Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.05.1997, Síða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.05.1997, Síða 1
Fréttir og þjóðmál Hamrahlíð Reykjavík 8% í dag- legri neyslu? Ný könnun, unnin í félags- fræðiáfanga við Mennta- skólann í Hamrahlíð undir stjórn Bjarnar Bergssonar fé- lagsfræðikennara, leiðir í ljós að 8% nemenda eru í reglulegri neyslu ólöglegra vímuefna. í fréttatilkynningu frá rit- stjórn skólablaðs MH, segir að könnunin hafi verið gerð í kjöl- far annarrar könnunar sem birtist í afmælisriti skólablaðs MH í vetur en þar kom fram að um helmingur nemenda hafði prófað neyslu ólöglegra vímu- efna. „Þrátt fyrir harða gagn- rýni þáverandi starfandi rekt- ors, Winciear Jóhannsdóttur, á liæfi ritstjórnarmeðlima til að framkvæma slíka könnun og efasemdir um trúverðugleika niðurstaðna hennar, leiddi vís- indaleg könnun félagsfræði- deildarinnar sömu staðreyndir í ljós,“ segir í tilkynningunni. Fara aðstandendur fyrri könn- unar fram á afsökunarbeiðni frá fyrrverandi rektor um leið og þeir auglýsa eftir aðgerðum til að berjast gegn þeim vímu- gfnavanda sem augljóslega sé að finna innan skólans. BÞ Laugardalslaug hefur tekið nokkrum breytingum að undanförnu vegna undirbúnings fyrir Smáþjóðaleikana. Meðal annars hafa tjöld verið sett upp og göngubrú sem skiptir barnalaug frá aðallaug. Opið verður næstu daga en lokað á meðan á Smáþjóðaleikunum stendur. Myn&.i Hafrannsóknastofnun Tillögumar koma þægQega á óvart Guðbrandur Sigurðsson framkvæmdastjóri ÚA „Gott jyrir þá sem eru með mikinn rækju- kvóta, en verst kemur okkur þessi mikli sam- dráttur í grálúðu, “ Útgerðarmenn fagna því að Hafró leggi til stóraukinn þorsk- kvóta á næsta fiskveiðiári og eru búnir að reikna út sinn hlut. að er ánægjuefni að þorskkvótinn skuli vera aukinn og þannig sjáist árangur þeirra miklu friðunar- aðgerða sem staðið hafa yfir undanfarin ár,“ segir Gísli Svan Einarsson, útgerð- arstjóri Fiskiðjunn- ar-Skagfirðings á Sauðárkróki, um tillögur Hafrann- sóknastofnunar um aukinn þorsk- kvóta, sem kynntar voru í gær. Lagt er til að þorskkvótinn verði aukinn í 218 þúsund tonn á næsta fiskveiði ári, eða um 17 prósent. Ýsukvótinn verður óbreyttur, samkvæmt tillögum Hafró, eða 40 þúsund tonn en ufsakvótinn dregst verulega saman, úr 50 þúsund tonnum í 30 þúsund tonn. Grálúðukvót- inn minnnkar einnig x 10 þús- und tonn, en djúprækjukvótinn eykst verulega og fer í 70 þús- und tonn. „í þorskinum fáum við um 600 tonna aukningu og ég tel rétt að halda sig við þessa afla- reglu meðan stofninn er byggð- xu- upp. Á móti kemur töluverð minnkun í ufsa og grálúðu, enda höfum við hér á Sauðár- króki ekki haft upp á uppsjáv- arfiska að hlaupa. Grálúðan hefur verið að harðsótt og við höfum séð aflann þar minnka um 30% milli ára svo sá mikli niðurskurður kemur ekki á óvart,“ segir Gísli Svan. Guðbrandur Sigxrrðsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfé- lags Akureyringa, segir að það hafi komið sér þægilega á óvart hversu mikil aukning sé lögð til á úthafsrækjukvótanum. „Þetta er mjög gott fyrir þá sem eru með mikinn rækju- kvóta. ÚA fær um 800 tonna aukningu í þorski samkvæmt tillögunum en verst kemur okk- ur þessi mikli samdráttur í grá- lúðu. Ég er hins vegar sáttur við úthlutunina miðað við vinnsluna en við höfum lagt mesta áherslu á þorsk og karfa í frystihúsinu,“ sagði Guðbrand- ur Sigurðsson. GG l690919"000014l

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.