
hringina
þrjá á 217
höggum, eða einu höggi yfír
pari og fékk í sinn hlut 6,450
bandaríkjadali, sem samsvarar
450 þús. ísl. krónum.
Sveiflan
Af hverju slær þessi
strákur svona langt?
■ Svo getur farið að íslendingar
sendi sveit í Dunhill Cup, en
þessi fræga liðakeppni er leikin
á St. Andrews veUinum í sept-
ember. Það eru Samtök at-
vinnumanna hér á landi sem
eru að skoða þennan kost, en
ljóst er að fyrst þyrfti liðið að
fara í úrtökumót. íslendingar
geta stillt upp sterku liði, því í
PGA-samtökunum hér á landi
eru Úlfar Jónsson, Sigurjón
Arnarsson, Birgir Leifur Haf-
þórsson og Sigurður Pétursson,
svo nokkrir séu nefndir.
■ Um fímmtíu keppendur hafa
skráð sig í Arctic Open golfmót-
ið, sem haldið verður á Akur-
eyri eftir rúman mánuð. Rúm-
lega þrjátíu þeirra eru erlendir
og búast má við um tuttugu
manna hópi frá Sun Mountain
sports, styrktaraðila mótsins.
■ Opna Black & Decker-mótið
sem fram átti að fara á golfvell-
inum í Kiðjabergi um helgina
hefur verið frestað um eina
viku. Völlurinn þarf, að mati
Kiðjabergsmanna, nokkra daga
til viðbótar, áður en haldið er
mót á honum.
■ Þegar er búið að opna inn á
sumarteiga og flatir á Ekkjufell-
svelh, 9-holu velli á Fljóts-
dalshéraði, í nágrenni Fellabæj-
ar og Egilsstaða. Austfirðingar
eru óvenju snemma á ferðinni
að þessu sinni, en þess má geta
að fyrir þremur árum opnaði
völlurinn 20. júní. Heimamenn
láta mjög vel af vellinum og
segja hann aldrei hafa komið
betur undan vetri.
■ Eyjamenn, sem yfirleitt fara
af stað manna fyrstir á vorin og
héldu fyrsta mótið í íslensku
mótaröðinni, hafa aðra sögu að
segja og eldri kylfingar í
klúbbnum muna ekki annað
eins. Mikið rigndi sl. haust og
völlurinn fór rennandi blautur
undir veturinn. Mikill sjógangur
var í tveimur suðvestan áhlaup-
um í vor og seltan hefur ekki
gert vellinum gott. Kylfingar úr
Eyjum vilja nú fá rigningu eftir
góðan þurrk í vor og þá má bú-
ast við því að völlurinn verði
fljótur að taka við sér.
■ Keilismenn hækkuðu bolta-
leiguna hjá sér, um leið og þeir
opnuðu æfingasvæðið, snemma
í þessum mánuði. Hver bolta-
fata kostar nú 250 krónur og
nemur hækkunin 50 krónum á
milli ára. Hægt er að kaupa tíu
peninga í sjálfsalann fyrir 1500
krónur, í stað þess þúsundkalls
sem menn greiddu í fyrra.
Hækkunin kemur til að miklu
leyti vegna þess hve boltarnir
skila sér illa aftur í sjálfsalann.
Að sögn stjórnarmanns hurfu
800 boltar af æfingasvæðinu sl.
sumar.
Byron Nelson golfmótið, sem
haldið var í Texas um síð-
ustu helgi, var sögulegt, því
líklega hafa aldrei verið fleiri
áhorfendur á einstöku golfmóti.
Um 50 þúsund manns keyptu sér
aðgang að mótinu alla keppnis-
dagana og 100 þúsund manns til
viðbótar keyptu eins dags
aðgöngumiða og íjöldi seldra
miða nam því um 75 þúsund, á
hvern keppnisdag, fleiri komust
einfaldlega ekki að.
Þessi mikli áhugi kemur að
sjálfsögðu til vegna Tiger Woods,
stráklingsins sem lagði golfheim-
inn að fótum sér, með sigrinum í
US masters-mótinu fyrir rúmum
mánuði síðan. Mótið í Texas um
helgina, var fyrsta mót hans síð-
an þá og kannski engin furða þó
áhuginn væri mikill. Woods brást
ekki aðdáendum sínum, hann
sigraði á mótinu, en sagðist hafa
átt í vandræðum með sveifluna
allt mótið. Hann afrekaði það þó
að slá kúlunni lengst allra, 309
jarda, eða tæplega 280 metra
(aðeins eru tekin með högg á
braut) á þröngum vellinum, sem
var um það bil sautján metrum
lengra en Phil Mickaelson. Þá
notaði Woods einnig fæstu púttin
í mótinu.
En hvernig stendur á þessari
miklu högglengd Tiger Woods.
Golfsíðan leitaði til Sigurðar Pét-
urssonar, kennara hjá Golfklúbbi
Reykjavíkur.
120° axlasnúningur
„Ég mundi ekki segja að Tiger
væri í sérflokki hvað lengd varð-
ar, en hann er hins vegar mun
beinni, heldur en þeir högg-
lengstu á mótaröðinni,“ segir Sig-
urður Pétursson. „Hann er ótrú-
lega liðugur og axlirnar á honum
fara í 120 gráður, á meðan að
hann snýr mjöðmunum í 25-30
gráður. Þessi mikli munur mynd-
ar gífuriega spennu á milli efri og
neðri hluta líkamans og það gerir
það að verkum að hann nær
þessum mikla hraða á kylfuhaus-
inn,“ segir Sigurður.
Kylfingum er kennt að snúa
mjöðmunum í 45 gráður og öxl-
unum í 90 gráður og flestir eiga
fullt í fangi með að ná þessum
snúningi. Sigurður sagði að heil-
ræði Bens Hogan í kennslubók
sinni frá því árið 1952 (Five
fundamentals of modern golf)
væru enn í fullu gildi. „Ilogan
sagði að menn ættu að snúa öxl-
unum eins mikið og þeir gætu,
svo framarlega sem þeir hreyfðu
ekki vinstra hnéð.
John Daly vakti mikla athygli
fyrir högglengd sína þegar hann
kom fram á sjónarsviðið fyrir
nokkrum árum, en Sigurður
sagði að aðferðir þessara tveggja
kylfinga væru gjörób'kar. „Daly er
með rniklu lengri sveiflu, hann
gerði það með því að yfirsveifla.
Daly var og er mjög misjafn, því
hann er með miklu flóknari
sveiflu. Tíger á hinn bóginn fer
mun styttra í aftursveiflunni, kylf-
an nær varla að verða samhliða
stöðu hans í sveiflunni og þar
sem hann fer ekki langt, þá er
hann miklu beinni,“ segir Sigurð-
ur. Hann sagði jafnframt að hann
ætti ekki von á því að árangur Ti-
gers Wood, mundi breyta neinu
um það hvernig golf yrði kennt.
Ilins vegar þyrftu bestu atvinnu-
mennirnir að finna leiðir til að
lengja sig, án þess að of mikil
skekkja kæmi í höggin.
Ferðalög
11 unglingar
til Skotlands
Ellefu unglingar á aldrinum
15-18 ára halda til Skot-
lands í tíu daga í dag á vegum
Unglinganefndar GR. Ferðin er
uppskera af söfnun ungling-
anna í vetur, en einnig var
hluta af ágóðanum á Greifa-
kvöldi varið til ferðarinnar.
Hópurinn mun verða við æf-
ingar og keppa við skoska jafn-
aldra sína og þá stendur til að
fara á fræga velli eins og St.
Andrews, Prestwick og jafnvel
Troon sem er vettvangur Opna
breska meistaramótsins í sum-
ar. Fararstjórar eru Hinrik
Hilmarsson og Þorsteinn Þor-
steinsson og Sigurður Péturs-
son, golfkennari, verður með í
för.
Ferðalög
Erlingur
besturí
Villamartin
Samvinnuferðir-Landsýn
gekkst fyrir punktamóti á
Villamartin-svæðinu á Spáni í
fyrradag. Leikið var með
punktafyrirkomulagi og urðu
úrslit þessi:
A-flokkur:
Erlingur Jónsson, GSG 32
Ólafur A. Ólafsson, NK 31
Alfreð Viktorsson, GL 30
B-flokkur:
Leifur Gíslason, NK 30
Sigurbjörn Svavarsson, GR 27
Einar Markússon, GO 26
Sprengjumót
Mótið var haldið í Campoamore
um síðustu helgi.
Kvennaflokkur:
Margrét Egilsdóttir, GR 72
Kristine E. Kristjánsd., NK 85
Erla Karlsdóttir, GL 86
Karlaflokkur:
Alfreð Viktorsson, GL 70
Jóhann Jóhannsson, GR 71
Leifur Gíslason, NK 76
Hitt & þetta
Nýratvinnu-
kylfingurí
Fljótsdalshéraði
Halldór Sævar Birgisson,
félagi í Golfklúbbi
Fljótsdalshéraðs, sem er í
nágrenni Fellabæjar og Eg-
ilsstaða, mun verða fastur
kennari hjá klúbbnum í
sumar og hefur þegar sótt
um inngöngu í Samtök at-
vinnumanna hér á landi.
Ilalldór er 26 ára gamall og
hefur haldið meistaraflokks-
forgjöf á síðustu árum.
Hann hefur áður leiðbeint í
klúbbnum, en næsta haust
stefnir hann á nám í PGA-
skólanum í Svíþjóð.
Jón Karlsson, fyrrum
kennari hjá Oddi, verður
einnig kennari á Austur-
landi í sumar. Jón verður
fastur kennari hjá klúbbun-
um á Eskifirði og Norðfirði
og mun koma víðar við í
sumar.
Mikið fuglavarp
á Nesvellinum
/Svenju mikið fuglavarp
v/hefur verið á Nesvellin-
um síðustu daga og eru kylf-
ingar á vellinum þó ýmsu
vanir. Fuglar eru fastheldnir
á hreiðurstaði og eins og
vanalega er sandglompan,
hægra megin við 1. braut-
ina, úr leik. Tjaldur er búinn
að koma eggjum sínum fyrir
þar og æðarkolla hefur
„hreiðrað“ um sig á 1.
brautinni. Þá eru að
minnsta kosti tvö gæsa-
hreiður á vellinum, en
hrossagaukurinn tekur
íþróttina alvarlega og hefur
komið sér fyrir við æfinga-
svæðið. Krían, einkennisfugl
Nesklúbbsins, er lúns vegar
ekki farin að verpa ennþá
en þess er að vænta á næstu
dögum. Þegar það gerist er
betra fyrir kylfinga klúbbs-
ins að liitta
brautirnar úr
upphafshöggun-
um. Annars er
hætt við að þeir
fái lítinn frið í
innáhöggun-
A.
um.
Landsýn
IH It MM • I rn nn • líM 1U !<M MM14 • l US1111 • ttM W1»
UkK 11 • I. «1 i* ■ MnWl rn NnMC Mnft 1 • I Ol U» • 11*« Ul 1111
kmrtlHÉMl *1 U!im • mMkl Itt MMrMMB*mi lin •M*«I!H!
Ilttitt ■MMUI»lttiai-IMlKltt!>lÉttMili—HMtt
Samvinnuterðir - Landóýn
hehur um langt drabil boðið
gtœóilegar golMerðir um heim
allan. Við ikipuleggjum
golhherðir til Spdnar og
Mallorca og sameinum jahnvel
golh og siglingu! Allir harþegar
okkar i gothherðum geta gengið
í golhherðaklúbbinn sem veitir
þdtttökurétt d hið vinsœla
Sprengjumót d Hellu sem
haldið verður 4. dgúst.
Samvinnuferúir